Fréttablaðið - 13.10.2011, Page 74
13. október 2011 FIMMTUDAGUR50
GOLF Margar áhugaverðar tillög-
ur verða lagðar fram á golfþingi
Golfsambands Íslands sem fram
fer í Garðabæ 19. nóvember næst-
komandi. Þar mun bann við notk-
un á tækjum sem mæla fjarlægð-
ir án efa vekja mesta athygli, og
er þá átt við hvers konar útbúnað
sem kylfingar nota við slíkt s.s.
sjónauka, GPS-tæki og símtæki.
Einnig er lagt til að kylfusveinar
(aðstoðarmenn) verði bannaðir í
flokki 15-18 ára.
Fjölmennur starfshópur golf-
kennara sem starfa við golfþjálfun
yngri kylfinga á Íslandi fundaði á
dögunum og eru þessar breytinga-
tillögur afrakstur af þeirri vinnu.
Skiptar skoðanir voru í starfs-
hópnum um að banna notkun á
fjarlægðamælum af öllum gerð-
um á Íslandsmótinu í höggleik,
holukeppni og Íslandsmóti félags-
liða (sveitakeppni). Þar með gætu
kylfingar ekki notað fjarlægða-
kíki eða GPS-tæki til þess að mæla
fjarlægðir á meðan keppni stend-
ur yfir. Tillagan nær yfir keppni í
öllum aldursflokkum – ekki bara
hjá börnum og unglingum.
Hlynur Geir Hjartarson, afrek-
skylfingur og golfkennari frá Sel-
fossi, var einn af þeim sem unnu
að þessum tillögum. Hann var
spurður að því hvernig hópurinn
hafi rökstutt tillögur sínar:
„Það er bannað að nota fjar-
lægðamæla til dæmis í Evrópu-
mótum landsliða, stórum áhuga-
mótum erlendis og víðar. Við
finnum fyrir því að ungir íslensk-
ir kylfingar hafa ekki þróað með
sér þann hæfileika að geta metið
fjarlægðir með öðrum aðferð-
um, til dæmis að stika völlinn
fyrir keppni. Með því að banna
þessi tæki á Íslandsmótum verða
kylfingar að hugsa leik sinn með
öðrum hætti og við teljum að þeir
verði betri til lengri tíma litið. Það
er mat flestra að yngri kylfingar
stóli of mikið á tæknina og aðstoð-
armennina,“ sagði Hlynur í gær.
Það vekur einnig athygli að lagt
er til að keppendur í flokki 15-18
ára á stigamótaröð Golfsambands-
ins verði ekki með aðstoðarmenn
með sér í keppni eða kylfusveina.
Hlynur segir að dregið hafi úr
sjálfstæðum ákvörðunum yngri
kylfinga og þeir stóli of mikið á
að fá ráðleggingar frá aðstoðar-
manninum fyrir nánast hvert ein-
asta högg. „Foreldrar eða aðstoð-
armenn eru ómissandi þáttur fyrir
golfíþróttina en þeir geta líka
tekið of mikið frá kylfingnum. Við
vitum af dæmum þar sem ungir
kylfingar þurfa varla að taka sjálf-
stæða ákvörðun um eitt né neitt.
Þeir hafa aldrei skilað skorkortun-
um sjálfir til keppnisstjórnar, hafa
jafnvel ekki séð um að skrá skorið
sjálfir. Að auki eru aðstoðarmenn
of mikið að skipta sér af til dæmis
kylfuvali í keppni. Að okkar mati
taka unglingar of sjaldan ákvörð-
un sjálf sem þeir þurfa að standa
og falla með,“ bætti Hlynur við.
Lagt er til að aðstoðarmenn
verði áfram leyfðir í öllum yngri
aldurshópunum á mótum á vegum
GSÍ og einnig í öllum flokkum á
Áskorendamótaröðinni sem er
hugsuð fyrir þá sem eru að stíga
sín fyrstu skref í golfíþróttinni.
Fjölmargar tillögur verða lagð-
ar fram frá starfshópnum. Má þar
nefna að lagt er til að nafninu á
Sveitakeppni GSÍ verði breytt í
Íslandsmót félagsliða.
seth@frettabladid.is
Ungviðið stólar of mikið á
tæknina og aðstoðarmenn
Golfþing GSÍ er fram undan. Á þinginu verður lagt til að banna tæki sem
mæla fjarlægðir í öllum aldursflokkum á Íslandsmótum. Einnig er lagt til að
kylfusveinar og aðstoðarmenn verði lagðir af í aldursflokknum 15-18 ára.
