Fréttablaðið - 13.10.2011, Síða 64
13. október 2011 FIMMTUDAGUR40
Kvikmyndaleikstjórarnir
Óskar Jónasson og Ólafur
Jóhannesson vöknuðu báðir
með hnút í maganum á
mánudagsmorgun enda stór
stund fram undan, þeir eru
að frumsýna myndir sínar.
Kvikmyndirnar Borgríki og
Hetjur Valhallar: Þór verða báðar
frumsýndar í þessari viku. Þær
eiga það sameiginlegt að vera
íslenskar en þar með er líkindun-
um lokið, Borgríki er tryllir sem
fylgist með undirheimum Reykja-
víkur og baráttu lögreglunnar við
misyndismenn en Hetjur Valhall-
ar: Þór er teiknimynd fyrir alla
fjölskylduna, innblásin af nor-
rænu goðafræðinni. Borgríki var
gerð fyrir áttatíu milljónir en
Hetjur Valhallar: Þór fyrir einn
og hálfan milljarð.
Hreyfilist í draumi
Leikstjórarnir Óskar og Ólafur
viðurkenna báðir að hafa vakn-
að á mánudagsmorgun með hnút
í maganum. „Ég fór að velta því
fyrir mér hvort ég hefði drukk-
ið of mikið kaffi,“ segir Óskar en
Ólafur segist hafa verið viðbúinn
sínum. „Það er alveg sama hvort
maður fer í jóga eða ræktina,
þessi hnútur verður þarna enn þá.
Maður er bara í sjálf-gíslatöku og
vaknar og sofnar í köldum svita.“
Óskar ákveður á þessum tíma-
punkti að deila draumi sem hann
dreymdi; hann var að lesa Frétta-
blaðið og verður var við eitthvert
skrjáf fyrir framan sig. „Og ég
uppgötva að þetta er tjald og ég
stend uppi á sviði, algjörlega
óundirbúinn og ákveð að bjarga
mér með hreyfilist.“ Ólaf hefur
hins vegar ekki dreymt neitt á
þessa lund. Og kannski er það
bara fyrir bestu.
Engan kjánahroll, takk
Viðtalið hefst reyndar á því að
Ólafur Jóhannesson yfirheyr-
ir Óskar um gerð teiknimyndar
og Óskar kryfur vinnuna nán-
ast í þaula, segir teiknimynda-
gerð mikla þolinmæðisvinnu þar
sem huga verði að hverju einasta
smáatriði. „Ég veit ekki hvort
ég treysti mér til að gera þetta
aftur,“ segir Óskar og Ólafur
kinkar kolli, þetta eru tveir kvik-
myndagerðarmenn og hjörtu
þeirra slá nánast í takt.
Og það kemur berlega í ljós
þegar þeir deila með sér sögu af
fyrstu kynnum sínum af kvik-
myndagerð, þeir felldu til að
mynda báðir tár af spennu þegar
þeir voru að vinna sínar fyrstu
myndir. „Ég fór að hágráta í skól-
anum þegar kennarinn sagði mér
að breyta endi á stuttmynd. Ég
var ekki sammála honum og einn
skólafélagi minn kom að mér þar
sem ég var hágrátandi.“ Og Ólaf-
ur tekur undir þetta, fyrstu verk-
efnin hafi verið virkilega tauga-
trekkjandi. „Eina markmiðið núna
er að láta mig ekki líta út fyrir að
vera aula í stórum sal fullum af
áhorfendum, vera með allt mitt
á hreinu,“ segir Ólafur og Óskar
kinkar núna kolli, honum til sam-
þykkis. „Stór hluti af viðfangs-
efni leikstjórans er að koma í veg
fyrir kjánahroll, flestir áhorfend-
ur þekkja þennan aulahroll og það
er verkefni leikstjórans að koma
auga á hann og klippa hann út.“
Hollywood opnar augun
Umræðan fer síðan út í íslenska
kvikmyndagerð, en hún hefur
blómstrað frá því eftir hrun, til að
mynda verða tíu íslenskar kvik-
myndir frumsýndar á þessu ári.
„Þetta hefur verið gott ár en ég
held, því miður, að þetta sé síð-
asta góða árið, þetta er síðasta
pústið. Næsta ár verður ákaflega
erfitt og það eru ekkert sérstak-
lega mörg verkefni í gangi,“ segir
Ólafur en bætir því við að þetta sé
líka sagt hvert einasta ár. „Hins
vegar er núna raunveruleg hætta
á því að fagfólki fari að flytjast úr
landi,“ skýtur Óskar að.
Og þá er alltaf hægt að láta sig
dreyma um Hollywood. Óskar
leikstýrði kvikmyndinni Reykja-
vík-Rotterdam sem nú er orðin að
Contraband með Mark Wahlberg
í aðalhlutverki og Ólafur er kom-
inn á samning hjá amerískri
umboðsskrifstofu þar sem verið
er að skoða endurgerðarmögu-
leika Borgríkis. Óskar segist vera
búinn að sjá stiklu úr Contraband
og er virkilega sáttur.
„Mér fannst hún algjört æði,“
segir Óskar, en Reykjavík-Rotter-
dam er fyrsta endurgerða
íslenska kvikmyndin. „Að sjá
stikluna var flott því hún virð-
ist vera nokkuð trú upprunalegu
sögunni og þetta kitlar, vonandi
verður þetta upphafið að ein-
hverju meira.
