Morgunblaðið - 15.07.2010, Síða 14
14 | MORGUNBLAÐIÐ
N
ám í íslenska golfkenn-
araskólanum tekur þrjú
ár en uppfylla þarf
ákveðin inntökuskilyrði
til að fá inngöngu. „Það
er ákveðin lágmarksforgjöf sem þarf
að hafa og einnig eigum við að skila
inn ákveðnum fjölda af hringjum.
Við lærum meðal annars golftækni
og íþróttafræði, rekstur og sögu. Í
raun er golfíþróttin eins og hún
leggur sig tekin fyrir og eru prófin
bæði bókleg og verkleg,“ segir Erla
sem mun útskrifast úr golfkenn-
araskólanum á næsta ári.
„Á fyrsta ári er lögð áhersla á
barna- og unglingakennslu en við
höfum núna verið að vinna með
einkakennslu og ýmislegt fleira. Við
erum einnig metin hvernig við kenn-
um og æfum okkur á því að kenna
hvert öðru. Stundum þurfum við að
setja okkur í spor átta ára barna og
það getur verið mjög gaman,“ segir
Erla en hún er í þriðja hópinum sem
mun útskrifast með golfkenn-
araréttindi á Íslandi. Í hópnum eru
tíu manns og er Erla eina stelpan en
þau verða jafnframt fyrsti hópurinn
til að útskrifast með alþjóðleg golf-
kennararéttindi en skólinn var form-
lega viðurkenndur af PGA-
samtökunum haustið 2009.
Safnað í reynslubankann
Í sumar starfar Erla við golf-
kennslu hjá MP-golfakademíunni
sem Magnús Birgisson og Phill
Hunter reka á Urriðavelli.
„Þetta er frábært tækifæri að fá
að vinna með þessum reynslubolt-
um, kynnast nýju fólki og koma sér
aðeins á markaðinn. Við erum með
margs konar námskeið svo sem
barnanámskeið og byrjend-
anámskeið, sjáum um unglinga- og
afreksstarfið og kennum bæði hóp-
um og einstaklingum. Það er búið að
vera mikið að gera en þetta er
skemmtilegt og mikil reynsla. Að-
staðan hérna er ein sú besta á land-
inu og hér er umhverfið svo fagurt,“
segir Erla um vinnuna. Fáir golf-
kennarar starfa allan ársins hring en
flestir starfa við eitthvað annað með-
fram golfkennslunni þótt kennsla á
vetrartíma virðist hafa aukist vegna
golfferða erlendis. Þá er aðstaða til
golfiðkunar orðin góð og hægt er að
halda sér í æfingu allan ársins hring.
„Golfkennslan er ekki heilsársvinna
hjá mér en ég starfa sem grunn-
skólakennari í Holtaskóla í Reykja-
nesbæ. Um leið og grunnskólinn fer
í frí byrja ég strax í golfinu. Það er
lítið um sumarfrí hjá mér en hins
vegar forréttindi að fá að vinna við
áhugamálið sitt,“ segir Erla.
Bæði í körfubolta og golfi
Golf er ekki eina íþróttin sem Erla
hefur lagt stund á en hún er fyrrver-
andi landsliðskona í körfuknattleik.
„Þegar ég var yngri var ég í báð-
um íþróttunum og var í unglinga-
landsliðinu í golfi líka. Við 16-17 ára
aldur var karfan sett í fyrsta sætið.
Ég átti stórkostleg ár í körfubolt-
anum, spilaði og æfði í átján ár með
Keflavík en við vorum frábær hópur
og sigursælar. Ég hélt alltaf aðeins í
golfið þótt ég hafi ekki keppt á nein-
um stórmótum,“ segir Erla en hún
sneri sér aftur að golfinu þegar hún
þurfti að hætta í körfuboltanum
vegna meiðsla.
„Golfið er mjög tímafrekt sport
þar sem þú ert einn í liði og krefst
mikillar æfingar og þolinmæði, ólíkt
körfunni þar sem þú ert hluti af liði,“
segir Erla en hún finnur fyrir aukn-
um golfáhuga á Íslandi og telur
kreppuna lítil áhrif haft. Þá telur
Erla að golfáhugi kvenna fari vax-
andi en konur á öllum aldri eru að
byrja í golfi og sífellt fleiri bætast í
hópinn.
Enginn góður á einum degi
Erla ráðleggur byrjendum að hafa
í huga að allir voru einhvern tímann
á sama stað og þeir.
„Það verður enginn góður á einum
degi. Byrjendur ættu að leita sér að-
stoðar til að læra réttu grunnatriðin
í staðinn fyrir að gera eitthvað og
festast kannski í því,“ segir Erla og
nefnir að gefa þurfi sér góðan tíma
enda snýst golf um þolinmæði og
þrotlausa æfingu.
Aðspurð segist Erla reglulega
hafa fylgst með Opna breska meist-
aramótinu þegar hún hefur haft
tækifæri til og stefnir á að fylgjast
með í ár. „Ég vona að Phil Mickelson
vinni. Þetta verður gaman núna í ár
enda er mótið á St. Andrews-
vellinum mekka golfsins þar sem
þetta byrjaði allt saman. Það verður
forvitnilegt að sjá hvað Tiger Woods
gerir en ég vil gjarnan sjá Phil Mic-
kelson í fyrsta sæti heimslistans,“
segir Erla.
kristel@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Æfing Erla Þorsteinsdóttir golfkennari ráðleggur byrjendum að gefa sér góðan tíma enda snýst golf um þolinmæði og þrotlausa æfingu eigi árangur að sjást af erfiðinu.
Kennsla Erla kennir golf hjá MP golfakademíunni sem Magnús Birgisson og Phill Hunter reka á Urriðavelli.
Í golfinu ertu einn í liðinu
Erla Þorsteinsdóttir er
nemi í íslenska golfkenn-
araskólanum og mun út-
skrifast á næsta ári, með
fyrstu nemendum sem öðl-
ast alþjóðleg golfkenn-
araréttindi. Hún kennir í
golfskóla á sumrin en
grunnskóla á veturna og
því er nóg að gera allan
ársins hring.