MEÐ KÍKINN Kristján Þórir Einarsson er einn fjölmargra kylfinga sem notar
lengadarmælissjónauka. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FÓTBOLTI Jóhannes Karl Guðjónsson
gerir lítið annað þessa dagana en að
mæta á æfingar hjá liði sínu, Hudd-
ersfield, í Englandi. Hann bíður þess
nú að losna frá félaginu svo hann geti
flutt aftur heim til Íslands með sinni
fjölskyldu. Langlíklegast er að hann
gangi til liðs við ÍA, uppeldisfélagið
sitt, en hann hefur einnig verið orðað-
ur við KR.„Já, ég las þetta á Fótbolti.
net,“ segir Jóhannes Karl í léttum dúr
en nafn hans birtist í slúðurpakka síð-
unnar. Hann vildi þó lítið gefa fyrir
slúðrið.
„Allar þreifingar eru á frumstigi
enda má ég ekki byrja að tala við önnur
lið fyrr en í janúar. Það eina sem ég
hef gert er að segjast vilja koma heim
og hefur ÍA sagst vilja fá mig. Ég er
Skagamaður í húð og hár og með gult
og svart hjarta. Ég vona að þetta sé allt
á réttri leið.“
Jóhannes Karl fékk þau skilaboð
í upphafi tímabilsins að hann myndi
ekkert spila á tímabilinu og æfir hann
því eingöngu með liðinu.
„Jú, það er mjög skrýtið. Þetta verð-
ur í raun eins og venjuleg vinna. Ég
mæti á æfingar en tek svo aldrei þátt í
leikjunum,“ segir hann en tekur þessu
eins og hverju öðru hundsbiti. „Þetta
er bara staðan sem er komin upp. Við í
fjölskyldunni erum búin að ákveða að
koma heim og því er þetta bara í góðu
lagi.“
Hann segir ólíklegt að hann spili
aftur með Huddersfield og hefur hann
þegar hafnað nokkrum tilboðum um
að fara á láni til annarra félaga, bæði
sunnar í Englandi sem og í Skotlandi.
„Ég er nú ekkert sérstaklega spennt-
ur fyrir því að fara í eitthvað af þess-
um minni liðum sem spila í sömu deild
og Huddersfield. Það getur því bara vel
verið að ég klári minn samning hér en
ég er fyrst og fremst að vona að ég
losni undan honum sem allra fyrst. Það
fer eftir því hvort þeir eru tilbúnir að
gera við mig starfslokasamning,“ segir
Jóhannes Karl sem bindur þó vonir við
að losna eftir áramót, jafnvel í febrúar.
„Þeir eru enn að vonast til þess að ég
fari eitthvað annað á láni en þeir eru
kannski til í að semja við mig þegar
lokað verður fyrir félagaskipti í lok
janúar.“
Huddersfield gengur vel en liðið er í
þriðja sæti og enn taplaust eftir tólf
leiki. Stjóri liðsins er Lee Clark,
fyrrum leikmaður Newcastle, Sun-
derland og Fulham og gallharður
miðjumaður sem svipaði mjög til
Jóhannesar Karls sem leikmanns.
„Ég held að Huddersfield fari
beint upp og að ekkert lið í þess-
ari deild geti komið í veg fyrir það.
Liðið er gott og leikmannahópur-
inn breiður,“ segir Jóhannes og
neitar því ekki að Clark var leik-
maður að hans skapi. „Hann
er mjög svipaður sem knatt-
spyrnustjóri – hörkunagli og
afar metnaðarfullur. Ég get
séð fyrir mér að hann muni ná
lengra sem þjálfari í framtíð-
inni.“ - esá
Jóhannes Karl Guðjónsson fær ekkert að spila í Huddersfield og bíður þess að komast til Íslands:
Ég er Skagamaður með gult og svart hjarta
Iceland Express kvenna
Fjölnir-Keflavík 79-72 (39-31)
Stig Fjölnirs: Brittney Jones 33, Birna Eiríksd.19,
Katina Mandylaris 19 (17 frák.), Heiðrún Rík-
harðsd. 3, Erla Kristinsd. 3, Eva María Emilsd. 2.
