Morgunblaðið - 21.10.2010, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.10.2010, Blaðsíða 18
18 21. október 2010atvinna Deildarstjóri markaðsdeildar skipuleggur kynningarstarf hússins í samráði við leikhússtjóra, leiklistarráðunaut og listræna stjórnendur og fylgir því eftir. Hann annast gerð birtinga- og markaðsáætlana og semur um kaup á auglýsingum, vörum og þjónustu í samráði við framkvæmdastjóra. Hann sér um heimasíðu leikhússins og reglulega uppfærslu hennar og innra og ytra kynningarstarf. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun í markaðsfræði eða skyldum greinum. • Þekking á helsta hugbúnaði í greininni og notkun hans. • Reynsla af kynningar- og markaðsmálum, áætlanagerð og verkefnastjórnun. • Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku. Góð kunnátta í ensku. • Áhugi á listum og starfsemi leikhúsa. • Öguð og ábyrg vinnubrögð. Hæfni í mannlegum samskiptum. Umsóknum og fylgigögnum má skila á netfangið leikhusid@leikhusid.is, að því tilskyldu að skrifleg umsókn berist samhliða. Umsóknareyðublöð má nálgast á vef Þjóðleikhússins www.leikhusid.is Umsóknarfrestur er til og með 30. október 2010. Nánari upplýsingar um starfið veitir Tinna Gunnlaugsdóttir, þjóðleikhússtjóri, í síma 585 1200. Deildarstjóri markaðsdeildar við Þjóðleikhúsið SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 www.hagvangur.is Fjármálastjóri Fasteignafélags Íslands ehf. Fasteignafélag Íslands ehf. auglýsir laust til umsóknar starf fjármálastjóra hjá félaginu. Helstu verkefni: • Yfirumsjón með bókhaldi, kostnaðareftirliti og greiningu. VSK skil og skýrslugerðir. Undirbúningur fyrir endurskoðun og þátttaka í innra eftirliti. • Umsjón með endurfjármögnun lána og lánamálum félagsins. • Skipulag og eftirfylgni fjármálastjórnunar, samræming fjárhags- áætlana einstakra verkefna, samantekt áætlana og frávikagreining. • Umsjón með fjárhagsupplýsingakerfum félagsins. • Ábyrgð á greiðslum reikninga, innheimtu og útgáfu reikninga. • Fjárhagsleg vöktun með einstaka verkefnum. • Vinnsla og framsetning upplýsinga um fjármálastöðu og rekstraruppgjör. • Þátttaka í áætlanagerð og hagkvæmnisútreikningum. • Eftirlit með samningum skuldunauta og lánardrottna. Menntunar- og hæfniskröfur: • Viðskiptafræðimenntun á háskólastigi af endurskoðunar- eða fjármálasviði ásamt reynslu af reikningshaldi og stjórnun. • Þekking og kunnátta á IFRS reikningsskila- stöðlum. • Góð þekking á verðbréfamarkaði. • Góð tölvukunnátta og þekking á helstu fjárhagsupplýsingakerfum. • Frumkvæði og fagmennska í starfi. • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð. • Færni í samskiptum og þægilegt viðmót. Upplýsingar veitir: Þórir Þorvarðarson, thorir@hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 31. október nk. Umsóknir óskast fylltar út á www. hagvangur.is Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Fasteignafélag Íslands er félag sem annast umsýslu og rekstur fasteigna og útleigu á leigu- rýmum. Fasteignafélag Íslands er að fullu í eigu Regins ehf. Helsta eign Fasteignafélags Íslands er verslunarmiðstöðin Smáralind í Kópavogi. Leitað er að áhugasömum og kraftmiklum einstak- lingi sem hefur töluverða reynslu af fjármálastjórnun. Aðstoðar- rekstrarstjóri Íbúðahótel í Reykjavík óskar eftir að ráða aðstoðarrekstrarstjóra til að sjá um daglegan rekstur 3ja íbúðahótela. Hótelin eru á þremur stöðum í Reykjavík (101-105). Starfið felur í sér að sjá um bókunarvélar, bókunarkerfi, símsvörun, tölvupóst, markaðsmál og fleira. Hæfniskröfur: Markaðs- og söluhæfni, þjónustulund, stjórnunarhæfileikar og samskiptahæfileikar. Föst mánaðarlaun. Vinsamlegast sendið ferilskrá á box@mbl.is merkt: ,,H-24225”. Rennismiður Vanur rennismiður (iron turner) með reynslu af tölvustýrðum smíðavélum óskast. Mikil vinna framundan. Vélvík ehf er í fremstu röð á sviði málmvinnslu og hefur yfir að ráða allra nýjustu tækni í greininni. Starfsandi er mjög góður. Uppl. gefur verkstjóri í síma 587 9960 eða sendið fyrirspurn með tölvupósti á netfangið dg@velvik.is Ég hef alltaf haft mjög gaman af börnum og passaði mikið þegar ég var yngri,“ segir Sveinlaug Sigurð- ardóttir, leikskólakennari og deildarstjóri á Grænuborg í Reykjavík. „Árið eftir stúdentspróf tók ég mér ársleyfi frá námi til að reyna að komast að því hvað ég vildi gera í framtíðinni og ákvað að prófa að vinna í leikskóla. Ég hafði stefnt á læknisfræðina og helst þá barnalækningar. Um vorið fann ég að mig langaði hreint ekki að hætta í leik- skólanum og hugsaði að það væri kannski ekki svo galið að læra þetta og gera að ævistarfi. Ég hef ekki enn séð eftir því.“ Sveinlaug segir marga kosti fylgja starf- inu. „Börnin eru svo óútreiknanleg að engir tveir dagar verða eins. Maður veit aldrei hvaða gullkorn koma frá þeim þann daginn og það er það sem mér þykir bæði merki- legast og skemmtilegast við starfið,“ segir Sveinlaug. „Ókostirnir eru vissulega einhverjir, starfið getur tekið á. Það er oft mikið áreiti og hávaði og svo fylgir starfinu að maður þarf að vera vel upplagður allan daginn. Það er aldrei í boði að taka sér korters hlé til að hvíla sig eða slíkt. En að mæta á morgnana og fá fagnaðaróp og faðmlög yfir því að maður sé mættur í vinnuna gerir myglaða mánudaga oft alveg frábæra.“ Sveinlaug segist merkja talsverða hugarfarsbreytingu gagnvart starfi leikskólakennara undanfarin ár. Fólk geri sér í auknum mæli grein fyrir mikilvægi starfsins. „Ég man að nokkrir höfðu á orði við mig að það væri svo illa borgað og furðuðu sig á því að ég ætlaði að leggja þetta fyrir mig. Mín rök voru alltaf að það skiptir meira máli að gera eitthvað sem manni þykir skemmti- legt.“ birta@mbl.is Starfið mitt Leikskólakennari Engir tveir dagar eins Morgunblaðið/Árni Sæberg „Börnin eru svo óútreiknanleg,“ segir Sveinlaug Sigurðardóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.