Morgunblaðið - 06.11.2010, Page 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2010
✝ Friðjón Gunn-laugsson fæddist
að Hraunfelli í
Vopnafirði 24. desem-
ber árið 1927. Hann
varð bráðkvaddur 25.
október 2010.
Foreldrar hans
voru hjónin Gunn-
laugur Jónsson frá
Hraunfelli í Vopna-
firði, d. 1983, og
Björg Jónsdóttir frá
Hrauntanga í Ax-
arfjarðarheiði, d.
1964. Friðjón bjó
fyrsta aldursárið sitt á Hraunfelli
en flutti svo með foreldrum sínum í
Fell í sömu sveit. Hann var næst-
elstur sjö systkina en elst var Hall-
dóra Sigurlaug, d. 1998, Gunnþór-
unn, d. 2008, Einar, d. 1980, Níels,
Bergþóra og Helga.
Hinn 10. ágúst 1957 kvæntist
eiga þau 3 börn en fyrir á hann
eina stúlku, 4) Friðjón, f. 1958,
ókvæntur og á hann 2 börn, 5) Ein-
ar, f. 1961, sambýliskona Ágústa
Ingimarsdóttir og eiga þau 1 barn
en fyrir á hann eina stúlku. Barna-
börnin og barnabarnabörnin eru 32
talsins.
Friðjón var bóndi á Deildarfelli
stærstan hluta ævi sinnar og var
búmaður góður, natinn við skepnur
og glöggur fjármaður. Hann var
handlaginn og stundaði hvers kyns
smíðavinnu og múrverk meðfram
búskap. Árið 1982 brugðu þau Júlía
búi og fluttu út í þorpið á Tanga.
Þar vann Friðjón við múrverk og
Júlía á elliheimilinu Sundabúð.
Haustið 2001 fluttu þau hjón á
Seyðisfjörð. Þar nutu Seyðfirð-
ingar lagni Friðjóns við að gera
upp gömul og úr sér gengin hús-
gögn, auk þess sem hann stundaði
múrvinnu.
Útför Friðjóns verður gerð frá
Seyðisfjarðarkirkju í dag, 6. nóv-
ember 2010, og hefst athöfnin kl.
14.
Friðjón eftirlifandi
eiginkonu sinni Stein-
unni Júlíu Friðbjörns-
dóttur, f. 23. október
1928. Byggðu þau
Deildarfell í Vopna-
firði og fluttu þangað
árið 1956. Þau eign-
uðust 5 börn en fyrir
á Steinunn Júlía eina
stúlku, Ingibjörgu
Valdísi Harðardóttur,
f. 1949, eiginmaður
Valgeir Gunnar
Hjartarson og eiga
þau 3 börn.
Börn Friðjóns og Steinunnar Júl-
íu eru; 1) Gunnar Kristján, f. 1954,
sambýliskona Kristín Giss-
urardóttir og eiga þau 2 börn, 2)
Björg, f. 1955, eiginmaður Stefán
Ragnar Ólafsson og eiga þau 4
börn, 3) Gunnlaugur, f. 1956, eig-
inkona Bjarnheiður Jónsdóttir og
Elsku besti afi.
Nú hefur það því miður gerst
að vond frétt til manns berst
Kær vinur er horfinn okkur frá
því lífsklukkan hans hætti að slá
Rita vil ég niður hvað hann var mér kær
afi minn góði sem guð nú fær
Hann gerði svo mikið, hann gerði svo
margt
og því miður get ég ekki nefnt það allt
Að tala við hann var svo gaman
á þeim stundum sem við eyddum saman
Hann var svo góður, hann var svo klár
æ, hvað þessi söknuður er svo sár
En eitt er þó víst
og það á við mig ekki síst
að ég sakna hans svo mikið, ég sakna
hans svo sárt
hann var mér góður afi, það er klárt
En alltaf í huga mínum verður hann
afi minn góði sem ég ann
í himnaríki fer hann nú
þar verður hann glaður, það er mín trú
Því þar getur hann vakið yfir okkur dag
og nótt
svo við getum sofið vært og rótt
hann mun ávalt okkur vernda
vináttu og hlýju mun hann okkur senda
Elsku afi, guð mun þig geyma
yfir okkur muntu sveima
en eitt vil ég þó að þú vitir nú
minn allra besti afi, það varst þú.
(Katrín Ruth)
Elsku afi okkar, við elskum þig
óendanlega mikið, sofðu rótt.
Guð geymi þig.
Harpa Lind.
Hann elskulegi afi minn er látinn.
