Morgunblaðið - 22.09.2010, Qupperneq 27
Sunna Ben-
jaminsdóttir
Bohn og
Elena Holm
héldu tombólu
í Grjótaþorp-
inu á Menn-
ingarnótt og
söfnuðu 3.338
kr. til styrkt-
ar börnum í
Pakistan.
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
9
4 2 5
8
9 3
2 8 1 4
1 7 2
8 5 4
5 3 7 9 8
2 1 5 7
7 5
1
9 2
2 6 1
8 6 9
1 5 8 4 2
6 7 2
9 4 5
5 2 1
3 8
7 9 3
5 4 6
6 7
5 4 1 3 9
2
8 9 1 7 4
6
3 1 9
9 6 8 5 4 1 3 7 2
2 1 3 7 8 9 6 5 4
7 5 4 6 3 2 1 8 9
1 3 2 9 7 4 8 6 5
4 9 7 8 6 5 2 3 1
5 8 6 1 2 3 9 4 7
6 4 9 3 1 7 5 2 8
8 7 1 2 5 6 4 9 3
3 2 5 4 9 8 7 1 6
1 5 4 6 8 7 3 9 2
6 2 8 1 9 3 7 4 5
3 9 7 4 5 2 8 6 1
9 1 5 7 6 8 4 2 3
4 8 3 2 1 5 9 7 6
7 6 2 3 4 9 1 5 8
8 4 1 5 7 6 2 3 9
5 3 9 8 2 4 6 1 7
2 7 6 9 3 1 5 8 4
2 3 1 7 9 4 5 6 8
8 7 9 6 1 5 4 2 3
6 5 4 3 2 8 7 9 1
4 2 6 9 8 3 1 5 7
3 8 5 1 6 7 2 4 9
9 1 7 5 4 2 3 8 6
7 9 2 8 5 1 6 3 4
1 4 8 2 3 6 9 7 5
5 6 3 4 7 9 8 1 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 22. september,
265. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Fagnið því, þótt þér nú
um skamma stund hafið orðið að
hryggjast í margs konar raunum.
(1Pt. 1, 6.)
Víkverji lagðist í liðinni viku í mikl-ar vangaveltur um möguleika
KR á að verða Íslandsmeistari og
sagði meira að segja að ef af yrði
mætti líkja vertíðinni hjá félaginu við
sögufrægt úrslitahlaup Dave Wottle í
800 metrum á Ólympíuleikunum 1972.
Nú er vitaskuld orðið ljóst að Víkverji
var ekki í neinum tengslum við veru-
leikann þegar hann setti þessa sam-
líkingu á blað. Breiðablik afgreiddi
KR snyrtilega í Frostaskjólinu á
fimmtudag, komst í 3-0, og þótt
heimamönnum tækist að fegra úrslit-
in með marki var sigur Blikanna aldr-
ei í hættu.
x x x
Ef sigur Kópavogsliðsins í Vestur-bænum dugði ekki til að sann-
færa menn um að það yrði verðugur
Íslandsmeistari undirstrikaði sigur
þess á Selfossi á sunnudag stöðug-
leika liðsins undir pressu. Blikarnir
hafa verið bráðskemmtilegt sóknarlið
og þegar allt gengur upp er unun að
fylgjast með léttleikandi leikmönnum
þess. Liðið er með FH og ÍBV á hæl-
unum og má því ekki misstíga sig. Um
helgina stóðst Breiðablik pressuna,
en úrslitastundin kemur í síðustu um-
ferð Íslandsmótsins um helgina.
x x x
Áhorfendur á leik KR og Breiða-bliks í síðustu viku rak marga í
rogastans þegar þeir komu að bílum
sínum að leik loknum. Rúmlega þrjú
þúsund áhorfendur voru á leiknum og
yfirvöld höfðu greinilega séð sér leik á
borði að hala nú rækilega inn í tóma
sjóði. Hver einasti bíll, sem var vit-
laust lagt, hafði fengið sekt. Á Menn-
ingarnótt var ítrekað greint frá því að
þeir, sem legðu ólöglega, yrðu sekt-
aðir. Fyrir þennan leik voru hins veg-
ar engar viðvaranir, bara beðið eftir
að leikurinn hæfist til að geta sektað
fyrir stórkostleg afglöp á borð við að
leggja með hjólin öðrum megin uppi á
gangstétt. Þessi hegðun er daglega
látin óáreitt á þröngum götum borg-
arinnar, en þarna var látið til skarar
skríða. Víkverji tekur fram að hann
fékk ekki sekt og skrif þessi eru því
ekki sprottin af sjálfsmeðaumkvun.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 traustur, 8 víð-
kunnugt, 9 kynið, 10 tími,
11 mólendið, 13 fyrir inn-
an, 15 sól, 18 fjarstæða, 21
að, 22 vagga, 23 snjó-
lausan, 24 ræpu.
