Morgunblaðið - 06.11.2010, Page 6
FRÉTTASKÝRING
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Um 89 milljarðar króna eru inni á inn-
lánsreikningum í bönkunum sem bera
neikvæða raunvexti, en dæmi eru um
að vextir á slíkum reikningum séu
0,1%. Bankarnir bjóða hins vegar upp
á óverðtryggða reikninga með já-
kvæðri raunávöxtun ef fólk er tilbúið
til að binda féð í nokkra mánuði.
Það er ekki nýtt á Íslandi að inn-
lánsreikningar beri neikvæða raun-
vexti. Það sem hefur breyst á síðustu
misserum er að almennir vextir hafa
lækkað mikið og möguleikar fólks til
að ávaxta peninga sína hafa þrengst.
Fá 100 kr. í vexti af 100 þúsund
krónum í 3,3% verðbólgu
Þegar vextir eru komnir niður í
0,1% þýðir það að ef 100 þúsund krón-
ur eru geymdar inn á reikningi í heilt
ár eru vextirnir 100 krónur. 3,3%
verðbólga þýðir hins vegar að vext-
irnir þyrftu að skila 3.300 krónum til
að þeir héldu verðgildi sínu. Það er
því augljóst að bankarnir hagnast
verulega á því að ávaxta peninga á
reikningum sem greiða svo lága vexti.
Seðlabankinn tekur ekki saman
hversu miklir peningar eru inni á
reikningum með þessa allra lægstu
vexti, en 10. september sl. voru tæp-
lega 89 milljarðar inni á svokölluðum
veltireikningum. Raunvextir á þess-
um reikningum eru í öllum tilvikum
neikvæðir ef miðað er við 3,3% verð-
bólgu.
Vaxtamunurinn er líka mikill. Sem
dæmi má taka gullreikning Arion
banka. Lægstu innlánsvextir eru
0,3%, en ef viðkomandi nýtir sér
heimild til yfirdráttar greiðir hann
10,85% vexti til bankans. Íslands-
banki býður upp á tékkareikning sem
heitir Vild og hann ber 0,1% vexti, en
yfirdráttur á honum ber 12,5% vexti.
Lægstu vextir á Vörðu-reikningi
Landsbankans eru 0,95% vextir en
lægstu yfirdráttarvextir á þeim
reikningi eru 10,45% vextir.
Ólafur Frímann Gunnarsson, hjá
Arion banka, sagði að Arion banki
byði fólki meðal annars fasta vexti ef
það vildi binda upphæðir inni á spari-
reikningi í 3, 6, 9 eða 12 mánuði. Þess-
ir vextir breyttust ekki þó verðbólgan
breyttist og þó vaxtastig breyttist.
Fólk þyrfti hins vegar alltaf að meta
hvort það væri tilbúið til að binda pen-
ingana í langan tíma.
Seðlabankinn spáir 2,5% verðbólgu
á næstu misserum. Ólafur Haralds-
son, framkvæmdastjóri viðskipta-
bankasviðs MP banka, segir að MP-
banki sé með reikninga sem bjóði
hærri vexti en þetta. Fólk sé almennt
ekki að geyma sparnað inni á tékk-
areikningum. Fólk millifæri sparnað
yfir á reikninga sem gefi allt að 5%
ávöxtun. Hann segir að vaxtakjörin
fari eftir binditíma og þeim upphæð-
um sem fólk sé með inni á reikning-
unum. MP banki sé t.d. með reikning
sem gefi 4,15% þó að hann sé aðeins
bundinn í einn mánuð og 5,25% ef
hann er bundinn í 18 mánuði. „Þetta
eru mjög vinsælir reikningar. Fólk
fær um 5% ávöxtun þó að upphæðin
sé ekki bundin nema í sex mánuði.
Það er klárlega kostur að binda fé.“
Milljarðar á reikningum sem
bera neikvæða raunvexti
Morgunblaðið/G.Rúnar
Krónur Stór hluti af þeim innlánum sem bankarnir taka við skilar neikvæðri raunávöxtun.
