Morgunblaðið - 12.08.2010, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Anna Sigríður Einarsdóttir
annaei@mbl.is
Sex ára stúlka missti um fjórðung af
hári sínu eftir að það festist í hring-
ekju Húsdýragarðsins. Slysið varð á
föstudeginum fyrir verslunarmanna-
helgi og var telpan ásamt fleiri börn-
um í bolla hringekjunnar. Þrátt fyrir
að vera með hárið bundið upp í snúð
festist það í skrúfu sem er í hand-
snúningsbúnaði bollans. Nokkur
stund leið þar til bollinn var stöðv-
aður en starfsmaður varð atburðarins
ekki var fyrr en nærstaddur gestur
gerði viðvart.
„Stúlkan var undir snúningssveif-
inni og því erfitt fyrir starfsmann að
sjá hvað var að gerast,“ segir Sigrún
Thorlacius, aðstoðarforstöðumaður
Húsdýragarðsins. „Þarna var margt
fólk og læti í kringum tækin. Að sögn
starfsmannsins heyrði hann ekki
strax hvað var að gerast og það má
vera að það hafi tafið fyrir að slökkt
var tækinu.“
Ekkert reyndist vera að tækinu
Hringekjan var áfram í notkun, en
bollinn var tekinn úr umferð í kjölfar
slyssins þar til Vinnueftirlitið var bú-
ið að taka tækið út. En Vinnueftirlitið
tekur árlega út öll vélknúin tæki í
garðinum og oftar berist at-
hugasemdir vegna einhvers þeirra.
Minni tæki eru síðan yfirfarin af
Heilbrigðiseftirlitinu og verkstæði
Húsdýragarðsins sér um almennt
viðhald. Að sögn Sigrúnar hafði
Vinnueftirlitið ekkert út á hringekj-
una að setja, en hún er vottuð öllum
Evrópustöðlum.
„Þetta var undarlegt slys og það
skilur eiginlega enginn hvernig þetta
gat gerst,“ segir Tómas Óskar Guð-
jónsson, forstöðumaður Hús-
dýragarðsins. Ekkert hafi reynst
vera að hringekjunni sem er nú kom-
in í fulla notkun. Henni hafi heldur
ekki verið breytt í kjölfar slyssins,
enda væri það ábyrgðarhluti hjá Hús-
dýragarðinum að fara að fikta í tæki
sem væri í lagi og vottað af Vinnueft-
irlitinu. Hvorki var kallað á sjúkrabíl
né lögreglu og segir Sigrún metið í
hverju tilfelli hvort það sé gert. „Það
er alltaf gert í bráðatilfellum.“ Ekki
hafi hins vegar verið um bráðatilfelli
að ræða í þetta skipti. „Og nú ætla ég
ekki að gera lítið úr því að þetta var
mjög slæmt slys,“ segir hún.
Búið sé að fara yfir málið með
starfsmönnum garðsins, en það sé
jafnan gert þegar slys verða. „Við
skoðum hvernig brugðist var við,
hvernig má gera betur og reynum að
læra af því sem miður fór.“
Ýmsar hættur leynist á jafnt
stórum stað og Húsdýragarðinum og
reynt sé að bæta viðbrögð í hvert
skipti sem slys verði. „Við getum ekki
breytt leiktækinu, en við förum yfir
vinnureglur og vinnubrögð okkar
starfsmanna.“ Vinnureglum í tækj-
unum hafi t.a.m. nú verið breytt, t.d.
hvernig starfsfólk sé staðsett í tæk-
inu. „Svo höfum við tekið harðar á því
að starfsfólk sé vakandi og fylgist vel
með og það ítrekum við reglulega.“
Missti hárið í hringekjunni
Hárið festist í snúningssveif og stúlkan missti um fjórðung þess Búið er að
yfirfara tækið hjá Vinnueftirlitinu sem hefur ekkert við það að athuga
„Þetta var undar-
legt slys og það
skilur eiginlega
enginn hvernig
það gat gerst.“
Morgunblaðið/Eggert
Hringekjan Slysið átti sér stað þegar hár stúlkunnar festist í skrúfu í handsnúningsbúnaði bollans sem hún sat í.
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Stjórnendur HS Orku vonast eftir að
í september afgreiði Orkustofnun
virkjanaleyfi vegna stækkunar
Reykjanesvirkjunar. Leyfið er for-
senda þess að hægt sé að ljúka fjár-
mögnun virkjunarinnar og gerð raf-
orkusamnings. Júlíus Jónsson,
forstjóri HS Orku, segir að skapist
óvissa um eignarhald á HS Orku sé
hætt við að ekki verði hægt að ganga
frá fjármögnun framkvæmdarinnar.
50 MW gufuhverfill og tilheyrandi
búnaður vegna stækkunar virkjun-
arinnar kom til landsins í byrjun
júní.
Búast má við að bora þurfi 7-8
holur til að fá næga orku til að knýja
hverfilinn. Orkustofnun vill ekki
gefa út virkjanaleyfi fyrr en fyrir
liggja betri upplýsingar um hvort
svæðið þolir meiri nýtingu. Holunni
verður „hleypt upp“ sem kallað er í
byrjun september og þá fást betri
upplýsingar um hvort hægt sé að
virkja meira á svæðinu. Sérfræðing-
ar eru ekki sammála um hvort svæð-
ið stendur undir einni vél til viðbót-
ar.
