Morgunblaðið - 06.11.2010, Side 51

Morgunblaðið - 06.11.2010, Side 51
MENNING 51Fréttir MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2010 Á tónleikum í Skálholtskirkju á morgun, sunnudag, klukkan 20 verður þess minnst að þá verða 560 ár liðin frá því að Jón Arason biskup og synir hans Björn og Ari voru tekn- inr af lífi þar á staðnum. Skál- holtskórinn, undir stjórn Jóns Bjarnasonar, og Kammerkór Akraness, undir stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar, flytja tónlist frá ýmsum tímum í minningu þeirra Hólafeðga. Á tónleikunum verður frumflutt lag eftir Jón Bjarnason við ljóð eftir Jón Arason. Efnisskráin er um klukkustund í flutningi og eru allir velkomnir. Tónlist Minnast aftöku Jóns Arasonar Skálholtskirkja Myndlistaruppboð verður í Gallerí Fold við Rauðarárstíg á mánudaginn kemur og hefst klukkan 18. Boðin verða upp rúmlega 100 verk af ýmsum toga, bæði nýleg og eftir gömlu meistaranna. Þar á meðal eru verk eftir Ásgrím Jónsson, Jó- hannes S. Kjarval, Þorvald Skúlason og Gunnlaug Blön- dal. Þá verður boðin upp rúm- fjöl úr rúmi sem Guðmundur Thorsteinsson – Muggur – málaði á og gaf unn- ustu sinni Gerdu Nyrop árið 1910 en þau giftust stuttu síðar. Verkið var í eigu dóttur Gerdu og kemur hingað til lands frá Danmörku. Verkin verða til sýnis laugardag og sunnudag. Myndlist Bjóða upp rúmfjöl málaða af Muggi Verk eftir Erró verður boðið upp. Á morgun, sunnudag, klukkan 15 verður Ragnheiður Jóns- dóttir myndlistarkona með leiðsögn á lokadegi sýning- arinnar Með viljann að vopni á Kjarvalsstöðum, ásamt Hrafn- hildi Schram sýningarstjóra. Ragnheiður er ein þeirra 27 listakvenna sem eiga verk á sýningunni en hún er löngu kunn fyrir grafíkverk frá átt- unda áratugnum, þar sem hún deilir á samskipti kynjanna. Að lokinni leiðsögn munu fulltrúar Start Art- hópsins kynna bókina Laugavegurinn, með upp- lestri, vídeósýningu og leikrænum tilþrifum. Bók- in verður til sölu á kynningarverði. Myndlist Leiðsögn á Með viljann að vopni Ragnheiður Jónsdóttir Karl Blöndal kbl@mbl.is Þegar bankakerfið hrundi á Íslandi var vart hægt að þverfóta í landinu fyrir erlendum blaðamönn- um. Aldrei áður hafði jafn mikið verið skrifað um Ísland í erlenda fjölmiðla og þessi gríðarlega at- hygli var ekki komin til af góðu. Í bókinni The End of Iceland’s Innocence fjallar Daniel Chartier, pró- fessor við Quebec-háskóla í Montreal, um ímynd Íslands í erlendum fjölmiðlum í orrahríðinni. Chartier sagði í viðtali við Morgunblaðið að áhuginn á Íslandi hefði verið svona mikill vegna þess að hér hefði verið um að ræða mjög ríkt og velmegandi land, sem á nokkrum dögum hrundi al- gerlega saman. „Menn sögðu við sjálfa sig að þetta gæti hent þá þar sem þeir væru í veikari stöðu,“ sagði hann. „Við þurfum að skoða þetta til að sjá hvaða áhrif þetta gæti haft á okkur. Nú eru komin önnur til- felli, Grikkland, Spánn, Bandaríkin og jafnvel Bretland, þannig að athygli heimsins beinist ekki lengur að Íslandi.“ Chartier sagðist stundum velta því fyrir sér hvort Ísland hafi í raun verið umfjöllunarefnið. „Þetta var leið fyrir ákveðið fólk til að koma skoðunum sínum og gildum á framfæri,“ sagði hann. „Það átti til dæmis við um dagblaðið Le Monde, sem er mjög hlynnt evrunni. Þeirra mark- mið var að sýna fram á hvernig lítið land myndi njóta verndar í stærri hópi.“ Chartier sagði að hrunið á Íslandi hefði valdið mörgum vonbrigðum sem litu á Ísland sem eins konar fyrirmynd. „Skotum fannst Ísland og Noregur bera því vitni að þeir gætu líka verið sjálfstæðir,“ sagði hann í samtali við Morgunblaðið. „Eftir hrunið á Íslandi gátu Bretar sagt við Skota að þeir gætu ekki verið einir. Þeir hefðu beitt Íslendinga hörðu, en stutt við Bank of Scotland.“ Hrunið á Íslandi hefði verið áfall fyrir skoska sjálfstæðissinna. „Annan hóp, sem varð fyrir vonbrigðum, er til dæmis að finna í Quebec í Kanada og Frakklandi,“ sagði hann. „Þessi hópur sá Ísland sem fyrirmynd í jafnréttismálum, sem sýndi hvernig hægt væri að vera ríkur en huga að velferð borgaranna allra. Hvort sem það var satt eða ekki var Ísland fyrir- mynd í þeirra augum og að sjá landið hrynja var erfitt.