Morgunblaðið - 21.08.2010, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.08.2010, Blaðsíða 8
Steingrímur J. Sigfússon. Már Guðmundsson. Öruggar heimildir eru fyrir því aðSteingrímur J. Sigfússon sé enn einu sinni kominn á fulla ferð við að siga á sjálfan sig og þjóðina rukk- urunum frá Bretlandi og Hollandi.     Undirbúningurinn innan lands ereinnig kominn af stað. „Lekið“ var frétt um að Landsvirkjun ætti erfitt með að fá lán vegna þess að Icesave-„skuldbindingarnar“ væru enn í uppnámi.     Í leiðinni var því einnig „lekið“ aðvondu karlarnir, fjármálaráð- herrar Hollands og Bretlands, ættu sæti í stjórn Framkvæmdabanka Evrópu og gætu notað sér þá stöðu til að kúga Íslendinga.     Ef tímaröðin er hefðbundin stend-ur nú yfir aðdráttur í bréf þeirra skátadrengja sem ávallt eru við- búnir.     Bréf Seðlabankans mun síðan ber-ast á réttum tíma með magn- þrunginni spá um að allt fari á versta veg ef ekki verði þegar gefist upp fyrir Icesave-kröfunum.     Þeir snúningalipru ritarar pant-aðra bréfa hafa þegar reynt að útskýra hvers vegna dómsdagsspár þeirra í kringum synjun forsetans og síðan þjóðaratkvæðagreiðsluna sællar minningar reyndust full- komlega innihaldslausar þegar til kom.     Hvenær mun renna upp fyrirþessu liði öllu að þjóðin er fyrir löngu búin að sjá í gegnum það? Enn sækja karlar Kiðhús heim 8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2010 Í dag, laugardaginn 21. ágúst verður farin gönguferð frá Hellisheiðarvirkjun til Nesjavalla- virkjunar. Gengið verður upp Sleggjubeinsskarð og upp á Vörðuskeggja sem er 805 metra hár. Þaðan verður farið niður í Kýrdal og í Nesjavalla- virkjun. Gangan tekur u.þ.b. 6 klst. og er frekar erfið, að jafnaði um brattar fjallshlíðar. Nauðsynlegur búnaður eru góðir gönguskór, góður hlífðar- fatnaður og nesti. Orkuveita Reykjavíkur leggur til ferðir frá Reykjavík í Hellisheiðarvirkjun og til baka frá Nesjavallavirkjun og er mæting í höfuðstöðvar Orkuveitunnar að Bæjarhálsi 1 kl. 10:00. Áætlaður komu- tími til baka er kl. 18:00. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Leiðsögu- maður er Hans Benjamínsson, kynningarfulltrúi Hellisheiðarvirkjunar. Hellisheiðarvirkjun – Nesjavalla - virkjun • Orkuveita Reykjavíkur rekur stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /O R K 50 28 1 05 /1 0 Athugið að efni dagsins getur riðlast af ýmsum ástæðum og er því bent á að nánari upplýsingar er að finna á vef Orkuveitunnar. Veður víða um heim 20.8., kl. 18.00 Reykjavík 12 skýjað Bolungarvík 7 alskýjað Akureyri 9 skýjað Egilsstaðir 7 skúrir Kirkjubæjarkl. 11 alskýjað Nuuk 13 léttskýjað Þórshöfn 10 alskýjað Ósló 17 skýjað Kaupmannahöfn 20 skýjað Stokkhólmur 18 léttskýjað Helsinki 18 léttskýjað Lúxemborg 26 heiðskírt Brussel 27 heiðskírt Dublin 21 léttskýjað Glasgow 20 skýjað London 21 skýjað París 28 heiðskírt Amsterdam 25 heiðskírt Hamborg 23 heiðskírt Berlín 25 heiðskírt Vín 23 skýjað Moskva 15 skýjað Algarve 31 heiðskírt Madríd 32 léttskýjað Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 31 léttskýjað Róm 30 skýjað Aþena 32 heiðskírt Winnipeg 22 léttskýjað Montreal 18 léttskýjað New York 30 heiðskírt Chicago 30 léttskýjað Orlando 32 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ STAKSTEINAR VEÐUR KL. 12 Í DAG 21. