Fréttablaðið - 13.10.2011, Síða 78

Fréttablaðið - 13.10.2011, Síða 78
13. október 2011 FIMMTUDAGUR54 Fim 13.10. Kl. 19:30 1. sér. Fös 14.10. Kl. 19:30 9. sýn. Fös 14.10. Kl. 22:00 3. au. Lau 15.10. Kl. 16:00 10. sýn. Lau 15.10. Kl. 19:30 11. sýn. Fim 20.10. Kl. 19:30 2. sér. Fös 21.10. Kl. 19:30 3. sér. Lau 22.10. Kl. 16:00 12. sýn. Lau 22.10. Kl. 19:30 13. sýn. Sun 23.10. Kl. 19:30 14. sýn. Lau 29.10. Kl. 16:00 15. sýn. Lau 29.10. Kl. 19:30 16. sýn. Listaverkið (Stóra sviðið) Svartur hundur prestsins (Kassinn) Fim 13.10. Kl. 19:30 2. auks. Fös 14.10. Kl. 19:30 12. sýn. Lau 15.10. Kl. 19:30 13. sýn. Fim 20.10. Kl. 19:30 3. auks. Fös 21.10. Kl. 19:30 14. sýn. Lau 22.10. Kl. 19:30 15. sýn. Fim 27.10. Kl. 19:30 4. auks. Fös 28.10. Kl. 19:30 16. sýn. Lau 29.10. Kl. 19:30 17. sýn. Fim 3.11. Kl. 19:30 18. sýn. Fös 4.11.Kl. 19:30 5. au. Lau 5.11.Kl. 19:30 6. au. Mið 9.11. Kl. 19:30 19. sýn. Lau 12.11. Kl. 19:30 20. sýn. Sun 13.11. Kl. 19:30 21. sýn. Lau 19.11. Kl. 19:30 22. sýn. Sun 20.11. Kl. 19:30 23. sýn. Fim 24.11. Kl. 19:30 24. sýn. Fös 25.11. Kl. 19:30 25. sýn. Sun 27.11. Kl. 19:30 26. sýn. Fim 1.12. Kl. 19:30 27. sýn. Fös 2.12. Kl. 19:30 28. sýn. Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið) Sun 16.10. Kl. 14:00 síð. sýn. Hreinsun (Stóra sviðið) Uppnám (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 27.10. Kl. 19:30 Frums. Fös 28.10. Kl. 19:30 2. sýn. Fös 4.11. Kl. 19:30 3. sýn. Lau 5.11. Kl. 19:30 4. sýn. Lau 12.11. Kl. 19:30 5. sýn. Sun 13.11. Kl. 19:30 6. sýn. Lau 19.11. Kl. 19:30 7. sýn. Sun 20.11. Kl. 19:30 8. sýn. Fim 24.11. Kl. 19:30 9. sýn. Fös 25.11. Kl. 19:30 10. sýn. Fös 2.12. Kl. 19:30 11. sýn. Lau 3.12. Kl. 19:30 12. sýn. U Ö Ö Ö Ö Ö Ö U U U U U Ö U Ö Hvílíkt snilldarverk er maðurinn (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 14.10. Kl. 19:30 4. sýn. Lau 15.10. Kl. 19:30 5. sýn. Mið 19.10. Kl. 19:30 6. sýn. Judy Garland (Þjóðleikhúskjallarinn) Sun 16.10. Kl. 21:00 Frums. Fös 21.10. Kl. 22:00 2. sýn. Lau 22.10. Kl. 22:00 3. sýn. U U U Ö U Ö Sögustund - Hlini kóngsson (Kúlan) Lau 15.10. Kl. 13:30 5. sýn. Lau 15.10. Kl. 15:00 6. sýn. Lau 22.10. Kl. 13:30 7. sýn Lau 22.10. Kl. 15:00 8. sýn. U U Ö Ö U Ö Ö Ö Ö Lau 15.10. Kl. 22:00 7. sýn. Lau 29.10. Kl. 22:00 8. sýn. Fös 2.12. Kl. 22:00 Lau 10.12. Kl. 22:00 BESTI BITINN Í BÆNUM „Þetta var skemmtilegt ferli og gaman að vinna að þessari mynd með CCP, sem fjallar á margan hátt um framtíð tískunnar,“ segir Ellen Loftsdóttir, en hún leikstýrði nýverið heimildarmynd um sam- starf tölvuleikjaframleiðandans og stílistans Nicola Formichetti, ásamt kærasta sínum Þorbirni Ingasyni. Samstarf CCP við stílistann var í tengslum við tískuvikuna í New York þar, sem Formichetti kynnti til sögunnar þrívíddartískusýn- ingu með fyrirsætunni Rick Genest, sem betur er þekktur sem Zombie Boy, í aðalhlutverki. Nicola Formichetti er einn fræg- asti stílisti í heimi, listrænn stjórn- andi Thierry Mugler tískuhússins og stílisti