Morgunblaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 15
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2010
Laugavegi 172-174 · 590 5000 · hekla.is · hekla@hekla.isÞjónustuver og þjónustumóttökur: Opið frá 8-17 alla virka daga · Pantanasími 590 5030 · thjonusta@hekla.is. Netspjall á www.hekla.is.
Þú getur treyst því að okkar fólk veit um hvað það er að tala40 ára reynsla auðveldar þér
að finna rétta varahlutinn
Hjá HEKLU hefur þú val milli þess að fá upprunalega varahluti bílaframleiðenda eða ódýrari
hluti annars staðar frá. Jón Magnússon og félagar hafa meira en 40 ára reynslu af því að
finna réttu vara- og aukahlutina fyrir þig á svipstundu. Láttu okkur gera betur við bílinn þinn.
100% þjónustulán án vaxta Val um upprunalega eða ódýrari varahluti Einstök vöruþekking 200.000 vörunúmer
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Sumarbústaðaeigendur í Úthlíð í
Biskupstungum hafa búið við umtals-
verðan vatnsskort í júlímánuði. Við-
mælandi Morgunblaðsins segir að all-
an júlímánuð hafi algert vatnsleysi
verið frá föstudögum og fram á
sunnudaga. Frá því á síðasta föstudag
hafi síðan ekkert vatn verið að fá, en
vatnsveita á svæðinu er á vegum
Orkuveitu Reykjavíkur.
Fólk hefur fyrir vikið þurft að
sækja vatn um langan veg í brúsa að
sögn viðmælandans og jafnvel í sum-
um tilfellum þurft að fara alla leið til
Laugarvatns eftir vatni. Þetta hafi
m.a. þýtt að ekkert vatn hefur verið í
salernum og ekkert vatn til drykkjar.
Hann segir fólk orðið mjög þreytt á
þessu ástandi og að málið snerti um
200 sumarbústaði.
Engar upplýsingar
„Þeir hafa sagt hjá Orkuveitunni
undanfarnar vikur að þeir ætli að lag-
færa þetta eins hratt og mögulegt er
en ekkert hefur gerst. Við höfum ekki
séð einn einasta bíl frá fyrirtækinu
hérna. Það hefur ekkert verið gert,“
segir sumarbústaðaeigandinn. Hann
segir ennfremur að óvissan í málinu
hafi farið illa í fólk. Engar upplýsing-
ar hafi borist frá Orkuveitunni um
það hvenær búast mætti við því að
vandamálið yrði leyst og hversu lengi
búa þyrfti við það. Þá hafi ítrekað ver-
ið sagt að fara ætti í það að vinna í
málinu án þess að nokkuð væri raun-
verulega gert. „Síðan hafa svörin ver-
ið mjög misjöfn eftir því við hvern
hefur verið rætt hjá fyrirtækinu. Þeir
hafa talað út og suður um þetta.“
Vegna þurrkanna
„Orkuveita Reykjavíkur er með
þetta mál alveg, hún rekur þessa
veitu hér. Ég hef verið í sambandi við
þá og þeir eru að vinna hörðum hönd-
um að þessu. Þetta er vonandi að
komast í lag, vonandi fyrir helgi segja
þeir mér,“ segir Ólafur Björnsson,
umsjónarmaður sumarbústaðalands-
ins í Úthlíð.
Ólafur segir að ástæðan fyrir
vatnsskortinum undanfarið sé þurrk-
arnir í sumar. Fyrir vikið hafi vatn
klárast á álagstímum. Ástandið hafi
þó aðeins snert þá bústaði sem standi
efst í landinu.
Vatnsskortur í sumar-
bústöðum í Úthlíð
Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson
Sumarbústaðir Vatnsskortur hefur hrjáð sumarbústaðaeigendur í Úthlíð.
Landeigandi
segir að unnið sé
að lausn málsins
Vatnsskortur
» Vatnsskortur hefur hrjáð
sumarbústaðaeigendur í Úthlíð
undanfarinn mánuð.
» Orkuveitan er sökuð um að
gera ekkert í málinu og halda
fólki í óvissu.
» Unnið er að því að leysa
málið, segir umsjónarmaður
sumarbústaðalandsins.
Margir hafa lagt leið sína á hálend-
ið og víðsvegar um landið í sumar,
bæði íslenskir og erlendir ferða-
menn, og hefur borið á því að Ís-
lendingar séu ábyrgari í ferðum
sínum en áður. Oft koma þó upp
vandamál þar sem menn hafa ekki
verið nógu vel í stakk búnir og þar
hefur m.a. Landsbjörg komið til
bjargar.
„Ég held að þetta sé á svipuðu
róli og hefur verið. Við tökum sam-
an skýrslu í lok sumars og þá fáum
við yfirlit yfir það,“ segir Kristinn
Ólafsson, framkvæmdastjóri
Landsbjargar, spurður hvort fleiri
slys hafi orðið í ár en áður. „Sem
betur fer hefur þetta í flestum til-
fellum gengið vel og ekki nein al-
varleg slys sem við höfum komið
að. Við erum með mikið af smá-
verkefnum sem við erum að sinna,
nokkur alltaf stærri. Það er alltaf
eitthvað í gangi á hverjum degi.“
Hann segir vatnsföllin hafa verið
áberandi í sumar og hefur Lands-
björg haft í nógu að snúast í kring
um Nýjadal. „Það er búið að vera
svo hlýtt og gríðarleg bráðnun á
jöklunum.“
Kristinn segir að það sé ávallt
verið að brýna fyrir fólki að fara
varlega og leiðbeina því um hvern-
ig það á að haga sér á hálendinu.
„Við viljum trúa því að það skili ein-
hverjum árangri,“ segir hann.
„Okkur finnst Íslendingar fara var-
legar og spá betur í hlutina núna en
áður. Okkur finnst menn vera
ábyrgari í hegðun.“ Erlendu ferða-
mennina segir hann þó vera meiri
óvita en einkum vegna þess að þeir
þekki ekki svæðin og landslagið.
gunnthorunn@mbl.is
Ferðalangar Íslendingar þykja ábyrgari gagnvart móður náttúru en áður.
Íslendingar með-
vitaðir á hálendinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg