Morgunblaðið - 06.11.2010, Page 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2010
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Þótt byggingu dómkirkjunnar í
Barcelona, Sagrada Familia, sé ekki
enn lokið hyggst Benedikt XVI páfi
helga hana á morgun, 128 árum eftir
að hafist var handa við að reisa hana.
Arkitektar, sem annast verk-
efnið, vona að hægt verði að ljúka
byggingu kirkjunnar eftir um það bil
fimmtán ár. Kirkjan er meistara-
verk arkitektsins Antonis Gaudis,
glæsilegasta og þekktasta ófullgerða
kirkja í heiminum og orðin að tákni
Barcelonaborgar.
Miklu verki er enn ólokið. Með-
al annars á að reisa tíu turna til við-
bótar, meðal annars 170 metra háan
aðalturn með krossi, nýja framhlið
og skrúðhús.
Lokið var við aðalkirkjuskipið
fyrr á árinu og eftir að páfi hefur
helgað það á morgun verður hægt að
halda þar daglegar messur í fyrsta
skipti frá því að hornsteinn var lagð-
ur að kirkjunni 19. mars 1882. Mess-
ur hafa verið haldnar í neðanjarðar-
hvelfingu kirkjunnar þar sem bein
Gaudis hvíla.
Í aðalkirkjuskipinu er m.a. 7,5
tonna þungt steinaltari og orgel með
1.492 pípur. Leikið verður á orgelið
við athöfnina á morgun og þrír kórar
með alls 800 söngvara eiga að syngja
fyrir páfa og um 6.500 gesti.
Þegar hafa verið reistir átta
mósaíkskreyttir turnar á tveimur
hliðum. Önnur þeirra er helguð fæð-
ingu Jesú og hin píslarsögunni.
Arkitektar vona að hægt verði að
ljúka við nýja framhlið kirkjunnar,
Dýrðarhliðina, fyrir hundrað ára ár-
tíð Gaudis sem lést í sporvagnaslysi
10. júní 1926. Það ræðst þó að miklu
leyti af fjármögnuninni sem byggist
eingöngu á frjálsum framlögum og
tekjum af ferðafólki.
Á vef verkefnisins, www.sag-
radafamilia.cat, segir að við fram-
kvæmdirnar sé stuðst við upphaf-
legar teikningar Gaudis. Ekki eru þó
allir á sama máli. „Ég tel að verk
Gaudis sé það sem laðar ferðamenn-
ina að kirkjunni,“ segir Ramon
Garcia-Bragado, aðstoðarborgar-
stjóri Barcelona. „Og það sem þeir
eru að gera núna er ekki verk
Gaudis, heldur þeirra sem koma á
eftir honum. Arkitektar verkefnisins
túlka verk Gaudis. Mjög umdeilt er
hvort það sé rétt að halda byggingu
kirkjunnar áfram.“
Estudio R. Carrera fyrir
Ein
turnspíranna
Klukkuturnarnir
eru með 25 m
háar turnspírur
skreyttar
marglitri mósaík
Gaudi sá fyrir sér mjög stóra
kirkju, með grunnlögun eins og
rómverskur kross og háa turna,
með djúpa táknræna og
trúarlega skírskotun
Gaudi teiknaði m.a. átján
klukkuturna sem tákna
Krist, Maríu mey,
guðspjallamennina fjóra
og lærisveinana tólf
Teikningar Gaudis af kirkjunni
byggðust á rúmfræðilegum
formum eins og gleiðfleti,
fleygfleti, skrúffleti, keilu- og
sporbaugsfleti
Hvernig sem tölurnar í
röðunum eru lagðar saman -
lóðrétt, lárétt eða á ská - er
summan alltaf 33, sem var
aldur Krists þegar hann dó
Turnar helgaðir guðspjalla-
mönnunum
KIRKJA GAUDIS Í BARCELONA
Benedikt páfi hyggst helga dómkirkjuna Sagrada Familia í Barcelona á sunnudag og votta hönnuði hennar,
Antoni Gaudi, virðingu sína. Um 6.500 gestir verða við athöfnina, þeirra á meðal hundruð presta og biskupa.
