Morgunblaðið - 22.09.2010, Blaðsíða 32
Söngkonan Lady Gaga fór fyrir
göngu í borginni Portland í Maine í
Bandaríkjunum þar sem göngu-
menn mótmæltu stefnu sem banda-
ríski herinn fylgir gagnvart sam-
kynhneigðum. Búist er við að greidd
verði atkvæði á Bandaríkjaþingi í
vikunni um hvort breyta eigi þessari
stefnu.
Bandaríski herinn hefur fylgt
þeirri stefnu að samkynhneigðir
megi gegna herþjónustu svo lengi
sem þeir fari leynt með kynhneigð
sína. Þessi stefna hefur verið kölluð
„don’t ask, don’t tell“.
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, hét því í kosningabaráttunni
að heimila öllum samkynhneigðum
að gegna herþjónustu. Tillaga um að
breyta um stefnu hefur verið lögð
fram í öldungadeild þingsins. Reikn-
að er með að demókratar reyni að
knýja fram atkvæðagreiðslu um til-
löguna í vikunni.
60 þingmenn þurfa að styðja til-
löguna svo hún verði samþykkt.
Tveir þingmenn Maine-ríkis hafa
enn ekki opinberað hvernig þeir
ætla að verja atkvæði sínu. Með
kröfugöngunni vildu Lady Gaga og
skoðanasystkini hennar þrýsta á
þingmennina að styðja tillöguna.
Lady Gaga styður
samkynhneigða
Beitt Stórstjarnan Lady Gaga lætur
sér fátt fyrir brjósti brenna.
Reuters
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2010
Hér kemur enn ein róman-tíska gamanmyndin fráHollywood sem flokkastverður sem lítið meira
en skítsæmileg. Going the Distance
(Að fara alla leið) er ein af þessum
krúttlegu myndum sem virðast
koma á færibandi (Valentine’s Day,
The Back-up Plan, The Bounty
Hunter o.s.frv.) þessa dagana. Í
myndinni segir af Erin (Barrymore)
sem á sér þann draum að verða
blaðamaður og er til reynslu á dag-
blaði í New York. Hún hittir Gar-
rett (Long) á knæpu og komast þau
að því að þau eiga margt sameig-
inlegt og fella saman hugi. Eftir sex
vikna rómantík í New York þarf Er-
in hins vegar að snúa aftur til síns
heima, San Fransisco, og ákveða
þau Garrett að vera í fjarsambandi,
tala saman á Skype og þar fram eft-
ir götunum. Eftir margra mánaða
aðskilnað átta þau sig á því að slíkt
samband gengur ekki til lengdar og
lenda í mikilli krísu. Á Erin að flytja
til New York og gerast gengilbeina
þar sem ekkert blaðamannsstarf er
þar að fá eða á Garrett að flytja til
San Fransisco og fórna starfi sínu
hjá plötufyrirtæki í New York? Gar-
rett heimsækir unnustu sína í San
Fransisco og á heldur stirð sam-
skipti við eldri systur hennar, sem
líst ekkert á kauða. Og félagar Gar-
retts eru ekki heldur á því að þetta
fjarsamband gangi upp.
Svona er nú söguþráður þessarar
kvikmyndar, heldur einfaldur. Róm-
antíkin er að vísu á köflum til staðar
og einstaka grínatriði kitla hlátur-
taugarnar. Handritið er heldur
slakt og aðalleikararnir hafa því
ekki úr miklu að moða, þó þeir
standi sig ágætlega. Eins og algengt
er orðið með rómantískar gam-
anmyndir frá Hollywood er markið
sett lágt. Það á greinilega að duga
að setja þekkt andlit á veggspjaldið
og segja að hér sé á ferðinni róm-
antísk gamanmynd. Svipað og að
setja rána í hástökki í eins metra
hæð. Það kemst hvaða maður sem
er yfir þá rá, þarf ekki einu sinni að
stökkva.
En … betri helmingur rýnis sá
myndina einnig og þótti hún bara
sæmileg, tvær og hálf stjarna og
varð sú stjörnugjöf niðurstaðan.
Myndin er þokkaleg miðað við
myndir af þessu tagi undanfarið og
blessunarlega nokkuð raunsæ þegar
kemur að umfjöllunarefninu, að
reyna að halda ástarsambandi við
með fjarskiptum. Einhverjir hlógu
innilega að myndinni í bíósal, þeir
hafa greinilega allt öðruvísi húmor
en sá sem hér skrifar. Ef ekki væri
fyrir leikarann Charlie Day sem
leikur vin Garretts hefði myndin
verið heldur lítið fyndin. Day náði
að kreista fram bros og jafnvel hlát-
ur hjá undirrituðum og slíkt er
ávallt vel þegið í sykurpúðamyndum
á borð við þessa. En myndin fer
seint í flokk með góðum, róm-
antískum gamanmyndum.
Krúttleg rómantík með gríni á köflum
Kossaflens Garrett og Erin kela í árabáti og vinir hans fylgjast með. Allt voða krúttlegt.
Sambíóin Álfabakka,
Kringlunni, Keflavík, Akureyri
og Selfossi
Going the Distance bbmnn
Leikstjóri: Nanette Burstein. Aðal-
hlutverk: Justin Long, Drew Barrymore,
Christina Applegate, Ron Livingston.
