Morgunblaðið - 06.11.2010, Side 50
50 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2010
Drottningin
er fallin
Drottning Stað-
arfjallanna í Skagafirði
til átján ára er fallin.
Já, mig langar til þess
að skrifa nokkur orð
um þessa sérstöku for-
ystuá. Ég fékk þann
heiður að umgangast
hana í ein átta ár og á í
minningunni ótal ynd-
isleg augnablik með
henni. Hún var af for-
ystukyni og sá svo
sannanlega um sinn
hóp og stýrði. Veð-
urglögg, næm og glögg
á fólk og umhverfi, sem sagt allt
sem prýðir góða forystuá. Hún
færði eiganda sínum lömb í sextán
ár. Hún var stygg þar til síðasta ár-
ið, en þá var hún höfð ein í stíu og
viti menn, hún tók því að henni væri
strokið og að lögð væri kinn við
kinn meira að segja, svo það mátti
ekki byrja á neinum verkum fyrr en
þessari athöfn var lokið og um vorið
fylgdi hún mér hvert
fótmál. Í haust er hún
kom heim af fjalli hafði
hún engu gleymt, hún
kom strax til mín. Nú
veit ég ekki hvort
bændur eiga ær sem
verða svo gamlar, en
mér finnst hún eiga
það skilið að umheim-
urinn viti af henni. Ég
þakka henni fyrir að
auðga minningar mín-
ar.
Stefanía Jónasdóttir.
Dýrt að saga
Ég fór í BYKO og lét
saga fyrir mig spýtu, það verk tók
þrjár mínútur og fyrir það þurfti ég
að borga eitt þúsund krónur. Ég
vildi vekja athygli á þessu öðrum til
varnaðar.
Guðjón
Ást er…
… grunnurinn að öllum
langlífum samböndum.
VelvakandiGrettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
NÚ HEFUR KATTASÖFNUNIN
STAÐIÐ YFIR Í SÓLARHRING
ATHUGUM
HVERSU MIKLU HEFUR
VERIÐ SAFNAÐ
TÍU
KRÓNUM!
VIÐ
HVERJU
BJÓSTU?
ÞETTA ERU
KETTIR!
HEFURÐU
HEYRT FRÁ
SNOOPY?
JÁ, HANN ER ENN ÞÁ Á
SPÍTALANUM EN LÆKNARNIR
SEGJA AÐ HONUM FARI
BATNANDI
FÉKK HANN
SÉRHERBERGI?
HLÝ-
TUR AÐ
VERA!
ANNARS VÆRI
EKKERT PLÁSS FYRIR
KANÍNURNAR
HVAÐ LANGAR ÞIG
AÐ GERA Í DAG
HRÓLFUR?
HVAÐ MEÐ AÐ VIÐ ÖSKRUM
AF ÖLLUM KRÖFTUM Í VON
UM AÐ FÁ HJÁLP?
ÆI NEI, VIÐ
GERÐUM ÞAÐ Í GÆR!
STRÁKAR, ER Í LAGI
AÐ ÉG SKILI YKKUR
AF MÉR ÁÐUR EN
ÉG FER Í
HLÍÐNISKÓLANN?
EINFÖLD
LEIÐ TIL AÐ
DRAGA ÚR ORKU-
NOTKUN HEIMILI-
SINS ER AÐ
SLÖKKVA LJÓS
VIÐ ÞURFUM TIL
DÆMIS EKKI AÐ HAFA
KVEIKT NIÐUR Í KJALLARA,
ER ÞAÐ?
HVAÐ
ER Í GANGI?
JÚ,
GREINILEGA
VÆRI
ÞÉR
SAMA?
RAF-
MAGNIÐ ER
AFTUR
KOMIÐ Á
HVERNIG?
HVERJUM
ER EKKI SAMA
HVERNIG ÞAÐ
GERÐIST
ÉG
STÓÐ VIÐ
MITT!
LEYFÐU MÉR NÚ
AÐ HITTA SON MINN
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Ég hitti karlinn á Laugaveginumog hann fór að tala um vísu-
part, sem ég hafði spurst fyrir um
og rámað í að væri fyrripartur, en
karlinn skeytti því engu:
Kerlingin er komin hér
kjagandi um bæinn,
hefur allt á hornum sér,
ég held að það sé maginn.
„Enn er miður október
eins og fyrri daginn.“
Karlinn er pólitískur, frekar
hægrisinnaður, og varð tíðrætt um
borgarstjórann:
Lengi einskis varð ég varr
um vitið sem að Drottinn gaf:
uns opna munninn gjörði Gnarr
og gleypti staf einn framan af.
En vék síðan aftur talinu að því
yrkisefni sem honum er kærast
Völd og áhrif stendur styr um,
sterkt var drukkið siguröl.
„Minn tími kom og kvaddi að dyrum,“
kerling sagði, „en stutt varð dvöl.“
Fyrir viku vitnaði ég í bréf frá
Grétari Snæ Hjartarsyni. Þar segir
hann frá því, að faðir sinn, Hjörtur
Hjálmarsson á Flateyri, hafi tvíveg-
is setið á Alþingi sem varamaður
Birgis Finnssonar. „Þetta var á ár-
um Viðreisnarstjórnarinnar,“ skrif-
ar hann. „Á þessum tíma gerðist
það að flugherinn tók við af sjó-
hernum á Keflavíkurflugvelli. Ein-
ar Olgeirsson varð æfur út af þessu
og því, að ekki hafði verið haft sam-
band við Sósíalistaflokkinn varð-
andi þessar breytingar. Guð-
mundur Í. Guðmundsson
utanríkisráðherra svaraði Einari
og tjáði honum að það væri ekki til
siðs að hafa samband við komm-
únista um utanríkismál og þetta
hefðu þeir virt, er þeir voru í stjórn.
Einar æstist allur við þetta og
reytti hár sitt, en þarna var hann
einmitt nýkominn heim af komm-
únistaráðstefnu í Rússlandi, þar
sem upp úr sauð milli Rússa og Kín-
verja. Faðir minn ritaði vísu á blað
og rétti Benedikt Gröndal, sem fór
með það í ræðustól:
Einar virðist hress og hýr,
heim til brýnu aftur snýr;
finnst mér línan furðu skýr,
fékk hann Kínaelexír?
Öðru sinni var hann að lesa
Morgunblaðið í þingflokksherbergi
„krata“. Þar var greint frá því að
einræðisherrann fyrrverandi Gott-
wald í Tékkóslóvakíu hefði verið
úthrópaður og fluttur úr grafhýsi
hinna útvöldu og skyldi nú grafinn
annars staðar. Rétt er að geta þess,
að faðir minn hafði mjög gaman af
orðaleikjum. Benedikt Gröndal átti
leið fram hjá og spyr föður minn
hvað sé tíðinda. Benedikt sagði mér
að faðir minn hefði svarað sam-
stundis án þess að líta upp úr
blaðinu:
Tíðindi má telja helst
frá Tékkóslóvakíu
að Gottwald ekki gott vald telst
og grafast þarf að nýju.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af karli og pólitík
- nýr auglýsingamiðill
569-1100
finnur@mbl.is
–– Meira fyrir lesendur
- nýr auglýsingamiðill