Heimild: www.sagradafamilia.cat
Súlnagöng
í jaðrinum tengja
klukkuturna kirkjunnar
Skrúðhús
(norður)
Bogalaga
hvelfdur turn
helgaður
Maríu mey
HELGIDÓMURINN
SAGAN
ARKITEKTÚR
Píslarsöguhliðin
(vestur)
Antoni Gaudi (1852-1926)
19. mars 1882 Bygging
kirkjunnar hefst eftir
teikningu arkitektsins
Francisco de Paula del
Villary Lozano í
nýgotneskum stíl
Lok ársins 1883 Gaudi
falið að halda verkinu áfram
og hann vann að því til
dauðadags árið1926
Júlí 1936 Kveikt í
neðanjarðarhvelfingu
kirkjunnar þegar
borgarastyrjöldin á Spáni
geisaði, smiðja kirkjunnar
eyðilagðist og frumdrögin,
vinnuteikningar og líkön
glötuðust
Bygging kirkjunnar er
fjármögnuð með frjálsum
framlögum og vonast er til
að hægt verði að ljúka
henni ekki síðar en árið
2026 eða á 100 ára ártíð
Gaudis
Aðalkirkjuskipið
hægt verður að
opna þak þess
Teikning listamanns
Hvelfd
hálfhringlaga,
með sjö kapellur
og altari í miðjunni
Hlið helguð fæðingu
Krists (austur)
það er fyrsta hliðin og var
reist undir stjórn Gaudis
Dýrðarhliðin
(suður)
ný framhlið
kirkjunnar, verður
reist síðast
Hvolfturn
verður 170 metra
hár og helgaður
Jesú
Benedikt páfi helgar
dómkirkjuna í Barcelona
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Að minnsta kosti 77 manns biðu
bana í Indónesíu í gær af völdum
mesta eldgoss í Merapi-fjalli á Jövu í
rúma öld. Þúsundir íbúa bæja í
grennd við eldfjallið forðuðu sér í
dauðans ofboði og glundroði var á
vegunum vegna mikils öskufalls.
Nær 167.000 manns hafa flúið
heimkynni sín vegna eldgossins sem
hefur kostað alls 120 manns lífið frá
því að það hófst fyrir tæpum tveimur
vikum.
Á meðal þeirra sem létu lífið í
gær eru mörg börn í þorpinu Ar-
gomulyo, um 18 kílómetra frá gígn-
um. Að minnsta kosti 156 manns
voru fluttir á sjúkrahús í gær, flestir
þeirra vegna brunasára.
Mesta gos frá 1872
Aska féll á stóru svæði í grennd
við eldfjallið, meðal annars í héraðs-
höfuðstaðnum Yogyakarta, um 28
kílómetra sunnan við fjallið. Alþjóða-
flugvellinum í Yogyakarta var lokað
og flugi milli Jövu og Singapúr og
Malasíu hefur verið aflýst.
Merapi er nálægt mjög þéttbýlu
svæði á Jövu, sem er fjölmennasta
eyja heims, með 136 milljónir íbúa.
Um 1.300 manns biðu bana af
völdum eldgoss í Merapi árið 1930.
Eldfjallafræðingar segja að þótt gos-
ið nú sé ekki jafnmannskætt sé það
öflugra en árið 1930 og mesta eldgos
í Merapi frá 1872.
Daginn áður en eldgosið hófst,
eða 25. október, fórust að minnsta
kosti 428 manns af völdum flóð-
bylgju eftir jarðskjálfta á afskekktri
eyju nálægt Súmötru í Indónesíu. 74
til viðbótar er saknað eftir náttúru-
hamfarirnar og 15.000 manns misstu
heimili sitt.
Eldgos hefur
orðið alls 120
manns að bana
Nær 167.000 hafa flúið heimkynni sín
Reuters
Öskufall Kona í öskugráum flótta-
mannabúðum á Jövu.
Danska sjónvarpsstöðin TV2 hélt því
fram í gær að bandaríska sendiráðið
í Kaupmannahöfn hefði stundað
leynilegt eftirlit í borginni. Sams
konar ásakanir voru birtar í norsk-
um fjölmiðlum í fyrradag.
TV2 segir að sveit manna, að
minnsta kosti 14 menn, hafi fengið
það hlutverk að hafa
sólarhringseftirlit í hverfi við sendi-
ráðið. Þetta hefur TV2 eftir fyrrver-
andi starfsmanni sem kveðst hafa
tekið þátt í eftirlitinu.
TV2 segir að
eftirlitssveitin
hafi fylgst með
dönskum ríkis-
borgurum. Nöfn
þeirra og aðrar
persónuupplýs-
ingar hafi verið
skráðar í sérstak-
an tölvugagna-
grunn sem kallast
Security Incident Management Ana-
lysis System (SIMAS). Einnig var
„grunsamlegum“ einstaklingum
veitt eftirför í grennd við sendiráðið,
að sögn heimildarmanna TV2.
Fréttastofan AFP segir að óljóst
sé hvort dönsk stjórnvöld hafi vitað
af þessu eftirliti. Án leyfis sé þessi
starfsemi ólögleg.
Dómsmálaráðuneyti Danmerkur
hefur ekki viljað svara því hvort
fréttin sé rétt. Það segir þó að dóms-
málaráðherrann Lars Barfoed hafi
verið boðaður á lokaðan þingfund til
að ræða málið innan tveggja vikna.
Sakað um njósnir í Danmörku
Lars Barfoed
Bandaríska sendiráðið sagt hafa stundað leynilegt eftirlit
í Kaupmannahöfn Án leyfis er slíkt eftirlit ólöglegt
M.MBL.IS FÆRIR ÞÉR
ERLENDAR FRÉTTIR
Á FERÐINNI
Erlent
- V I L T U V I T A M E I R A ?
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/M
O
R
51
87
2
11
/1
0