tónlistarkonunar Lady Gaga. Hann er mikill Íslandsvin- ur og hefur komið hingað nokkrum sinnum. „CCP hafði samband við okkur um að gera þessa mynd, þar sem þau vildu fá fólk með innsæi í heim tískunnar í samstarf. Þetta verk- efni með Formichetti er meira tengt tísku en fyrirtækið hefur nokkurn tíma gert. Það var líka gaman fyrir okkur að upplifa alla þá tæknilegu þekkingu sem CCP er búið að þróa með sér undanfar- in ár,“ segir Ellen. Hún og Þorbjörn starfa bæði fyrir vinnustofuna Narva og hafa meðal annars gert heimildarmyndir, tískumyndir og tónlistarmyndbönd, en Ellen hefur unnið sem stílisti bæði hér heima og erlendis í nokkur ár. „Þegar ég frétti um hvern heim- ildarmyndin var varð ég mjög ánægð, þar sem ég hef fylgst með Formichetti í næstum tíu ár og ber mikla virðingu fyrir hans störf- um,“ segir hún og bætir við að það sé í raun Formichetti að þakka að Lady Gaga sé fræg í dag, enda hafi búningar hennar vakið óskipta athygli gegnum tíðina. Ellen og Tobbi fylgdu stílistanum eftir á tískuvikunni í New York og tóku viðtöl við yfirmenn CCP og fyrir- sætuna Zombie Boy. Heimildarmyndin var síðan birt á vefsíðunni Dazed Digital fyrr í vikunni og hefur vakið mikla athygli, enda talar Formichetti blá- kalt um að framtíð tískunnar sé á tölvuskjánum. „Formichetti sér framtíð tísk- unnar fyrir sér í þrívídd, sem er frekar rosalegt. Hann vill meina að eftir nokkur ár eigi allir eftir að eiga útgáfu af sjálfum sér í tölv- unni, sem við eigum frekar eftir að vilja klæða upp. Það er eiginlega fáránlegt að segja það en gæti verið þróunin,“ segir Ellen áður en hún brunar af stað á frumsýningu íslensku myndarinnar Borgríki, en hún sá einmitt um búningana í þeirri mynd. alfrun@frettabladid.is Fyrirsætan Rick Genest fer með aðalhlutverkið í þrívíddarsýningu Formichetti, en hann vekur athygli þar sem líkami hans er þakinn húðflúrum. Húðflúrin láta hann líta út sem lifandi uppvakning, en áður en hann var uppgötvaður af Formichetti var Genest meðlimur í sirkus þar sem hann gerði ýmiss konar áhættuatriði. Genest lék meðal annars stór hlutverk í myndbandi Lady Gaga, „Born This Way“. Ellen og Tobbi fengu að hitta kappann í New York og tóku við hann viðtal. Ellen segir hann mjög viðkunnan- legan. „Ég var mjög stressuð að hitta hann fyrst, þar sem mér finnst hann frekar hrikalega útlítandi, en hann var algjör ljúflingur og fínn gaur.“ LIFANDI UPPVAKNINGUR KNÚSAÐUR AF GAGA Nicola Formichetti er maðurinn á bak við frumlega búninga tónlistarkonunnar Lady Gaga og ber samstarfinu við CCP vel söguna í heim- ildarmyndinni. HEIMILDARMYND UM FORMICHETTI Ellen Loftsdóttir og Þorbjörn Ingason gerðu heimildarmynd um samstarf tölvuleikjaframleiðandans CCP og stílistans fræga Nicola Formichetti. Myndin hefur vakið mikla athygli og er komin inn á síðuna Dazed Digital. Forlagið gekk í gær frá samning- um við brasilískt forlag um útgáfu á barnabókinni Blái hnötturinn eftir Andra Snæ Magnason. Bókin er því væntanleg í öllum byggðum