Morgunblaðið - 06.11.2010, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 06.11.2010, Qupperneq 46
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2010 Styrkir Menningarsjóður útvarpsstöðva auglýsir Hlutverk Menningarsjóðs útvarpsstöðva er að veita styrki til eflingar innlendri dagskrárgerð fyrir hljóðvarp og sjónvarp, þeirri er verða má til menningarauka og fræðslu, sbr. reglugerð um Menningarsjóð útvarpsstöðva dags. 11. febrúar 1986 með síðari breytingum. Stjórn sjóðsins auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Þetta er lokaúthlutun sjóðsins og verður hann lagður niður að henni lokinni. Stjórn sjóðsins er skipuð af mennta- og menningarmálaráðuneytinu og annast úthlutun. Í henni sitja Laufey Guðjónsdóttir, formaður, Lovísa Óladóttir og Þorbjörn Broddason, en starfsmaður er Reynir Berg Þorvaldsson. Stefnt er á að ákvarðanir um styrki liggi fyrir í lok febrúar 2011. Í umsóknum skulu eftirfarandi upplýsingar koma fram: 1. Nafn umsækjanda, kennitala og heimilis- fang, ásamt upplýsingum um aðstand- endur verkefnis og samstarfsaðila og skriflegum staðfestingum allra aðila um þátttöku í verkefninu. 2. Handrit eða nákvæm lýsing verkefnis og greinargerð umsækjanda um verkefnið. 3. Fjárhæð styrks sem sótt er um. 4. Kostnaðar- og fjárstreymisáætlun. 5. Skriflegir samningar eða önnur stað- festing um fjármögnun eða fjármögnunar- áætlun auk tæmandi upplýsinga um aðra styrki sem sótt hefur verið um og/eða verkefnið hefur fengið. 6. Nákvæm áætlun um framvindu verkefnis og greinargerð um það til hvaða verkþátta sótt er um styrk til. 7. Upplýsingar um alla gerða eða fyrir- hugaða framleiðslusamninga og áætlun um tekjuskiptingu eftir því sem við á. 8. Markaðs- og kynningaráætlun. 9. Handrit eða nákvæm lýsing verkefnis. 10.Upplýsingar um framleiðslufyrirtæki. 11. Yfirlýsing sjónvarps- eða útvarpsstöðvar um að fyrirhugað sé að taka dagskrárefni, sem sótt er um styrk til, á dagskrá. Upplýsingar um úthlutunarreglur, skilyrði og umsóknargögn má nálgast í gegnum net- fangið menningarsjodur@internet.is eða í síma 663 6245. Umsóknum og öllum fylgigögnum ber að skila í þríriti til Menningarsjóðs útvarps- stöðva, Hverfisgötu 54, 101 Reykjavík, eigi síðar en 15. desember nk. Með umsókn skal skila þar til gerðum eyðublöðum sem fást afhent á sama stað eða í gegnum netfangið menningarsjodur@internet.is. Auglýsing um styrki til rannsókna á stofnum villtra fugla og villtra spendýra Samkvæmt 3. mgr. 11. gr. laga nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, eins og henni var breytt með 39. gr. laga nr. 164/2002, úthlutar umhver- fisráðherra fé til rannsókna af tekjum vegna sölu veiðikorta. Umhverfisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna á stofnum villtra dýra sem undir áðurnefnd lög falla og heimilt er að veiða. Skriflegar umsóknir skulu berast ráðuneytinu, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík, merktar Veiðikortasjóður, fyrir 7. desember 2010. Í umsókn um styrk úr Veiðikortasjóði skal umsækjandi greina frá efni og afmörkun fyrir- hugaðra rannsókna, hverjir koma að rannsóknunum, skipulagi þeirra og áætluðum tímamörkum ásamt upplýsingum um menntun og/eða fyrri rannsóknir. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að senda inn umsóknir. Ráðuneytið mun að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar og ráðgjafanefndar úthluta styrkjum eigi síðar en í janúar 2011. Umhverfisráðuneytið 1. nóvember 2010 Tilboð/útboð 14956 Fjármálaþjónusta fyrir Landspítalann Rammasamningur Ríkiskaup, fyrir hönd Landspítala (LSH), óska eftir tilboðum í fjármálaþjónustu fyrir Landspítala. Um er að ræða nánast öll bankaviðskipti og tengda þjónustu, svo sem innlánsviðskipti á tékka- reikningi og skammtímabankareikningi, aðgang að fyrirtækjabanka ásamt bankaþjónustu vegna ýmissa sérsjóða sem fjármálasvið heldur utan um. Enn fremur skal tilboðið ná til þjónustu, gjaldskrár og greiðsluskila vegna innheimtu krafna LSH. Almennt er áhersla lögð á góða upplýsingamiðlun frá banka til LSH. Bjóðandi skal bjóða aðgengilega skýrslugerð varðandi inn- heimtu. Samið verður við einn aðila um viðskipti þessi. Landspítali er A-hlutastofnun á fjárlögum íslenska ríkisins og háð ákvæðum laga um fjárreiður ríkisins, nr. 88/1997. Ekki er ljóst hvaða þjónustumagn verður endan- lega keypt á grundvelli útboðs þessa þar sem um er að ræða rammasamning sem gerður er um til- tekna þjónustu í tiltekinn tíma, án þess að magntölur séu þekktar. Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn og aðgengilega á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is, eigi síðar en 10. nóvember. Opnunartími tilboða er 17. desember kl 11:00 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. 14635 Flugsæti til og frá Íslandi Rammasamningur með örútboðum Ríkiskaup, fyrir hönd áskrifenda að rammasamn- ingakerfi Ríkiskaupa á hverjum tíma, standa fyrir þessu útboði vegna flugsæta til og frá Íslandi. Heimilt er að bjóða í einstakar flugleiðir eða allar. Útboðið tekur eingöngu til ferðalaga lofteiðis og tengist ekki bókunum á hótelherbergjum, bílaleigubílum né annarri ferðaþjónustu. Tilefni þessa útboðs er krafa til opinberra starfs- manna um lækkun ferðakostnaðar t.d. með því að ferðast minna, skipuleggja ferðalög með góðum fyrirvara og kaupa flugfar á besta fáanlega verði á hverjum tíma. Í þessu útboði eru boðnar út tíu flugleiðir: 1. Reykjavík – Kaupmannahöfn 2. Kaupmannahöfn - Reykjavík 3. Reykjavík – London 4. London - Reykjavík 5. Reykjavík – Brussel 6. Brussel - Reykjavík 7. Reykjavík – NewYork 8. NewYork – Reykjavík 9. Reykjavík – Boston 10. Boston - Reykjavík Stefnt er því að semja við fleiri en einn aðila um eina, tvær, þrjár eða fleiri flugleiðir um viðskipti þessi. Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn og aðgengilega á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is, eigi síðar en 10. nóvember. Opnunartími tilboða er 21. desember 2010 kl 11:00 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Tilkynningar Seltjarnarnesbær Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2011 Menningarnefnd Seltjarnarness auglýsir hér með eftir umsóknum frá listamönnum búsettum á Seltjarnarnesi um nafnbótina Bæjarlistamaður Seltjarnarness árið 2011. Nafnbótinni fylgir 600.000 kr. starfsstyrkur. Væntanlegir umsækjendur eru beðnir að haga umsóknum í samræmi við reglur um bæjarlistamann sem liggja frammi á bæjar- skrifstofum Seltjarnarness að Austurströnd 2, en þær er einnig að finna á heimasíðu bæjarins www.seltjarnarnes.is. Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofur Seltjarnarness merktum: ,,Bæjarlistamaður 2011“ fyrir fimmtudaginn 25. nóvember nk. Menningarnefnd Seltjarnarness Óska eftir Frímerki - Mynt - Seðlar: Uppboðsaðili kaupir frímerki, umslög, mynt, seðla, póstkort, minnispeninga, orður, gömul skjöl og margt fleira. Staðgreiðsla í boði. Sími 561 58 71 og 694 58 71. Til sölu Veiðirétturinn er 1/3 veiðiréttinda í Sogi og Ásgarðslæk, sem telst vera 1 laxastöng í dag og 1/3 silungsréttinda. Bakki að Sogi sem fylgir hinum selda veiðirétti er um 2,8 km að lengd. Veiðirétturinn er laus til afnota næsta veiðiár. Einnig fylgir lögbýlisréttur jarðarinnar Ásgarðs, auk eignarlóðar við bakka Sogsins. Á lóðinni má byggja 150 fermetra sumarhús. Allar nánari upplýsingar veita Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali og Ólafur Björnsson hrl. löggiltur fasteignasali á skrifstofu eða í síma 480-2900. Áhugasamir geri tilboð í eignina fyrir 20.nóvember 2010 til Lögmanna Suðurlandi, Austurvegi 3, 800 Selfoss. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Til sölu 1/3 veiðiréttar jarðarinnar Ásgarðs í Sogi, Grímsnesi, ásamt tilheyrandi bakka, lögbýlisrétti og eignarlóð við bakkann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.