Morgunblaðið - 21.10.2010, Side 2

Morgunblaðið - 21.10.2010, Side 2
2 21. október 2010finnur.is VILT ÞÚ VITA HVERS VIRI EIGNIN ÞÍN ER Í DAG? PANTAU FRÍTT SÖLUVERMAT ÁN SKULDBINDINGA! HRINGDU NÚNA Bær820 8081 Sylvia Walthers // best@remax.is Rúnar S. Gíslason Lögg. fasteignasali. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannes- sen Umsjón Birta Björnsdóttir birta@mbl.is Bílar Sig- urður Bogi Sævarsson sigurdurbogi@ mbl.is Auglýsingar finnur@mbl.is, sími 5691107 Prentun Landsprent ehf. Ef til stendur að missa nokkur kíló ætti að gæta þess sérstaklega að fá nægan svefn, ef marka má glænýja rannsókn sem Chicago og Wisconsin-Madison-háskólar unnu í samein- ingu. Rannsóknin fór þannig fram að hópi fólks í yfirþyngd var haldið á sama megrandi mataræði og fékk sömu hreyfingu, en annar helmingur hópsins fékk að sofa í 5,5 tíma á meðan hinn svaf 8,5 tíma á nóttu. Allt missti fólkið svipaða þyngd að loknu tveggja vikna tímabili, en þeir sem fengu lít- inn svefn misstu minna af fitu og meira af vöðvaþyngd. Rannsakendurnir ímynda sér að hversu mikið eða lítið líkaminn fær af svefni hafi bæði áhrif á framleiðslu hungurtengdra hormóna sem og á efnaskipti líkamans. Aðr- ar rannsóknir eiga að hafa sýnt fram á tengsl minni nætursvefns og aukinna líka á bæði þyngdaraukningu sem og hjarta- og æða- sjúkdómum. ai@mbl.is Heilsuráð Morgunblaðið/Þorkell Góður svefn bætir megrunina Þýski gæðastimp- illinn Spiel des Ja- hres (Spil ársins) er einhver sá mesti heiður sem hægt er að hljóta í flokki borðspila. Það hlaut á dögunum spilið Dixit, sem er til sölu hjá Spila- vinum á Langholtsvegi. Á heimasíðu verslunarinnar kemur meðal annars fram að spilinu megi lýsa sem mynd- rænu Fimbulfambi, en spilið gengur út á að lýsa með orðum eða hljóðum myndum sem fylgja með spilinu. Keppendur, sem skiptast á um að vera sögumaður, reyna svo að giska á hvaða mynd viðkomandi var að lýsa. Spilið er fyrir þrjá til sex leikmenn og tekur um hálftíma að spila. Það kostar 6.850 krón- ur í Spilavinum. birta@mbl.is Spil Dixit var valið spil ársins 2010 Að vera plötusnúður er draumastarf áþessum aldri. Ég hef alltaf haftmikinn áhuga á tónlist og það erlíka gaman að vera meðal fólks sem fer út á lífið til að skemmta sér. Auðvitað koma þær stundir að maður vildi vera heima, til dæmis á kvöldin og um helgar, en þegar í leik- inn sjálfan er komið hverfa slíkar hugsanir af- ar fljótt,“ segir Jónas Óli Jónasson eða Jay-O, 24 ára plötusnúður. Var í góðærisnámi Tónlistin hefur gengið eins og rauður þráð- ur í gegnum allt líf Jónasar sem lærði á píanó upp undir tvítugt í Tónmenntaskóla Reykja- víkur og FÍH, jafnhliða því sem hann æfði knattspyrnu með yngri flokkum KR. Að loknu stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands árið 2006 hóf Jónas nám í fjármálaverkfræði við Háskólann í Reykjavík sem hann brautskráð- ist frá árið 2009. „Við vorum þrjátíu í mínum árgangi sem byrjuðum í þessu námi. Það má segja að þetta hafi verið góðærisnám, þar sem við byrjum öll í rjúkandi uppgangi og námið sem slíkt er snið- ið að fjármálastofnunum. Þegar við braut- skráumst svo er allt kerfið á Íslandi komið í rugl. Eftir á að hyggja hef ég lítinn áhuga á því að vinna í banka og hugsaði með mér að það væri einfaldlega skemmtilegra að halda sig við plötusnúðinn og ég er ekkert að leita mér að öðru starfi í dag. Ég hef miklu meiri áhuga á að gera eitthvað sjálfur.“ Gripið í vínylinn Jónas var fulltrúi Frostaskjóls í plötusnúð- akeppni félagsmiðstöðva árin 2001 og 2002 og bar þar sigur úr býtum. Var hann þá kominn í góða þjálfun því aðeins ellefu ára fékk hann sinn fyrsta plötuspilara og hljóðblandara að gjöf frá foreldrum sínum. „Talsvert af tónlist kemur enn út á vínyl- plötum og maður grípur enn í þær. Mest af þeirri tónlist sem ég spila er hins vegar staf- rænt efni sem ég kaupi af netinu, til dæmis í gegnum bandarískar tónlistarveitur. Annars eru útvarpsstöðvarnar hérlendis mjög áhrifa- miklar. Fólk er matað af tónlist og gleymir stundum hvað því sjálfu finnst skemmtilegt og langar bara að heyra það sem er vinsælt. Það er gífurlegt magn af tónlist, sérstaklega ís- lenskri, sem kemst aldrei til skila,“ segir Jónas Óli sem þeytir skífum til dæmis á skólaböllum, í einkasamkvæmum og skemmtistöðum – þá oftast á Vegamótum, Austur og B5 en þeir staðir eru allir í miðborg Reykjavíkur. sbs@mbl.is Plötusnúðurinn Jónas Óli Jónasson þeytir skífum á skemmtistöðum borgarinnar. Morgunblaðið/Ernir „Fólk er matað af tónlist og gleymir stundum hvað því sjálfu finnst skemmtilegt,“ segir Jónas Óli Jónasson plötusnúður. Verkfræðingurinn þeytir skífum og skemmtir fólki Carambar er fyrir Frökkum eins og Tópas er fyrir Íslendingum eða Haribo fyrir Dönum. Þetta mjúka karamellunammi er orðið samofið franskri menningu og meira að segja hluti af málhefð- inni. Að segja „Carambar-brandara“ þýðir hjá Frökkum að brandarinn hafi verið hallærislegur eða barnalegur, en litlir brandarar eru prentaðir á innanverðar umbúðirnar um hvert karamellustykki. Karamellan minnir á löngu karamellustangirnar í Quality Street-dollunum frá Macintosh, nema hvað hún er ögn mýkri undir tönn og hægt er að kaupa Carambar með alls konar bragði öðru en klassísku karamellubragði. Meðal bragðtegunda sem finna má í betri verslunum er kóla-, sítrónu-, núggat- og jarð- arberjabragð. Ekki er vitað til þess að Carambar finnist í íslenskum versl- unum en hægt er að kaupa gottið í ýmsum netbúðum og auðvelt að rekast á poka í búðum í vestari helmingi Evrópu. ai@mbl.is Hefurðu smakkað … Carambar? Karamelludýrð af löngu sortinni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.