Morgunblaðið - 06.11.2010, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 06.11.2010, Qupperneq 12
ÚR BÆJARLÍFINU Sigurður Sigmundsson Hrunamannahreppi Vetur konungur fer mildum hönd- um um okkur íbúa uppsveita Árnes- sýslu enn sem komið er. Ekki hefur einu sinni komið haustkálfur líkt og undanfarin ár. Allir vona að veturinn sýni ekki hramma sína eins og gerst hefur í öðrum landshlutum. Í haust hefur viðrað vel til uppskerustarfa sem er jú afar mikilvægt fyrir af- komu þess fólks sem á svo mikið undir sól og regni. Uppskera á hvers konar jarð- argróðri hefur verið afbragðs góð og segja til dæmis garðyrkjubændur að gulrætur hafi aldrei verið stærri og einnig meðalvigt hvítkálshausa sem eru óvenju vel uppvafðir og þéttir. Markaður fyrir matjurtir hefur ver- ið góður að sögn garðyrkjubænda.    Safnahelgi verður hér á Suður- landi um þessa helgi og eru söfn opin hér í uppsveitunum sem annars staðar. Margt er að sjá og safnverðir tilbúnir að miðla fróðleik sínum til gesta. Hægt er að fræðast nánar á sveitir.is um þetta.    Hrunamenn eru að endurbyggja réttir og er unnið í sjálfboðavinnu við gerð þerra. Sauðfjárrækt- arfélagið hefur umsjón með verkinu. Þar ríkir gamli ungmennafélagsand- inn sem mætti sjást víðar. Almenn- ingurinn sem er hringlaga er gerður úr stuðlabergi frá Hrepphólum. Kannski vita ekki allir hvert hlut- verk rétta er en í þeim er sauðfé sem kemur af afréttum dregið í sundur. Reyndar er það svo með sauð- fjárbúgreinina að nánast enginn í Árnessýslu lifir eingöngu á henni. En sauðkindin á mikinn sess í hug og hjarta bændafólks líkt og hjá Bjarti í Sumarhúsum.    Senn líður að því að hótel og veitingahús fari að bjóða upp á sitt árlega jólahlaðborð og er þá gjarnan boðin gisting á tilboðsverði. Er þá ekki upplagt fyrir íbúa við sunn- anverðan Faxaflóa að aka nýja veg- inn yfir Lyngdalsheiði og kíkja á Hvítárbrúna hjá Bræðratungu sem áformað er að opna í lok mánaðar- ins? Hvorttveggja glæsileg mann- virki.    Samdráttur hefur orðið í bygg- ingarframkvæmdum, einkum þó á milli áranna 2008 og 2009. Mest hef- ur dregið úr byggingu nýrra húsa, 81%. Byggingarsamþykktir það sem af er ársins 2010 eru 250, sem er svipað og allt árið í fyrra. Byggingar sumarhúsa eru þar í miklum meiri- hluta. Með í þessum tölum eru einn- ig framkvæmdir í Flóahreppi. Morgunblaðið/ Sigurður Sigmundsson Réttarbygging Páll Jóhannsson, bóndi á Núpstúni, er einn sjálfboðaliðanna. Réttabygging í sjálfboðavinnu 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2010 Andri Karl andri@mbl.is Sú hugmynd að foreldrar geti komið í veg fyrir neikvæðar afleiðingar áfengisneyslu með því að kaupa áfengi fyrir börn sín á ekki við nein rök að styðjast. Þetta segir Kjartan Ólafsson, lektor í félagsfræði við Há- skólann á Akureyri. Þau ungmenni sem keypt er fyrir eru líklegri til að drekka meira og lenda í vandræðum. Kjartan hélt erindi á ráðstefnu um íslenskar æskulýðsrannsóknir í gær- morgun. Fjallaði hann um uppruna áfengis sem unglingar drekka og tengsl við drykkjumynstur þeirra. „Ég skoðaði fyrst og fremst hvort for- eldrar geti komið í veg fyrir að ung- lingarnir drekki heimabrugg, smygl- að áfengi eða álíka, með því að kaupa áfengi fyrir þá sjálfir. Meginniður- staðan er sú, að það virkar ekki þann- ig. Ungmenni sem eiga foreldra sem kaupa fyrir þau áfengi eru einnig lík- legri til að fá áfengi eftir öðrum leið- um,“ segir Kjartan en könnunin beindist að nemendum í tíunda bekk grunnskóla, þ.e. 15-16 ára unglingum. Lenda í vandræðum Af þeim ungmennum sem höfðu einhvern tíma orðið drukkin árið á undan voru 13% sem áttu foreldra sem keypt höfðu fyrir þau áfengi. Langalgengast var hins vegar að ung- lingarnir kæmust yfir áfengi í gegn- um vinskap, t.d. að einhver eldri færi í Vínbúðina fyrir þá. Um þrjátíu pró- sent þeirra sem höfðu orðið ölvuð drukku heimabruggað áfengi. Ekki nóg með að þau ungmenni sem fengið höfðu áfengi hjá foreldr- um sínum drykkju meira heldur voru þau mun líklegri til að lenda í alls kyns vandræðum. „Viðkomandi ung- lingar voru fjór- til fimmfalt líklegri til að lenda á slysadeild vegna drykkj- unnar, tvöfalt líklegri til að lenda í slagsmálum og þrefalt líklegra var að einhverju hefði verið stolið af þeim vegna drykkjunnar. Það eru því allar tegundir vandræða sem ungmennin í hópnum sem foreldrar keyptu áfengi fyrir voru líklegri til að lenda í.