Morgunblaðið - 12.08.2010, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2010
10 Daglegt líf
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Ragnar er með renniverkstæði í bíl-
skúr við heimili sitt á Höfn, hann seg-
ist hafa undirbúið ellidagana með því
að læra rennismíði.
„Ætli ég hafi ekki byrjað á þessu
þegar ég var 67 til 70 ára, þegar ég
hætti að vinna,“ segir Ragnar sem er
82 ára.
„Ég undirbjó ellidagana með því
að læra þetta og hef verið að dútla við
þetta síðan. Ég fór á eitt námskeið
hjá Trausta Óskarssyni tré-
vinnusmiði og á annað hjá Kristjáni
Jóhannssyni sem rak verslunina Ás-
borg lengi vel í Kópavoginum. Þetta
voru tveggja daga námskeið í hvort
skipti og það eina sem ég hef lært,
restin kom svo með æfingunni.
Þetta er áhugamálið mitt og það
hefur veitt mér mikla ánægju,“ segir
Ragnar.
Aðspurður segist hann eyða
drjúgum tíma í þetta áhugamál. „Ég
eyði nú talsverðum tíma í þetta, ég er
nú einn og mér þykir gott að stytta
mér stundir við rennismíði úti í bíl-
skúr þar sem ég er með aðstöðuna.
Ég varð upptekinn af þessu og
þetta er ákaflega góð dægradvöl, ég
myndi mæla með því að fólk und-
irbyggi elliárin með því að fara í eitt-
hvað svona til að hafa eitthvað fyrir
stafni þegar það hættir úti á vinnu-
markaðinum, það er ekki gott ef það
myndast einhver tómleiki.“
Hugurinn stóð í þessa átt
Ragnar var bóndi á Borg í
Mýrahreppi til ársins 1972 þegar
hann flutti á Höfn. Meðfram bústörf-
unum stundaði hann sjómennsku og
ók vörubíl. Eftir að hann flutti á Höfn
starfaði hann sem vélgæslumaður
hjá fiskiðjuveri Kaupfélags Austur-
Skaftafellssýslu sem síðar varð að
Borgey. Þar starfaði hann til ársins
1997 þegar hann hætti að vinna
vegna aldurs.
Ragnar kveðst alltaf hafa verið
laginn í höndunum.
„Ég hafði alltaf gaman af því að
dútla við einhverjar smíðar en það
gafst nú ekki oft mikill tími til þess
nema þá bara að dytta að verkfær-
um og öðru við búskapinn.
Þegar ég hætti að vinna kom
það í beinu framhaldi að fara að gera
eitthvað svona í höndunum, hug-
Ákaflega góð
dægradvöl
Ragnar Arason frá Höfn í Hornafirði var valinn handverksmaður ársins 2010 á
Handverkssýningunni í Hrafnagili um síðustu helgi. Ragnar rennir ýmiskonar
smáhluti úr tré og segir nauðsynlegt að hafa eitthvað fyrir stafni ellidagana.
Áhugamálið Tveir hlutir, bikar og skál, eftir Ragnar.
Handverkshátíð Ragnar Arason tekur við titlinum úr höndum Guðrúnar
Steingrímsdóttur sem var Handverksmaður ársins 2009. Dóróthea Jóns-
dóttir framkvæmdarstjóri Handverkshátíðar tilkynnti valið.
Allar konur, hvort sem þær eru giftar,
á leiðinni upp að altarinu eða ólof-
aðar vita hversu mikil vinna liggur á
bak við brúðkaup. Undirbúningurinn
hræðir marga, sérstaklega brúðgum-
ana, enda margt sem þarf að huga
að. Það getur verið algjört vesen að
afla sér upplýsinga og fá hugmyndir
sem eru nægilega greinagóðar til
þess að gera daginn fullkominn.
Verðandi brúðhjón geta eflaust
nýtt sér vefsíðuna theweddingg-
irl.co.uk til að koma sér af stað.
Stúlkan á bak við þá síðu segist hafa
verið gagntekin af brúðkaupum alla
ævi og ætti því að vita hvað hún
syngur. Hún er sjálf á leiðinni upp að
altarinu og deilir reynslu sinni með
lesendum, en segist passa sig að
ganga ekki of langt því þá muni hún
fæla verðandi eiginmann sinn í burtu.
Á þessari brúðkaupssíðu er hægt
að finna heilsteypt 12 mánaða plan
sem brúðkaupssérfræðingurinn
George Watts setti saman, en hann
segir fyrsta skref að brúðkaupi vera
samsetningu fjárhagsáætlunar.
Stúlkan lætur sér ekki nægja að
skrifa færslur, heldur svarar hún
einnig spurningum lesenda. Frábær
síða fyrir verðandi brúðhjón og
áhugamenn um brúðkaup.
Vefsíðan: www.theweddinggirl.co.uk
Hamingja Brúðkaup eru skemmtileg en heilmikil vinna liggur þar að baki.
