Morgunblaðið - 06.11.2010, Page 60
LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 310. DAGUR ÁRSINS 2010
Jón Páll Bjarna-
son fékk afhenta
Gullnöglina í gær-
kvöldi þegar Gít-
arveisla Björns
Thoroddsen var
haldin í Salnum.
Gullnöglin er
afhent einu sinni
á ári til ein-
staklings sem þykir hafa lagt mikið
af mörkum í gítarleik á Íslandi, hvort
sem það er á sviði spilamennsku,
kennslu eða annars. Þetta er í annað
skipti sem viðurkenningin er veitt en
í fyrra hlaut Ólafur Gaukur gripinn.
Jón Páll Bjarnason
hlaut Gullnöglina
Tónlistarmaðurinn Jón Þór Birg-
isson, betur þekktur sem Jónsi úr
Sigur Rós, lýkur heimstónleikaferð
sinni í Laugardalshöllinni 29. desem-
ber nk. Núna er orðið uppselt í stúku
á tónleikana en hægt að tryggja sér
miða í stæði í forsölu
og er miðaverði stillt
í hóf til að sem
flestir eigi þess
kost að upplifa
Jónsa á sínum
lokatónleikum
á heimavelli.
Uppselt í stúku
á tónleika Jónsa
Andri Karl
andri@mbl.is
Fyrsti föstudagurinn í nóvember er
jafnan nefndur J-dagurinn í Dan-
mörku. Bjórdrykkjumenn sem upp-
lifað hafa J-daginn eru flestir ef ekki
allir sammála um að þá sé slegið upp
sérstaklega skemmtilegri hátíð.
Klukkan 20.59 hefst nefnilega af-
greiðsla veitingahúsa og kráa á jóla-
bjórnum frá Tuborg. Reynt hefur
verið að skapa sömu hefð hér á landi
og í gærkvöldi var fagnað að dönsk-
um sið.
Vinsældir J-dagsins hafa ekki far-
ið framhjá Ölgerðinni og Vífilfelli og í
fyrsta skipti kemur jólabjórinn í sölu
á veitingahúsum hér á landi á sama
tíma og í Danmörku. Sala á Tuborg
jólabjórnum hófst kl. 20.59 á völdum
krám og afgreiðsla jólabjórsins frá
Víking hófst mínútu síðar. Jafnframt
er haldið upp á það, að sá síðarnefndi
hefur verið bruggaður í tuttugu ár.
Í Vínbúð ÁTVR 18. nóvember
Eftirvæntingin leyndi sér ekki
meðal óþreyjufullra gesta sem biðu
eftir að smakka jólabjór ársins 2010.
Til að kynna Viking jólabjórinn
gengu niður Laugaveginn, frá
skemmtistaðnum Dillon, jólasveinar
og karlakór Kaffibarsins, Bartónar.
Ferðalagi þeirra fylgdi að valdir veit-
ingamenn sem sóttir voru heim gáfu
gestum að smakka afurðina.
Á sama tíma voru á ferðinni jóla-
sveinar á vegum Tuborg sem gáfu
gestum og gangandi, sem náð höfðu
tuttugu ára aldri og höfðu smekk fyr-
ir, glaðning.
Þó svo að almenn veitingasala á
jólabjór hafi hafist í gærkvöldi verð-
ur jólabjór ekki fáanlegur í Vínbúð
ÁTVR fyrr en þriðja fimmtudag nóv-
embermánaðar, líkt og hefð er fyrir,
þ.e. 18. nóvember. Jólabjórinn má
selja í Vínbúðum til 6. janúar, en á
undanförnum árum hefur hann und-
antekningarlaust selst upp fyrir
þann tíma. Tuborg jólabjórinn seld-
ist þannig upp í desember á síðasta
ári.
Fagnað að dönskum sið
Afgreiðsla á jólabjórum Tuborg og Víking hófst á veitingastöðum og krám í gær
Jólasveinar gengu á milli staða í miðborginni með gjafir við mikla kátínu gesta
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skálað Gestir á Dönsku kránni
komust í jólaskap kl. 20.59 í gær.
Gert er ráð fyrir því að um 1000 manns taki þátt
í þjóðfundi um stjórnarskrá Íslands í Laug-
ardalshöllinni í dag. Í gærkvöldi vann fjöldi fólks
að lokaundirbúningi fundarins, en eins og sjá má
var glatt á hjalla meðal starfsmanna hans. Fund-
urinn hefst klukkan 9 og stendur til klukkan 18.
Morgunblaðið/Ómar
Þjóðfundur um stjórnarskrá Íslands fer fram í dag
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2218
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Dulbjó sig sem gamall maður
2. Öldruð hjón unnu milljarð
3. Sendill með 3,5 milljónir á tímann
4. Vala Grand með þætti á mbl.is
Á morgun kl. 14 verða haldnir
styrktartónleikar í Hveragerðiskirkju
fyrir munaðarlaus börn í Kongó. Fram
koma Davíð Ólafsson , Stefán Stef-
ánsson, Gísli og Kristjana Stef-
ánsbörn og Söngsveit Hveragerðis.
Til styrktar mun-
aðarlausum börnum
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi suðvestanátt, 8-13, og slydda eða rigning V-til síðdegis en
vestan 3-8 og skýjað annars staðar. Hlýnandi veður.
Á sunnudag Vaxandi austan- og síðar norðaustanátt 10-18 m/s eftir hádegi. Slydda eða
rigning S- og A-lands, annars úrkomulítið, en snjókoma fyrir norðan um kvöldið. Vægt
frost N-lands, annars 0 til 5 stiga hiti.
Á mánudag Norðaustanátt, víða 8-13 en lægir síðdegis. Kólnandi veður.
HK tapaði sínum fyrsta leik á Norður-
landamóti félagsliða í blaki kvenna
sem hófst í Digranesi í gærkvöldi.
Leikið var við Svíþjóðarmeistara í
Katrineholm sem voru miklu sterkari
og unnu 3:0. Norðurlandamótið held-
ur áfram í Kópavoginum um helgina
og mun HK etja kappi við Koll frá
Noregi í dag og danska liðið Holte á
morgun. »2
HK tapaði fyrsta leikn-
um gegn Katrineholm
Landsliðskonan Rakel
Hönnudóttir hafnaði tilboði
sænska úrvalsdeildarliðsins
Jitex og hefur ákveðið að
leika áfram með Þór/KA í
Pepsi-deild kvenna í knatt-
spyrnu á næstu leiktíð. Rak-
el ræddi þessa ákvörðun við
Morgunblaðið og þar kom
meðal annars fram að hún
nemur húsamálun og er á
samningi hjá húsamálara-
meistara. »1
Rakel verður
áfram hjá Þór/KA
„Ég vil núna sýna mig og sanna á nýj-
um stað. Hér eru menn að hugsa til
framtíðar með háleit markmið,“ segir
Baldur Ingimar Að-
alsteinsson,
knatt-
spyrnumaður
frá Húsavík,
sem hefur yf-
irgefið Vals-
menn eftir
sjö ára dvöl
og er geng-
inn til liðs
við Víkinga,
nýliðana í
úrvalsdeild-
inni. »4
Hugsa til framtíðar
með háleit markmið