102 mín. Bandaríkin, 2010.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYND
Sacha Baron
Cohen, sem
er best þekkt-
ur fyrir að
leika Borat
og Ali G,
kemur til með
að leika
Freddie Merc-
ury í nýrri
bíómynd sem
áformað er að
gera um
söngvarann.
Peter
Morgan er
handritshöfundur en hann gerði
handrit að bíómyndunum Frost/
Nixon og The Queen. Myndin um
Freddie Mercury fjallar aðallega
um árin áður
en hljómsveit
hans, Queen,
kom fram á
Live Aid-
tónleikunum
árið 1985.
Robert De
Niro er með-
framleiðandi
að myndinni.
Gítarleik-
ari Queen,
Brian May,
sagði að valið
á leikara í
aðalhlutverkið kæmi mörgum á
óvart. Cohen hefur í langan tíma
verið í viðræðum um að leika í
myndinni.
Tvíburar? Freddie og Sacha.
Baron Cohen leikur Freddie
Hótelerfinginn Paris Hilton var
stöðvuð á flugvelli í Tókíó í gær og
neitað um að fara inn í landið. Hún
dvaldi enn á flugvallarhóteli í gær-
kvöldi og beið eftir endanlegu svari
frá yfirvöldum.
Hilton er stödd í Japan í við-
skiptaerindum en hún játaði síðast-
liðinn föstudag fyrir rétti í Nevada
að hafa átt kókaín sem fannst í vesk-
inu hennar við leit í ágúst síðast-
liðnum. Japanir eru ekki par hrifnir
af því að hleypa dæmdum eiturlyfja-
neytanda inn í landið og íhuga að
senda Hilton aftur til Bandaríkj-
anna.
Skemmst er frá því að segja að
leikkonan Lindsey Lohan hefur nú
tvívegis fallið á lyfjaprófi eftir að
hún lauk meðferð og þykir víst
mörgum tími til kominn að sam-
kvæmisdrottningarnar taki afleið-
ingum gjörða sinna.
Greyið Paris er ekki ánægð.
Óvelkomin
í Japan
Reuters
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
Sveppi, uppáhald allra!!!
Og nú í þrívídd (3D)
STÆRSTA HELGAR-
OPNUN ÁRSINS
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG!
STÆRSTA ÍSLENSKA 3D MYNDIN
FYRR OG SÍÐAR
HHH
„FYNDIN OG HRESS
GAMANMYND.“
„BARNABARNIÐ
VILDI GEFA Í ÞAÐ
MINNSTA FJÓRAR
EF EKKI FIMM
STJÖRNUR.“
- S.V. – MORGUNBLAÐIÐ
HHHH
„VIRKILEGA VEL
HEPPNUÐ FJÖLS-
KYLDUMYND, BÆÐI
SPENNANDI OG
SKEMMTILEG“
„MAÐUR GETUR
HREINLEGA EKKI
BEÐIÐ EFTIR NÆSTU
MYND SVEPPA.“
„SVEPPI, TAKK
FYRIR AÐ SKEMMTA
BÖRNUNUM
OKKAR.“
- K.I. – PRESSAN.IS
Frábær mynd sem kemur skemmtilega á óvart
Ein besta rómantíska grínmynd ársins!
„FYRSTA FLOKKS.“
100/100 - SAN FRANCISCO CHRONICLE
„ÞAÐ ER SJALDGÆFT AÐ
RÓMANTÍSKAR GAMANMYNDIR
SÉU TRÚVERÐUGAR.“
85/100 - ENTERTAINMENT WEEKLY
„MEIRA HEILLANDI EN 90% AF
RÓMANTÍSKUM KVIKMYNDUM
SEM ERU FRAMLEIDDAR Í DAG.“
80/100 TIME
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
HHHH
„HEILLANDI, RAUNSÆ
OG HRIKALEGA FYNDIN.“
„LANGBESTA DEIT-
MYNDIN SEM ÉG HEF
SÉÐ Á ÞESSU ÁRI.“
- T.V. - KVIKMYNDIR.IS
BESTA SKEMMTUNIN
GOING THE DISTANCE kl.5:50-8-10:20 L REMEMBER ME kl.8 -10:20 L
GOING THE DISTANCE kl.8 -10:20 VIP-LÚXUS AULINN ÉG m. ísl. tali kl.6 L
ALGJÖR SVEPPI OG DULARFULLA HÓTEL... kl.63D -83D L STEP UP 3 - 3D kl.10:103D 7
ALGJÖR SVEPPI OG DULARFULLA HÓTEL... kl.6 L HUNDAR OG KETTIR 2 - 3D m. ísl. tali kl.63D L
THE GHOST WRITER kl.8 -10:30 12 LETTERS TO JULIET kl.8 L
THE GHOST WRITER kl.5:30 VIP-LÚXUS INCEPTION kl.10:20 L
/ ÁLFABAKKA
GOING THE DISTANCE kl.5:50-8-10:20 L
ALGJÖR SVEPPI OG DULARFULLA HÓTELHERB... kl.63D L
THE GHOST WRITER kl.10:10 12
STEP UP 3 - 3D kl.83D 7
INCEPTION kl. 8 12
SHREK SÆLL ALLA DAGA m. ísl. tali kl. 6 L
/ KRINGLUNNI