Þegar ég frétti þetta, að hann afi
minn hefði dáið, þá vildi ég ekki trúa
þessu fyrst, mér finnst þetta alltof
vondar fréttir og ég vildi ekki trúa
þessu en síðan áttaði ég mig betur á
þessu og byrjaði að tárast og á end-
anum grét ég í fanginu á pabba mín-
um.
Um nóttina þetta kvöld hugsaði ég
mikið um hann afa eða Friðjón afa
eins og hann er kallaður, ég hugsaði
út í allar minningarnar sem ég átti
með honum. Oft þegar ég fór að
heimsækja Friðjón afa þá spilaði ég
við hann á hverju kvöldi.
Ég veit það að ég mun sárt sakna
hans eins og allir aðrir en allar þess-
ar minningar sem ég á með honum
munu geymast um aldur og eilífð.
Daginn sem ég kom og heimsótti
hana ömmu mína fannst mér skrítið
að Friðjón afi hefði ekki verið þarna,
mér fannst skrýtið að knúsa bara
hana ömmu mína en ekki afa minn.
Það var svolítið langt síðan ég sá
hann, svo var mér allt í einu tilkynnt
þetta, þá leið mér svo illa því auðvit-
að hefur mig langað að hitta afa áður
en hann dæi. Ég mun jafna mig með
tímanum en ég mun aldrei gleyma
honum.
Mér fannst Friðjón afi mjög góður
afi, hann var alltaf svo góður.
Hann afi minn var smiður og í
gamla húsinu hans var hann oft að
smíða úti í bílskúr, ég fór út til hans
einn daginn og mig langaði að prófa
að saga og negla, afi hjálpaði mér við
það og síðan vildi ég bara horfa á
hann smíða og ég sá hvað afi minn
var duglegur og mikill snillingur, ég
sagði það við hann og hann hló bara.
Það eru margar minningar um afa
sem ég mun geyma og aldrei
gleyma.
Því ég veit að afi minn var algjör
snillingur og mun alltaf verða það.
Ég elska þig, besti afi minn, og ég
mun alltaf elska þig.
Þín
Helga Valdís.
Það er með þungum huga og sökn-
uði sem ég kveð afa í dag. Friðjón
afi, eins og ég kallaði hann alltaf, var
lánsamur að fá heilsugóða ævi. Hann
var alltaf brosandi og að kvöldi 25.
okt. var hann að mæta á spilavist
þegar hann varð bráðkvaddur, ég sé
hann fyrir mér veifandi til spila-
félaganna og heilsa með bros á vör
þegar hann kvaddi þennan heim svo
skyndilega. Ég veit að elsku Júlla
amma á nú um sárt að binda, það er
erfitt að kveðja lífsförunaut sinn eft-
ir svo langa samfylgd. Guð gefi þér
styrk á þessari stundu, elsku amma
mín.
Afi var yndislega blíður og mikil
barnagæla, hann hafði alltaf tíma
fyrir okkur og öll barnabörnin þegar
við komum í heimsókn til hans og
ömmu hvort sem það var á Deild-
arfell í Vopnafirði eða á Seyðisfirði,
alltaf var maður velkominn og vel
tekið á móti manni og sat afi oft og
spilaði við okkur krakkana. Alltaf
var allt í röð og reglu hvort sem var í
bílskúrnum eða heima hjá ykkur
ömmu, þú varst snyrtimenni fram í
fingurgóma enda ekki annað hægt
því amma er alltaf svo vel til höfð og
flott. Æskuminningarnar eru ófáar
sem ég á úr sveitinni. Þegar ég var
með þér í heyskapnum, mjólka kýrn-
ar, sinna hestunum sem ég var skít-
hrædd við og tína eggin úr hænsna-
kofanum og raða þeim á bakka og
keyra svo út á Tanga og færa vinum
og ættingjum. Margt lærði ég af þér,
elsku afi, þegar ég var orðin eldri,
það var alltaf auðsótt að fá þig til að
aðstoða við það sem til féll þrátt fyr-
ir að nóg væri að gera í smíðavinn-
unni, ég var svo heppin að fá að
múra, smíða, flísa- og parketleggja
með þér. Einnig unnum við saman
að því að endurnýja bað og eldhús
fyrir mömmu og pabba, rifum það
gamla í burtu og settum nýtt, að
meðtöldum tækjum og innréttingum
og svo endað á að flísaleggja allt
saman. Naut ég góðs af því að vinna
með þér. Það sem ég kann í dag á ég
þér margt að þakka. Helgi hafði
gaman af því að vinna með þér, t.d.