Lóðrétt | 2 borðar allt, 3 falla,
4 truflun, 5 kvendýrið, 6
reiðum, 7 röskur, 12 eykta-
mark, 14 synjun, 15 jurt, 16
tittur, 17 óhreinkaðu, 18 fáni,
19 glerið, 20 fífl.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 skálm, 4 bitur, 7 rellu, 8 rúmba, 9 rúm, 11 rugl, 13
örvi, 14 ágeng, 15 holt, 17 nafn, 20 stó, 22 lygin, 23 lævís, 24
nusar, 25 negla.
Lóðrétt: 1 skrár, 2 áflog, 3 maur, 4 barm, 5 tímir, 6 róaði, 10 úr-
elt, 12 lát, 13 ögn, 15 hælin, 16 logns, 18 alveg, 19 nísta, 20 snar,
21 ólin.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rc3 Rc6 3. g3 g6 4. Bg2 Bg7
5. Rge2 e6 6. O-O Rge7 7. d3 O-O 8.
Be3 Rd4 9. Dd2 Hb8 10. Rc1 d5 11.
Rd1 b6 12. c3 Rdc6 13. exd5 Rxd5 14.
Bh6 Bxh6 15. Dxh6 Bb7 16. Re3 Re5
17. d4 cxd4 18. cxd4 Rxe3 19. Dxe3
Bxg2 20. Kxg2 Rc4 21. De2 Dxd4 22.
Rb3 Dd5+ 23. Kg1 e5 24. Hac1 Hbc8
25. Hc2 b5 26. Hd1 De6 27. Rd2 Rd6
28. Re4 Hxc2 29. Dxc2 Rf5 30. Rc5 Dc6
31. b4 Hc8 32. Hd7
Staðan kom upp á breska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í
Canterbury í Englandi. Alþjóðlegi
meistarinn Adam Hunt (2408) hafði
svart gegn Jaroslav Vrubl (2210). 32…
Dxd7! og hvítur gafst upp enda hróki
undir.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Engin bellibrögð.
Norður
♠ÁK9862
♥ÁG5
♦K32
♣5
Vestur Austur
♠G4 ♠D1075
♥1098 ♥64
♦D986 ♦G4
♣ÁDG2 ♣K10984
Suður
♠3
♥KD732
♦Á1075
♣763
Suður spilar 6♥.
Engin sérstök bellibrögð þarf til að
vinna þessa slemmu, aðeins ná-
kvæmni og rétta tímasetningu. Út-
spilið er tromptía.
Málið er einfalt ef spaðinn fellur
flatur, en eins og spilarar vita af
rammri reynslu er 3-3 legan á móti
eðlilegum sólargangi. Því er rétt að
gera út á eina laufstungu líka – taka á
♥Á og spila laufi. Vörnin svarar því
með öðru trompi. Þá er orðið tíma-
bært að fara í spaðann. Trompslag-
urinn er tekinn á ♥G blinds, ♠Á lagð-
ur niður og spaði stunginn smátt.
Síðan er lauf trompað með ♥5. Vörnin
á aðeins eitt hjarta eftir og því er
óhætt að spila spaða og stinga með
mannspili heima. Síðasta tromp vest-
urs er tekið og lokahnykkurinn er að
fara inn í borð á ♦K til að njóta upp-
skerunnar af spaðalitnum.
22. september 1939
Strandferðaskipið Esja kom
til landsins. „Fegursta og
vandaðasta farþegaskip sem
við Íslendingar höfum enn
eignast,“ sagði Þjóðviljinn.
Esja var í strandsiglingum til
ársins 1969 en fór einnig til
annarra landa. Fræg er ferð
skipsins til Petsamo í síðari
heimsstyrjöldinni.
22. september 1957
Árbæjarsafn í Reykjavík var
opnað fyrir almenning við há-
tíðlega athöfn. Um tólf
hundruð gestir komu fyrsta
daginn.
22. september 1973
Menntaskólinn í Kópavogi var
settur í fyrsta sinn. Nemend-
urnir voru 120 og kenn-
ararnir þrettán.
22. september 1992
Ólympíuleikum þroskaheftra,
þeim fyrstu, lauk í Madrid. Ís-
lenskt sundfólk hlaut 21 verð-
laun (10 gull, 6 silfur og 5
brons). Sigrún Huld Hrafns-
dóttir hlaut flest verðlaun
einstaklinga á leikunum.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
„Þetta verður alvörupartí,“ segir Elísabet Ósk
Ólafsdóttir sem er tvítug í dag. Hún fagnar afmæl-
inu ásamt vinkonu sinni en saman ætla þær að
halda veislu. „Hún átti afmæli níu dögum á undan
mér og varð líka tvítug. Þannig að við ætlum að
halda saman afmæli.“
Elísabet Ósk er uppalin á Ísafirði en búsett í
Reykjavík. „Ég var bara að klára menntaskólann,
var að læra fatahönnun. Það er ekki hægt á Ísa-
firði svo ég kom suður. Ég var í Tækniskólanum.
Svo er ég bara að vinna og er enn ekki búin að
ákveða hvað ég ætla að gera næst. Ég er að vinna í
skór.is í Kringlunni,“ segir Elísabet en hún fór vestur um helgina til
að fagna afmælinu með bernskuvinkonum sínum.
Hún kveðst ekki hafa ákveðið hvert leið hennar liggur í lífinu en
hefur þó áhuga á að flytja út fyrir landsteinana á næstu misserum.
„Nei, ég er ekki búin að ákveða það. Það verður þó örugglega eitt-
hvað utan landsteinanna. Prófa eitthvað nýtt.“
Elísabet segist ekki leggja það í vana sinn að halda stórar veislur.
„Nei, það er nú fyrst núna sem ég held eitthvað stórt, annars hef ég
oftast bara fengið vinkonur mínar í heimsókn.“ jonasmargeir@mbl.is
Elísabet Ósk Ólafsdóttir er tvítug í dag
Heldur alvörupartí
Hlutavelta
Flóðogfjara
22. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 5.52 3,7 12.00 0,6 18.06 3,9 7.11 19.31
Ísafjörður 1.50 0,3 7.43 1,9 13.57 0,4 19.57 2,1 7.16 19.36
Siglufjörður 4.00 0,3 10.11 1,2 16.08 0,3 22.21 1,3 6.58 19.19
Djúpivogur 3.00 2,0 9.12 0,5 15.20 2,1 21.23 0,5 6.41 19.00
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er fín lína milli þess að gera
öðrum vel og að ganga á sjálfan sig. Mögu-
leiki á langtímadvöl langt í burtu vofir yfir.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú munt koma miklu í verk sökum já-
kvæðni þinnar og glaðlyndis. Hreyfing gerir
öllum gott. Neikvæður nágranni íhugar
flutninga þér til léttis.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það reynir á taugarnar að standa
á sínu – en gefstu ekki upp. Gerðu hreint
fyrir þínum dyrum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú þráir andlega örvun á einhverju
sviði og áhugaverðar samræður við maka
og félaga. Gakktu í það að koma öllum mál-
um á hreint svo þú getir snúið þér að fram-
tíðinni.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Gefðu þér tíma til að huga að reikn-
ingum og skuldum, trygginga- og erfða-
málum í dag. Mundu að þú ert þinnar gæfu
smiður.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú lífgar upp á viðkvæmar sálir
þeirra sem eru í kringum þig. Að hika er
sama og tapa – mundu það.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú munt að öllum líkindum lenda í
valdabaráttu við foreldra þína eða jafnvel yf-
irmenn í dag. Farðu þér hægar og gefðu
gaum að þeim verðmætum sem liggja í per-
sónulegri hamingju.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Vertu ekki niðurdregin/n þótt
þú sjáir eftir orðum þínum. Þú færð tæki-
færi til að hlaupa af þér hornin þessa vik-
una.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Börn gætu orðið til þess að
auka mjög á skyldur þínar. Líttu í eigin barm
í vissu máli og skoðaðu málin í rólegheit-
unum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Láttu ekki slá þig út af laginu þó
hik komi á einhvern sem þú treystir á. Þú
sýpur hveljur yfir kjaftasögum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú vilt ekki troða neinum um
tær, en þú vilt líka stjórna eigin heimi. Ein-
hver segir ekki allan sannleikann.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú stendur frammi fyrir persónulegri
ákvörðun. Fólk gefur þér ekki stórkostleg
tækifæri bara af því að því líkar við þig.
Stjörnuspá
Jórunn Þor-
gerður Bergs-
dóttir, til heimilis
að Brekkugötu 1
í Vestmanna-
eyjum, er sjötíu
og fimm ára í
dag, 22. sept-
ember.
75 ára