Morgunblaðið - 06.11.2010, Page 4

Morgunblaðið - 06.11.2010, Page 4
Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Reykjavíkurborg kannar á næstunni endurskipulagningu á rekstri frí- stundaheimila, leik- og grunnskóla. Starfshópur hefur verið settur á laggirnar til að kanna möguleika á slíkri endurskipulagningu með fag- legan og fjárhagslegan ávinning í huga. Formaður hópsins er Oddný Sturludóttir. „Segja má að við séum þegar komin af stað með þetta verk- efni, en á þessu ári hafa nokkrir leik- skólar verið sameinaðir,“ segir Oddný. „Allt mögulegt getur haft áhrif í þessu sambandi. Ef við stækkum rekstrareiningarnar erum við komin með stærri faghóp á hverjum stað. Þá verður til dæmis auðveldara að fá afleys- ingakennara. Öll innkaup verða hagstæðari og kostnað- ur við skólamat sömuleiðis.“ Allir sammála um kosti Oddný segir að einróma samþykki hafi verið fyrir þess- um tillögum í borgarráði. „Samstaða er gríðarlega mik- ilvæg þegar farið er í uppstokk- un af þessu tagi. Allir voru sam- mála um að þetta efldi kerfið okkar.“ Hvaða áhrif munu þessar breytingar hafa á innihald skóla- starfsins? „Markmiðið er að vernda starfið inni í skólastofunni og á leik- skóladeildinni og ég hef þá trú að það muni takast,“ segir Oddný. „Við er- um fyrst og fremst að horfa á þetta ytra skipulag.“ Misjafnlega þéttsetnir skólar Gæti afleiðingin af þessum breyt- ingum orðið sameinaðir leik- og grunnskólar fyrir 2-16 ára börn og ungmenni ? „Við erum alveg galopin fyrir öllu. Til dæmis er í Dalskóla frí- stundaheimili, leik- og grunnskóli undir einni yfirstjórn og þar eru nemendurnir 2-12 ára.“ Misjafnt er eftir skólum borgar- innar hversu þéttsetnir þeir eru. Er hugmyndin sú að dreifa nemendum jafnar á skólana? „Sums staðar í borginni eru skólar þar sem rými er nægt, annars staðar erum við í tölu- verðum vandræðum; skólarnir eru við það að springa. Þetta þarf allt að skoða,“ segir Oddný. En er ekki líklegt að breytingar af þessu tagi leiði til uppsagna hjá starfsfólki skólanna? „Við sjáum það ekki fyrir okkur,“ segir Oddný. Sameining skóla skoðuð í Reykjavík  Hugsanleg sameining mismunandi skólastiga  Ólíklegt að breytingar leiði til uppsagna starfsfólks skólanna Morgunblaðið/RAX Einn skólastjóri Í Dalskóla í Úlfarsárdal eru tæplega 90 nemendur á aldrinum 2 - 12 ára. Einn skólastjóri ber ábyrgð á starfi leikskóla, grunnskóla og frístundaheimilis. Slíkt fyrirkomulag gæti orðið algengara. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2010 Það sem af er árinu hefur aðeins orðið alhvítt í Reykjavík í 11 daga sem er 29 dögum færra en í með- alári. Því gæti enn eitt veðurfars- metið fallið á þessu ári. Metárið í snjóleysi er 1965 með sína 20 daga. Trausti Jónsson veðurfræðingur bloggaði um snjóinn á blogginu sínu á þriðjudaginn og sagði: Ekki hefur enn orðið alhvítt í haust í Reykjavík. Varla hafði færslan birst á mbl.is þegar byrjaði að snjóa og á fimmtudaginn mældist snjódýpt í borginni 5 sentimetrar. Samkvæmt spá Veðurstofunnar er því spáð að hitinn fari nokkuð yfir frostmark a.m.k. suma daga á næstunni og því kann snjóinn að taka upp. Snjóhula hefur verið athuguð í Reykjavík frá því seint í janúar 1921. Sé miðað við tímabilið allt er að meðaltali aðeins einn alhvítur dagur í október, 6 í nóvember og 12 í desember. Meðaltalið frá upp- hafi ársins til októberloka er hins vegar 40 dagar. Trausti segir að spyrja megi hvort eitthvað ámóta hafi gerst áður. „Svarið er já. Árið 1977 var fádæma snjólétt, þá höfðu eins og nú aðeins 9 dagar verið alhvítir á árinu þegar komið var í upphaf nóvember. Í nóvember og desem- ber bættust við 15 dagar. Alhvítir dagar 1977 voru því 24. Árið 1965 voru dagarnir líka 9 til byrjunar nóvember, en ekki nema 8 árið áður, 1964. Árið 1965 endaði í 20 dögum, en 1964 í 30. Alhvítir dagar voru 18 í desember einum 1964. Metið, miðað við upp- haf nóvember, er frá árinu 1929, þá höfðu einungis fimm dagar ver- ið alhvítir á árinu. En í nóvember og desember urðu alhvítu dag- arnir 30 samtals, hvítt var annan hvern dag.