Stig Keflavíkur: Birna Valgarðs. 21, Jaleesa Butler
21 (14 frák./5 stoðs.), Pálína Gunnlaugsdóttir 7,
Helga Hallgrímsdóttir 6, Sara Hinriksd. 6, Hrund
Jóhannsd.6, Telma Ásgeirsd. 3, Lovísa Falsd. 2.
Valur-Snæfell 70-79 (32-39)
Stig Vals: Kristrún Sigurjónsdóttir 20, Melissa
Leichlitner 17, María Ben Erlingsdóttir 15 Berglind
Karen Ingvarsd. 8, Signý Hermannsd. 6, Þórunn
Bjarnadóttir 2 (10 frák.), Guðbjörg Sverrisdóttir 2.
Stig Snæfells: Hildur Sigurðardóttir 24 (9 frák.)
Hildur Björg Kjartansdóttir 16, Kieraah Marlow
16, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 8, Berglind
Gunnarsdóttir 7, Alda Leif Jónsdóttir 4, Ellen Alfa
Högnadóttir 2, Sara Mjöll Magnúsdóttir 2.
Haukar-Njarðvík 60-81 (37-43)
Stig Hauka: Jence Rhoads 19, Gunnhildur
Gunnarsdóttir 13 (6 stolnir), Sara Pálmad. 8,
Hope Elam 8 (9 frák./3 varin), Íris Sverrisd. 5,
Guðrún Ósk Ámundard.4, Margrét Rósa 3.
Stig Njarðvíkur: Lele Hardy 33 (14 frák.), Shanae
Baker 20 (8 frák./5 stoðs./6 stolnir), Petrúnella
Skúladóttir 13, Salbjörg Sævarsdóttir 12 (7
frák.) Andrea Björt Ólafsdóttir 2, Aníta Carter 1.
KR-Hamar 73-60 (38-24)
Stig KR: Reyana Colson 19 (9 fráköst), Margrét
Kara Sturludóttir 16 (6 frák./5 stoðs.), Hafrún
Hálfdánardóttir 13, Bryndís Guðmundsdóttir 10
(6 frák./5 stoðs.), Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 9
(10 frák.), Helga Einarsdóttir 6.
Stig Hamars: Samantha Murphy 20 (8 frák.),
Hannah Tuomi 18 (18 fráköst), Jenný Harðardóttir
8 (10 frák.), Kristrún Rut Antonsdóttir 8, Álfhildur
Þorsteinsdóttir 4, Regína Ösp Guðmundsdóttir 2.
N1 deild kvenna í handbolta
FH-Fram 16-30 (10-16)
Markahæstar: Ingibjörg Pálmadóttir 5, Birna Íris
Helgadóttir 4, Kristrún Steinþórsdóttir 4 - Elísabet
Gunnarsdóttir 7, Birna Berg Haraldsdóttir 5, Ásta
Birna Gunnarsdóttir 4, Marthe Sördal 3, Stella
Sigurðardóttir 3, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 3,
Sunna Jónsdóttir 3.
Grótta-Valur 28-41
ÚRSLIT Í GÆR
HANDBOLTI Aron Pálmarsson lék
á ný með Kiel í gærkvöldi þegar
Kiel vann sjö marka útisigur á
Grosswallstadt, 32-25, í þýsku
úrvalsdeildinni í handbolta.
Aron kom aftur inn í lið Kiel
eftir meiðsli og Alfreð Gíslason
skellti honum í byrjunarliðið.
Aron byrjaði með látum og
skoraði 3 af 4 fyrstu mörkum
Kiel í leiknum en hann endaði
leikinn með fjögur mörk.
Alexander Petersson skoraði
eitt mark þegar Füchse Berlin
vann 31-27 útisigur á Eintracht
Hildesheim. Strákarnir hans
Dags Sigurðssonar sitja í öðru
sætinu á eftir Kiel sem hefur
unnið alla átta deildarleiki sína
til þessa. - óój
Þýski handboltinn í gær:
Aron í gang á ný
KÖRFUBOLTI Haukur Helgi
Pálsson var aftur í byrjunarliði
Manresa þegar liðið vann sex
stiga útisigur á Baloncesto
Fuenlabrada, 79-73, í spænsku
úrvalsdeildinni í körfubolta í gær.
