Morgunblaðið - 22.09.2010, Blaðsíða 18
18 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2010
–– Meira fyrir lesendur
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Morgunblaðið gefur út glæsilegt
sérblað um Tísku og förðun
föstudaginn 15. október.
Í Tísku og förðun verður fjallað
um tískuna haustið 2010 í hári,
förðun, snyrtingu og fatnaði
auk umhirðu húðarinnar,
dekur og fleira. .
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 11. október.
Tíska & Förðun
sérblað
MEÐAL EFNIS:
Nýjustu förðunarvörurnar.
Húðumhirða.
Haustförðun.
Ilmvötn.
Snyrtivörur.
Neglur og naglalökk.
Hár og hárumhirða.
Tískan í vetur.
Flottir fylgihlutir.
Góð stílráð.
Íslensk hönnun.
Ásamt fullt af öðru
spennandi efni.
Það hefur verið fróð-
legt að lesa hverja
greinina á fætur ann-
arri þessa dagana eftir
fólk sem hvetur til inn-
göngu í ESB. Greini-
legt er að nú er sóknin
hafin af þeirra hálfu í
fjölmiðlum til að sann-
færa fólk um ágæti inn-
göngu. Í Háskóla Ís-
lands er sókninni inn í
háskólasamfélagið stýrt af Baldri
Þórhallssyni á vegum Alþjóða-
málastofnunar Háskóla Íslands sem
flytur inn hvern ESB-sinnann á fæt-
ur öðrum til að tala á málfundum.
Umræða ESB-sinna er orðin á köfl-
um nokkuð háfleyg fyrir venjulegt
fólk eins og greinar Guðmundar
Andra Thorssonar rithöfundar. Hann
nýtir sér rithöfundarreynslu sína vel
því greinar hans um ágæti ESB eru
oft á tíðum eins og bestu skáldsögur.
En hvað er það sem hinn venjulegi
Íslendingur hefur væntingar um að
muni gerast ef við göngum í ESB?
Ég held að væntingarnar séu m.a.
að verðlag muni lækka með upptöku
evru, efnahagslíf verði stöðugt, allir
hafi atvinnu og margir tala um að
spilling muni hverfa við inngöngu í
ESB. Varðandi verðlag þá mun það
ekki lækka við inngöngu í ESB.
Hvergi í ríkjum ESB þar sem evra
hefur verið tekin upp hefur verðlag
lækkað. Fólk verður að gera sér
grein fyrir því að matvæli og þjónusta
hækkar í ríkjum ESB ekkert síður en
annars staðar. Á Spáni, árið 2005,
varð hækkunarhrina á ýmsum nauð-
synjum, t.d. gasi til húshitunar og
matargerðar. Þegar evra var tekin
upp í Frakklandi í janúar 2002 hækk-
aði verðlag. Og verðlag hefur verið að
hækka þar síðustu ár á þann veg að
kannanir sýna að lág-
launafólk vill losna við
evruna. Ég hef líka tek-
ið eftir því að margir
ESB-sinnar eru farnir
að nota orðalagið „að
líklega muni verðlag á
Íslandi lækka við inn-
göngu“.
Efnahagslíf á Íslandi
verður ekki sjálfkrafa
stöðugt við inngöngu og
spilling eða óstjórn í
stjórnmálum mun held-
ur ekki hverfa. Það
sýna dæmin t.d. frá Grikklandi og
Ítalíu. Efnahagslegur stöðuleiki í
þessum ríkjum er sennilega verri en
á Íslandi í dag. Efnahagslegur stöðu-
leiki á hverju landsvæði ræðst af hæfi
stjórnsýslunnar til að takast á við
efnahagslífið. Okkur Íslendingum
væri nær að taka til í stjórnmálum og
stjórnsýslunni og úthýsa hags-
munagæslu stjórnmálaflokkanna.
Þannig fáum við stöðugan efnahag og
stöðugan gjaldmiðil. Það er ekki ís-
lensku krónunni að kenna þegar hún
fellur og skerðir kjör okkar. Það er
m.a. léleg stjórn ríkisfjármála sem
fellir krónuna. Krónan er dauður
hlutur, hún fellir sig ekki sjálf eins og
ESB-sinnar halda fram. Þegar hún
hrynur er það lélegum stjórn-
málamönnum að kenna og engu öðru.
Alveg eins og það er óhæfum og
spilltum stjórnmálamönnum að
kenna í Grikklandi að laun þar hafa
lækkað og fólk misst atvinnuna þrátt
fyrir að landið sé með evru og í ESB.
ESB-sinnar halda því fram að
samningar um undanþágur, t.d. varð-
andi auðlindir, muni halda. Fólk þurfi
ekki að vera hrætt við að ESB muni
koma í bakið á okkur. Í því sambandi
er rétt að minna á þegar Bretar út-
hýstu Spánverjum úr landhelgi sinni
árið 1999 eða 2000, að mig minnir.
