Morgunblaðið - 22.09.2010, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2010
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Ytri-Rangá er aflahæsta á landsins í
sumar, á svipuðu róli og Eystri-
Rangá, en veiðin nálgast nú um
5.500 laxa. Er það talsvert minni
veiði en síðustu tvö ár, þegar veiðin
var annars vegar rúmlega 10.000
laxar og hins vegar rúmlega 14.000.
„Þetta er í líkingu við 2007,“ segir
Matthías Þorsteinsson sem sér um
skráningu aflans. „Veiðin er allt í
lagi um þessar mundir, 30 til 50 lax-
ar á dag,“ segir hann. Veitt er með
20 stöngum í ánni og gefur seinni
vaktin venjulega betur nú þegar
kólnað hefur í veðri.
Netauppkaupin hafa áhrif
„Ég man ekki eftir svona tölum,
veiðin hefur verið frábær í Soginu,“
segir Ólafur Kr. Ólafsson, formaður
árnefndar Sogsins, en þar hefur ver-
ið metveiði í sumar. Hátt í 1.200 lax-
ar hafa veiðst í ánni en síðasti veiði-
dagur er á föstudaginn kemur.
Ólafur segist viss um að netaupp-
kaupunum í Ölfusá sé að miklu leyti
að þakka þessi aukna laxagengd en
þá styðji slepping kviðpokaseiða og
sumaralinna seiða einnig við stofn
árinnar.
„Öll svæði, nema kannski Alviðra
og Þrastarlundur, hafa bætt sig. Or-
sökin fyrir minni veiði þar getur ver-
ið meira slý og gróður á þeim svæð-
um en menn hafa áður séð. Þá
breytast legustaðir laxanna,“ segir
Ólafur.
Sogið er frægt fyrir stóra laxa en
hann segir ekki marga stórfiska, um
eða yfir 20 pundin, hafa veiðst í sum-
ar, „en menn hafa séð þá og sett hef-
ur verið í einhverja. Tæplega 20
punda löxum hefur verið landað og
það er ánægjulegt að sjá að menn
eru tilbúnir að ýta þeim aftur út í
síðsumars“.
Sjálfur hefur Ólafur farið þrjár
ferðir í Sogið í sumar og segir þær
hafa verið frábærar. „Við félagarnir
vorum tvo daga í Bíldsfellinu og
fengum 18 laxa og síðan fengum við
14 á tveimur dögum í Ásgarði. Það
var óhemjugaman. Þetta minnir
mann á tímann um 1970 þegar ég
var að byrja að veiða í Soginu og
kom heim með 12 laxa í skottinu á
bílnum, seldi þá og hafði tekjur af
veiðinni. Þau sumur vann ég hjá
Silla og Valda, lagði laxinn þar inn
og hafði meiri tekjur yfir sumarið af
laxveiðinni en launavinnunni,“ segir
Ólafur Kr.
Stórlaxinn sterkur
Smálaxagöngur ollu víða von-
brigðum á Norðurlandi í sumar en
stórlaxinn mætti hins vegar í árnar.
Í Vatnsdalsá, þar sem veiðst hafa
um 1.140 laxar, er stórlaxinn um
helmingur veiðinnar og er með-
alþyngd þeirra um 12 pund. Sömu
sögu er að segja úr Svartá í Húna-
vatnssýslu, þar mun
lax sem hefur ver-
ið tvö ár í sjó
vera nánast
helmingur aflans og nálgast veiðitöl-
ur þar metveiðina, sem eru 620 lax-
ar.
Veiði lauk í Laxá í Aðaldal í vik-
unni og hafa margir veiðimenn kom-
ið með sælubros á vör úr ánni, því
þótt þeir hafi ekki endilega fengið
marga þá fengu þeir stóra laxa.
Lokahollið á Nessvæðinu fékk
þannig 24 laxa og þar af voru fjórir
laxar sem vógu tuttugu pund eða
meira. Líklega mun heildartalan í
Laxá vera yfir 1.500 laxar, en það er
besta veiði í ánni í 12 ár.
Breiðdalsá yfir 1.000 laxa
Breiðdalsá er komin í metveiði en
í vikunni bárust fregnir af því að
hún hefði rofið 1.000 laxa múrinn í
fyrsta skipti. Tvisvar hafa veiðst þar
yfir 900 laxar.