Manresa hefur unnið tvo fyrstu
leiki tímabilsins. Haukur Helgi
hefur því byrjað tvo fyrstu leiki
sína í bestu körfuboltadeild í
Evrópu og hann var með fimm
stig, eina stoðsendingu og einn
stolinn bolta á 14 mínútum í gær.
Jón Arnór Stefánsson og félagar í
CAI Zaragoza töpuðu hins vegar
82-66 á móti Valenica á útivelli en
Jón Arnór var með fimm stig og
eitt frákast á 16 mínútum. - óój
Spænski körfuboltinn:
Haukur Helgi og
félagar byrja vel
HAUKUR HELGI PÁLSSON Lék með
Maryland í fyrra. MYND/NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Norskir fjölmiðlar
greindu frá því í gær að Stabæk
hafi svikið franska liðið Nancy
um tvær milljónir norskra króna
(41 milljón íslenskra króna)
þegar félagið seldi íslenska
framherjann Veigar Pál á
dögunum.
Stabæk gerði samkomulag við
Nancy þegar Veigar Páll kom til
baka frá Frakklandi um að Nancy
fengi helminginn af kaupverði
leikmannsins yrði hann seldur
frá Stabæk.
Stabæk fékk fimm milljóna
tilboð frá Rosenborg en seldi
hann engu að síður fyrir eina
milljón til Vålerenga þótt
að Veigar hafi viljað fara til
Rosenborg. Nancy fékk því
aðeins hálfa milljón í sinn hlut.
Það sem ekki kom fram að
hluti af samningur Stabæk og
Vålerenga voru fjórar milljónir
sem Vålerenga borgaði fyrir
forkaupsrétt á hinum 15 ára
Hermann Stengel. Með þessu
„samningi“ fékk Stabæk 4,5
milljónir í sinn hlut og sparaði
sér 2 milljónir sem hefðu annars
farið til franska liðsins. -óój
Sala Veigars Páls til VIF:
Stabæk fór illa
með Nancy
KÖRFUBOLTI Snæfell vann í gær fínan sigur,
79-70, á Val í fyrstu umferð Iceland-Express
deild kvenna í körfubolta en leikurinn fór fram
í Vodafonehöllinni. Snæfellingar höfðu góð
tök á leiknum alveg frá byrjun og héldu Vals-
stúlkum alltaf þægilega vel frá sér. Stigaskor-
ið dreifðist vel í liðinu og greinilega góð liðs-
heild hjá Hólmurum en Hildur Sigurðardóttir
var með 24 stig í fyrsta deildarleiknum sínum
með Snæfelli.
„Ég er mjög stoltur af þessum sigri,“ sagði
Ingi Þór Steingrímsson, þjálfari Snæfells, eftir
leikinn í gær. „Við vorum ekki að spila eins vel
og ég veit að liðið getur gert, en þetta var mikil-
vægur sigur. Það kom mér nokkuð á óvart að
við höfðum frumkvæðið allan leikinn og ég held
að Valsstelpurnar hafi ekki búist við því.“
„Þetta er ekki sú byrjun sem við vildum,“
sagði Ágúst Björgvinsson, þjálfari Vals, eftir
tapið í gær. „Við ætluðum okkur að ná sigri í
fyrsta leik og það gekk ekki eftir í kvöld. Snæ-
fell skorar níu stig strax í upphafi og við hrein-
lega náðum aldrei að brúa það bil.“ Fyrsta
umferðin fór öll fram í gær og unnu Fjölnir og
Njarðvík óvænta sigra.
Fjölniskonur unnu 79-72 sigur á Íslands-
meisturum Keflavíkur og Njarðvík burstaði
Lengjubikarmeistara Hauka á Ásvöllum. Kefla-
vík var spáð sigri í árlegri spá fyrir mótið sem
var kynnt í fyrradag en Fjölnisliðinu var aftur
á móti spáð falli úr deildinni. KR vann síðan
73-60 sigur á Hamar í síðasta leik kvöldsins. -
sáp
Fjölnir og Njarðvík unnu óvænta sigra í fyrstu umferð Iceland Express deildar kvenna í körfubolta í gær:
Hildur leiddi Snæfell til sigurs í fyrsta leik
HILDUR SIGURÐARDÓTTIR Fór á kostum á móti Val í
gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL