Morgunblaðið - 06.11.2010, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 06.11.2010, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2010 Árni Matthíasson arnim@mbl.is Hljómsveitin Gildran hefur verið að býsna lengi; fyrir þrjátíu árum varð til hljómsveitin Pass sem breyttist svo í Gildruna fyrir aldarfjórðungi. Afmæli sveitarinnar var fagnað með tónleikum í Hlégarði í Mosfellsbæ í vor og afrakstur þeirra tónleika var svo platan Vorkvöld sem kemur út á mánudaginn. Fyrir bráðum hálfum þriðja ára- tug héldu félagarnir í rokksveitinni Gildrunni til Englands að taka þar upp lög á smáskífu. Vinnubrögð þar voru slík að marga klukkutíma tók til að mynda að ná réttum hljómi á einn sneril og alls fóru um 200 tímar í eitt lag. Þegar ég rifja þessa sögu upp fyrir þeim Gildrufélögum Karli Tóm- assyni, Birgi Haraldssyni, Þórhalli Árnasyni og Sigurgeiri Sigmunds- syni skella þeir þremenningar Karl, Birgir og Þórhallur upp úr, enda voru þeir í ferðinni forðum, en Sig- urgeir slóst í lið með þeim nokkru síðar. Við sitjum saman í kjallara í Mos- fellsbæ þar sem þeir félagar eru í stífri æfingalotu vegna tónleika sem haldnir verða í Austurbæ 12. nóv- ember næstkomandi, en þeir tón- leikar eru til að fagna útgáfu á breið- skífunni sem inniheldur upptökur frá afmælistónleikunum í Hlégarði, heimabæ sveitarinnar. Óteljandi tónleikar Í upptökulotunni löngu sem getið er fóru 240 klukkutímar í eitt lag, en svo tóku þeir Gildrufélagar völdin og tóku upp fyrstu breiðskífu sína hjá Didda fiðlu í Stúdíói Stemmu og þá fóru ekki nema 23 tímar í upptökur og 4 í hljóðblöndun. Sú plata, Huldu- menn, kom svo út vorið 1987 og síðan eru skífurnar orðnar nokkuð margar og tónleikarnir óteljandi. Að því sögðu þá hafði lítið heyrst frá hljóm- sveitinni um hríð, þar til hún kom saman og troðfyllti Hlégarð í vor. Hún hætti þó aldrei, en mál atvik- uðust svo að menn voru önnum kafn- ir við ýmislega iðju, Sigurgeir fluttist til Eyja og Þórhallur austur á land, svo nokkuð sé nefnt. Þeir héldu þó sambandi og til sannindamerkis um það má nefna að þeir eiga í fórum sín- um grind að breiðskífu, lög og texta sem þeir hafa púslað saman á und- anförnum árum að sögn Þórhalls. „Það kom einhver pása og það var fínt,“ segir Karl og Þórhallur bætir við að spilamennskan hafi kannski verið fullmikil um tíma. „Við vorum búnir að spila út um allt og spiluðum endalaust; við spiluðum til dæmis tvö hundruð og eitthvað sinnum á Fimm- unni eitt árið og það var kominn tími á pásu.“ Þetta var bara fiðringur Í pásunni hafa þeir komið saman öðru hvoru, tekið upp lög og lög og spilað smávegis, þar til nú að þeir hrökkva svo rækilega í gang. Af hverju, spyr ég og Birgir svarar að bragði: „Þetta var bara fiðringur.“ Karl tekur undir það en segir að þeir hafi líka áttað sig á því nánast óvart að þeir hefðu byrjað að spila saman fyrir réttum þrjátíu árum. „Svo virð- ist líka vera heilmikil eftirspurn eft- ir okkur,“ segir Sigurgeir. „Við fundum stemninguna þegar við spil- uðum í Hlégarði.“ „Stemningin fyrir okkur virtist vera meiri en við áttum að venjast,“ segir Karl. Tónleikarnir í Hlégarði sem eru skrásettir á Vorkvöldi tókust gríð- arvel að því er þeir segja, og nefna til sannindamerkis að á skífunni séu öll lögin sem þeir léku á tónleik- unum, en þess má geta að tutt- ugasta lagið á skífunni er hljóð- versupptaka, lagið Blátt blátt, hluti af lagasafninu sem varð til í pásunni. „Það var ekkert planað að gera meira en að taka upp eina tón- leika og gefa út, en þegar við fór- um svo að hlusta á upptökurnar fundum við að við vorum með eitt- hvað í höndunum sem skipti okk- ur máli,“ segir Þórhallur og Sig- urgeir heldur áfram: „Við erum bara að gera þetta fyrir okkur, þetta snýst ekki um það að selja hauga af plötum eða komast í fyrsta sæti á einhverjum lista. Okkur langar til að líða vel með það sem við gerðum og við lögð- um mikið í þessa plötu.