Góð veiði hefur verið í Breiðdal
undanfarið, til að mynda veiddust 32
laxar einn daginn í vikunni. Þar af
voru þrír sannkallaðir stórlaxar,
102, 98 og 93 cm langir.
„Man ekki eftir svona tölum“
Morgunblaðið/Einar Falur
Gusugangur í haustinu Guðmundur Guðjónsson landar laxi í Víkurá, fallegri tveggja stanga á í Hrútafirði.
Sannkölluð metveiði hefur verið í Soginu í sumar Ytri-Rangá aflahæsta á landsins Stórlaxarnir
halda uppi veiðitölum í kunnum ám á Norðurlandi Yfir 1.000 laxar úr Breiðdalsá í fyrsta skipti
Laxveiði að ljúka
» „Þetta er í líkingu við 2007,“
segir umsjónarmaður við Ytri-
Rangá um veiðina í sumar.
Veiðin á svæðinu nálgast nú
5.500 laxa.
» Öll svæði í Soginu, nema
kannski Alviðra og Þrastar-
lundur, hafa bætt sig, en met-
veiði hefur verið í ánni í sumar.
» Í Vatnsdalsá í Húnavatns-
sýslu er stórlax um helmingur
veiðinnar og er meðalþungi
hans um 12 pund.
» Veiði lauk í Laxá í Aðaldal í
vikunni og er útkoman betri en
tólf síðustu ár. Meira hefur
veiðst af stórlaxi en um langt
árabil, þannig fékk lokahollið á
Nessvæðinu fjóra laxa um og
yfir tuttugu pund.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Katrín Jakobsdóttir mennta- og
menningarmálaráðherra tekur vel í
ábendingar þriggja listmunasala í
sambandi við málverkafalsanir í
Morgunblaðinu í gær og ætlar að
skoða þær ásamt áður framlögðum
tillögum með úrbætur í huga.
Listmunasalarnir Tryggvi P. Frið-
riksson, Elínbjört Jónsdóttir og Jó-
hann Ágúst Hansen fengu í gær birt í
Morgunblaðinu opið bréf til Katrínar
Jakobsdóttur. Þeir benda á að þótt
búið sé að hafa uppi á rúmlega 400
fölsuðum málverkum séu enn ámóta
mörg fölsuð málverk í umferð hér-
lendis. Listmunasalarnir vilja að
Listasafn Íslands sjái um mat á verk-
um fyrir almenning og segja að koma
þurfi á fót fagráði eða fagráðum til að
halda utan um verkaskrá.
Katrín segir að hún sé að skoða
hvað hafi verið gert í ráðuneytinu í
þessu efni. Hún bendir á að forveri
sinn hafi skipað starfshóp til þess að
fjalla um listaverkafalsanir 2004.
Nefndin hafi lagt fram ákveðnar til-
lögur sem hafi ekki náð fram að
ganga. Ástæða sé til þess að skoða til-
lögurnar á ný samfara ábendingum
listaverkasalanna og hún hyggist
gera það með sínum sérfræðingum.
„Ég er reiðubúin til þess að taka
þessi mál upp og skoða þau,“ segir
hún.
Áreiðanleikinn mikilvægastur
Ólafur Ingi Jónsson, forvörður og
deildarstjóri forvörsludeildar Lista-
safns Íslands, segir að málið snúist
um eigendasöguna og áreiðanleika
hennar. Listasala og uppboðshús séu
rekin með leyfi yfirvalda og þegar
komi upp efasemdir sé frumskylda að
forsvarsmennirnir geti upplýst um
eigendasögu hvar og hvenær sem er.
Það hafi þeir ekki gert. Mennta- og
menningarmálaráðherra geti slegið
tvær flugur í einu höggi með því að
kanna eigendasögu meintra falsaðra
verka sem greint var frá á dögunum
og fá þannig á hreint hvort viðkom-
andi uppboðshús sé með hreinan
skjöld. Um leið geti ráðherra gengið
úr skugga um hvort Listasafnið hafi
fagþekkingu til að úrskurða í svona
málum.
Rykið dustað af
gömlum tillögum
Ráðherra vill taka á fölsunum verka
„Ég er reiðubúin
til þess að taka
þessi mál upp og
skoða þau.“
Katrín Jakobsdóttir
Birna G. Konráðsdóttir
Borgarfjörður | Á sunnudag veidd-
ist í Gljúfurá í Borgarfirði stærsti
lax sem vitað er til að veiðst hafi í
ánni. Um er að ræða 95 sentimetra
hæng, ríflega 20 pund að þyngd sem
veiddist í Einarsfossi sem er veiði-
staður um miðbik árinnar. Áin er
ekki þekkt fyrir stórlaxa og þykja
þetta vera töluverð tíðindi.