Innlán bankanna hafa minnkað um 100 milljarða frá því í ársbyrjun 2009
Vextir og fjárhæðir á innlánsreikningum bankanna
Almennar sparisjóðsbækur 0,1-1,55% 0,1-3,4% 0,15-2,35% 0,25-2,95% 3,45-4,75% 88,9
Óverðtryggðir reikningar 0,1-4,55% 0,25-4,50% 0,9-4,92% 2,35-5,25% 3,45-5,35% 220,3
Verðtryggðir sparireikningar 2,9-3,55% 2,9-3,55% 2,89-3,2% 2,9-3,6% 3,15% 133,5
Innlán í
milljörðum*S-24MP-bankiArionÍslandsbankiLandsbanki
*Heimild: Seðlabanki Íslands
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2010
Vinnuhópar á
annað hundrað
sérfræðinga í heil-
brigðiskerfinu
sem falið var að
leita leiða til
sparnaðar voru
leystir upp og
heilbrigðisstarfs-
fólki lofað að ekki
kæmi til niður-
skurðar.
Þetta kemur fram fram í bréfi Guð-
laugs Þórs Þórðarsson, þingmanns
og fv. heilbrigðisráðherra og Ragn-
heiðar Ríkharðsdóttur þingmanns til
Þuríðar Backman, formanns heil-
brigðisnefndar, þar sem skorað er á
nefndina að leggja alla sína krafta í
vinnu að fjarlagafrumvarpinu.
Guðlaugur Þór gagnrýnir eftir-
menn sína, Ögmund Jónasson og Álf-
heiði Ingadóttur, harðlega.
Slælegur undirbúningur
„Eins og ég sagði í þinginu er ekki
hægt að gagnrýna stjórnvöld fyrir
slælegan undirbúning vegna þess að
það hefur ekki verið neinn undirbún-
ingur. Raunveruleikinn er sá að frá
því að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar fór frá völdum hefur
ekkert verið gert til að undirbúa okk-
ur undir hið óhjákvæmilega.
Þetta er alvara málsins. Við erum
með fjárlög sem ganga ekki upp.
Við erum að upplifa flótta sérfræð-
inga til annarra landa. Ef við vöndum
okkur ekki sérstaklega erum við að
horfa fram á gríðarlegan skaða fyrir
íslenska heilbrigðiskerfið. Það gerði
það að verkum að allur undirbún-
ingur fyrir sparnað í heilbrigðiskerf-
inu var settur til hliðar. Það er eins og
ráðherrarnir, Ögmundur og Álfheið-
ur, hafi haldið að þetta myndi leysast
af sjálfu sér.“ baldur@mbl.is
Dýrkeypt
undirbún-
ingsleysi
Guðlaugur Þór
Þórðarson
VG leysti upp hópa
um sparnaðarleiðir
Ellefu þúsundum fleiri bílar fóru
um Hvalfjarðargöng í október en í
sama mánuði í fyrra, sem er hátt í
8% aukning. Umferð á hringveg-
inum jókst á sama tíma um 3,3%.
Engin nærtæk skýring er á því að
umferð jókst svo mjög í göngunum,
nema þá sú að vel viðraði á lands-
menn og þeir voru meira á ferðinni
en í fyrra, segir á vef Spalar.
Um 11 þúsundum
fleiri bílar um göngin
Fyrst eftir hrun hækkuðu upp-
hæðir inni á innlánsreikningum
mjög mikið. Í lok september 2008
námu innlán bankanna 660 millj-
örðum króna, en um áramótin var
þessi upphæð komin í 764 millj-
arða. Innlán höfðu aukist um 104
milljarða á þremur mánuðum.
Ástæðan fyrir þessu er að fólk var
að flýja með peningana úr áhættu-
samri ávöxtun í öruggari. Á þessu
og síðasta ári hafa innlán bank-
anna lækkað nokkuð stöðugt. Þau
námu 669 milljörðum um miðjan
september og hafa því lækkað um
100 milljarða frá ársbyrjun 2009.
