Morgunblaðið - 21.10.2010, Side 8
8 21. október 2010fasteignir
Ég er myndlistarmaðurog er menntuð semkennari líka. En síðast-liðin fimm ár hef ég
eingöngu verið í myndlistinni,“
segir Sveinbjörg Hallgrímsdóttir,
sem hannar meðal annars fallegar
filmur sem skreyta má með glugga
og veggi.
„Það er erfitt að lifa eingöngu af
myndlistinni svo ég fór fyrir
nokkru að hanna heimilislínu með
mynstrum sem ég hafði verið að
vinna með áður í verkum mínum.“
Heimilislínan nær yfir áður-
nefndar filmur ásamt teppum og
servíettum svo fátt eitt sé nefnt.
„Ég vinn eingöngu út frá mínum
myndverkum. Ég nota filmurnar
svipað og grafíkverkin mín, það er
hægt að raða þeim saman, lag ofan
á lag og gera þannig annað mynst-
ur eða bara nota hverja filmu fyrir
sig.
Ég hef búið til pakka þar sem
fólk getur sjálft búið til sína eigin
mynd úr filmunum, svipað og ég
hef verið að gera í þrykkinu. Það
er hægt að kaupa mismunandi
filmur og raða þeim saman og
gera í raun sitt eigið myndverk í
glugga eða á vegg,“ segir Svein-
björg.
„Ég er einnig með gjafakorta-
línu sem er unnin út frá mynd-
verkum mínum og þau eru í sölu í
nokkrum hönnunar- og blóma-
verslunum um landið.“
Á verk í fórum Svíakonungs
Það er í mörg horn að líta hjá
Sveinbjörgu. Eins og áður sagði
hefur hún hannað heimilislínu auk
filmnanna og svo prýðir verk eftir
hana jólafrímerki Póstsins í ár.
Auk þess getur Sveinbjörg státað
sig af því að hafa gert verk fyrir
sjálfan Karl Svíakonung.
„Verkið heitir Vinátta og Ak-
ureyrarbær gaf Svíakonungi verk-
ið þegar hann kom í vinabæj-
arheimsókn hingað. Þetta verk
passaði mjög vel við þessa heim-
sókn,“ segir Sveinbjörg og við-
urkennir að það sé svolítið gaman
að vita af verki sínu í fórum
sænsku konungsfjölskyldunnar.
Sveinbjörg er ein þeirra fjölda-
mörgu hönnuða sem taka þátt í
sýningunni Handverk og hönnun í
Ráðhúsinu helgina 28. október til
1. nóvember.
Auk þess er hægt að nálgast
hönnun hennar hjá Svartfugli og
hvítspóa og Sirku á Akureyri og
Duka, Epal, Loka, Gallerý Fold og
Kraumi í Reykjavík auk vefversl-
unarinnar svartfugl.is.
Sveinbjörg Hallgímsdóttir myndlistarmaður á Akureyri
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Myndlistakonan Sveinbjörg á vinnustofu sinni á Akureyri.
Sveinbjörg viðurkennir að það sé svolítið gaman að vita
af verki sínu í fórum sænsku konungsfjölskyldunnar.
Ljósmynd/Lára Stefánsdóttir
Hér má sjá filmur Sveinbjargar nýttar
á margvíslegan máta í gluggum.
Hannar filmur fyrir heimilið
Vel hannað 297,6 fm parhús á 2 hæðum við Furuás í Hafnarfirði.
Húsið er hægt að fá fokhelt að innan og utan til afhendingar eftir
samkomulagi verð 26.900.000 einnig er mögulegt að kaupa
húsið í núverandi ástandi verð 17.900.000. Möguleiki er að gera
séríbúð á neðri hæð hússins sem gæti hentað afar vel til útleigu.
Upplagt fyrir handlagna. Allar teikningar fylgja með.
Nánari upplýsingar veitir Bóas í síma 699 6165 eða á boas@domusnova.is
Til leigu vel skipulögð rými á góðum
stað. Rýmin eru í nokkrum stærðum
98,4 fm, 160,5 fm og 321 fm.
Húsnæðið afhendist tilbúið sem
opið rými. Frábært staðsetning.
Trygging: 2 mánaða leiga
Bóas Ragnar Bóasson
Sölustjóri
Sími: 699 6165
Axel Axelsson
Löggiltur fasteignasali
Turninum 12. hæð - Smáratorgi 3 - 201 Kópavogi - domusnova@domusnova.is - www.domusnova.is - S: 527 1717 - Fax: 527 1718
Hægt er að stúka rýmin niður í skrifstofur
og fundarherbergi allt eftir óskum leigutaka.
Fiskislóð 31, 101 RVK.
Furuás, 221 HFJ.
1.100 kr
Leiguverð pr fm.
Nánari upplýsingar veitir Bóas í síma 699 6165 eða á boas@domusnova.is