Hinn heppni veiðimaður heitir
Sigurður Ingi Svavarsson úr
Reykjavík.
20 mínútur að landa laxinum
„Ég var austanmegin í Ein-
arsfossi, í þrengingu sem þar er.
Laxinn tók á maðk og ég var líklega
um 20 mínútur að landa honum. Á
staðnum voru tveir aðrir veiðimenn
sem hjálpuðu til svo löndunin tók
skemmri tíma fyrir vikið. Ef ég
hefði verið einn hefði viðureignin
líklega tekið mun lengri tíma, alla
vega klukkustund. Þetta var mikið
ævintýri. Ég er núna fjórða árið í
Gljúfurá og hef notið dvalarinnar
eins og alltaf en það er fátt sem
toppar svona,“ sagði hinn kampa-
káti veiðimaður sem bætti við að
hann hefði aldrei veitt þvílíkan lax
áður og ekki tekið ákvörðun um
hvort hann færi á vegg eða í mag-
ann.
Veiðin í Gljúfurá hefur verið ágæt
það sem af er. Ríflega 240 laxar hafa
þegar komið á land sem er svipað og
á sama tíma í fyrra. Vatnsleysi hef-
ur háð veiðum eins og víðar í Borg-
arfirði en þrátt fyrir það hafa nærri
fimm hundruð laxar gengið í gegn-
um laxateljara sem staðsettur er
fremur neðarlega í ánni. Meðal ann-
ars fara sögur af enn stærri laxi eða
um 108 cm sem er óveiddur. Spurn-
ing hvort það sé hrygnan úr þessu
pari sem bíði enn í Einarsfossi eftir
því að vera veidd eða ætli sér að
ganga lengra upp og hrygna. Gljúf-
urá er ein af svokölluðum síðsum-
arsám og lýkur veiði 30. september.
Risalax í Gljúfurá
Stærsti lax sem vitað er til að hafi veiðst þar frá upphafi
Morgunblaðið/BGK
Sá stóri Sigurður Ingi Svavarsson
með stærsta lax sem vitað er að hafi
veiðst í Gljúfurá í Borgarfirði.
Smálaxaá
» Gljúfurá í Borgarfirði er ekki
þekkt fyrir stórlaxa en þó
veiddist um daginn lax sem var
ríflega tuttugu pund og 95 cm
að lengd.
» Samkvæmt upplýsingum úr
laxateljara sem staðsettur er í
ánni, gæti annar stórlax verið á
sveimi í ánni.
» Veiðimenn eru áhugasamir
um að reyna að krækja í hann.
við stærð en síðustu ár,“ segir Arn-
ar.
Heldur hefur róast yfir veiðinni í
Skaftafellssýslunum síðustu daga,
enda bjart og stillt veður og þá
leggst sjóbirtingurinn og tekur illa.
„Síðustu holl í Geirlandsá hafa
fengið fimm og sex fiska, alla væna.
Menn segja fullt af fiski í ánni en
aðstæðurnar eru erfiðar. Sömu
sögu er að segja úr Fossálunum en
einn og einn tekur, þar á meðal 15
pundari sem kom upp um helgina.
Það hefur verið fín veiði í Flóðinu
í Grenlæk, hollin hafa verið að fá
20, 30 fiska, en þar hafa veðurað-
stæður ekki jafn mikil áhrif og t.d. í
Geirlandsánni,“ segir Arnar.
„Túnfiskvöxtur á birtingnum“
SJÓBIRTINGURINN MÆTTUR SNEMMA OG ER VEL HALDINN
„Sjóbirtingurinn mætti snemma og
er vænni en síðustu ár, sýnist okk-
ur,“ segir Arnar Óskarsson, gjald-
keri Stangaveiðifélags Keflavíkur.
Hann var í hjónaholli í Geirlandsá
um daginn en þá komu 33 birtingar
á land, auk tveggja laxa. Sá stærsti
var 15 pund, 83 cm langur, og
nokkrir um tíu pundin. Veiddust
fiskar þá í 18 af 23 merktum veiði-
stöðum árinnar.
„Það er túnfiskvöxtur á birt-
ingnum í ár, hann er einu til tveimur
pundum þyngri miðað