Fréttablaðið - 13.10.2011, Qupperneq 72
13. október 2011 FIMMTUDAGUR48
sport@frettabladid.is
BENEDIKT GUÐMUNDSSON , fyrrum þjálfari KR, mætir með sína stráka í Þór Þorlákshöfn í DHL-höllina í kvöld
þegar fyrsta umferð Iceland Express deildar karla fer af stað. Leikur KR og Þórs hefst klukkan 19.15 en á sama tíma
mætast Grindavík og Keflavík í Grindavík og Fjölnir tekur á móti ÍR í Grafarvogi. Umferðin klárast síðan á morgun
með eftirtöldum leikjum: Tindastóll-Stjarnan, Valur-Njarðvík og Haukar-Snæfell.
KÖRFUBOLTI Karlalið KR mun
frumsýna nýjan og endurbætt-
an búning í kvöld er liðið tekur
á móti sínum gamla þjálfara,
Benedikt Guðmundssyni, og læri-
sveinum hans í Þór Þorlákshöfn.
Breytingarnar koma þó ekki af
góðu einu því aðalstjórn KR fór
meðal annars fram á breytingar.
Aðalstjórninni hugnaðist ekki
að körfuknattleiksdeildin hefði
sett númer leikmanna inn í merki
félagsins. Númerin hafa verið
fjarlægð úr merkinu og færð yfir
á hitt brjóstið. Svo hafa verið
gerðar breytingar á buxunum.
„Mönnum fannst guli litur-
inn í buxunum minna of mikið á
Skagann. Þess vegna verðum við
í alhvítum stuttbuxum á heima-
velli og svörtum á útivelli,“ sagði
Böðvar Guðjónsson, formaður
körfuknattleiksdeildar KR.
Umræðan um búning félagsins
hefur ekki farið fram hjá honum
enda virðast margir KR-ingar
hafa sterka skoðun á búningnum.
Flestum finnst hann hreinlega
ljótur en aðrir eru hrifnir.
„Það var kominn tími á bún-
ing sem vekti athygli og vekti
spurningar. Af hverju eigum við
að vera í meðalmennskunni þar
sem enginn tekur eftir nýju bún-
ingunum?“ sagði Böðvar brattur.
„Ég veit að rendurnar eru líka
umdeildar en þeim verður ekki
breytt. Það var mikil vinna lögð
í hönnun á þessum búningi. Við
skoðuðum mikið af gömlum KR-
búningum sem og NBA-búninga.
Fundum eina treyju þar sem
Scott Skiles er ansi flottur í bún-
ingi Orlando Magic. Skiles var
flottur í teinóttu og þar kom það.
Skiles var að gefa um 15 stoð-
sendingar í leik og það er einmitt
það sem mig vantar frá mínum
leikstjórn anda,“ sagði Böðvar
kíminn, en svona mjóar rendur
hafa ekki áður sést á KR-búningi.
- hbg
Skiptar skoðanir um nýjan körfuboltabúning KR – aðalstjórn fór fram á breytingar sem sjást í leik kvöldsins:
Það var kominn tími á búning sem vekti athygli
UMDEILDUR BÚNINGUR Sitt sýnist hverjum um fegurð nýja KR-búningsins. Honum
hefur verið breytt lítillega fyrir leik kvöldsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI „Ég heillaðist af því
sem menn höfðu fram að færa og
þeim metnaði sem ríkir hérna.
Þess vegna samdi ég við Leikni,“
sagði Willum Þór Þórsson, sem
í gær skrifaði undir tveggja ára
samning við 1. deildarlið Leiknis.
Koma Willums í Breiðholtið
vekur óneitanlega athygli enda
er hann einn sigursælasti þjálfari
landsins. Willum hefur verið að
keppa um og vinna Íslandsmeist-
aratitla og var sterklega orðaður
við landsliðsþjálfarastarfið áður
en KSÍ hóf viðræður við Lars
Lagerbäck. Nú er hann kominn
aftur í grunninn að byggja upp
lið, sem hann hefur gert áður með
aðdáunarverðum árangri.
„Þetta er spennandi verk-
efni. Starfið hefur verið gott hjá
félaginu og mannvirkin hér eru til
vitnis um að hér hafi menn byggt
upp félag af þrautseigju og dugn-
aði. Menn hér eru metnaðarfullir
og hafa stóra drauma,“ sagði Will-
um, en hann segir að stefnan sé
eðlilega að koma félaginu í deild
þeirra bestu á Íslandi.