þegar þið voruð að múra og gera
grindverkið í innkeyrslunni. Það
voru margir sem nutu góðs af og
lærðu margt af þér og er það með
ólíkindum hvað þú varst með ein-
dæmum þolinmóður þegar þú varst
að segja öðrum til. Þú undir þér best
í bílskúrnum að gera upp eða smíða
hluti. Það var oft sem ég kom í skúr-
inn að skoða vinnu þína, að sjá
hvernig þú gerðir upp gömul hús-
gögn og þau urðu betri sem ný. Það
var alveg ótrúlegt. Það eru nokkrir
hlutir sem þú náðir ekki að klára og
heyrðist mér á ömmu og Gulla að
þau ætli að klára það, ætli ég taki
ekki fuglahúsið sem þú varst að gera
fyrir Hörpu og klári það eins og þú
hefðir viljað.
Þú og amma voruð alltaf dugleg
að ferðast og koma í heimsókn, þið
mættuð í allar veislur og viðburði
innan fjölskyldunnar og alltaf var
mikil tilhlökkun að fá ykkur í heim-
sókn yfir jólin og ef spáin var ekki
góð þá var ákveðið að þið kæmuð í
fyrra fallinu og fengum við þá að
hafa ykkur lengur sem okkur þótti
enn betra. Ég á eftir að sakna
glettnislega brossins þíns.
Ég á dýrmætar minningar um
yndislegan afa sem ég mun varð-
veita í hjarta mér um ókomna tíð.
Votta ég elsku Júllu ömmu og öðrum
ástvinum innilega samúð.
Þín
Guðrún Ragna.
Elsku Friðjón afi er farinn frá
okkur. Það er sárt að hugsa til þess
að hann sé ekki lengur hjá ömmu á
Túngötunni en svona er víst gangur
lífsins. Það eina sem við vitum er að
einhvern daginn hverfum við öll úr
Friðjón Gunnlaugsson
MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík
sími 587 1960 - www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Vönduð vinna og frágangur
Yfir 40 ára reynsla
Sendum myndalista
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
HALLBJÖRNS SIGURÐSSONAR
frá Krossholti.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk dvalarheimilis aldr-
aðra í Borgarnesi og Sjúkrahúss Akraness fyrir
einstaka umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Kristín Björnsdóttir,
Ingibjörg Hallbjörnsdóttir, Guðmundur Bragason,
Sigurður Hallbjörnsson, Þórhalla Agla Kjartansdóttir,
Svandís Hallbjörnsdóttir, Grétar Þór Reynisson,
Elínborg Hallbjörnsdóttir, Hallur Sigurðsson
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
EDDA SNORRADÓTTIR
frá Þórshöfn,
Núpalind 4,
Kópavogi,
sem lést á Landspítalanum Fossvogi fimmtudaginn
28. október, verður jarðsungin frá Digraneskirkju
miðvikudaginn 10. nóvember kl. 13.00.
Þorkell Guðfinnsson,
Snorri Hafsteinn Þorkelsson, Björg Skúladóttir,
Guðfinnur Helgi Þorkelsson, Jóhanna Þorkelsdóttir,
Edda Björg Snorradóttir,
Elín Salka Snorradóttir,
Guðrún Helga Guðfinnsdóttir,
Þorkell Máni Guðfinnsson.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi,
langafi og bróðir,
ÞÓRARINN HAUKUR HALLVARÐSSON,
varð bráðkvaddur sunnudaginn 31. október.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn
10. nóvember kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim
sem vilja minnast Hauks er bent á Slysa-
varnarfélagið Landsbjörg.
Erla Long,
Sigurður Long, Erla Björk Ingibergsdóttir,
Sigrún Þórarinsdóttir,
Kristín Unnur Þórarinsdóttir, Þórður Benediktsson,
barnabörn, barnabarnabörn og systur hins látna.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
JÓHANNA KRISTÍN HLÖÐVERSDÓTTIR,
Dadý,
Leirutanga 43A,
Mosfellsbæ,
sem lést fimmtudaginn 28. október, verður
jarðsungin frá Lágafellskirkju mánudaginn
8. nóvember kl. 15.00.
Guðmundur Ebbi Pétursson,
Pétur Heimir Guðmundsson, Heiðveig Andrésdóttir,
Magnús Snorri Guðmundsson, Sunna Mjöll Sigurðardóttir,
Guðmundur Atli Pétursson,
Kristín Þóra Pétursdóttir.
✝
Faðir minn, tengdafaðir, afi og bróðir,
FINNBJÖRN GUÐMUNDSSON
stýrimaður
frá Sæbóli í Aðalvík,
sem lést sunnudaginn 24. október, verður
jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn
10. nóvember kl. 13.00.
Jón Finnbjörnsson, Erla S. Árnadóttir,
Guðrún Hrönn Jónsdóttir,
Birna Jónsdóttir,
Sigríður Guðmundsdóttir,
Inga Guðmundsdóttir.