Morgunblaðið - 22.09.2010, Blaðsíða 11
Sjómaðurinn Skúli Guðbjarnarson við Skálabátinn sem hann fékk frá Færeyjum.
„Ég varð fyrir áföllum í fyrra,
annars vegar slasaði ég mig og hins
vegar brann húsnæði fyrirtækisins.
Ég ákvað að snúa óheillaþróuninni
við og fór að velta fyrir mér hvað ég
gæti gert. Þar sem ég á heima á
Álftanesi sá ég að það væri ekki vit-
laust að reyna að gera eitthvað þar í
kring, í gamla daga dreymdi mig
lengi um að gerast útvegsbóndi og
ég var á grásleppu og ýsu í eina tíð.
Það eru ágætismið á milli Ægisíðu
og Álftaness og hugsunin hjá mér er
að veiða hrognkelsi þarna og geta
selt hrogn, rauðmaga og grásleppu
að einhverju ráði og þá myndi skap-
ast smálíf í kringum það sem ég er
að gera á Ægisíðunni. Þarna gæti
fólk áfram komið og keypt rauð-
maga og signa grásleppu eins og áð-
ur fyrr. Svo tæki ferðamanna-
vertíðin við og þegar henni lýkur er
ég að vonast til að ég geti farið með
fólk í ferðir og verið með fræðslu
fyrir skólabörn ef ég er hvort sem er
að þvælast þarna meira og minna,
verandi líffræðingur og kennari með
kennsluréttindi á báðum skólastig-
um. En það á eftir að finna flöt á
því,“ segir Skúli.
Ætlar að smíða íslenskan bát
Hann segir enga erfiðleika
fylgja því að fara út á árabáti og það
sé ekki erfitt að róa. „Ég er líka van-
ur slíkum sjóferðum, ég átti heima
úti í Viðey og í Álfsnesi sem barn og
þar var mikið farið út á árabátum.
Pabbi keypti gamla báta og svo
gerðum við þá upp saman en ég hef
aldrei smíðað bát frá grunni,“ segir
Skúli sem hefur þó í hyggju að láta
það verða að veruleika.
„Við höfum í hyggju, ég og
fleiri, að smíða íslenskan bát með
Engeyjarlagi sem getur verið með
seglum og yrði það stór að það væri
hægt að fara á honum út á miðin hér
fyrir utan. Við erum að vinna í því að
safna fé til að byggja þennan bát
sem hægt væri að nýta við þetta sem
ég er að gera,“ segir Skúli að lokum.
Á flot Bátnum ýtt frá grásleppuskúrunum við Ægissíðu út á sjó. Upplýsingar um ferðir Skúla frá
Ægisíðu má finna á vefsíðunni:
www.alice.is. Síðan er ekki enn
komin í gagnið en vísað er á face-
book-síðu þar sem má finna allar
upplýsingar.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2010
FJÁRMÁLARÁÐGJÖF | landsbankinn.is | 410 4000
Landsbankinn kynnir röð fjármálanámskeiða fyrir almenning undir yfirskriftinni
Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld. Markmið þeirra er að auðvelda fólki að
öðlast betri yfirsýn yfir fjármálin. Á næstu fjármálakvöldum verður námskeið
um réttindi lífeyrisþega.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
3
5
2
5
N
B
I
h
f.
(L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t
.
4
7
1
0
0
8
-
0
2
8
0
.
Næstu námskeið
23. september kl. 20 - fullbókað
Útibúið í Grafarholti, Vínlandsleið
30. september kl. 20
Útibúið í Keflavík, Hafnargötu 57
7. október kl. 20
Félagsmiðstöðin Hlymsdalir
Miðvangi 6, Egilsstöðum
14. október kl. 20
Útibúið á Laugavegi 77
21. október kl. 20
Útibúið á Akranesi, Þjóðbraut 1
Skráning og nánari upplýsingar
á landsbankinn.is og í
síma 410 4000.
Allir velkomnir.
Námskeið um
réttindi lífeyrisþega
landsbankinn.is/fjarhagur
Blogg og hljóðpistlar um fjármál.
Unnið hefur verið að
varðveislu atvinnulífs-
minja við Grímsstaðavör
frá haustinu 2006 þegar
menningar- og ferða-
málaráð Reykjavíkur
samþykkti tillögu Kjart-
ans Magnússonar borg-
arfulltrúa um málið.
Skipaður var starfs-
hópur til að vinna að
verkinu og var Kjartan
skipaður formaður hans.
Kjartan segir markmið
hópsins hafa verið að
varðveita Grímsstaðavör
og þær atvinnulífs-
minjar, sem þar eru, í
óbreyttri mynd eftir því
sem kostur er og stuðla
jafnframt að því að
svæðið verði lifandi safn
til framtíðar. ,,Í safninu
má fræðast á skemmti-
legan hátt um þá at-
vinnuhætti, sem ríkjandi
voru á Íslandi í þúsund
ár. Sérstök áhersla er
lögð á að Grímsstaðavör verði aðgengileg fyrir börn og unglinga og þar
geti þau fræðst um sjósókn og atvinnuhætti forfeðra sinna,“ segir Kjart-
an.
Grímsstaðavör var í notkun fram að síðustu aldamótum, grásleppu-
skúrarnir voru farnir að láta á sjá og árið 2006 var byrjað að gera þá upp
í upprunalegri mynd. Unnið er að því að koma upp aðstöðu fyrir úti-
kennslu í skúrunum. ,,Skemmtilegt væri ef vörin endurheimti sitt forna
hlutverk með því að þar bærist afli á land með gamla laginu og hann
verkaður. Þótt einungis væri um lítið magn að ræða er ljóst að fræðslu-
gildi svæðisins yrði mikið,“ segir Kjartan.
Kjartan fór jómfrúferðina með Skúla nýverið. „Þetta var mjög
skemmtilegt og ég mæli með þessari sjóferð við hvern sem er,“ segir
hann.
Fræðst um sjósókn og
atvinnuhætti forfeðranna
LIFANDI SAFN
Ánægður Kjartan Magnússon eftir bátsferðina.
Í uppáhaldi Myndin af Gísla Þorlákssyni og eiginkonunum er í uppáhaldi hjá
Þorbjörgu. Myndin er fyrirmyndin að íslenska 5000 króna seðlinum.