Morgunblaðið - 21.08.2010, Blaðsíða 7
Ný rekstrartækifæri í Egilshöll
Reginn ehf. býður til kynningarfundar um Egilshöll, viðskiptatækifæri í henni og útboðsferlið, miðvikudaginn 25. ágúst.
Kynningin verður haldin í Egilshöll og hefst við anddyri hennar kl. 14.00.
Brátt lýkur framkvæmdum við kvikmyndahús Sambíóanna í Egilshöll. Nú þegar er ýmiskonar starfsemi í höllinni,
s.s. spark- og tennisvellir, skautasvell, íþróttasalir, Heilsuakademían og skrifstofur. Í höllina koma daglega um
1.360 gestir. Í nóvember opnar kvikmyndahúsið og áætlað er að um 1.000 bíógestir sæki bíóið á degi hverjum.
Má því reikna með um 2.400 gestum daglega, miðað við þá starfsemi sem þá verður í húsinu.
Enn eru um 6.000 m² til ráðstöfunar undir þjónustu, verslun og afþreyingu og Egilshöll býður upp á mikla möguleika.
Margar stærðir af leiguhúsnæði eru í boði, jafnt innan dyra sem utan.
Valkostir sem standa rekstraraðilum til boða:
• Leiga á aðstöðu í sérrýmum.
• Leiga á aðstöðu á sameiginlegum svæðum.
• Aðstaða án útleigurýmis, s.s. sala á einstökum viðburðum.
Á fundinum gefst áhugasömum tækifæri til kynna sér aðstæður og útboðsferlið nánar.
Nánari upplýsingar: www.reginnehf.is.
Borgartúni 20 Sími 585 9000 www.vso.is
Borgartúni 25 Sími 512 8900 www.reginnehf.is
PI
PA
R\
TB
W
A
SÍ
A
1
0
1
9
9
8
Kynningarfundur miðvikudaginn 25. ágúst kl. 14.00.