Bretar töldu sig vera í fullum rétti að
vísa Spánverjum út úr landhelgi
sinni. Það sem gerðist hins vegar var
að ESB-dómstóllinn dæmdi einfald-
lega Spánverja aftur inn í landhelgi
Breta og við það situr.
Þegar talið berst að landbúnaði og
ESB halda já-sinnar því mjög á lofti
að hagur landbúnaðar muni vænkast
allverulega við inngöngu. Tala þeir
fjálglega í því sambandi um regluna
um heimskautalandbúnað og láta að
því liggja að íslenskir bændur muni fá
heilu gámana af peningum í styrki frá
ESB. Hið rétta er að reglan um heim-
skautalandbúnað gengur út á það að
íslenska ríkinu, það er að segja okkur
skattborgurunum á Íslandi, er heim-
ilt að eyða meira í niðurgreiðslur til
landbúnaðar en reglur ESB segja til
um. Það koma engir peningar í þetta
aukalega frá ESB. En um þetta tala
ESB-sinnar að sjálfsögðu ekki. ESB-
sinnar benda oft á Möltu sem sér-
stakt dæmi um undanþágur í sjávar-
útvegi. Það er raunar bara hlægilegt
og ekki samanburðarhæft. Malta
veiðir ca. þúsund tonn af fiski og á
árabátum, liggur mér við að segja, í
25 sjómílna lögsögu. ESB er akkúrat
enginn akkur í því að fá hlutdeild í
þessum þúsund tonnum Maltverja
frekar en kartöflugörðum Íra. Íslend-
ingar veiða 130 þúsund tonn bara af
þorski í 200 sjómílna lögsögu! Þannig
er lögsaga okkar gullnáma sam-
anborið við Möltu. Að bera þetta
tvennt saman eru blekkingar af hálfu
ESB-sinna eins og svo margt annað í
þeirra málflutningi.
Eftir Helga
Helgason »Krónan er dauður
hlutur, hún fellir sig
ekki sjálf eins og ESB-
sinnar halda fram.
Helgi Helgason
Höfundur er stjórnmálafræðingur.
Blekkingar ESB-sinna
Nú í dag er endur-
skoðun stjórnarskrár-
innar að verða að
veruleika, en Alþingi
hefur dregið lappirnar
í rúmlega 60 ár að
koma þessu í verk.
Hvers vegna skyldi
það vera að Alþingi
skuli hafa dregið lapp-
irnar allan þennan
tíma? Jú, ástæðan er
einföld, stjórnarskrá
er það skjal sem er sérstaklega sett
upp til þess að tryggja lágmarks-
mannréttindi. Stjórnarskrá er ætlað
það hlutverk að setja skorður gegn
yfirgangi stjórnvaldsins gegn hin-
um almenna borgara. Í öllum vest-
rænum lýðræðisríkjum þar sem lág-
marks mannréttindi eru í heiðri
höfð er það hlutverk stjórnarskrár-
innar að tryggja það að ríkisvaldið
vaði ekki yfir einstaklinga með
frekjuna eina að vopni. Því miður
hefur það viðgengist á Íslandi að
stjórnarskráin hefur aldrei verið
virt af þeirri stofnun sem á að taka
alveg sérstaklega eftir þeim tak-
mörkunum sem í stjórnarskrá eru.
Þegar þingmaður tekur sæti á Al-
þingi er hann skyldaður til að vinna
skriflegan eið að stjórnarskránni, en
þar með endar málið. Sumir hafa
jafnvel unnið oft eið að stjórnar-
skránni en aldrei lesið hana. Það
sem vantar í sambandi við fram-
kvæmd á stjórnarskrá er að það
þarf að setja upp sérstakan dómstól,
„stjórnlagadómstól“, sem hefur það
eina hlutverk að úrskurða um það
hvort ákveðin lagasetning samræm-
ist stjórnarskránni eða ekki. Hver
einasti ríkisborgari á landinu sem er
lögráða á að geta vísað máli til
úrskurðar dómstólsins einfaldlega
með ábyrgðarbréfi og þessi dóm-
stóll skal gefa sinn úrskurð innan 30
daga með svari sem er ann-
aðhvort „Já“ eða „Nei“. Í dag er
fyrirkomulagið þannig að ef um
stjórnarskrárbrot er að ræða þarf
einstaklingur að sækja sitt mál fyrir
hæstarétti með kostnaði sem er
nánast óyfirstíganlegur fyrir stóran
hluta þjóðarinnar. Hægt er að
sækja um gjafsókn, en þá er það
einmitt valdaklíkan sem er að fram-
kvæma stjórnarskrárbrotið sem
ákvarðar hvort gjafsókn fæst eða
ekki, og þar strandar málið að sjálf-
sögðu!
