Fréttablaðið - 13.10.2011, Qupperneq 71
FIMMTUDAGUR 13. október 2011 47
SMÁRALIND OG KRINGLUNNI
KYNNING í HYGEU
Kringlan 533 4533 - Smáralind 554 3960
Kaupaukinn þinn þegar þú kaupir 2 YSL vörur*
Falleg YSL taska með nýja hreinsivatninu fyrir andlit og augu 75 ml,
Top Secrets varakremi 3 ml, YSL blýanti og mascara í ferðastærð og YSL ilmi.
Bjóðum förðun fyrir þá sem kaupa 2 eða fleiri YSL vörur.
Fimmtudag og föstudag frá kl. 13:00 – 17:30 og laugardag frá kl. 13:00 – 16:30. Tímabókanir í förðun í síma 533 4533 og 554 3960
KYNNINGARTILBOÐ
20% afsláttur
YSL maskari Singuli
er
20% afsláttur
YSL maskari Luxorio
us
Tónlist ★★★★
Adhd 2
Adhd
Framvarða-
sveitin
Hljómsveitin ADHD er skipuð
fjórum af flinkustu hljóðfæra-
leikurum Íslands, þeim Davíð Þór
Jónssyni hljómborðsleikara, Ómari
Guðjónssyni gítarleikara, Óskari
Guðjónssyni saxófónleikara og
Magnúsi Tryggvasyni trommu-
leikara. Þeir hafa allir tekið þátt í
mörgum ólíkum verkefnum og eru
jafnvígir á margar tónlistartegundir
þó að þeir komi úr djassinum.
Þegar fyrri platan ADHD leit
dagsins ljós kom það á óvart
hvað tónlistin var róleg og hamin.
Maður átti von á einhverjum
látum vegna nafnsins. Það
kraumaði samt orka og hiti undir
niðri í tónlistinni.
Á nýju plötunni, ADHD2,
heldur sveitin áfram að vinna
með svipaða hluti. Platan er mjög
vel heppnað sambland af djassi
og rokki og fer víða. Sums staðar
minnir hún á gamlan djassrokk-
bræðing (t.d. í upphafslaginu
IFE) en oftar leika þeir félagar
lausum hala á einhverjum óskil-
greindum mörkum fyrrnefndra
tónlistarstefna. Þeir sýna allir
stjörnutakta á hljóðfærin eins og
við var að búast, en auk spilalegra
tilþrifa vinna þeir skemmtilega
með áherslur og hljóðeffekta og
útkoman er lifandi og síbreytileg.
Á heildina litið er þetta fyrirtaks
plata sem ætti að höfða jafnt til
djass- og rokkáhugafólks.
Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Snillingarnir í ADHD
leika lausum hala á landamærum
rokks og djass.
Spéfuglinn Jim Carrey er í við-
ræðum um að leika í kvik-
myndinni Burt Wonderstone.
Þar myndi hann leika götutón-
listarmann í Las Vegas. Með
aðalhlutverk myndarinnar fer
annar grínisti, Steve Carell.
Þeir tveir hafa áður leikið
saman, í Bruce Almighty sem
kom út 2003. Síðasta mynd hins
49 ára Jims Carrey var Mr.
Popper´s Penguins. Þar komst
hann oft í hann krappan þegar
mörgæsirnar í myndinni voru
duglegar að bíta hann. „Ég
fékk skrámur hér og þar en það
var í góðu lagi,“ sagði Carrey.
Jim Carrey á
móti Carell
JIM CARREY Spéfuglinn leikur
hugsanlega á móti Steve Carell í Burt
Wonderstone.
Matt Damon mun leika ungan elsk-
huga Michaels Douglas í kvikmynd-
inni Behind the Candelabra sem
fjallar um ævi tónlistarmannsins
Liberaces. Myndin á að gefa góða
mynd af lífi þessa listamanns sem
klæddist skrautlegum búningum
uppi á sviði. Myndin mun jafnframt
fjalla um sérstakt samband Liber-
aces og Scotts Thorson.
Steven Soderbergh mun leikstýra
myndinni en framleiðandinn Jerry
Weintraub sagðist vera himinlifandi
með að hafa klófest leikarana tvo.
Liberace lést árið 1987, þá aðeins 67
ára að aldri. Hann gaf aldrei neitt
uppi um kynhneigð sína og
fór eitt sinn í mál við dag-
blað sem hélt því fram
að hann væri samkyn-
hneigður.
Damon og Douglas
leika elskendur
ELSKAR DOUGLAS Matt
Damon mun leika ungan
ástmann Michaels Douglas
í kvikmynd um tónlistar-
manninn Liberace.