Morgunblaðið - 22.09.2010, Side 19
UMRÆÐAN 19Bréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2010
Dr. Sveinn Guðmundsson yfirlæknir Blóðbankans og
dr. Ólafur E. Sigurjónsson lektor við tækni og verkfræðideild
Háskólans í Reykjavík og forstöðumaður stofnfrumuvinnslu
og grunnrannsókna í Blóðbankanum fjalla um eiginleika
stofnfrumna, kynna notkun blóðmyndandi stofnfrumna í
læknisfræðilegri meðferð, ræða og vara við oftrú á „galdra-
mætti“ stofnfrumna í nútíma læknisfræði en kynna jafnframt
not stofnfrumna t.d. með stofnfrumugjafaskrám og nafla-
strengsbönkum.
22. september kl. 20:00 - 21:30
Súfistanum, Máli og menningu
er í kvöld
VÍSINDAKAFFIÐ
Þriðja
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
...tækifæri eða tálsýn?
Stofnfrumur...
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
www.rannis.is/visindavaka
Allir velkomnir. Láttu sjá þig!
Frá Eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 17. september var
spilað á 16 borðum.
Úrslit urðu þessi í N/S
Rafn Kristjánsson– Magnús Halldórss. 367
Ragnar Björnsson – Pétur Antonsson 362
Oliver Kristóferss. – Magnús Oddss. 360
Björn Karlsson – Jens Karlsson 356
A/V
Friðrik Jónss. – Jóhannes Guðmannss. 384
Kristín Óskarsd. – Gróa Þorgeirsd. 369
Oddur Halldórsson – Gísli Friðfinnss. 358
Helgi Einarsson – Ágúst Stefánsson 355
Ragnarsson| norir@mbl.is
Bridsdeild
Breiðfirðingafélagsins
Fyrsta spilakvöld hjá okkur á
þessu hausti var sunnudaginn 19/9.
Spilað var á tíu borðum.
Hæsta skor kvöldsins í N/S
Björgvin Kjartans. - Kjartan Björgvinss.264
Haukur Guðbjartss. - Þórarinn Bech 242
Snorri Markúss. - Ari Gunnarsson 231
Austur/Vestur
Oddur Hanness. - Árni Hannesson 274
Garðar V Jónsson - Unnar A Guðmss. 263
Birna Lárusd. - Sturlaugur Eyjólfsson 241
Næsta sunnudag verður spilaður
eins kvölds tvímenningur. Síðan
hefst þriggja kvölda tvímennings-
keppni.
Spilað er í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14, á sunnudögum kl. 19
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl 4, mánudaginn 20.
september. Spilað var á 13 borðum.
Meðalskor: 312 stig.
Árangur N - S:
Albert Þorsteinsson - Bragi Björnsson 373
Magnús Oddsson - Oliver Kristófersson 357
Ólafur Gíslas. - Guðm. Sigurjónss. 351
Árangur A - V:
Elías Einarsson - Höskuldur Jónsson 387
Magnús Jónsson - Gunnar Jónsson 373
Anna Garðarsd. - Hulda Mogensen 338
Tvímenningskeppni fimmtudag-
inn 16. september. Spilað var á 12
borðum. Meðalskor: 216 stig.
Árangur N - S:
Júlíus Guðmuss - Rafn Kristjánsson 255
Ingibj. Stefánsd. - Margrét Margeirsd. 247
Jón Lárusson - Ragnar Björnss. 236
Árangur A - V:
Jóhannes Guðmannss. - Björn Svavarss. 261
Albert Þorsteinsson - Bragi Björnsson 247
Oddur Halldórss. - Þorsteinn Sveinss. 235
Tvímenningskeppni mánudaginn
13. september. Spilað var á 12 borð-
um. Meðalskor: 216 stig.
Árangur N - S:
Siguróli Jóhannss. - Auðunn Helgason 248
Örn Ingólfsson - Örn Ísebarn 239
Ægir Ferdinandss. - Helgi Hallgrímss. 229
Árangur A - V:
Jóhannes Guðmannss. - Björn Svavarss. 266
Ragnar Björnsson - Guðbjörn Axelss. 262
Höskuldur Jónsson - Elías Einarsson 247
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Hæstiréttur hefur
dæmt. Og við vökn-
uðum og vöknuðum
illa.
Við verðum nú að
hypja okkur upp á
dekk og hafa uppi há-
reysti – hvað annað?
Við gætum orðið blóð-
ug upp fyrir axlir! Ég
vona þó að æðri mátt-
ur eða hundaheppni
komi í veg fyrir það. Pólitískt ráðn-
ir hag- og lagafræðingar hafa hing-
að til séð um að leikreglur sam-
félagsins séu á hverjum tíma
stjórnvöldum þóknanlegar. Það er
því ekkert nýtt í nýjustu niðurstöðu
æðsta réttar lýðveldisins. Eða er
það? Okkur blæðir hans vegna ekk-
ert meir en oft áður.