Ólafur Frímann Gunnarsson hjá
Arion banka sagði ýmsar ástæður
geta verið fyrir því að innlán í
bönkunum minnkuðu. Í þessu um-
hverfi þegar tekjur fólks væru að
minnka neyddist sumt fólk til að
ganga á sparnað sinn. Einhverjir
væru að borga niður skuldir og
síðan væri hópur fólks að leita að
öðrum ávöxtunartækifærum.
Innlán lækkuðu um 100 milljarða
FLEIRI LÖGÐU PENINGA Í BANKA EFTIR HRUN
þessum könnunum. Mamma Mia!,
laugardagsmyndin skoraði jafn-
framt hátt, eða 32,8% og hafnaði í
þriðja sæti. Í öðru sæti var svo
landsleikur í handbolta. Athygli vek-
ur að Hringekjan, þáttur sem er á
kjörtíma á laugardögum kemst ekki
inn á topp tíu. Hins vegar fylgdust
30% með áramótaskaupi Sjón-
varpsins frá 1968 á sunnudeginum.
Landinn kemur þá sterkur inn
með 32% áhorf og hinn fúllyndi Doc
Martin slagar upp í nokkurs konar
Derrick-vinsældir með 27,9% áhorf
á fimmtudögum. Maður fólksins þar
á ferð.
Ólíkt Sjónvarpinu koma Stöð 2 og
Skjár einn betur út prósentulega
þegar rýnt er í aldursbilið 12 - 49
ára.
Fréttir Stöðvar 2 ná 25,8% áhorfi,
og Ísland í dag 18,6%. Spaugstofan,
sem var vön að hafa meira en helm-
ing þjóðarinnar á bak við sig þarf
hins vegar að sætta sig við 14,1% og
Logi í beinni er litlu neðar, með
12,5%.
Á Skjá einum er það Law & Order
sem toppar listann, en þó ekki með
nema 12,5% áhorf. Erlendir þættir
fylla svo nánast topp tíu en Nýtt útlit
og Hæ Gosi merja listann með 8%
áhorf hvor. Leitt að meistari Bernd-
sen fær ekki fleiri augu en þetta.
Hvað horfir fólk á?
Spaugstofan Mun minna áhorf.
Tæpur þriðjungur þjóðarinnar horfði á Áramótaskaup
Sjónvarpsins frá 1968 en „vinsælt“ efni náði ekki athygli
BAKSVIÐ
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Það er athyglisvert að skima í gegn-
um fjölmiðlamælingar Capacent og
sjá þar svart á hvítu, eða jafn vís-
indalega og hægt er, hvað fólk er
raunverulega að horfa á þennan vet-
urinn. Sjónvarpið, Stöð 2 og Skjár-
einn kynntu sínar haustdagskrár
með pomp og prakt eins og tíðkast
en þáttunum hefur farnast misjafn-
lega eins og gengur.
Hringekjan ekki á topp tíu
Í úrtakinu vikuna 25. - 31. október
voru tæplega 500 manns. Áhorfend-
ur Sjónvarpsins, á aldursbilinu 12 -
80 ára voru langflestir að fylgjast
með Útsvari, eða tæp 40% en sá
þáttur hefur komið mjög vel út úr
Köp Barnvagn is the biggest pramstore, in Sweden
and Norway, on the Internet. We have also a real
physic shop in Karlstad, Sweden. We are now
searching for a person in Iceland with a company who
we can sell business to business strollers and baby
related things through. We see that you already have a
store in Reykjavik, and have space, time and interest
in selling our products. We have exclusive right for
Iceland of some of Europe biggest stroller trademarks
that we know by fact is suitable for Iceland. We have
good shipping costs agreement to Iceland. We will
start in the end of this year. If you think you are the
right person / persons for this the potential income, it
would be good - contact us via email
(last date for applying is 15th of november)
kontor@kopbarnvagn.se or telephone 004654525310
ask for Nils - Tomas
www.kopbarnvagn.se