Morgunblaðið - 21.10.2010, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 21.10.2010, Qupperneq 29
21. október 2010 29 bílar Toyota sendir í ár frá sérnýja kynslóð af Auris ogbýður bílinn jafnframt semtvinnbíl. Hann var hann- aður sérlega með evrópska kaup- endur í huga. Auris hefur ekki aðeins fengið nýtt útlit heldur hafa aksturs- eiginleikar og innanstokksgæði verið aukin. Innanvert er viðmótið talsvert breytt og betra. Gæðameiri og mýkri efni notuð í stað harðra plastefna sem áður voru áberandi, til dæmis í mæla- borði. Auris HSD virðist stærri og fyrir- ferðarmeiri en áður. Þar blekkir augað því hann er straumfræðilega skilvirkari og loftmótstaða lægri; stuðullinn 0,28. Hefur henni verið náð niður með viðnámsminni dekkj- um, straumlínulaga stuðurum og vindskeið aftur af þaki. Auris-tvinnbíllinn er önnur teg- undin frá Toyota sem búin er svo- nefndri HSD-tækni (Hybrid Sy- nergy Drive). Hún byggist á því að hámarka skilvirkni af samvirkni bensín- og rafmótors. Í þéttbýli er Aurisinn óumdeil- anlega á heimavelli og í raun afar hagkvæmur kostur. Ekki síst ef öku- maður heldur sig í rafham eða nýtir raf- og bensínvél í sameiningu í vist- ham. Það er nokkur kúnst að læra á mælana í stjórnborði til að svo megi vera. Í fyrri hamnum er hægt að keyra á rafmótornum einum tvo km í einni bunu sé ekið undir 50 km/klst. Galdurinn er að halda sig frá kraft- hamnum þar sem 1,8 lítra bens- ínvélin tekur aflrásina alveg yfir. Reksturskostnaður er á við mun minni bíl. Auris þarf aðeins 3,8 lítra á 100 km í blönduðum akstri og losar einungis 89 g/km af koltvíildi á 15 tommu felgum. Þýður í akstri Toyota heldur því fram að í akstri standi Auris-tvinnbíllinn öllum bíl- um með tveggja lítra bensín- eða dísilvél á sporði. Alla vega virkar rafmótorinn ákveðinn og öflugur, en umfram allt mjúkur, þegar tekið er af stað. Og þegar bensínvélin grípur inn í aflrásina er krafturinn full- nægjandi. Samvirkni mótoranna skilar 136 hestöflum og bíllinn kemst úr kyrrstöðu í 100 km/klst. á 11,4 sekúndum. Mér fannst Auris-tvinnbíllinn þægilegur í meðförum og þýður í akstri og láta vel að stjórn innan- bæjar í Barcelona og á sveitavegum eða hraðbrautum í nágrenninu. Með endurbættri fjöðrun og svör- unarbetra stýri tekur hann fyrstu kynslóðinni tvímælalaust fram. Raf- eindastýrð og skreflaus sjálfskipting starfaði óaðfinnanlega. Þá voru skiptin milli bensín- og rafmótors al- veg sjálfkrafa og hnökralaus. Meginkostir Auris HSD eru að hann er þægilegur íveru og notaleg- ur í akstri. Ókostir eru þeir, að hætt er við að það reyni á taugar þeirra sem á eftir koma þegar ekið er á raf- mótornum einum. Þá er ferðin til- tölulega lítil og til þess fallin að pirra ökumanninn fyrir aftan. Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Reynsluakstur TOYOTA AURIS Á heimavelli í borg og bæ Morgunblaðið/Ágúst Ágeirsson. Aurisinn er þýður og þægilegur og lætur vel að stjórn innanbæjar og á sveitavegum á Spáni þar sem bílarýnar voru á ferð. Toyota Auris HSD árg. 2010 • Raf- og bensínvél • 136 hö/142 Nm • Stiglaus sjálfskipting • 5 sæti • 7 líknarbelgir • ISO-FIX festingar • Eyðsla innanb.: 3,8 • Eyðsla utanb.: 3,8 • CO2 g/km: 89 Farangursrými 279 l. • 15 eða 17 tommu felgur • 0-100: 11,4 sek. • Brekkustartshjálp • Rafstýrt aflstýri • Verð: 4.695.000 kr. • Umboð: Toyota, Íslandi Létt er að skipta úr raf og bensínham. Auris HSD er ekki beinlínis bíll til langferða því þar nýt- ast kostir tvinntækninnar lítt. En hann smellpassar fyrir þá sem búa og aka að staðaldri í borgum og bæjum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.