Verðandi brúðhjón athugið
Hin árlegu töðugjöld á Hellu, Rang-
árþingi ytra, verða haldin á laug-
ardaginn, 14. ágúst.
Meðal atriða eru: kökukeppni,
morgunganga, bílasýning, fótbolta-
mót, streetball, kraftakeppni, barna-
skemmtun og hæfileikakeppni barna
12 ára og yngri. Einnig verður keppt í
rúllubaggaskreytingum. Sölu- og
markaðstjöld verða við íþróttahúsið
auk hoppkastala og leiktækja.
Kl. 20.30 hefst kvöldvaka þar sem
Björgvin Frans Gíslason og Jóhann G.
Jóhannsson verða kynnar. Þar keppa
íbúar á Hellu í hávaða- og hæfi-
leikakeppni og reiptogi, töðugjalda-
söngur fer fram og flugeldasýning.
Hljómsveitin 66 verður með ball á
Kanslaranum eftir kvölddagskrá.
Endilega …
… skellið ykkur
á töðugjöld
Söngur Það er stuð á Töðugjöldum.
Dagana 15. til 18. október næstkom-
andi standa Expressferðir og Knitting
Iceland fyrir sérsniðinni borgarferð til
London fyrir prjónara. Fararstjóri
verður Ragnheiður Eiríksdóttir sem
prjónarar ættu að kannast vel við en
hún er annar stofnenda og eigenda
Knitting Iceland, vinsæll prjónaleið-
beinandi og konan á bak við prjóna-
kennsludiskinn Prjónum saman.
Í lýsingu á ferðinni segir að í Lond-
on sé innblástur við hvert fótmál og
prjónabúðir sem uppfylla villtustu
drauma hvers prjónara. Í ferðinni
gefst þátttakendum kostur á að
sækja prjónanámskeið hjá breskum
prjónahönnuði og að fara í innblást-
ursgöngu þar sem borgin er skoðuð
með augum prjónarans og saga stað-
anna fléttuð inn í á skemmtilegan hátt.
Meðal þeirra staða sem heimsóttir
verða eru Fashion and Textile Museum,
prjónaverslunin Loop sem er á þremur
hæðum, Camden Lock markaðurinn og
I knit London sem er griðastaður
prjónara í London.
Nánari upplýsingar um ferðina,
skipulag hennar og kostnað má finna á
vefsíðunni Expressferdir.is.
ingveldur@mbl.is
Ferðalög
Griðastaður I knit London er búð og klúbbur prjónara í borginni.
Hópferð fyrir prjónakonur til
London í haust
Samkvæmt nýrri breskri rannsókn,
sem birtist í læknatímaritinu Brit-
ish Medical Journal síðastliðinn
þriðjudag, hefur veðráttan áhrif á
líkindi þess að fá hjartaáfall.
Rannsóknin, sem náði til 84 þús-
und Breta sem lagðir voru inn á
spítala vegna hjartaáfalls á árunum
2003 og 2006, leiddi í ljós að þegar
hitastig lækkar um 1 gráðu á cel-
síus aukast líkurnar á að fá hjarta-
áfall, í sömu viku og lækkunin átti
sér stað, um 2 uppsöfnuð prósentu-
stig.
„Tvö prósent er ekki há pró-
sentutala, en allir verða fyrir áhrif-
um af breyttu veðurfari og hjarta-
áföll eru algeng. Þessi tvö prósent
samsvara allt að því tveim hundr-
uðum manns,“ segir einn af höf-
undum rannsóknarinnar, Krishnan
Bhaskaran. „Eldra fólk og þeir sem
eru veilir fyrir hjarta eru sér-
staklega viðkvæmir fyrir kólnandi
veðurfari.“
Bhaskaran bætti við að fyrri
rannsóknir hafi sýnt að blóðþrýst-
ingur hækkar þegar kólnar í veðri.
Þannig þykknar blóðið og hjartað
þarf að hamast meira en ella. Það
gæti verið skýringin á niðurstöðum
nýju rannsóknarinnar.
„Við getum ekki stjórnað veðrinu
en við getum stjórnað því hversu
miklum áhrifum við verðum fyrir.
Fólk ætti að nota almenna skyn-
semi til að verja sig fyrir kuld-
anum. Til að mynda klæða sig vel
fyrir utan hússins dyr og passa upp
á að hitinn innandyra sé réttur. Þá
er ráðlegt að vera ekki mikið úti
þegar kalt er í veðri.“
Rannsóknin var leiðrétt fyrir
áhrifum á borð við loftmengun,
sjúkrasögur sjúklinga og langtíma
veðurbreytingar.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Kalt Íslendingar eru kuldanum þaulvanir og eiga ekki í vandræðum með að
klæða sig rétt. Það getur minnkað slæm áhrif kuldans á hjartastarfsemina.
Kólnandi veður eykur líkur á hjartaáfalli