Þetta er bara virkilega hvetj-
andi. Bandaríkin eru bara þannig
að það er erfitt að koma evrópsk-
um kvikmyndum í bíóhús þar. En
þetta er það sem þeir gera, þeir
endurgera bara myndirnar og
laga þær að sínu.“
freyrgigja@frettabladid.is
Ætlum ekki að vera aular
fyrir framan áhorfendur
HAFA BÁÐIR GRÁTIÐ Því gat oft fylgt mikil geðshræring þegar þeir Óskar og Ólafur voru að stíga sín fyrstu skref í kvikmyndagerð-
inni. Óskar segist hafa farið að hágráta þegar hann var í skóla og kennarinn var ósammála honum um endi á stuttmynd.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Það ríkir mikil frumsýningar-
gleði í kvikmyndahúsum um þess-
ar mundir og allir ættu að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Eins
og kemur fram hér til hliðar verða
tvær íslenskar kvikmyndir frum-
sýndar en auk þess verða myndir
eftir Almodóvar og Woody Allen
teknar til sýninga.
Í kvikmyndinni La piel que
habito endurnýja Spánverjarnir
Almodóvar og Antonio Banderas
gjöfult samstarf sitt, en Almodóv-
ar gerði Banderas að stórstjörnu á
sínum tíma og opnaði honum leið
inn í Ameríku. Nú snýr Banderas
aftur á fornar slóðir – enda ferill-
inn í Hollywood í sögulegu lág-
marki – og fer á kostum í hlutverki
sjúks lýtalæknis. Annar mikill
meistari frumsýnir mynd sína í
Bíó Paradís, en Woody Allen þykir
vera í góðu formi í kvikmyndinni
Midnight in Paris. Allen hefur
verið að fást við evrópskar borg-
ir í síðustu kvikmyndum sínum,
hefur heimsótt bæði London og
Barcelona en eins og nafnið gefur
til kynna er París málið núna. Með
aðalhlutverkin í myndinni fara þau
Owen Wilson, Rachel McAdams og
Kathy Bates.
Góðkunningi barnanna, Bang-
símon, verður frumsýndur í Sam-
bíóunum um helgina. Boðið verð-
ur upp á sérstakt barnabíó um
helgina en myndin verður sýnd
með lægri hljóðstyrk og þá verður
ljóstíra í salnum. Sambíóin frum-
sýna einnig dansmyndina Foot-
loose, sem er endurgerð á sam-
nefndri mynd frá árinu 1984 með
Kevin Bacon í aðalhlutverki. - fgg
Stöðugt stuð í bíó-
húsum borgarinnar
FJÖLBREYTT ÚRVAL Kvikmyndahúsa-
gestir geta farið í bíó um helgina og séð
íslenska mynd, teiknimynd, spænska
mynd og Woody Allen-mynd sem gerist
í París með forsetafrúnni Cörlu Bruni í
litlu hlutverki.
Stærstu fréttirnar í Hollywood í gær voru
án nokkurs vafa þær að Javier Bardem
myndi leika aðalskúrkinn í Bond-mynd
númer 23. Þar með er það staðfest að
framleiðendur Bond-myndanna ætla
að leggja allt í sölurnar fyrir hálfrar
aldar afmæli myndanna um leyni-
þjónustumanninn.
Bardem staðfesti orðróminn í
viðtali við fréttaþáttinn Night-
line, en spænski leikarinn fer
fyrir samtökum sem hafa
það á stefnuskrá sinni
að bjarga flóttamönn-
um frá Vestur-
Sahara og var
að kynna þau.
„Þau völdu mig til að leika og ég er mjög
spenntur. Foreldrar mínir fóru með mig á
myndirnar í æsku og ég hef séð þær allar.
Þannig að það að leika í þeim verður mjög
skemmtilegt,“ sagði Bardem en bætti því
strax við að hann gæti, eðli málsins sam-
kvæmt, ekki tjáð sig neitt frekar um hlut-
verkið.
Ráðning Bardems þykir mjög metnað-
arfull enda ekki á hverjum degi sem Ósk-
arsverðlaunahafi er fenginn til að túlka
illmennið í James Bond-mynd. Fáir efast
þó um hæfileika Spánverjans til að leika
fúlmenni enda gleymist það seint þegar
hann birtist á hvíta tjaldinu sem morðóði
og tilfinningalausi leigumorðinginn Anton
Chigurh í No Country for Old Men. - fgg
Javier Bardem gerir Bond lífið leitt
SVALUR Javier Bardem hefur verið ráðinn til
að leika illmennið í Bond-mynd númer 23.
> POPPKORNSSMELLUR
Fyrsta stiklan úr stórmyndinni Avengers er
komin á netið en þar má sjá allar helstu of-
urhetjur Marvel-myndasögufyrirtækisins
samankomnar. Stiklan lofar feykilega
góðu, en eins og Fréttablaðið greindi
frá sér Heba Þórisdóttir um förðun
Scarlett Johansson í myndinni.
bio@frettabladid.is
SÝND Í SAMB
ÍÓUNUM
SÝND Í SAMB
ÍÓUNUM
ÝND Í SAMBÍ
ÓUNUM
SÝND Í SAMB
ÍÓUNUM S
ÝND Í SAMBÍ
ÓUNU
FRÁBÆR SKE
MMTUN FYR
IR ALLA FJÖL
SKYLDUNA!