Morgunblaðið - 21.08.2010, Blaðsíða 45
Dagbók 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2010
Páfagaukur
týndist
Hvítur páfagaukur,
garri, tapaðist frá
Hraunbæ 103 í Árbæ;
ef einhver hefur orðið
hans var þá vinsam-
legast hringið í síma
552-3235.
Vetrardagskrá
Ríkissjónvarpsins
Ég tek undir það,
sem hefur birst hér
um vetrardagskrá
Ríkisútvarps og sjón-
varps, og finnst held-
ur betur af henni
skorið, þegar hvorki Spaugstofan
né Orð skulu standa verða á sín-
um stað í dagskránni og á erfitt
með að skilja hvað Sigrúnu Stef-
ánsdóttur gengur til með þessu,
þar sem þetta voru vinsælustu
þættirnir í fjölmiðlunum og þeir,
sem voru ómissandi að allra mati.
Það fara líka fáir í fötin þeirra
Pálma, Sigurðar, Arnar og Karls
Ágústs, að því er þjóðfélagsádeil-
una snertir. Það verður afar mikil
eftirsjá að þeim. Kannski 365
miðlar fái þá til sín í lokaða dag-
skrá eins og handboltann til þess
eins að auka áhorfið og áskriftina?
Það væri eftir þeim.
Það er annars
umhugsunarvert, að
sú stofnun skuli geta
staðið í slíkum fjár-
útlátum, þar sem ég
hélt, að eigandinn,
Jón Ásgeir, og öll
hans fyrirtæki væru á
hausnum og fryst að
auki. Mér finnst það
þá skjóta skökku við,
ef þeir geta keypt til
sín efni á borð við
handboltann og
fengju svo Spaugstof-
una til sín líka, sem
ég hélt, að kostaði
sitt. Hvar fást pen-
ingarnir í það? Mér er spurn.
Annars datt mér í hug, hvort þeir
Spaugstofumenn gætu ekki látið
þættina sína og það efni, sem þeir
eiga í handraðanum, á DVD-diska,
og gefið þá út með leyfi Ríkis-
útvarpsins, svo að fólk geti
skemmt sér við að horfa á þættina
þeirra í vídeóinu heima í stofu.
Ég kem þeirri hugmynd hér
með á framfæri.
GJS
Ást er…
… að vera stoltasti afinn
og stoltasta amman.
Velvakandi
Trúarjátning ESB-mannsins“er yfirskrift vísu sem Páll
Bergþórsson gaukaði að
umsjónarmanni:
Í Evrópusamband ég eindregið stefni,
með andaktarsvip ég það ríki nefni
með glýju í augum og undirgefni,
svo áköf er trú mín í vöku og svefni.
Árni Jónsson, sem treður upp
fyrir Þingeyinga í einvígi við
Húnvetninga á Bragaþingi, lands-
móti hagyrðinga, tók orðum
karlsins úr Skuggahverfinu ekki
létt, sem vildi tefla fram liði úr
105, líklega vegna þess að þar býr
Jón Ingvar Jónsson. Árni orti:
„Hundraðogfimm“ höfundar
í hópum fella tárin.
Og með tungu öfundar
Ingvar sleikir sárin.
Sigrún Haraldsdóttir tók þegar
undir orð Árna um skáldin í 105:
Ekki er í þeim ærleg taug
eða mikill dugur,
sitja upp á sýndarhaug,
suða eins og flugur.
Sigrún bætti svo við afsakandi:
„Kerlingarskepnan hefur áreið-
anlega ort þetta.“ Skírskotaði hún
þar til kerlingar á Skólavörðu-
holtinu, sem hefur eldað grátt
silfur við karlinn í Skuggahverf-
inu síðustu daga í Vísnahorninu.
Ekki leið á löngu þar til Jón
Ingvar kvaddi sér hljóðs: „Ég fór
á súlustað og hitti karlfauskinn
úr Skuggahverfinu og hann sagði
við mig á tólfta séníver eftir að
hafa rifjað upp vísur síðustu
daga:
Hér er margt af hagleik gert
sem hrindir burtu leiða
en allt sem þykir einskis vert
ort er norðan heiða.“
Jón Ingvar bætti við með
stríðnisglampa í augum: „Þótti
honum þó sérstaklega lítið til Sig-
rúnar og Árna koma.“
Árni var fljótur að bregðast
við, eins og nærri má geta, og
svaraði: „Skækjan úr Skugga-
hverfinu hringdi til mín þessa
stöku, eftir viðkomu á „súlustaðn-
um“:
Sá ég mann á súlustað
sveittan eftir juðið,
og af viti ekkert kvað
utan flugnasuðið.“
Ljóst má vera að engum mun
leiðast á Bragaþingi.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af ESB og Bragaþingi
Aðalfundur
Samtaka um tónlistarhús verður haldinn
þriðjudaginn 21. september kl. 17.00
í fundarsal FÍH Rauðagerði 27.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjórnin
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
MAÐUR FÆR
MIKIÐ ÚT ÚR BÓKUM
SVO DÆMI SÉ TEKIÐ... ER ÉG ORÐINN
HÆRRI EN
ÉG VAR
FYRSTA
KAST
TÍMA-
BILSINS
ÞARNA FER HANN...
BEINT YFIR HÖFNINA
...OG BEINT YFIR
GIRÐINGUNA LÍKA
ÉG VERÐ AÐ GERA ÞETTA
RÉTT... KASTAÐU HONUM
BARA BEINT YFIR HÖFNINA
ÉG SÉ EKKI BETUR
EN AÐ FÓLKIÐ Í
HVERFINU HAFI LÝST
VANTRAUSTI Á ÞIG
ÞÚ ERT EKKI
LENGUR FORSETI
HVERFISRÁÐSINS
TÆTIÐ ÖLL
GÖGNIN!
ÉG SÁ ÞIG Í MÓTMÆLUNUM
Í SJÓNVARPINU Í GÆR.
ER ALLT Í LAGI?
JÁ, EN ÉG ER
EKKI VISS UM AÐ
ÉG HEFÐI ÁTT AÐ
HVETJA HANN
SVONA MIKIÐ
NÚ? VILL
HANN STANDA
FYRIR FLEIRI
MÓTMÆLUM?
JÁ,
LÖGREGLAN
SLEPPTI
MÉR
MEÐ-
LEIGJANDI
ÞINN VAR
ANSI
GÓÐUR
LEIÐTOGI!
NEI, ÉG ÞARF
AÐ FINNA LEIÐ
TIL AÐ BORGA
RESTINA AF
LEIGUNNI Á
MEÐAN HANN ER
Í FANGELSI
ÞAU GETA EKKI
BARA LOKAÐ
FYRIR RAFMAGNIÐ
HJÁ OKKUR!
ÞAU SEGJA
AÐ ÞÚ HAFIR
EKKI BORGAÐ
ÞETTA ERU
ÖRUGGLEGA
MISTÖK
LÆRÐU
HEIMA... ÉG
SKAL SJÁ UM
ÞETTA...
SEM
ELECTRO!
HVERNIG
FINNST ÞÉR AÐ
BÚA HÉRNA?
ÞAÐ ER ÁGÆTT...
EN MAÐUR VERÐUR
AÐ FÓRNA
ÝMSU
ÉG GÆTI TIL DÆMIS
ALDREI VERIÐ MEÐ
VÍNKJALLARA
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is