Morgunblaðið - 21.10.2010, Síða 15
fasteignir21. október 2010 15
Markaðurinn var aðeins að taka viðsér en svo sló í bakseglin. Tilþess að raunveruleg hreyfingkomist á hlutina þarf hins vegar
að komast á hreint hvað stjórnvöld ætla sér
varðandi afskriftir skulda heimilanna. Óviss-
an um það er mjög bagaleg,“ segir Sverrir
Kristinsson, löggiltur
fasteignasali og fram-
kvæmdastjóri Eignamiðl-
unar í Reykjavík.
72 samningum þinglýst
Alls 72 kaupsamningum
vegna fasteignaviðskipta á
höfuðborgarsvæðinu var
þinglýst dagana 8. til 14.
október. Þar af voru 53
samningar um eignir í fjöl-
býli, fjórtán um sérbýli og fimm samningar
um aðrar eignir en íbúðarhúsnæði. Heild-
arveltan var 2.092 milljónir króna og með-
alupphæð á samning 29,1 milljón króna.
Aðeins einum kaupsamningi var umrædda
daga þinglýst á Suðurnesjum. Hann var um
eign í sérbýli og þar voru undir 11,6 millj. kr.
Á Akureyri var gengið frá sex kaupsamn-
ingum og fimm á Árborgarsvæðinu, í fjórum
tilvikum um kaup á sérbýliseignum.
Kunnugir benda á að þessar tölur segi
raunar ekki allt um stöðuna á markaðnum
þessa dagana. Oft líði nokkrar vikur frá því
gengið sé frá samningum um sölu fasteigna
uns þeim sé þinglýst hjá sýslumanni sem er
lokapunktur máls.
„Fasteignaverð er í dag að nálgast þá línu
sem eðlileg getur talist. Íbúðir í fjölbýlis-
húsum og sérbýli, til dæmis raðhús, eru að
fara á mjög ásættanlegu verði. Fólk þarf að
minnsta kosti ekki að láta frá sér eignir á
neinu hrakvirði. Þetta er í raun allt að leita
jafnvægis eftir mjög óvenjulega tíma. Fyrst
þensluskeið og svo verðfall og efnahagshrun
sem var líkast náttúruhamförum,“ segir
Sverrir.
Séreignastefnan er ekki dauð
Sverrir telur núverandi aðstæður í efna-
hagslífi ekki þýða að séreignarstefnan svo-
nefnda sé dauð, enda þótt slíku hafi verið
haldið fram. Í bráð og lengd sé það jafnan
ódýrasti kosturinn að búa í eigin húsnæði –
og með góðum rökum megi halda því fram að
séreignarstefnan sé í ágætu samræmi við ís-
lensku þjóðarsálina; það er að vera sjálfs sín
herra.
sbs@mbl.is
Óvissan á markaðnum er mjög bagaleg
Sverrir
Kristinsson
Sjötíu kaupsamningum þinglýst á
einni viku. Rólegur markaður.
Beðið eftir aðgerðum stjórnvalda
í málefnum skuldsettra heimila.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Horft yfir Reykjavík úr Húsi verslunarinnar. Kunnugir segja fasteignamarkaðinn lítið eitt að glæðast en óvissa um aðgerðir í málum skuldara sé bagaleg.
Á siminn.is sérðu hvort þitt heimili hefur aðgang að Sjónvarpi Símans.
Til að ná Sjónvarpi Símans þarf að hafa ADSL tengingu hjá Símanum.
Mesta úrval landsins
heima í stofu
Það er
Fyrir aðeins 790 kr. á mánuði færðu opnu, íslensku stöðvarnar og þrjár
erlendar. Einnig færðu SkjáBíó þar sem þú getur leigt þér þúsundir bíómynda
og auk þess séð sjónvarpsþætti og úrval efnis á 0 kr.
Fáðu þér Sjónvarp Símans í 800 7000, siminn.is eða í næstu verslun.
Sjónvarp Símans
Sími
Netið
Sjónvarp