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:38 21:25 ÍSAFJÖRÐUR 5:32 21:41 SIGLUFJÖRÐUR 5:14 21:24 DJÚPIVOGUR 5:05 20:57 Skemmdir sem urðu þegar eldur kom upp í álverinu í Straumsvík í fyrrakvöld valda röskun á fram- leiðslu fyrirtækisins. Ekki verður hægt að afhenda allar pantanir á áli til kaupenda á réttum tíma. „Elds- voðinn veldur truflunum í starfsemi okkar,“ segir Ólafur Teitur Guðna- son, talsmaður Alcan á Íslandi, í samtali við Morgunblaðið. Eldurinn kom upp seint á fimmtu- dagskvöld. Slökkvilið höfuðborg- arsvæðisins sendi allan tiltækan mannskap á vettvang og tók ekki langan tíma að ráða niðurlögum eldsins. Orsökin er talin sú að bráðið ál hafi lekið í kjallara og kveikt þar í rafmagnsköplum Að sögn Ólafs Teits er nú beðið eftir varahlutum svo hefjast megi handa um viðgerðir og á meðan verða truflanir í starfseminni. Hve lengi þær vara ætti að skýrast fljót- lega eftir helgina. sbs@mbl.is Röskun á framleiðslu í Straumsvík eftir eldinn Morgunblaðið/Eggert Álverið í Straumsvík Talið er að bráðið ál hafi kveikt í rafmagnsköpplum. Hrafn Bragason, lögfræðingur og fyrrverandi hæsta- réttardómari, fer fyrir óháðri nefnd sem gera mun út- tekt á starfsemi líf- eyrissjóðanna fyrir bankahrun. Með honum í nefndinni eru Guðmundur Heiðar Frímanns- son, siðfræðingur og prófessor við Háskólann á Akureyri, og Katrín Ólafsdóttir, hagfræðingur og lektor við Háskólann í Reykjavík. Stjórn Landssamtaka lífeyris- sjóða óskaði eftir því við ríkis- sáttasemjara í júní að hann skipaði nefnd þriggja „óháðra, óvilhallra og hæfra einstaklinga“ sem fengi það hlutverk að gera úttekt á fjárfest- ingastefnu, ákvarðanatöku og laga- legu umhverfi lífeyrissjóðanna í að- draganda bankahrunsins, frá árslokum 2006. Nefndin hefur ráðið Kristján Geir Pétursson lögfræðing sem starfsmann. Gert er ráð fyrir því að hún skili skýrslu til stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða fyrir lok þessa árs. Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, segir að lífeyrissjóðirnir hafi orðið fyrir miklu höggi eins og aðrir fjárfestar í bankahruninu. Sjóðirnir hafi farið misjafnlega út úr hruninu en að meðaltali hafi þeir ekki orðið verr úti en lífeyrissjóðir í Evrópu og Am- eríku. Þó sé mikilvægt að fram fari óháð rannsókn á aðdraganda þess. Fyllt í gat rannsóknarnefndar Arnar bætir því við að rannsókn- arnefnd Alþingis hafi fjallað minna um lífeyrissjóðina en vonast hafi verið eftir en hafi talið ástæðu til að skoða þessi mál betur. Með skipan nefndarinnar sé reynt að fylla í þá eyðu. helgi@mbl.is Rannsaka fjárfest- ingar lífeyrissjóða Hrafn Bragason Guðmundur Heiðar Frímannsson Katrín Ólafsdóttir  Nefnd skipuð til að rannsaka starf- semi lífeyrissjóðanna fyrir hrun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.