Sannleikurinn liggur fyrir í rán-
dýrri og þar af leiðandi skilmerkri
sannleiksskýrslu um alla viðskipta-
leiki stjórnvalda, banka og við-
skiptajöfra í aðdraganda hrunsins.
Við þurfum engan meiri eða fleiri
sannleika. Sannleikurinn er sá, í
sinni einföldu mynd, að fyrrverandi
forsætisráðherra og núverandi rit-
stjóri sagði okkur sannleikann þeg-
ar hann tók út 400-þúsundkallinn
úr sparibókinni sinni í bankanum.
Og hann bætti um betur þegar
hann sem seðlabankastjóri neitaði
að þjóðin bæri ábyrgð á óreiðunni.
Og nú þegar hann situr sinn frið-
arstól ritstjórans bendir hann á að
landsdómur megi sofa áfram þyrni-
rósarsvefni því nú þegar óvandaðir
reyni að vekja hann upp minni
hann á uppvakninginn Franken-
stein og þá verði lítið við hann ráð-
ið, sem er auðvitað hárrétt ályktun
sem oftast áður hjá ritstjóranum.
Já – við hefðum átt að grennslast
betur um það sem ritstjórinn var að
bauka áður en hann varð ritstjóri
og fljóta þannig sofandi að feigð-
arósi.
Ekki meir, ekki meir, nei og aft-
ur nei, ekki meiri eða fleiri heima-
tilbúna sannleika, – við þurfum ekki
frekari bræðra- eða systravíg eða
vægt til orða tekið hlandgusuþvott
ráðandi meðalmennsku. Það er nóg
komið af slíku. Það sem við þurfum
nú sem aldrei fyrr er þjóðarsátt til
að brúa okkur burt frá óreiðu for-
tíðar en ekki langvarandi blóðugan
mannorðssviptingarferil sem færir
aðeins lögmannastéttinni í landinu
brauð á borð og fitar bara púkana á
fjósbita þjóðar okkar.
Kristín Ómarsdóttir skáld lýkur
hetjukvæði sínu með niðurstöðu
miðkynslóðarhetjanna. Hetjanna
sem sigldu m.a. með þjóðina í útrás
og stýrðu þjóðarskút-
unni svo rækilega í
strand að ekkert er
eftir nema kjölurinn.
Og hún segir: „Því ef
við verðum gömul höf-
um við að minnsta
kosti eitthvað meira og
gagnlegra að segja en
gamalmennin nú sem
runnu á rassinn með
sitt og það er ekki
okkur að kenna! Eitt-
hvað verður að
minnsta kosti öðruvísi,
tími stingdu okkur á hol.“ Kristín
sýnir svo sannarlega í kvæðinu að
óvandaðir geta aldrei orðið gamlir
með bleiur, því tíminn stendur í
stað hjá hetjunum. Núverandi ráð-
andi hetjur ættu að gera sér grein
fyrir því að ekki er svo í raun, því
það kemur nýr dagur á eftir deg-
inum í dag.
Við viljum og þurfum stjórn-
málamenn og -konur sem kunna að
greina hinn daglega vanda, kunna
samræðulist raunverulegra stjórn-
mála, kunna að leysa það næsta
óleysanlega með samstarfi og sam-
ræðu hagsmunahópanna. Við viljum
og þurfum breytingar frá áratuga
stjórnmálaóreiðu á Íslandi með
menningarbyltingu í stjórnmála-
starfi. Starfshefðir stjórnvalda Ís-
lendinga hafa mótast út frá hags-
munum einstakra samfélagshópa,
því þar með væri heildarhags-
munum þjóðarinnar best borgið,
samanber rökin fyrir hagsmuna-
gæslu fyrir landbúnað og sjávar-
útveg, og að lokum fyrir „útrás-
arvíkinga“ pólitískra og
einkavæddra banka. Ég tek undir
þá kröfu að ríkisstjórn sé fjölskipað
stjórnvald og ég tek undir með fv.
borgarstjóra um hugmynd hennar
um „þjóðstjórnar“starfshætti í
borgarstjórn. Við notuðum þá
starfshætti í sveitarstjórn Egils-
staða allt fram á áttunda áratuginn
og reyndist það mjög vel við að
skapa kaupstað úr þorpi. En ég
segi bara líkt og Jóhannes úr Kötl-
um í kvæðinu Landið fær mál:
„Sláum upp skjaldborg um lýðræði
og réttlæti, það er menningin ís-
lenska þjóð.“
Þetta ætti allt að bjargast, þrátt
fyrir allt, því við byggjum land mik-
illa auðlinda sem frumkvöðlarnir
hafa hagnýtt fyrir þjóðina og eigum
því að vera nokkuð örugg ef við
fáum að njóta þeirar gæfu að Sam-
fylkingarsveitin í ríkisstjórn læri að
smala köttunum og geti þannig
þvingað ný orkuframleiðslutækifæri
fram í stað þess að liggja undir
sæng til að heyra ekki breimið. En
við verðum nú og þá að taka undir
heróp Einars Ben: „Sé almúginn
sínum foringjum framar, er festa
hans vígsins síðasta hamar. Vakn-
aðu, reistu þig lýður míns lands.“
Við þurfum engan
meiri sannleika
Eftir Erling Garðar
Jónasson
» Það sem við þurfum
nú sem aldrei fyrr er
þjóðarsátt til að brúa
okkur burt frá óreiðu
fortíðar, ekki langvar-
andi blóðugan mann-
orðssviptingarferil.
