Morgunblaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 4
FRÉTTASKÝRING
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Útlit er fyrir að heyfengur eftir
sumarið verði mjög góður. Grös
hafa sprottið vel og spretta enn.
Þurrkar hafa aðeins dregið úr
sprettu á stöku stað á Norður- og
Vesturlandi. Minna þarf að flytja af
heyjum á áhrifasvæði eldgossins í
Eyjafjallajökli en útlit var fyrir í
vor.
Margir bændur á Suðurlandi og
Norðurlandi hafa nýtt hagstætt veð-
ur að undanförnu og eru að ljúka
öðrum slætti og margir munu slá
þrisvar vegna þess hversu vel
sprettur.
Runólfur Sigursveinsson, ráðu-
nautur hjá Búnaðarsambandi Suð-
urlands, telur að hey verði mikil eft-
ir sumarið og góð eftir því.
„Heyskapur gekk vel. Við fengum
verktaka til að rúlla fyrir okkur og
tókum þetta á tveimur dögum um
miðjan júní,“ segir Guðbjörg Jóns-
dóttir, kúabóndi á Læk í Flóa. Hún
segir að uppskera hafi verið mikil.
„Háin er næsta mál á dagskrá,“ seg-
ir hún og bætir grænfóðrinu við
listann.
Þótt heyskapur hafi almennt
gengið vel getur Guðbjörg þess að
þeir sem enn þurrki hey hafi sumir
hverjir lent í vandræðum.
Gras brennur á túnum
„Þetta verður að teljast gott sum-
ar, í höfuðatriðum. Þurrkur dró úr
sprettu um tíma á vissum stöðum en
þegar það fór að rigna í byrjun júlí
fór sprettan af stað aftur. Hey eru
orðin mikill að vöxtum, víðast hvar,“
segir Guðmundur Steindórsson,
ráðunautur hjá Búgarði, ráðgjafar-
þjónustu á Norðausturlandi.
Guðmundur segir að rigningar
hafi tafið eitthvað fyrir að bændur
austan Vaðlaheiðar gætu hafið hey-
skap en telur að uppskera verði
einnig góð þar þegar upp verður
staðið.
Borgar Páll Bragason, verkefnis-
stjóri hjá Bændasamtökum Íslands,
segir að þurrkar hafi háð sprettu
sums staðar á vestanverðu landinu í
sumar, gras túna á grunnum jarð-
vegi hafi brunnið. Hann telur þó að
heyfengur verði í heildina góður.
Öskumengað hey
Heyskapur bænda á öskufalls-
svæðunum við Eyjafjallajökul hefur
gengið betur en reiknað var með í
vor þegar askan fauk um allt. Run-
ólfur Sigursveinsson ráðunautur
segir þó að heyið sé öskumengað og
það komi ekki í ljós fyrr en í haust
og vetur hvernig það nýtist. Búast
megi við því að það sé ekki eins lyst-
ugt og hey af öskufríum túnum.
Bændur undir Eyjafjöllum, í Mýr-
dal og víðar voru lengi með fé á húsi
vegna öskufallsins. Þeir eiga því litl-
ar fyrningar upp á að hlaupa. „All-
margir bændur hafa farið út í það að
kaupa hey frá öskufríum svæðum,
til að takast á við næsta vetur,“ seg-
ir Runólfur. Hann telur að í gegnum
heymiðlun sveitarfélaganna og Bún-
aðarsambandsins fari að lágmarki
3.000 heyrúllur inn á öskufallssvæð-
ið. Reikna má með að kostnaður við
það sé á öðrum tug milljóna.
Mikil hey og góð í sumar
Margir bændur að ljúka öðrum slætti og víða verður slegið þrisvar Þurrkar
drógu úr sprettu vestanlands Nokkuð rættist úr heyskap á öskufallssvæðinu
Morgunblaðið/RAX
Heyskapur Enn er verið að hirða heybagga. Ferbaggar raðast vel á flutningatæki og í hlöðu og henta betur til sölu á milli héraða en rúllubaggar.
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2010
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
„Við ætlum að reyna að sleppa út úr því,“ segir
Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður
Orkuveitu Reykjavíkur, um stöðuna vegna
kostnaðar við árlega flugeldasýningu Menning-
arnætur. „Við ákváðum að kanna hvort við gæt-
um dregið okkur út úr þessu og tel ég líklegt að
við losnum við þennan kostnað.“ Í Morgun-
blaðinu í gær kom fram að óvíst væri hvort
Orkuveitan myndi fjármagna flugeldasýn-
inguna. Búið er að panta flugeldana, það var gert
fyrir um sex mánuðum.
Haraldur segir að í ljósi aðstæðna sé mikil-
vægt að spara þarna eins og annars staðar en
lofar því þó að enginn muni þurfa að sitja uppi
með skaðann. „Það var ekki meiningin að koma
illa fram við neinn sem hefur lagt kostnað í að
gera þetta og við áttum okkur á því að þetta
kemur seint fram. En það mun enginn standa
uppi með útlagðan kostnað, það myndi aldrei
koma til þess.“ Kristinn Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Landsbjargar, segist bjartsýnn á
að frá þessu máli verði gengið og telur að
Reykjavíkurborg muni sjá til þess að sýningin
verði haldin. „Mér skilst að Reykjavíkurborg sé
að safna fyrir þessari sýningu meðal fyrirtækja
og stofnana og ætli síðan að borga mismuninn
sjálf,“ segir Kristinn sem vonar að allt fari vel.