“ Flestir urðu alhvítir dagar á ári 1990, 110. Það met verður örugg- lega ekki slegið á þessu ári, svo mikið er víst. sisi@mbl.is Snjóleysismetið frá árinu 1965 gæti fallið í ár  Metárið í snjóleysi er 1965 með sína 20 daga  Alhvítt í 11 daga til þessa Morgunblaðið/Ernir Fimmti maðurinn hefur verið úr- skurðaður í gæsluvarðhald í um- fangsmiklu fíkniefnamáli sem lög- reglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar. Málið snýst um ætlaða framleiðslu á fíkniefn- um, sölu þeirra og dreifingu. Rann- sóknin snýr að því hvort mennirnir hafi staðið í framleiðslu á kókaíni, amfetamíni og marijúana. Fjórir aðrir eru þegar í haldi. Um er að ræða fjóra Litháa og einn Rússa. Í tengslum við rannsóknina var í húsleitum lagt hald á amfetamín, kókaín og um tvö kíló af marijúana. Einnig um sex milljónir í reiðufé sem eru taldar afrakstur fram- leiðslunnar. Fimmti maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni er búið að selja 41 af þeim 49 íbúðum sem verða í nýju fjölbýlis- húsi við Hólaberg 84 í Breiðholti. Þar af kaupir Reykjavíkurborg tólf íbúðir. Sigurður Einarsson, fram- kvæmdastjóri FEB, segir mikinn áhuga á þessum íbúðum og á tveimur kynningarfundum hafi verið fullt út úr dyrum. Ráðgert er að hefja fram- kvæmdir í febrúar á næsta ári og að íbúðirnar verði afhentar fyrir jólin 2012. Samið hefur verið við SS-verk- taka um byggingu hússins. Sigurður segir að margir þeirra sem hafa tryggt sér íbúðir hafi gert fyrirvara um að selja þurfi eldri og yfirleitt stærri eignir áður en gengið verður frá kaupunum. Fæst af því fólki hafi þó látið reyna á sölu eigna, en hafi áhyggjur í ljósi umræðunnar í þjóðfélaginu. Um þrjár gerðir íbúða er að ræða og kostar miðstærðin, tæplega 90 fermetra, tilbúin, þriggja herbergja íbúð um 27 milljónir. Ekki þarf að greiða fyrstu útborgun fyrr en botn- plata hefur verið steypt. Tengibygg- ing verður yfir í félags- og menning- armiðstöðina í Gerðubergi og geta íbúar nýtt sér félagsstarf aldraðra þar, einnig matsal þar sem seldur er heitur matur í hádeginu og bókasafn, auk þess sem stutt er í heilsugæslu, sundlaug og aðra þjónustu. Aðspurður hvort aðrir kostir en nýbygging hafi verið í stöðunni segir Sigurður, að þessi lausn hafi verið talin henta best fyrir þennan hóp. Hafa selt 41 af 49 íbúðum  Fullt út úr dyrum á tveimur kynningarfundum FEB  Margir hafa áhyggjur af sölu eldri og stærri eigna  Tilbúin þriggja herbergja íbúð á um 27 milljónir Hagsmunir » FEB sinnir ýmsum hags- munamálum 60 ára og eldri. » Íbúðirnar við Hólaberg eru ætlaðar 67 ára og eldri skv. skil- málum borgarinnar. » Félagið hefur ekki staðið í byggingaframkvæmdum frá árinu 1993. Eitt af verkefnum starfshópsins er að kanna hvort breyta eigi mörkum skólahverfa. Lögheimili nemenda ræður námsvist, en engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni. Í þessu sambandi vaknar sú spurning hvort sameining einstakra grunnskóla gæti leitt til þess að börnin þyrftu að ganga langar leiðir í skólann. Ragnar Þorsteinsson, sviðsstjóri Menntasviðs Reykjavíkur, segir ólíklegt að skólasamfélagið myndi samþykkja breytingar af því tagi. „Menntaráð borgarinnar samþykkti reglur fyrir nokkrum árum þess efnis að börn í 1.-7. bekk fá skólaakstur eða strætómiða ef þau búa í meira en 1 ½ km fjarlægð frá skóla,“ segir Ragnar. Samsvarandi vegalengd fyrir nemendur í 8.-10. bekk er 2 km. SAMEINING ÞARF EKKI AÐ ÞÝÐA LENGRI LEIÐ Í SKÓLANN Skólaakstur Reglur fyrir hendi. Skólaakstur, sé leiðin löng UNDIR BREÐANS FJÖLLUM Kvæðasafn Þorsteins Jóhannssonar, bónda og skólastjóra að Svínafelli í Öræfum, er komið út. Þorsteinn unni tungu, sögu, landi og þjóð og orti bæði alvarleg ljóð og gamansöm sem mikill fengur er að. UNDIR BREÐANS FJÖLLUM snertir taug í hverjum einasta ljóðaunnanda. holar@holabok.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.