„Það eru bara tvö spennandi
sæti í þessari deild og það eru
efstu sætin. Það kemur sá dagur
að Leiknir verður úrvalsdeildar-
lið ef menn halda þessari þolin-
mæði og þrautseigju áfram. Það
er gaman að stíga hér inn og
taka þátt í þessu verkefni. Auðvi-
tað viljum við komast upp strax
næsta sumar en hvort það er
raunhæft á eftir að koma í ljós,“
sagði Willum en var hann með
einhver önnur járn í eldinum?
„Það komu skilaboð og þreif-
ingar víða að en þegar ég fór að
ræða við Leikni hafði það for-
gang. Það fór síðan á þennan veg
og ég er virkilega ánægður með
það.“
Þjálfarinn sigursæli viðurkenn-
ir að hann eigi örugglega aðeins
eftir að sakna látanna úr efstu
deild, sem fær þess utan talsvert
meiri athygli en 1. deildin.
„Vissulega er úrvalsdeildin
stærri og meiri spenna. Ytri kröf-
ur eru meiri, sem og athyglin.
Kannski á ég eftir að sakna þess.
Á móti eru kostir hér. Vinnan er
samt alltaf sú sama. Ég er metn-
aðarfullur þjálfari með sterka
fagvitund. Ég hef ástríðu fyrir
starfinu og fótboltanum. Meðan
svo er vil ég vinna með góðu
fólki. Þetta er það verkefni sem
mér stóð til boða. Þeir sem vildu
fá mig sóttu það fast og mér líkaði
hugarfar þeirra.“
Leiknir rétt náði að bjarga sér
frá falli á síðustu leiktíð og því
má telja líklegt að Willum þurfi
að styrkja hópinn umtalsvert ef
hann ætlar að koma liðinu upp
í úrvalsdeild. Eru til peningar í
slíkt í Breiðholtinu?
„Miðað við núverandi mann-
skap er kannski bratt að ætla sér
upp á næsta ári. Ég mun samt
vinna þannig. Það er ekki rétt að
fullyrða um stöðu fjárhagsins. Ég
hef ekki kafað í reikninga félags-
ins. Það er samt ljóst að við þurf-
um einhverja styrkingu ef við
ætlum að eiga raunhæfan mögu-
leika á að fara upp. Hópurinn er
samt góður og það voru ótrúlegar
sveiflur á milli ára hjá Leikni.“
henry@frettabladid.is
Willum Þór ætlar að koma
Leikni upp í efstu deild
Willum Þór Þórsson skrifaði í gær undir tveggja ára samning við Leikni. Hann
segir mikinn metnað ríkja innan félagsins. Hann segir ekki spurningu um hvort
heldur hvenær Leiknir fari upp í efstu deild. Stefnan strax sett upp í úrvalsdeild.
METNAÐARFULLUR Willum segist enn hafa ástríðu fyrir fótboltanum og hann ætlar
að vinna strax að því að koma Leikni upp um deild. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Geir Þorsteinsson, for-
maður KSÍ, er vongóður um að
hægt verði að ganga frá ráðningu
Lars Lagerbäck í starf landsliðs-
þjálfara karla í næstu viku.
Geir gat ekki tjáð sig um gang
viðræðnanna að öðru leyti en að
þær gengju vel. „Ég vil yfirleitt
klára svona mál sem fyrst og
vona að við getum klárað þetta
í næstu viku,“ sagði hann við
Fréttablaðið í gær.
Sumir hafa lýst yfir áhyggj-
um yfir að of dýrt verði að ráða
erlendan þjálfara en Geir gaf
lítið fyrir það. „Við breytum engu
í rekstri KSÍ fyrir þessa ráðn-
ingu,“ bætti hann við. - esá
Ráðning Lars Lagerbäck:
Vonandi kláruð
í næstu viku
Á LEIÐ TIL ÍSLANDS Lars Lagerbäck náði
góðum árangri sem þjálfari sænska
landsliðsins. NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Spænska fótboltalands-
liðið hélt sigurgöngu sinni áfram
þegar það vann 3-1 sigur á Skot-
um í fyrrakvöld á lokakvöldi
undankeppni EM 2012. Þetta
var fjórtándi sigur Spánverja í
röð í keppnisleikjum og jöfnuðu
þeir þar með met Hollendinga og
Frakka.
Spænska landsliðið er enn
fremur búið að vinna 22 leiki
í röð í undankeppni HM eða
EM, alla leiki sína síðan liðið
heimsótti okkur Íslendinga á
Laugardalsvöllinn 8. september
2007.
Spánverjar töpuðu síðast
alvöru landsleik þegar þeir lágu
0-1 fyrir Sviss í fyrsta leik sínum
í úrslitakeppni HM í Suður-
Afríku 2010 en þá var spænska
landsliði búið að vinna tólf alvöru
leiki í röð.
Nú hafa Spánverjar gert
betur. Þeir unnu síðustu sex
leiki sína á HM og tryggðu sér
heimsmeistaratitilinn. Spænska
liðið vann síðan alla átta leiki
sína í undankeppni EM með
samanlögðu markatölunni
26-6, en í riðli með því voru
Tékkland, Skotland, Litháen og
Liechtenstein. - óój
Frábær árangur Spánverja:
Undankeppni EM 2008: 4 sigrar í síðustu 4
Úrslitakeppni EM 2008: 5 sigrar, 1 jafntefli
Undankeppni HM 2010: 10 sigrar
Úrslitakeppni HM 2010: 6 sigrar, 1 tap
Undankeppni EM 2012: 8 sigrar
Samanlagt: 33 sigrar og 1 tap í síðustu 35
leikjum í undan- og úrslitakeppnum stórmóta.
Spánverjar jöfnuðu met:
Töpuðu síðast
stigi í Laugardal
DAVID VILLA Í viðtali við spænska
sjónvarpsmenn eftir jafnteflið á
Laugardalsvellinum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI Framarar hafa ekki
byrjað betur í karlahandboltan-
um í sex ár en þeir eru með fullt
hús á toppi N1 deildar karla eftir
fyrstu þrjár umferðirnar.
Framarar mæta því fullir
sjálfstrausts á Hlíðarenda í kvöld
þar sem þeir hafa ekki unnið í
tæpa 46 mánuði eða síðan í des-
ember 2007. Valsmenn eru nefni-
lega búnir að vinna átta leiki í röð
á móti nágrönnum sínum í Voda-
fonehöllinni þar á meðal eru tveir
bikarleikir.
Valsmenn unnu Framara þrisv-
ar sinnum á Hlíðarenda í fyrra
þar af með einu marki í síðasta
deildarleiknum fyrir HM-frí og
sigur í framlengdum undanúr-
slitaleik í bikarnum.
Leikur Vals og Fram hefst
klukkan 19.30 en tveir aðrir leik-
ir fara fram í deildinni í kvöld,
Haukar-Akureyri klukkan 18.30
á Ásvöllum og HK-FH klukkan
19.30 í Digranesi. - óój
Síðustu leikir Vals og Fram
á Hlíðarenda:
17. mars 2011 deild Valur vann 32-25
13. feb. 2011 bikar Valur 33-31
16. des. 2010 deild Valur 29-28
7. des. 2009 bikar Valur 35-24
15. nóv. 2009 deild Valur 27-21
9. mars 2009 deild Valur 32-25
2. okt. 2009 deild Valur 29-21
2. maí 2008 deild Valur 37-32
16. des. 2007 deild Fram 27-25
Fram heimsækir Val í kvöld:
Ekki unnið á
Hlíðarenda í
tæpa 46 mánuði
ÆGIR HRAFN JÓNSSON Mætir sínum
gömlu félögum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KÖRFUBOLTI Helena Sverrisdóttir
hitti ekki vel þegar lið hennar
Good Angels Kosice tapaði
52-45 á móti pólska liðinu Wisla
Can-Pack í fyrsta leik sínum í
Euroleague-deildinni. Helena
var með 1 stig, 7 fráköst, 2
stolna bolta og 3 fiskaðar villur
á 25 mínútum en hún klikkaði
á öllum fimm skotum sínum
utan af velli. Helena var engu
að síður frákastahæst í liðinu
ásamt bandarísku stelpunni Erin
Lawless. -óój
Euroleague-frumraun Helenu:
Eitt stig í tapi