Draga sig í hlé frá flugeldasýningu
Orkuveita Reykjavíkur telur æskilegt að losna við kostnað af flugeldasýningu Menningarnætur
Enginn mun sitja uppi með kostnað vegna flugeldanna en borgin sér til að sýningin verði haldin
Morgunblaðið/Eyþór Árnason
Bjart Flugeldasýningin á menningarnótt er ávallt glæsileg og vekur mikla lukku meðal borgarbúa.
Flugeldasýningin
» Orkuveitan leitast eftir því
að slá af kostnað vegna flug-
eldasýningar Menningarnætur
í sparnaðarskyni.
» Flugeldarnir pantaðir fyrir
hálfu ári og ekki hægt að selja
þá ef allt fer á versta veg.
» Orkuveitan mun ekki láta
neinn sitja uppi með kostnað
vegna kaupa á flugeldunum.
» Haraldur Flosi segir að
flugeldasýningunni verði ekki
aflýst heldur reyni allir að
finna skynsamlega lausn á
málinu.
„Ég veit ekki til þess að
aðrir flytji inn þessar
vörur en ég hef haft
þetta leyfi í þrjú ár.
Það var mjög erfitt og
tók langan tíma að fá
leyfið,“ segir Oddný
Bragadóttir, verslunar-
eigandi í Borgarnesi.
Morgunblaðið sagði frá
því í gær að Victoria’s
Secret snyrtivörudeild
yrði brátt opnuð í frí-
hafnarversluninni í
Leifsstöð. Oddný hefur
flutt inn vörur frá Victoria’s Sec-
ret síðustu þrjú árin og selt í
verslun sinni, Kristý, og á netinu.
Þá seldi hún vörurnar til þriggja
annarra verslana fyrir efnahags-
hrunið; í Reykjavík, á Akranesi og
á Akureyri. „Victoria’s Secret
keðjan er einungis með verslanir í
Bandaríkjunum en utan þeirra
mega sjálfstæðir aðilar flytja inn
vörurnar og selja, ég má hins veg-
ar ekki kalla búðina mína Victori-
a’s Secret verslun,“ segir Oddný
og bætir við að hún flytji fyrst og
fremst inn snyrtivörurnar en einn-
ig dálítið af nærfötunum sem keðj-
an er þekktust fyrir. Það sé þó
erfiðara að hafa þau í sölu vegna
gengisins.
ingibjorgrosa@mbl.is
Victoria’s Secret
vörur verið seldar
hérlendis í þrjú ár
Farþegum Ice-
landair fjölgaði
um 12% í júlí frá
sama mánuði á
síðasta ári, sam-
kvæmt flutnings-
tölum Icelandair
Group.
Það sem af er
árinu hefur far-
þegum félagsins fjölgað um alls
11%. Alls flutti Icelandair 215.684
farþega í júlí í ár, en í júlí í fyrra
flutti félagið 192.149 farþega.
Fyrstu sjö mánuði ársins hefur fé-
lagið flutt 808.111 farþega en flutti
728.813 farþega á sama tímabili í
fyrra. Sætanýting hjá Icelandair
var 86% nú í júlí, sem er hæsta
sætanýting í einum mánuði í fjögur
ár, en 76,1% það sem af er árinu.
Farþegum Flugfélags Íslands
fækkaði hins vegar um 3% í júlí og
um 9% fyrstu sjö mánuði ársins,
samanborið við sama tímabil á síð-
asta ári. Flugfélag Íslands flutti
39.501 farþega í júlí á þessu ári en
40.751 í fyrra. Það sem af er árinu
hefur félagið flutt 196.905 farþega.
gunnthorunn@mbl.is
Farþegum fjölgar
um 12% milli ára
Hver er algengasta
heyverkunaraðferðin?
Rúlluheyskapur er almennur hér á
landi og varð algengasta aðferðin á
níunda og tíunda áratug síðustu ald-
ar. Síðar bættust ferbaggar í flóruna
og á síðustu árum hefur aukist að
votheyi sé ekið í stæður heima við
bæi og verkað þar undir plasti. Enn
eru dæmi um að hey sé fullþurrkað
á túni með gamla laginu og flutt
laust eða í smáböggum heim í
hlöðu.
Hver er munurinn á rúlluböggum
og ferböggum?
Hann felst í laginu. Rúllurnar eru
bundnar með garni eða neti og
pakkað inn í plast. Ferbaggar eða
stórbaggar komu til síðar og byggj-
ast á sömu hugmynd og litlu hey-
baggarnir sem voru algengir á síð-
ustu áratugum síðustu aldar.
Heyinu er þjappað í bagga sem eru
bundnir saman með garni og pakk-
að í plast. Ferbaggar raðast betur en
rúllur og eru auðveldari í flutningi.
Spurt&svarað