En eitt atriði held ég að allir Ís-
lendingar geti verið sammála um,
hvar í flokki sem þeir eru, en það er:
Ef ekki er farið eftir þeim reglum
sem settar eru í stjórnarskrá þá
skiptir engu máli hvað í henni
stendur.
Nú er hins vegar komin upp ný
staða í sambandi við endurskoðun
stjórnarskrárinnar. Alþingi ætlar að
tína úr þau ákvæði í hinni nýju
stjórnarskrá sem það
er ekki sátt við. Þetta
er eins og ef útrás-
arvíkingarnir fengju að
setja regluna um
hversu há lán megi lána
til eignarlausra skúffu-
fyrirtækja. Það þarf
enginn að efast um
hvernig það mundi
fara.
Besta aðferðin í sam-
bandi við endurskoðun
stjórnarskrárinnar er
auðvitað að menn létu
vita hvort þeir vilji taka þátt í
stjórnlagaþingi og velja svo úr þeim
hópi með raunverulegu tilvilj-
unarvali, en ekki eins og gert er í
dag; að velja heilmikið lið, sem hef-
ur jafnvel engan áhuga á málinu.
Með slíku vali, sem væri heið-
arlega framkvæmt, væri komið í veg
fyrir að ákveðnir aðilar sem eru inn-
undir hjá peningaöflunum í landinu
gætu komið sér í þá aðstöðu með
peningum að verða valdir, svona
eins og þingmenn eru í dag . Það er
meginregla í öllum lýðræðisríkjum
að allir skuli vera jafnir fyrir lögum.
Því miður hefur það grundvall-
arákvæði ekki gengið vel í þessu
landi. Ríkisvaldið hefur í langan
tíma komið sér hjá því að gefa upp
opinberlega hvað framfærsla ein-
staklings kostar. Með þessari aðferð
hefur valdaklíkan komið sér hjá því
að sjá sómasamlega um þá sem eru
háðir framfærslu ríkisvaldsins.
Þarna er ég að tala um ellilífeyris-
og örorkuþega.
Í dag sá ég að einn alþingismaður
var að kvarta undan lágum launum
þingmanna. Eftir því sem næst
verður komist eru lægstu laun þar
um 750 þúsund á mánuði. Mér er
kunnugt um ellilaun sem eru 26 þús-
und á mánuði en laun þingmanna
eru sem næst 30 ellilaun og eft-
irlaun þingmanns um rúmlega 21
ellilaun venjulegs borgara.
Þegar einn þingmaður fór á eft-
irlaun „datt“ hann niður í 550 þús-
und á mánuði.
Þarna sést að þeir sem hafa kom-
ist að nægtabrunni þjóðarinnar geta
ausið yfir sig forréttindum svona
hliðstætt þeim stéttum á miðöld-
um sem kallaðir voru aðalsmenn.
Í raun er það sem þessu fólki hef-
ur tekist að skapa sér einmitt sér-
íslenskt „jafnrétti “ svona sama
gerð og í bókinni um dýraríkið
þar sem allir eru jafnir, en svínin
eru bara „jafnari“ en aðrir.
Endurskoðun
stjórnarskrárinnar
Eftir Bergsvein
Guðmundsson
Bergsveinn
Guðmundsson
»Ef ekki er farið eftir
þeim reglum sem
settar eru í stjórnarskrá
þá skiptir engu máli
hvað í henni stendur
Höfundur er ellilífeyrisþegi.
Morgunblaðið birtir alla út-
gáfudaga aðsendar umræðu-
greinar frá lesendum. Blaðið
áskilur sér rétt til að hafna
greinum, stytta texta í samráði
við höfunda og ákveða hvort
grein birtist í umræðunni, í
bréfum til blaðsins eða á vefn-
um mbl.is. Blaðið birtir ekki
greinar, sem eru skrifaðar fyrst
og fremst til að kynna starfsemi
einstakra stofnana, fyrirtækja
eða samtaka eða til að kynna
viðburði, svo sem fundi og ráð-
stefnur.
Innsendikerfið
Þeir sem þurfa að senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Formið er
undir liðnum „Senda inn efni“
ofarlega á forsíðu mbl.is. Einnig
er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Ekki er lengur tekið við
greinum sem sendar eru í tölvu-
pósti.
Í fyrsta skipti sem formið er
notað þarf notandinn að nýskrá
sig inn í kerfið, en næst þegar
kerfið er notað er nóg að slá inn
netfang og lykilorð og er þá
notandasvæðið virkt.
Ekki er hægt að senda inn
lengri grein en sem nemur
þeirri hámarkslengd sem gefin
er upp fyrir hvern efnisþátt en
boðið er upp á birtingu lengri
greina á vefnum.
Nánari upplýsingar gefur
starfsfólk greinadeildar.
Móttaka aðsendra greina