Júlíus segir að leyfið sé for-
senda fyrir því að hægt sé að ljúka
fjármögnun og gerð orkusölusamn-
ings. Hann segir að óvissa um eign-
arhaldið á HS Orku hafi neikvæð
áhrif á þessa framkvæmd. „Þessi
óvissa tefur klárlega fjármögnun
framkvæmda. Það er mjög hæpið að
fara í stóra lántöku eða hlutafjár-
aukningu í svona óvissu.“
Magma kom með 2,5 milljarða í
nýtt hlutafé í HS Orku í mars sl. en
það fjármagn var notað í að borga
túrbínu og búnað henni tengdan og
holur sem búið er að bora. „Það er
allt greitt sem búið er að gera. Þetta
eru talsverð tíðindi því þetta er í
fyrsta skipti sem orkufyrirtæki á Ís-
landi fær nýtt hlutafé. Allar fram-
kvæmdir hér á árum áður hjá Lands-
virkjun, Orkuveitu Reykjavíkur og
Hitaveitu Suðurnesja voru fjár-
magnaðar með lánum og jafnvel arð-
greiðslur líka,“ segir Júlíus.
Júlíus viðurkennir að HS Orka
sé að taka áhættu með því að kaupa
túrbínu án þess að hafa fengið virkj-
analeyfi. Þetta sé hins vegar alvana-
legt verklag.
Fjármögnun HS Orku gæti tafist
verði áfram óvissa um eignarhaldið
Morgunblaðið/RAX
Búið er að leggja mikla fjármuni í að undirbúa stækkun Reykjanesvirkjunar
Ekki hefur enn
verið ráðið í stöðu
framkvæmda-
stjóra Íbúðalána-
sjóðs en ráða átti í
embættið frá og
með fyrsta júlí
síðastliðnum. Há-
kon Hákonarson,
formaður stjórnar
sjóðsins, segir að
næst verði fundað
þann 19. ágúst en hyggur ólíklegt að
ákvörðun um ráðninguna verði tekin
þá.
Þar til ákvörðun hefur verið tekin
gegnir Ásta H. Bragadóttir, aðstoð-
arframkvæmdastjóri sjóðsins, starf-
inu. Hún er einn umsækjenda um
starfið.
Vinnubrögðin vafasöm
Síðast fundaði stjórn Íbúðalána-
sjóðs snemma í júlí og var þá ákveðið
að fresta ráðningunni ótímabundið.
Telur lögfræðingur vinnubrögð
stjórnarinnar falla illa að reglu
stjórnsýslulaga um hraða máls-
meðferð. Henni beri að taka ákvörð-
un svo fljótt sem verða má en hafi
ekki fundað svo vikum skipti.
Töf á ákvörðun í málinu telur hann
að geti tæpast réttlæst af rannsókn-
arskyldu þar sem nefndin hefur ekki
komið saman eins lengi og raun ber
vitni. Þá hafi stjórnin haft nægan
tíma til að meta umsækjendur þar
sem umsóknarfrestur rann út í maí.
skulias@mbl.is
Ekki enn
ráðið í
embættið
Hákon
Hákonarson
Funda þann nítjánda
eftir sex vikna hlé
Herdís Storgaard, forstöðumaður Forvarnahúss, segir
slysið í hringekjunni þegar vera komið inn á borð til
sín og hún hafi tilkynnt forstöðumanni Húsdýragarðs-
ins að svo sé.
„Þegar ég fór hins vegar að skoða þetta þá fór ég að
velta því fyrir mér að starfsemi Húsdýragarðsins er
búin að vera að breytast smátt og smátt og það er
spurning hvort ekki sé kominn tími á að skoða hana.“
Í Húsdýragarðinum séu, auk húsdýranna, hefð-
bundin leiktæki og rafknúin tæki. „Og það er mikið að
vera inni í þegar kemur að öryggismálum. Því tel ég mikilvægt að Hús-
dýragarðurinn verði skoðaður í heild, starfsemin skilgreind og farið yfir
verkferla til að kanna hvort það sé eitthvað sem ef til vill standi út af,
því að þetta er yfirgripsmikill rekstur.“
Verði skoðað í heild
MÁLIÐ KOMIÐ Á BORÐ FORVARNAHÚSS
Herdís Storgaard
Nú þegar hafa safnast um 1,3 millj-
ónir króna inn á reikning sumarbúð-
anna Reykjadals í Mosfellsdal. Starfs-
menn búðanna tóku sig til og opnuðu
styrktarsjóð fyrir helgi í ljósi niður-
skurðar sem leiddi til lokunar á búð-
unum í vetur.
Vilmundur Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Styrktarfélags lam-
aðra og fatlaðra í Reykjavík, staðfesti
einnig á Facebook-síðu framtaksins
að loforð væru komin fyrir 2,5 millj-
ónum til viðbótar sem gera samtals
tæpar fjórar milljónir í heildina.
Hann tekur einnig fram að þetta sé
aðeins byrjunin og hann hafi fulla trú
á að markmiðið náist, en safna þarf
15 milljónum til þess að starfsemi
geti haldið áfram í Reykjadal. Einnig
segir hann á síðunni að hann muni
uppfæra síðuna og leyfa fólki að
fylgjast með gangi mála.
Ljóst er að söfnunin gengur vel og
líklega framar vonum. „Síminn hefur
ekki stoppað. Við erum búin að vera
á haus hérna síðustu daga,“ segir Sól-
veig Hlín Sigurðardóttir, forstöðu-
kona Reykjadals. „Nú var síðasti hóp-
urinn okkar að fara, en við þurfum að
leita okkur aðstoðar til að geta haldið
utan um þetta allt saman,“ segir hún
kát og ánægð með árangurinn.
gunnthorunn@mbl.is
Morgunblaðið/Ernir
Reykjadalur Mikil gleði ríkjandi.
Allt á fullu
í Reykjadal
Söfnun gengur vel