“ Áhugavert fyrir foreldra Að mati Kjartans er hugsanlegt að það séu þau skilaboð sem foreldrarnir senda börnunum sínum sem hafi þessi áhrif. „Ekki er hægt að segja að ungmennin drekki meira eða lendi í vandræðum vegna þess að áfengi er keypt fyrir þau. En með því að kaupa fyrir þau áfengi eru foreldrarnir að viðurkenna að það sé hluti af þeirra lífi að drekka áfengi. Það eru mjög sterk skilaboð og leiðir hugsanlega til þess að unglingarnir drekka meira og lendi því frekar í vandræðum.“ Kjartan segir að niðurstöðurnar ættu að vera mjög áhugverðar fyrir foreldra sem velta fyrir sér hvort ekki sé betra að kaupa sjálf áfengi fyrir börn sín en að þau nálgist það eftir öðrum leiðum. „Þeir krakkar eru lík- legri til að ná sér í áfengi eftir öllum öðrum leiðum. Líklegri til að fá ein- hvern til að kaupa fyrir sig og drekka heimabrugg. Það sem foreldrarnir kaupa virðist vera lagt í púkkið.“ Áfengiskaup foreldra viðbót við aðra drykkju Morgunblaðið/Kristinn Drykkja Ungmenni sem fá áfengi hjá foreldrum sínum lenda oftar í vand- ræðum en þeir sem búa við blátt áfengisbann af hálfu sinna foreldra. Æskulýðsrannsóknir » Kjartan studdist við evr- ópsku vímuefnakönnunina sem Ísland hefur verið aðili að frá upphafi, árinu 1995. » Félagsvísindadeild Háskól- ans á Akureyri og Æskulýðsráð í samvinnu við Tómstunda- og félagsmálafræðibraut Mennta- vísindasviðs Háskóla Íslands stóðu að ráðstefnunni í gær- morgun.  Sendir sterk skilaboð að kaupa áfengi fyrir börn sín Embætti ríkislögreglustjóra hefur orðið vart við að netföngum fólks hjá þjónustuaðilum eins og Hotmail, G- mail o.fl. er stolið og síðan er sendur út fjöldapóstur á öll netföng í net- fangaskrá viðkomandi og óskað eftir fjármunum. Netföngum er stolið með þeim hætti að þolandinn fær tölvupóst sem virðist vera frá þjónustuaðilanum þar sem spurt er hvort hann ætli að nota netfangið sitt áfram. Ef svo, er hann beðinn um að staðfesta það með því að senda aðgangsorð og lykilorð til baka. Með þessum upp- lýsingum getur sendandinn yfir- tekið pósthólfið. Síðan er sendur svikapóstur í nafni réttmæts eiganda sem gjarnan gengur út á að sendand- inn sé staddur erlendis, hafi týnt veski sínu með peningum, skilríkjum og greiðslukortum. Hann biður því um að láta senda sér reiðufé gegnum miðlara eins og Western Union. Svikarinn bíð- ur svo eftir reiðufjársendingu Svikahrappar yfirtaka pósthólf og óska eftir fé „Miðað við þá aðferð sem notuð var til að koma hópnum inn í húsið virtist hann ekki kominn í friðsamlegum til- gangi eða að hann væri líklegur til að hlíta reglum. Ekki var hægt að úti- loka að einhverjir í hópnum væru með innanklæða eitthvað sem skað- að gæti alþingismenn eða starfs- menn.“ Svo segir í bréfi skrifstofu- stjóra Alþingis til lögreglu um atvikin 8. desember 2008 sem leiddu til ákæru á hendur níu einstakling- um. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði forseta Alþingis út í málið og með hvaða hætti skrifstofustjóri Alþingis ræddi um 100. gr. almennra hegningarlaga, en m.a. var ákært út frá því ákvæði. Í svari forseta var vísað í bréf skrifstofustjórans þar sem segir: „Nauðsynlegt er að tryggja öryggi þingmanna meðan á þingfundi stendur. Aðgangur að þingpöllum getur því ekki verið með öllu óhindr- aður og án eftirlits. […] Alþingi nýt- ur sérstakrar verndar í XI. kafla al- mennra hegningarlaga, sem fjallar um brot gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum þess. Þar segir í 100. gr. að hver sem ræðst á Alþingi, svo að því eða sjálfræði þess er hætta búin, sem lætur boð út ganga, sem að því lýtur, eða hlýðir slíku boði, skuli sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár, og getur refsing orð- ið ævilangt fangelsi ef sakir eru mjög miklar.“ Ennfremur segir skrifstofustjór- inn að af myndbandsupptökum megi ráða að aðgerðin hafi verið skipulögð fyrirfram. Töldu aðgerðina skipulagða  Skrifstofustjóri Alþingis sagði ekki hægt að útiloka að ein- hverjir nímenninganna hefðu haft vopn innanklæða Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is „Skemmtilegra en nokkur bíóferð.“ Ragnar Þór Pétursson „Mæli með að allir aðdáendur útvarpsþáttanna drífi sig í Borgarleikhúsið.“ Vigfús M. Vigfússon „Þvílík murrandi notalegheit!“ Ólöf Ýrr Atladóttir „Þetta er fáránlega skemmtilegt!“ Katrín Bessadóttir „Orð skulu standa er asskoti skemmtilegt sviðsverk og spyrillinn Karl Th. óneitanlega prýðis söngfugl með sviðsþokka.“ Guðrún Kristjánsdóttir „Þetta er mikil snilldar- formúla þessi þáttur.“ Guðmundur Andri Thorsson „Ótrúlega skemmtilegt!“ Svanhildur Hólm Valsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.