Morgunblaðið - 22.09.2010, Side 31
AF LISTUM
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Ámorgun hefst Alþjóðlegkvikmyndahátíð í Reykja-vík, Reykjavík International
Film Festival, RIFF. Alls verða yfir
100 myndir sýndar og hafa þær
verið flokkaðar í 17 flokka. Í flokk-
inum Sound on Sight verður sýnd
kanadíska heimildarmyndin The
Genius Within – The Inner Life of
Glenn Gould sem fjallar um tónlist-
arundrið Glenn Gould og varpar
ljósi á manninn á bak við goðsögn-
ina.
Gould var sannkallaður píanó-snillingur en sérvitur og sér-
stakur eins og snillingar eru gjarn-
an. Hann fæddist í Toronto árið
1932 og var einkabarn foreldra
sinna sem voru músíkölsk og lögðu
mikla áherslu á tónlistarlegt upp-
eldi sonarins. Sagt er að Gould hafi
lært að lesa nótur áður en hann
lærði að lesa stafi og hann flutti
frumsamið verk á tónleikum aðeins
sex ára gamall. Hann lærði á píanó
við The Royal Conservatory of Mu-
sic í Toronto og útskrifaðist þaðan
með hæstu einkunn 12 ára gamall.
Gould var aðeins 32 ára þegarhann hélt opinbera tónleika í
síðasta skiptið en hann var afar
gagnrýninn á tónleikahald og hélt
því fram að lifandi flutningur hefði
haft þau áhrif að sýndarmennska
fór að einkenna tónsmíðar ýmissa
tónskálda, meðal annarra Mozarts.
Hann var hins vegar afar hrifinn af
því að vinna í stúdíói þar sem hann
hafði frið og ró og allt á valdi sínu.
Hann var alls óhræddur við að eiga
við upptökurnar, þótt það væri
sjaldnast nauðsynlegt, og var þeirr-
ar skoðunar að upptökur væru ekk-
ert síður sannar eða merkilegar
þótt þær væru klipptar saman.
Gould var eins og fyrr segir aðmörgu leyti mjög sérvitur.
Hann átti það til að humma nót-
urnar á meðan hann spilaði af því
að honum fannst píanóið ekki geta
skilað þeim blæbrigðum sem tón-
listin bauð upp á. Nær alla sína ævi
sat hann við píanóið á stól sem faðir
hans smíðaði handa honum eftir að
hann meiddist í baki aðeins tíu ára
gamall. Þetta gerði það að verkum
að hann sat mjög lágt við hljóðfærið
og notaði sérstaka tækni þar sem
hann togaði píanónóturnar niður í
stað þess að slá þær. Hann giftist
aldrei, átti engin börn og hélt sig
mikið út af fyrir sig.
Glenn Gould var einn mestiklassíski tónlistarmaður 20.
aldarinnar. Hann var píanóleikari,
orgelleikari, tónskáld, útsetjari, út-
varpsmaður og spekingur. Hann
skrifaði gagnrýni og greinar í
fjölda blaða og hélt margra fyrir-
lestra. Hann dáði Bach umfram allt
en var líka hrifinn af djasstónlist.
Gould lést árið 1982, aðeins fimm-
tugur að aldri.
Aðdáendur píanótónlistar ættu
að bíða spenntir eftir The Genius
Within – The Inner Life of Glenn
Gould. Fyrir þá sem ekki þekkja til
er upplagt að kíkja á Youtube og
sjá snillinginn við píanóið. Fimir
fingurnir slá ekki eina einustu feil-
nótu og nákvæmnin er ótrúleg.
Myndin verður sýnd 23.
september í Iðnó og 25. og 27. sept-
ember og 1. október í Bíó Paradís.
Hummandi snillingur á RIFF
»Hann átti það til aðhumma nóturnar á
meðan hann spilaði af
því að honum fannst pí-
anóið ekki getað skilað
þeim blæbrigðum sem
tónlistin bauð upp á.
Glenn Gould Forvitnileg mynd um snillinginn verður sýnd á RIFF.
31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2010
ATH: Tilboðin gilda ekki í Borgarbíói
NÝTT Í BÍÓ!
Baltasar Kormákur kynnir nýja íslenska
gamanmynd eftir Grím Hákonarson.
Er í lagi að selja
álfastein úr landi?
SÍMI 564 0000
L
L
16
16
12
L
L
L
12
16
SÍMI 462 3500
L
16
12
L
SUMARLANDIÐ kl. 8-10
RESIDENTEVIL:AFTERLIFE3D kl. 8-10
THEOTHERGUYS kl. 6
AULINN ÉG 3D kl. 6
SÍMI 530 1919
L
16
12
L
16
SUMARLANDIÐ kl. 6-8.30-10.30
RESIDENTEVIL:AFTERLIFE3D kl. 8.30-10.30
THEOTHERGUYS kl. 5.30-8-10.30
THEFUTUREOFHOPE kl. 6
THEEXPENDABLES kl. 8-10.20
SUMARLANDIÐ kl. 3.30-6-8-10
SUMARLANDIÐLÚXUS kl. 8
RESIDENTEVIL: AFTERLIFE3D kl. 5.50-8-10.10
RESIDENT EVIL: AFTERLIFE3DLÚX kl. 10.10
THEOTHER GUYS kl. 5.30-8-10.30
DESPICABLEME3D kl. 3.40-8
AULINN ÉG 3D kl. 3.40-5.50
AULINN ÉG 2D kl. 3.40
SCOTTPILGRIM VS THEWORLD kl. 10.10
SALT kl. 10.15
.com/smarabio
Sýnd kl. 8 og 10 (3D) - enskt tal
Sýnd kl. 6 (3D) - íslenskt tal
ÍSLENSKT TAL
Á heildina litið er Aulinn
ég 3D einstaklega vel
heppnuð teiknimynd sem
hentar ekki einungis
börnum, heldur öllum
aldurshópum.
H.H. - MBL
Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:15
Sýnd kl. 6, 8 og 10
STEVE CARELL
„Mikið er nú gaman að geta
loks hlegið innilega í bíó“
-H.S.S., MBL
HHHH
„Leikurinn er sannfærandi,
persónur verða ljóslifandi og
fjölskylduspennan mögnuð“
-H.S., MBL
HHH
-R.E., FBL
-bara lúxus
Sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík, hefst á morgun. Erlendir
gestir eru nú þegar farnir að
streyma til landsins vegna hátíðar-
innar, en alls er búist við um 300
manns erlendis frá vegna hátíðar-
innar. Á meðal stórra fjölmiðla sem
senda fulltrúa sína á RIFF má nefna
kvikmyndatímaritin Screen Daily,
Film Comment og Film Quarterly
og aðra miðla á borð við Frankfurter
Rundschau (Þýskaland), Die Zeit
(Þýskaland), ARTE (Þýskaland/
Frakkland), Weekendavisen (Dan-
mörk), Jyllandsposten (Danmörk),
Minneapolis Star (Bandaríkin), CBS
(Bandaríkin), New York Magazine
(Bandaríkin), IndieWIRE (Banda-
ríkin). Á meðal virtra kvikmynda-
hátíða sem senda fulltrúa á RIFF
má nefna Berlinale, Toronto, Kar-
lovy Vary og Tribecca. Þá koma
einnig fulltrúar dreifingaraðila á
borð við The Match Factory, Fort-
issimo Films og Magnolia Pictures.
Stórt Screen Daily er með virtustu
ritunum sem hingað koma.
Erlendir
gestir
streyma
á RIFF