Morgunblaðið - 06.11.2010, Síða 16
FRÉTTASKÝRING
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Þann 15. nóvember má búast við því
að eftirlitsfulltrúar Alþýðusambands
Íslands og Samtaka atvinnulífsins
vappi á milli vinnustaða og grípi glóð-
volga þá starfsmenn sem vinna svart
og hafa ekki fengið útgefin vinnu-
staðaskírteini.
Í maí voru samþykkt á Alþingi lög
um vinnustaðaskírteini og eftirlit á
vinnustöðum til að sporna gegn
svartri vinnu og bótasvikum. Aðilum á
vinnumarkaði var falið að útfæra
þessi lög en SA og ASÍ gerðu sam-
komulag um lögin 15. júní sem tók
gildi 15. ágúst. Þá gáfu ASÍ og SA sér
og fyrirtækjum þriggja mánaða frest
til að gefa út skírteinin og tryggja að
vinnuveitendur uppfylltu skilyrði lag-
anna.
Þá tekur alvaran við
Halldór Grönvold, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri ASÍ, segir tilgang sam-
komulagsins að tryggja það að fólk
njóti þeirra réttinda sem því ber sam-
kvæmt lögum og kjarasamningum.
„Við ákváðum að semja til að byrja
með um það að þetta mundi ná til
byggingariðnaðarins og mannvirkja-
gerðar og veitinga- og gistihúsabrans-
ans. Þetta eru þekktar starfsgreinar
þar sem svört atvinnustarfsemi við-
gengst. Þó að sjálfsögðu þar séu líka
fyrirtæki sem eru með allt í góðu
lagi,“ segir Halldór sem kveður hlut-
verk ASÍ og SA þessa fyrstu þrjá
mánuði, frá 15. ágúst, að kynna fyr-
irtækjum þessi nýju lög og hrinda
þeim í framkvæmd.
„Okkar eftirlitsfulltrúar eru fyrst
og fremst í því hlutverki að kynna fyr-
irtækjum þetta fram til 15. nóvem-
ber,“ segir Halldór. Það er því ekki
búið að góma einn einasta og verður
væntanlega ekki gert fyrr en eftir 15.
nóvember. „Við höfum hins vegar sagt
að frá og með 15. nóvember á þetta að
vera komið í lag og fyrirtækin eiga þá
að hafa fengið þann aðlögunartíma
sem til þarf. Frá og með þeim tíma
tekur alvaran við í þessum efnum.“
Fyrirtækin taka þátt í eftirliti
Samtök atvinnulífsins tilkynntu í
vikunni að þau hefðu ráðið til sín tvo
eftirlitsfulltrúa til að bæta í hóp þeirra
sem stéttarfélög hafa tilnefnt.
Ragnar Árnason, forstöðumaður
vinnumarkaðssviðs SA, segir hug-
myndafræðina vera að láta bæði
skattyfirvöldum og Vinnumálastofn-
un upplýsingar um vinnustaðaskír-
teini í té til að samkeyra megi þær við
skrár stjórnvalda. Þannig verði komið
í veg fyrir bótasvik og spornað gegn
svartri vinnu. „Við höfum heyrt að
þessi svarta atvinnustarfsemi hafi far-
ið töluvert vaxandi og skekki þannig
samkeppnisstöðu á markaði.
Þetta er okkar framlag til
þess að reyna að gera vinnu-
markaðinn heilbrigðari,“
segir Ragnar sem segir bæði bótasvik
og svarta vinnu algeng.
„Það getur verið hvort tveggja. Það
kemur almennt upp í samkeyrslu
VMS og skattsins ef menn eru á
launaskrá hjá fyrirtækjum og jafn-
framt á atvinnuleysisbótum. Menn
virðast hins vegar gæta þess að leita
að svartri vinnu ef þeir eru á atvinnu-
leysisbótum.“
Ýmsar aðrar greinar
Ragnar segir þó svarta atvinnu-
starfsemi ekki einskorðast við mann-
virkjagerð. „Það hafa ýmsar aðrar
greinar verið nefndar sem menn eru
að greiða svart. Ég held að flestir
þekki það nú sem hafa einhverntím-
ann keypt þjónustu að á mörgum
stöðum er hægt að greiða án nótu.“
Ragnar kveður þriggja mánaða
undirbúningsferlið hafa viss forvar-
naáhrif á atvinnurekendur. „Þetta
hefur ákveðin fælniáhrif. Við höfum
samt líka bent á að stjórnvöld mega
ekki búa til kerfi þar sem fólk neyðist
til að vera í svartri atvinnustarfsemi.
Þetta er eins og sumir segja. Maður
verður að viðurkenna rétt fólks til að
bjarga sér en aðrir segja að ekki megi
samþykkja slíkt. Menn verði að fylgja
lögunum þó þeir svelti.“
Bótasvikarar gripnir glóðvolgir
Morgunblaðið/Ómar
Eftirlit Eftirlitsmenn fara á stjá 15. nóvember og kanna hvort fólk sem starfar við mannvirkjagerð eða í veitinga-
eða gistihúsaiðnaði hafi gild vinnustaðaskírteini. Þannig verður tryggt að ekki verði svikið undan skatti eða bótum.
Eftirlit með vinnustaðaskírteinum hefst 15. nóvember Stéttarfélög, Alþýðusamband Íslands og
Samtök atvinnulífsins annast framkvæmdina Lagt fyrir Vinnumálastofnun ef upp kemst um svik
Lög um skírteinin
» Í maí voru samþykkt lög um
eftirlit á vinnustöðum og
vinnustaðaskírteini.
» Aðilum á vinnumarkaði var
falið að útfæra þessi lög.
» 15. júní gerðu Samtök at-
vinnulífsins og Alþýðu-
samband Íslands samkomulag
um lögin.
» Samkomulagið tók gildi 15.
ágúst en þá var atvinnurek-
endum gefinn þriggja mánaða
frestu til að uppfylla skilyrði
laganna.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2010
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir Vinnumálastofnun
koma að lögunum á þann hátt að standi eftirlitsmenn Alþýðusambands
Íslands og Samtaka atvinnulífsins fyrirtæki að verki við að
greiða starfsfólki sínu laun svart eða hafa starfsmenn á
launaskrá sem einnig þiggja atvinnuleysisbætur verði
það lagt fyrir Vinnumálastofnun. Þar verði ákveðið
hvers konar refsingu eða aðgerðum eigi að beita.
„Ef eftirlitsmenn koma að fyrirtæki þar sem menn
hafa gert þetta þá er hægt að vísa málinu áfram til
Vinnumálastofnunar. Þá fyrst komum við inn sem
stjórnvald til að beita hugsanlegum dagsektum.
Það hafa engin slík mál komið inn hingað til,
núna er verið að innleiða þetta og hrinda
þessu í framkvæmd,“ segir Gissur
Pétursson.
Beita dagsektum
VINNUMÁLASTOFNUN
Gissur
Pétursson
Þingmenn úr Vinstri grænum, Sam-
fylkingunni og Hreyfingunni vilja að
sett verði á fót nefnd sem falið verði
það hlutverk að rannsaka aðdrag-
anda ákvörðunar um stuðning Ís-
lands við innrásina í Írak árið 2003.
Jafnframt verði skjöl og upplýsingar
um málið dregin fram í dagsljósið.
Þingmennirnir, sem alls eru 29
talsins, lögðu fram þingsályktun-
artillögu þessa efnis í gær. Verði
hún samþykkt mun Alþingi kjósa sér
fimm manna rannsóknarnefnd „til
þess að rannsaka aðdraganda og
ástæður þess að þáverandi rík-
isstjórn Íslands ákvað að lýsa yfir
stuðningi við innrás Bandaríkjanna
og Bretlands í Írak 20. mars 2003 án
nokkurs samráðs við Alþingi.“
Nefndin á að fá í hendur öll þau
gögn sem til eru sem gætu varpað
ljósi á ákvörðunina, svo sem fund-
argerðir og minnisblöð. Henni verð-
ur gert að skila Alþingi skýrslu í síð-
asta lagi þann 1. júní 2011.
Rannsaki
stríðs-
stuðning
Morgunblaðið/Kristinn