Fréttablaðið - 28.11.2011, Side 6
28. nóvember 2011 MÁNUDAGUR6
Læknastö›in • Kringlunni
Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is
Nýjustu
heyrnartækin
og ókeypis heyrnarmæling
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og kynntu þér
nýjustu heyrnartækin sem við höfum að bjóða.
Þú trúir örugglega ekki þínum eigin augum
– hvað þá eyrum!
RÚSSLAND, AP Vladimír Pútín, for-
sætisráðherra Rússlands, varar
Vesturlönd við því að skipta sér af
forsetakosningunum í Rússlandi,
sem haldnar verða á næsta ári.
„Öll okkar erlendu samstarfs-
ríki verða að skilja þetta, að Rúss-
land er lýðræðisríki. Rússland er
áreiðanlegur og trúverðugur sam-
starfsaðili sem þau geta og verða
að ná samkomulagi við, en geta
ekki troðið neinu upp á utan frá,“
sagði Pútín í ræðu á landsþingi
stjórnmálaflokks síns, Sameinaðs
Rússlands. Á þinginu var tilnefn-
ing hans sem forsetaframbjóðanda
flokksins samþykkt með yfirgnæf-
andi meirihluta.
Pútín gat ekki boðið sig fram
til forseta árið 2008 eftir að hafa
setið tvö kjörtímabil í embættinu,
en hefur verið forsætisráðherra í
eitt kjörtímabil og getur nú sam-
kvæmt stjórnarskránni boðið sig
fram til forseta á ný.
Dmitrí Medvedev, sem gegnt
hefur forsetaembættinu þetta
eina kjörtímabil, reiknar með að
skipta við Pútín og verða forsætis-
ráðherra næsta kjörtímabil.
Stólaskipti þeirra hafa verið
gagnrýnd sem sýndargjörningur,
sem eingöngu þjóni þeim tilgangi
að tryggja Pútín völdin. - gb
Pútín formlega tilnefndur forsetaframbjóðandi á landsþingi flokks síns:
Varar Vesturlönd við afskiptum
Á LANDSÞINGI SAMEINAÐS RÚSSLANDS
Medvedev forsætisráðherra og Pútín
forseti ræða stólaskiptin. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Kristbjörg Þórisdóttir
hefur sagt af sér sem formaður
Landssambands framsóknar-
kvenna og sagt
sig úr Fram-
sóknarflokkn-
um.
Í yfirlýsingu
frá Kristbjörgu
segir að ástæða
úrsagnarinnar
sé sú að hún
telur sig ekki
eiga samleið
með flokknum.
„Framsóknarflokkurinn hefur
unnið mikið verk að ákveðnum
breytingum. Ekki hefur þó verið
gengið eins langt í grundvallar-
breytingum og ég hefði viljað
sjá,“ segir Kristbjörg meðal ann-
ars í yfirlýsingu sinni. - sv
Formaður segir af sér:
Hefur sagt sig
úr flokknum
KRISTBJÖRG
ÞÓRISDÓTTIR
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað-
fest úrskurð Héraðsdóms Reykja-
víkur þess efnis að síbrotamaður
skuli sæta gæsluvarðhaldi til 22.
desember.
Maðurinn hefur oft komið við
sögu lögreglu að undanförnu.
Nú er hann grunaður um þjófn-
aði, gripdeildir, fjársvik, nytja-
stuld, skjalafals, aðild að ránum
og umferðarlagabrot, allt frá því
um miðjan september. Maðurinn
hefur hlotið fjöldamarga fang-
elsisdóma fyrir sams konar brot.
Þykir, að mati lögreglu, ljóst að
hann hafi einbeittan brotavilja
og virðist ekkert lát vera á brota-
starfsemi hans. - jss
Síbrotamaður áfram í gæslu:
Grunaður um
fjölmörg brot
Á að borga leikskólakennurum
Reykjavíkur fyrir matartíma?
Já 77,7%
Nei 22,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Telurðu að Ögmundur Jónasson
hafi brugðist á réttan hátt við
beiðni Huangs Nubo um kaup
á Grímsstöðum á Fjöllum?
TAÍLAND,AP Fjöldi krókódíla geng-
ur laus í Bangkok, höfuðborg Taí-
lands, eftir að verstu flóðin þar
í hálfa öld urðu í landinu fyrr á
árinu.
Um sex hundruð manns týndu
lífi, auk þess sem um þrjú þúsund
krókódílabú urðu flóðinu að bráð.
Fjölmargir krókódílar sluppu úr
prísund sinni og hafa síðan þá
gert íbúum Bangkok lífið leitt,
rétt eins og fjöldi eitraðra snáka
sem fjarlægðist heimkynni sín
vegna flóðanna.
Einn íbúi Bangkok ætlaði
á kamarinn í útihúsi og sá þá
krókódíl sitja þar við hliðina. „Ég
hef ekki farið á klósettið síðan.
Ég pissa frekar í flösku,“ sagði
skelkaður íbúinn. - fb
Slæmt ástand í Bangkok:
Fjöldi krókódíla
gengur laus
HANDSAMA KRÓKÓDÍL Margir krókódílar
hafa verið gómaðir í Bangkok að undan-
förnu. MYND/AP
PAKISTAN, AP Afganskir hermenn
sem lentu í skotárás skammt frá
pakistönsku landamærunum á
laugardag óskuðu eftir loftárás
frá Nató og sú árás varð 24 pak-
istönskum hermönnum að bana.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu
frá afgönskum stjórnvöldum.