“ Hann sagði að á hægri vængnum hefðu einnig orðið vonbrigði. „Þeim fannst að Ísland hefði verið rannsóknarstofa. Í bókinni er ég með tilvitnanir í þessa veru og niðurstaða þeirra sé sú að Ísland hafi sýnt að ekki eigi að ganga svona langt. Fátt getur verið meira niðurlægjandi en að hafa verið viðfang hóps sem vildi prófa tiltekna hagfræði.“ Chartier sagði að í umfjöllun erlendra fjölmiðla hefði verið sögð ákveðin saga, sem ekki var alltaf í samræmi við veruleikann. Til dæmis var ítrekað slegið upp að Ísland væri gjaldþrota land, þótt það hafi aldrei orðið raunin og þegar öllu sé á botninn hvolft sé ástandið á Íslandi síður en svo það versta í heiminum. Hvað sem því líði sé hollt að skoða með hvaða hætti var fjallað um landið á þessum tímum og velta því um leið fyrir sér hvers vegna svona mikið sé lagt upp úr því hér á landi hvaða augum aðrir sjá Ísland. Morgunblaðið/RAX Í brennidepli Daniel Chartier, höfundur The End of Iceland’s Innocence, kveðst stundum velta fyrir sér hvort Ísland hafi í raun verið umfjöllunarefnið. Undir smásjá heimsins  Umfjöllun erlendra blaða um bankahrunið er efni bókar eftir Daniel Chartier  Sumir notuðu hrunið til að staðfesta eigin gildi, aðrir urðu fyrir vonbrigðum Saxófónleikarinn Sigurður Flosason og organistinn Gunnar Gunnarsson halda tónleika í Hallgrímskirkju á morgun, sunnudag, klukkan 16 þar sem þeir leika sálmalög og spinna út frá þeim eins og þeim einum er lagið. Tilefnið er tíu ára samstarfsafmæli sálmadúósins og útkoma fjórða geisladisks þeirra félaga en hann ber heitið Sálmar tímans. Á diskinum er að finna 13 útsetningar félaganna á ólíkum sálmalögum. „Þetta er tíu ára afmæli dúettsins,“ segir Gunnar. „Það lá ekki í augum uppi að þessi tvö hljóðfæri gætu pass- að svona vel saman. Saxófónninn á sér langa spunahefð í djassi en org- elið, sem er líka blásturshljóðfæri, á líka langa spunasögu en klassískt megin. Gömlu orgelmeistararnir spunnu daglega á orgel.“ Diskurinn er tekinn upp í Hall- grímskirkju og leikur Gunnar á Klais orgelið sem hann segir mikla ger- semi. „Á diskinum eru sálmar sem okkur hefur lengi langað að leika; þarna eru ákveðnir kontrastar, mjög gamlir og nýir sálmar, mjög kunnir sem lítt kunnir,“ segir hann. Á tón- leikunum leika þeir aðallega sálma af nýja diskinum en Gunnar segir að aðrir kunni að slæðast með. Sigurður og Gunnar hafa áður sent frá sér þrjá geisladiska; Sálma lífsins (2000), Sálma jólanna (2001) og Draumalandið (2004). efi@mbl.is Spinna út frá sálma- lögum Nýr sálmadiskur Sigurðar og Gunnars Morgunblaðið/Einar Falur Orgeldjass Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson leika. Stemningin fyrir okkur virðist vera meiri en við áttum að venjast. 52 » Í dag kl. 17 opnar myndlistarmað- urinn Ingirafn Steinarsson sýn- ingu í Kling & Bang gallerí á Hverfisgötu 42. Sýninguna kallar hann FUNC- TIUS/FUNGUS/ FUNNUS og á henni er safn hnyttinna en um leið beinskeyttra hluta, myndbandsverka og teikn- inga. Þar á meðal er altarið sem heiti sýningarinnar er sótt í. Þar er bjór stillt upp sem leikmynd fyrir sam- skipti. Myndbandsverkin sýna hins vegar hústökur í Osló og Berlín. Í Kling & bang er opið fimmtu- daga til sunnudaga, kl. 14-18. Ingirafn Stein- arsson sýnir í Kling & bang Verk eftir Ingarafn. Daniel Chartier beinir í bók sinni sjónum sín- um einkum að umfjöllun um efnahagshrunið á Íslandi í níu dagblöðum, sem gefin eru út á ensku og frönsku. Þar á meðal eru New York Times, Financial Times, Le Monde og Guardi- an, en leitar þó víðar fanga. Umfangið var mismikið eftir fjölmiðlum. Í New York Times birtust 75 greinar um Ísland árið 2008, en í Financial Times var mun nánar fylgst með gangi mála og birti blaðið um 400 greinar, sem fjölluðu um Ísland, þar af næstum 250, sem eingöngu beindust að landinu. Chartier segir að í umfjöllun sé aldrei gefið annað tækifæri, aðeins sé hægt að bæta við frá- sögnina, ekki snúa henni við. Útgáfuhóf vegna bókar Daniels Chartiers verður í Bókabúð Máls og Menningar frá 14.00-15.00 á morgun, sunnudaginn 7. nóv- ember. Hann verður viðstaddur og mun árita bókina, sem verður á sérstöku tilboðsverði á meðan. Chartier heldur einnig fyr- irlestur í Háskóla Íslands, Árna- garði stofu 201 kl. 12-13.10 þriðju- daginn 9 nóvember. Efnahagshrun og fjölmiðlafár CHARTIER KYNNIR BÓKINA OG ÁRITAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.