Erling Garðar Jónasson
Höfundur er tæknifræðingur
og formaður Samtaka aldraðra.
Síðastliðna mánuði hafa Barnaheill –
Save the Children á Íslandi staðið
fyrir vitundarvakningu undir yf-
irskriftinni
„Horfin lífsgleði“.
Markmið átaks-
ins er að minna
okkur öll á að við
berum ábyrgð á
því að koma í veg
fyrir ofbeldi gegn
börnum og að of-
beldi er aldrei
barninu að kenna.
Umræða síð-
ustu daga um að-
búnað barna á Silungapolli og í
Reykjahlíð á árum áður er þörf
áminning um það að víða hefur verið
og er pottur brotinn í þessum málum
og því mikilvægt að halda vöku sinni.
Samkvæmt íslenskum lögum og
Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
eiga öll börn rétt á vernd gegn öllu
ofbeldi; líkamlegu, andlegu og kyn-
ferðislegu, og gegn vanrækslu. Þá
eiga börn sem orðið hafa fyrir of-
beldi jafnframt rétt á hjálp.
Samhliða vitundarvakningunni
undanfarna mánuði hafa starfsmenn
Barnaheilla – Save the Children á
Íslandi verið á vettvangi til að afla
börnum „heillavina“. Sem heillavin-
ur barna styður þú samtök okkar í
því að veita börnum vernd gegn of-
beldi, þú gefur þeim tækifæri til að
tjá skoðanir sínar og hafa áhrif og þú
leggst á árar með að tryggja réttindi
barna í lögum og reglum. Heillavinir
leggja líka sitt af mörkum til að
bæta framtíð barna í stríðshrjáðum
löndum, þeir tryggja börnum neyð-
araðstoð þar sem þörfin er mest,
t.a.m. í Pakistan og á Haítí og berj-
ast gegn mansali og þrælkun barna.
Ég vil þakka þeim fjölmörgu sem
slegist hafa í hóp heillavina Barna-
heilla – Save the Children á Íslandi.
Án ykkar stuðnings, gætum við ekki
sinnt því brýna starfi að standa vörð
um og efla réttindi barna hérlendis
og erlendis.
Ef þig langar að slást í hóp heilla-
vina og gefa börnum um allan heim
mannréttindi, getur þú haft sam-
band við skrifstofu okkur að Suður-
landsbraut 24 eða farið inn á vef-
svæði okkar, www.barnaheill.is
PETRÍNA ÁSGEIRSDÓTTIR,
framkvæmdastjóri Barnaheilla –
Save the Children á Íslandi.
Gefðu börnum
mannréttindi
Frá Petrínu Ásgeirsdóttur
Petrína
Ásgeirsdóttir
Skuldarar þeirra lána sem nýlega
voru dæmd ólögleg í Hæstarétti eiga
rétt á skaðabótum fyrir ólögmæta og
saknæma með-
ferð á sér. Var
valdið ólögmætu
tjóni.
Fyrst voru
skuldarar látnir
skrifa undir ólög-
leg skuldabréf
með ólöglegri
gengistryggingu
sem Alþingi hafði
nýlega hafnað að
leyfa. Bankarnir
vissu að þeir voru að fremja glæp
gegn fólkinu og það fékk skaðabóta-
rétt á bankana sem hefur safnast upp
og aukist að krónutölu þar til Hæsti-
réttur dæmir þessar lántökur ólög-
legar. Þarna gildir almenna skaða-
bótareglan. Það er Hæstaréttar í
nýju máli höfðuðu af skuldara að
meta og dæma fjárhæð bótanna, sem
skuldarinn fær greiddar í dag.
Skuldarar eiga einnig rétt á skaða-
bótum vegna „röskunar á stöðu og
högum“. Skuldarar eiga rétt á skaða-
bótum fyrir það ólöglega tjón, sem
beiting bankanna á ólöglegum
skuldabréfum, sbr. dóm Hæstaréttar
um bréfin, hefur valdið. Þarna má
nefna missi bíla og íbúða sem bankinn
tók af skuldurum ólöglega með því að
beita ólöglegu skudlabréfi sem bank-
inn sagði gengistryggt sem það var
svo ekki. Sumir gerðir gjaldþrota
með ólöglegri skuld. Þarna voru eign-
ir hafðar af fólki með ólöglegum
hætti, svikum og blekkingu.
Þetta allt eiga skuldarar að fá bætt
með nýjum dómum Hæstaréttar.
LÚÐVÍK GIZURARSON,
hæstaréttarlögmaður.
Skuldarar eiga
rétt á skaðabótum
Frá Lúðvík Gizurarsyni
Lúðvík
Gizurarson
Sími 551 3010
Hárgreiðslustofan
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni