Morgunblaðið - 21.08.2010, Blaðsíða 37
Minningar 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2010
✝ Guðmundur Helga-son múrarameist-
ari fæddist hinn 24.
júní 1933 á Árbakka í
Hnífsdal. Hann lést á
Fjórðungssjúkrahús-
inu á Ísafirði hinn 14.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Helgi Björnsson, f. 3.
mars 1910, d. 16. ágúst
1987, og Kristjana Jón-
asdóttir, f. 27. maí
1914, d. 25. júlí 1975.
Systkini Guðmundar
eru: Björn, f. 1935,
Jónas Karl, f. 1937, d. 1980, Halldór
Kristinn, f. 1938, Jón Hálfdán, f.
1947, d. 1966, Ólöf, f. 1950, Guðrún
Þorgerður, f. 1953, Reynir, f. 1955
og Björk, f. 1959.
Guðmundur kvæntist hinn 27. jan-
úar 1957 eftirlifandi eiginkonu sinni,
Steinunni Margréti Jóhannsdóttur
Emma Sól, f. 2006, og Karitas Eva,
f. 2009. d) Bára Björg, f. 1992. 2)
Kristjana, f. 1961. 3) Hulda, f. 1968,
maki Herbert Sveinbjörnsson. Dæt-
ur þeirra eru a) Steinunn Margrét,
f. 2006 b) Ingibjörg Ellý, f. 2007. 4)
Bára, f. 1970, maki Kristinn Þór
Kristinsson. Börn þeirra eru a) Arn-
ar Már, f. 1992, b) Birna, f. 1998, c)
Katla, f. 2004.
Guðmundur lauk sveinsprófi í
múrariðn frá Iðnskólanum á Ísa-
firði 1959 og varð meistari í þeirri
iðn. Hann starfaði sem múr-
arameistari stærstan hluta sinnar
starfsævi. Hann var fjárbóndi og
hestamaður og var m.a. einn af
stofnfélögum Hestamannafélagsins
Storms og Hestamannafélagsins
Hendingar. Guðmundur tók virkan
þátt í félagsstörfum, var í Frímúr-
arareglunni Njálu og söng í Sunnu-
kórnum og Karlakórnum Erni í
áratugi.
Jarðarför Guðmundar fer fram
frá Ísafjarðarkirkju í dag, laug-
ardaginn 21. ágúst 2010, og hefst
athöfnin kl. 14.
frá Hrísey, f. 27. jan-
úar 1935. Foreldrar
hennar voru Jóhann
Vilhjálmur Ein-
arsson, f. 13. sept-
ember 1906, d. 3.
október 1956, og
Bára Sigtryggsdóttir,
f. 16. júní 1911, d. 25.
ágúst 1978.
Börn Guðmundar
og Steinunnar eru: 1)
Jóhann Einars, f.
1956, maki Júlíana
Bjarndís Ólafsdóttir.
Dætur þeirra eru a)
Guðný Ragna, f. 1973, maki Árni
Frímann Jónsson. Dóttir þeirra er
óskírð, f. 2010. b) Margrét, f. 1982,
maki Hafþór Theódórsson. Börn
þeirra eru Viktor Blær, f. 2002, og
Ásta María, f. 2008. c) Guðlaug Lí-
ney, f. 1986, maki Rögnvaldur Guðni
Jóhannsson. Dætur þeirra eru
Við erum seinna hollið. Okkar
minningar um pabba eru því sam-
tvinnaðar.
Við með Spur og Conga í einhverri
góðri laut með mömmu og pabba; við
í ferðalagi á Saab-inum; við liggjandi
í pabba og mömmu rúmi í myrkrinu
að hlusta á útvarpsleikritið á
fimmtudagskvöldum. Við með pabba
í Hnífsdal, í kindahúsinu; liggjandi í
heyhrúgu upp á kerrunni og pabbi á
traktornum. Við í hesthúsinu, hesta-
ferðum og hestamannamótum með
pabba og mömmu.
Við, Krissa, Jói, mamma og pabbi
við eldhúsborðið á Seljalandsvegin-
um.
Löngu seinna, við með börnin okk-
ar og heimsins besta afa.
Elsku pabbi okkar, takk fyrir allt.
Við eigum eftir að sakna þín, faðm-
laga þinna og hlýju.
Hulda og Bára Guðmundsdætur.
Í dag kveðjum við þig, elsku afi,
með miklum söknuði. Mikið er erfitt
að sætta sig við að þú sért farinn frá
okkur en við trúum því að þú sért
kominn á betri stað, þar sem þér líð-
ur vel og ert að tína aðalbláberin þín
sem þér þótti alltaf svo gaman að
gera.
Við munum ávallt þakka fyrir dýr-
mætu stundirnar sem við áttum með
þér síðustu dagana og þær munu
fylgja okkur um ókomna tíð.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Við munum ávallt elska þig, elsku
afi, og við skulum passa upp á ömmu
Steinunni fyrir þig. Takk fyrir allt og
allt, hjörtun okkar fylgja þér.
Þínar afastelpur,
Guðlaug Líney (Lauga)
og Bára Björg.
14. ágúst lést öðlingurinn Guð-
mundur Helgason múrarameistari,
eftir baráttu í stuttan tíma við ill-
vígan sjúkdóm. Guðmundur var elst-
ur níu systkina. Hann fæddist í
Hnífsdal og þar ólst hann upp við
ástríki foreldra sinna. Strax og Guð-
mundur hafði burði til fór hann að
taka þátt í daglegum störfum sem
buðust. Fór í sveit á sumrin og heill-
aðist hann mjög af bústörfum. Faðir
hans hafði alltaf kindur og hesta.
Eftir gagnfræðiskólagöngu á Ísa-
firði fór Gumundur að læra múrara-
iðn á Ísafirði og starfaði við þá iðn
alla sína starfsævi. Frá Akureyri
kom ung stúlka í húsmæðraskóla,
hún Steinunn og hafa þau saman
gengið lífsgönguna hér á Ísafirði.
Eins og áður sagði heilluðu bústörf
Guðmund mikið og átti hann alltaf
kindur og hesta. Lagði hann mikla
vinnu í að sinna þeim eftir erfiðan
dag í múrverkinu. Mjög kært var
með Guðmundi og systkinum hans.
Foreldrar hans bjuggu í Hnífsdal og
leit hann alltaf inn er hann átti erindi
í Hnífsdal. Guðmundur var söngelsk-
ur og söng hann í áraraðir í Sunnu-
kórnum. Þegar við Diddi fórum að
byggja okkur heimili í Hnífsdal sá
Guðmundur um allt múrverk fyrir
okkur og aðstoðaði okkur á allan hátt
við bygginguna, ásamt bræðrum sín-
um. Sem elstu systur dekruðu þeir
bræður mikið við mig. Ég vil þakka
bróður mínum allan stuðning og
hjálp er hann hefur sýnt mér. Ég
sakna hans mikið. Ísafjörður og
Hnífsdalur var hans heimabyggð allt
æviskeiðið, einlægur og sannur var
hann í elsku sinni til Ísafjarðar og
Hnífsdals, vildi veg þeirra og Ísfirð-
inga sem mestan og bestan.
Elsku Steinunn mín, við sendum
þér og börnum þínum og fjölskyld-
um þeirra einlægar samúðarkveðjur.
Lífssaga Guðmundar var dáðrík
saga dugnaðar og samviskusemi.
Blessuð sé minning míns kæra bróð-
ur.
Ólöf og Kristján.
Guðmundur, bróðir minn, lést
hinn 14. ágúst sl. eftir mjög erfiða
sjúkdómslegu frá því í janúar, og
langar mig til að minnast hans með
nokkrum orðum. Hann var elstur af
9 systkinum og því sjálfkjörinn for-
ingi systra og bræðra enda var hann
þeim góð fyrirmynd, notaði aldrei
vín eða tóbak.
Undirritaður var tveim árum
yngri og áttum við góða samferð alla
tíð.