Atvikið hefur orðið til þess að
samskipti Bandaríkjamanna og
Pakistana eru stirðari en nokkru
sinni fyrr. Nató segir að líklega
hafi herþyrla frá bandalaginu
gert árásina. Rannsókn stendur
yfir á atvikinu. - fb
Umdeild árás Nató:
Samskiptin við
Pakistan stirðna
ÍTALÍA Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
hyggst útvega allt að sex hundruð
milljarða evra, sem stæðu Ítalíu
til boða til að hjálpa landinu yfir
versta hjallann.
Þetta fullyrða ítölsk dagblöð.
Þau segja að þetta fé eigi að duga
til að tryggja Ítölum nægilegt fé
í eitt eða eitt og hálft ár. Mario
Monti, hinn nýi forsætisráðherra
landsins, fengi þar með næði til að
draga saman ríkisútgjöldin. - gb
Ítölsk dagblöð:
AGS undirbýr
stórlán til Ítalíu
Íslamistaflokkur sigraði
Flokkur hófsamra íslamista vann
sigur í þingkosningum í Marokkó um
helgina.
MAROKKÓ
HEILBRIGÐISMÁL Nýgengi átrösk-
unarsjúkdóma hér á landi hefur
haldist svipað undanfarin fimm ár.
Síðan í janúar síðastliðnum hafa 79
einstaklingar leitað til geðdeildar
Landspítalans vegna átröskunar,
segir Sigurlaug María Jónsdóttir,
sálfræðingur í átröskunarteymi
spítalans á Hvítabandinu. Árið 2008
jókst nýgengið verulega, en þá leit-
uðu fleiri en 100 einstaklingar eftir
greiningu og meðferð.
Teymið sinnir átröskunarsjúk-
lingum sem eiga við anorexíu og
búlimíu að stríða. Sigurlaug segir
um helming þjást af búlimíu, en
um 10 til 20 prósent af anorex-
íu. Um 30 til 40 prósent fá grein-
inguna óskilgreinda átröskun.
Hún segir það vart þekkjast hér
á landi að sjúklingar láti lífið úr
átröskunarsjúkdómum.
„Það þekkist ekki hér að bana-
meinið sé átröskun eða anorexía.
Aðrir þættir sem fylgja í kjölfarið,
eins og kvíði, þunglyndi, áfengis-
og vímuefnavandi, sjálfsskaðandi
hegðun og vandamál við félags-
leg samskipti, geta leitt til mikill-
ar vanlíðunar og sjálfsvíga í ein-
staka tilfellum. Því er nauðsynlegt
að vinna samhliða með þetta allt.“
Um 70 einstaklingar eru í ein-
hvers konar meðferð á Hvítaband-
inu í dag. Sumir koma tvisvar til
þrisvar í viku, aðrir eru í reglu-
bundnu eftirliti og eftirfylgd. Þá
er aðstandendum sjúklinga einnig
sinnt markvisst með viðtölum og
meðferð, en um 15 til 20 fjölskyld-
ur eru í tengslum við deildina.
Komur átröskunarsjúklinga á
BUGL hafa verið á bilinu 14 til 28
á síðustu tíu árum. Komur í ár hafa
verið heldur fleiri en í fyrra, segir
Margrét Gísladóttir, geðhjúkr-
unar- og fjölskyldufræðingur og
teymisstjóri átröskunarteymis á
göngudeild.
Líkt og á Hvítabandinu leggj-
ast fæstir sjúklinganna inn á spít-
alann en mikill meirihluti þeirra
er stúlkur. Aldursbilið er frá 13
til 17 ára, þó að í sumum tilvikum
séu sjúklingar yngri, en það er
ekki algengt. Fleiri sjúklingar fá
greininguna anorexíu en búlimíu
á BUGL.
sunna@frettabladid.is
Hátt í hundrað ný
tilfelli á hverju ári
Nýskráð tilfelli átröskunarsjúklinga hjá Landspítalanum eru í kring um hundr-
að á hverju ári. Fjöldinn hefur haldist nokkuð stöðugur á síðustu árum. Inn-
lagnir sjúklinga eru óalgengar og markvisst er unnið að meðferð aðstandenda.
ÁTRÖSKUN Búlimía er algengari greining en anorexía meðal sjúklinga sem eru 18 ára
og eldri og leita sér hjálpar á Hvítabandi Landspítalans. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Rannsóknir hafa leitt í ljós að átröskun er ekki foreldrum að kenna.
„Við vinnum á þeim nótum að foreldrar geti stutt unglinginn til bata,“
segir Margrét. „Einkenni fjölskyldu þar sem er einstaklingur með átröskun
eru afleiðing sjúkdómsins, en ekki orsök, samkvæmt rannsóknum.“
BUGL hefur stuðlað að samvinnu við foreldra til að vinna markvisst á
átröskunarsjúkdómum og hefur það gengið vel.
Foreldrum ekki um að kenna
KJÖRKASSINN