heimsálfum nema einni, Eyjaálfu, því útgáfa hennar hefur þegar verið skipulögð í Norður-Ameríku á næsta ári. Bókamessan í Frankfurt var sett á þriðjudagskvöld að við- stöddu margmenni og þótt rithöf- undur og forleggjarar séu á hverju strái sitja þeir fæstir að sumbli á börunum við að ræða nýjustu strauma og stefnur. Margir af hinum íslensku rithöfundum eru á flakki um allt Þýskalandi, að lesa upp úr bókum sínum og nýta sér þá miklu umfjöllun sem íslenskar bækur fá þessa vikurnar. Andri Snær er engin undantekning á því; hann verður í Þýskalandi í tíu daga að lesa upp úr verkum sínum. „Þetta er svona síðbúið bakpoka- ferðalag,“ segir Andri í samtali við Fréttablaðið. Hann var þá reyndar staddur í Frankfurt en var á leið- inni til Mainz. „Það eru margir í mínum sporum og ég held að Hall- grímur [Helgason] sé jafnvel verri en ég, hann ætlar að vera í þriggja vikna upplestraferð,“ segir Andri sem er ákaflega hrifinn af íslenska skálanum á bókamessunni, finnst hann vera hálfgerð vin í öllu þessu brjálæði. Þjóðverjar virðast fylgjast vel með bókamessunni, allavega var íranskur leigubílstjóri með allt á hreinu þegar Andri fékk far hjá honum í Köln. „Hann spurði hvaðan ég væri og þegar ég hafði kynnt mig sagðist hann einmitt hafa verið að lesa grein um bóka- messuna. Og endaði á því að gefa mér helmingsafslátt af farinu,“ útskýrir Andri sem launaði honum að íslenskum sið, gaf honum árit- að eintak af þýsku þýðingunni á Draumalandinu. - fgg „Bitabíllinn á Lækjartorgi, þar er besti hamborgarinn í bænum.“ Atli Óskar Fjalarson, leikari. Að minnsta kosti þrjú hundruð manns voru í bið- röð við verslun Smekkleysu á Laugavegi í fyrrinótt og í gærmorgun. Þar vonuðust þeir til að fá miða á Biophilia-tónleika Bjarkar sem voru haldnir í Hörpu í gærkvöldi. Aðeins tvö hundruð miðar voru í boði fyrir fólk sem þegar hafði keypt sér miða á Airwa- ves-hátíðina og því var mikilvægt að mæta tímanlega á staðinn. Alhörðustu Bjarkaraðdáendurnir settust niður við verslunina klukkan þrjú um nóttina og biðu þolinmóðir í kraftgöllum og svefnpokum þangað til dyrnar voru opnaðar um morguninn. Tveir öryggis- verðir voru á staðnum til að allt færi vel fram. „Þetta gekk ofsalega vel fyrir sig, það voru engin vandræði,“ segir Kristján Kristjánsson hjá Smekkleysu, eða Kiddi rokk, en miðarnir ruku út á fimmtán mínútum. Svipaður háttur verður hafður á fyrir síðari tón- leika Bjarkar á sunnudag og fyrir tónleika Sinéad O´Connor annað kvöld. - fb Þrjú hundruð biðu eftir miðum ERFIÐ BIÐ Um þrjú hundruð manns voru í biðröðinni við verslun Smekkleysu. María Einarsdóttir, til hægri að ofan, var fremst. FRÉTTABLAÐI/GVA ELLEN OG TOBBI: HANN SÉR FRAMTÍÐ TÍSKUNNAR FYRIR SÉR Í ÞRÍVÍDD Gerðu mynd um frægasta stílista heims Sló í gegn hjá írönskum leigubílstjóra EIN HEIMSÁLFA EFTIR Blái hnötturinn kemur út í Brasilíu og Norður-Ameríku á næstunni og er þá Eyjaálfa eina heimsálfan sem bókin á eftir.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.