Guðmundur fór mjög ungur í sveit
til föðurbróður okkar í Minni-Hatt-
ardal, Jóns Björnssonar, og var þar í
5 sumur og líkaði þeim vel hvorum
við annan. Eftir það gekk hann með
bóndabakteríuna í maganum í mörg
ár. Guðmundur var mjög góður
íþróttamaður og keppti í mörg ár á
skíðum og varð m.a. Vestfjarða-
meistari í svigi, hann var einnig
skíðakennari nokkra vetur. Þá gekk
hann í knattspyrnufélagið Vestra á
Ísafirði eins og svo margir í Hnífsdal
og þótti góður knattspyrnumaður og
var fastur liðsmaður þar í mörg ár.
Þá var hann einn af stofnendum
íþróttafélagsins Reynis í Hnífsdal og
keppti og starfaði fyrir félagið í
mörg ár.
Eftir lok Gagnfræðaskólans á Ísa-
firði fór Guðmundur í Iðnskólann og
lærði múraraiðn sem hann starfaði
við meðan heilsan leyfði. Á miðju
sumri 1965 fór hann ásamt fimm öðr-
um félögum sínum norður í Skaga-
fjörð til að kaupa hesta og átti hann
síðan alla tíð hesta sem hann hafði
yndi af. Síðar kom hann sér upp litlu
fjárbúi sem hann hafði gaman af að
hugsa um og hafði hann þá fullnægt
bóndabakteríunni sem hafði alltaf
blundað í honum.
Guðmundur var söngmaður góður
og hafði mjög gaman af söng og mús-
ík og söng hann í mörgum kórum á
Ísafirði, þar á meðal Sunnukórnum
og Karlakórnum.
Fyrir tæpum 30 árum gekk hann í
frímúrarastúkuna Njálu á Ísafirði og
átti þar gott starf meðan hann hafði
heilsu til og gegndi þar trúnaðar-
störfum.
Guðmundur var dagfarsprúður
maður og þótti vænt um fjölskyldu
sína, þar er genginn góður drengur.
Ég kveð með söknuði góðan bróðir.
Við Maja sendum Steinunni og
fjölskyldu okkar innilegustu samúð-
ar kveðjur.
Björn Helgason.
Guðmundur Helgason
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
JÓNS PÁLS GUÐMUNDSSONAR,
áður til heimilis að
Sléttuvegi 13,
Reykjavík,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli fimmtudaginn
29. júlí.
Valgerður Jónsdóttir,
Ágúst Ingi Jónsson, Margrét Theodórsdóttir,
Gísli Hafþór Jónsson, Jóhanna Úlfarsdóttir,
Ásrún Jónsdóttir, Árni Már Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir færum við öllum sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar
ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og
langafa,
ÞÓRÐAR BJARNAR HAFLIÐASONAR,
áður til heimilis að,
Fífuhvammi 21,
og Sjafnargötu 6.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar
í Kópavogi fyrir alúð og hlýhug í veikindum hans.
Guð blessi ykkur öll.
Ásta Marteinsdóttir,
Smári Elfar Þórðarson,
Vilhjálmur Þórðarson, Heiðdís Sigursteinsdóttir,
Marteinn Bjarnar Þórðarson,
Arnar Þórðarson,
Bjarnheiður Þóra Þórðardóttir, Sigurður Eggert Ingason,
barnabörn og langafabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu
við andlát og útför bróður míns, frænda okkar og
vinar,
EYJÓLFS EGILSSONAR,
Hverahlíð 13,
Hveragerði.
Sérstakar þakkir til Dvalarheimilisins Áss
fyrir frábæra umönnun.
Ættingar og vinir.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
VIÐAR BENEDIKTSSON
skipstjóri,
Vesturbergi 117,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
föstudaginn 13. ágúst.
Útför fer fram frá Fella- og Hólakirkju þriðjudaginn
24. ágúst kl. 13.00.
Brynja Guðbjörg Valgeirsdóttir,
Berglind Viðarsdóttir, Björn Þórir Sigurðsson,
Kristjana Viðarsdóttir, Daníel Traustason,
Benedikt Viðarsson, Hólmfríður Sylvía Traustadóttir
og afabörn.