“ Karl bendir líka á að plötur Gildrunnar séu ekki lengur fáan- legar, allar löngu uppseldar, og því sé platan eins og nokkurs kon- ar yfirlit yfir feril sveitarinnar. Ekki segja þeir félagar að það hafi verið erfitt að velja lögin, þau hafi nánast valið sig sjálf, en þó þurftu þeir að skera niður frá upprunalegum lagalista, því þeir byrjuðu æfingar með ríflega þrjá- tíu lög sem síðan duttu út smám saman. Nýtt líf „Mörg þessara laga fá líka nýtt líf frá því sem þau voru á plöt- unum og við erum ánægðir með það hvernig þau fá byr undir báða vængi á ný,“ segir Þórhallur. „Við köllum þetta gömlu meistara- verkin,“ segir Sigurgeir og þeir skella allir upp úr. „Við renndum blint í sjóinn með tónleikana í vor,“ segir Karl, „en fundum svo mikinn áhuga og svo góðan anda í salnum þegar við stigum á svið að við höfðum ekki fundið annað eins áður. Það ber öllum saman um það að það gerðist eitthvað eftirminnilegt í Hlégarði þetta kvöld.“ Gildran leikur á tónleikum í Borgarnesi í kvöld, en síðan eru næst á dagskrá tónleikarnir í Austurbæ á föstudag og svo halda þeir félagar til Vest- mannaeyja. „Við ætlum svo að taka nokkra tónleika til viðbótar, spila á völdum stöðum og halda þar almennilega tónleika,“ segir Þórhallur, en þeir hyggjast halda tónleika víða, meðal annars á Ak- ureyri, en það verður ekki fyrr en eftir áramót. Morgunblaðið/hag Samrýndir Gildrufélagar: Sigurgeir Sigmundsson, Birgir Haraldsson, Þórhallur Árnason og Karl Tómasson. Gömlu meistaraverkin  Gildran gefur út upptökur frá fjölsóttum afmælistón- leikum á plötunni Vorkvöldi  Fagnar þrjátíu ára afmæli og er enn að  Útgáfutónleikar í Austurbæ á föstudaginn Gildran á rætur í hljómsveit- inni Pass sem stofnuð var af þeim Karli Tóm- assyni, Birgi Haraldssyni og Þórhalli Árnasyni í Mosfellsbæ árið 1989 og tók meðal annars þátt í Músíktilraununum 1982. Pass varð svo að Gildrunni 1985, en fyrstu opinberu tón- leikar Gildrunnar, eins og það var orðað í Morgunblaðinu á þeim tíma, voru á Hótel Borg fimmtudaginn 13. ágúst 1987. Fyrsta plata Gildrunnar, Huldumenn, kom út 1987, en Vorkvöld verður sjöunda breið- skífa sveitarinnar. Sigurgeir Sigmundsson gít- arleikari gekk til liðs við Gildr- una 1989 og hefur því verið í henni í rúma tvo áratugi. Samstarf í rúm 30 ár PASS OG GILDRAN – meira fyrir áskrifendur Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift JÓLAGJAFAHANDBÓK ATVINNULÍFSINS Þann 11. nóvember kemur Jólagjafahandbók Viðskiptablaðs Morgunblaðsins út í sjötta sinn. Þessi veglegi blaðauki hefur skipað sér sess sem ómissandi hjálpartæki fyrir stjórnendur jafnt stórra og smárra fyrirtækja sem standa frammi fyrir vandasömu verkefni á þessum tíma árs. Jólagjafahandbókin fjallar um allt sem snertir jólagjafir til starfsfólks, samstarfsaðila og viðskiptavina. Skoðaðir verða fjölbreyttir gjafamöguleikar sem henta öllum þörfum. Hér er á ferð samantekt sem auðveldar valið á réttu gjöfinni sem kemur til skila þakklæti, vinsemd og hátíðarstemningu jólanna. Vertu með í glæsilegri sérútgáfu sem nær beint til markhópsins Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16.00 mánudaginn 8. nóvember. Nánari upplýsingar veitir Sigríður Hvönn í síma 569 1134 / 692 1010, sigridurh@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.