Morgunblaðið - 12.11.2010, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 12.11.2010, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010 – Þú finnur fjölda girnilegra uppskrifta að kvöldmatnum á www.gottimatinn.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 0 -2 0 2 2 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fulltrúar lífeyrissjóðanna og við- skiptabankanna hafna flatri niður- færslu skulda til lausnar á fjárhags- vanda heimilanna. Undir lok stórs fundar stjórnmálamanna og fulltrúa hagsmunaaðila urðu hörð skoðana- skipti um þetta eftir að dómsmála- ráðherra hvatti bankana til frekari aðgerða. Vinnan heldur áfram Flestir eru sammála um að engin ein leið leysi vandann og rætt er um að búa til samsetta lausn. Ekki kom þó fram hvort ríkisstjórnin myndi koma með slíka tillögu eða hvernig unnið yrði að málinu. Fulltrúar fjár- málafyrirtækjanna lýstu vilja til að taka þátt í því. Fulltrúar viðskiptabankanna og lífeyrissjóðanna hafna flatri niður- færslu og vilja leggja áherslu á að bæta sértæka skuldaaðlögun þannig að fleiri muni vilja nýta sér hana. Bent hefur verið á að útlánasöfn bankanna hafi verið flutt í nýju bankana með verulegri afskrift. Fulltrúar bankanna segja að þeir hafi verið að nýta þetta svigrúm með þeim úrræðum sem þeir hafi boðið. Í þeim felist niðurfærslur skulda. Stærstur hluti fasteignaveðlána er hjá Íbúðalánasjóði sem hefur verið stikkfrí í umræðunni. Flest uppboðin eru að hans frumkvæði eða annarra opinberra aðila, en ekki banka eða lífeyrissjóða. Eiginfjárstaða sjóðsins býður ekki upp á miklar afskriftir nema samsvarandi fjármunir komi úr ríkissjóði eða afsláttur fáist hjá fjárfestum sem fjármagna útlán sjóðsins en þar eru lífeyrissjóðirnir stórir leikendur á sviði. Ögmundur Jónasson dómsmála- ráðherra segir að allir þurfi að koma að lausn skuldavandans, ekki aðeins stjórnvöld heldur einnig fjármála- stofnanir. „Mér finnst að fjármála- kerfið þurfi að viðurkenna það innra með sér að það var oftekið af fólki. Þess vegna er ekki óeðlilegt að fram hafi komið kröfur um niðurfærslu skulda og almennar aðgerðir,“ segir Ögmundur og nefnir lækkun vaxta, bæði til framtíðar og til lækkunar á uppsöfnuðum skuldum. Segir hann það áhrifaríkasta úrræðið sem hægt sé að grípa til. Það sé og forsenda þess að hægt sé að auka vaxtabætur. Góður samstarfsvilji „Mér fannst góður samstarfsvilji á þessum fundi. Það eru auðvitað skiptar skoðanir um hvaða leiðir menn vilja fara. En þetta er spurn- ing um að ná saman og þessi hópur sem þarna var inni hefur skyldur við fólkið hér úti í samfélaginu að ná saman í þessu máli,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra við fréttavef mbl.is að fundi loknum. Helst rætt um samsetta lausn  Fulltrúar fjármálafyrirtækja og stjórnmálamenn skiptust á skoðunum um leiðir til lausnar á skulda- málum heimilanna á fundi í Þjóðmenningarhúsinu  Fjármálafyrirtækin hafna flatri skuldalækkun Morgunblaðið/Eggert Mótmæli Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra mætir til fundar við hagsmunaaðila í Þjóðmenningarhúsinu. Samráðsfundur » Á fundinum í Þjóðmenning- arhúsinu kynnti Sigurður Snævarr skýrslu um skulda- vanda heimilanna. » Mættir voru ráðherrar, fullrúar stjórnarandstöðu og þingnefnda, fulltrúar fjármála- fyrirtækja og lífeyrissjóða, Íbúðalánasjóðs, Hagsmuna- samtaka heimilanna og fleiri. „Við munum vinna þétt með öllum öðrum að lausn þessara mála, hver sem ákvörðunin verður,“ segir Sigurður Erlingsson, for- stjóri Íbúðalánasjóðs. Hann bendir jafnframt á þá staðreynd að eiginfjár- staða sjóðsins sé veik. Rík- issjóður þurfi að koma með meira eigið fé ef mikið verði afskrifað. Það sé því mál eigandans að meta það sem gert verður. Aðspurður tekur Sigurður fram að hann hafi ekki útilokað neina af þeim leiðum sem nefndar eru en lýsir þeirri skoðun sinni að það hljóti að vera skynsamlegast að beina að- stoðinni þangað sem vandinn sé mestur. Ríkissjóður þarf að koma að ákvörðunum um leiðir Sigurður Erlingsson „Ég vil að við einbeitum okkur að þeim sem verst eru staddir. Þess vegna finnst mér lagfæringar á sértækri skuldaaðlögun mikilvægar,“ segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. Birnu líst ekki á flata niðurfærslu allra skulda og bendir á að skýrslan sýni að sú leið sé dýr og gagnist fáum. Hún segir að bankinn hafi nýtt að stórum hluta það svigrúm sem hann hafi til niðurfærslu skulda með þeim úrræðum sem boðið hafi verið upp á, meðal annars með 25% lækkun erlendra lána og 10% lækkun verð- tryggðra íbúðarlána. Lagfæringar á sértækri skuldaaðlögun mikilvægar Birna Einarsdóttir „Mér sýnist að það geti frekar verið einhver blönd- un, heldur en ein tiltekin leið,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Ar- ion banka. Hann segist ekki geta metið það á þess- ari stundu til hvaða að- gerða Arion banki getur gripið, umfram það sem gert hefur verið. Spurður um flata niður- færslu skulda segir Höskuldur að hún feli í sér lækkun skulda þeirra sem ekki þurfi á því að halda. Sértækari aðgerðir skili betri ár- angri. Hann vekur athygli á því að bankarnir hafi verið að færa niður skuldir með þeim úr- ræðum sem boðið er upp á. Bankarnir hafa verið að færa niður skuldir Höskuldur H. Ólafsson Fulltrúar lífeyrissjóðanna ítrekuðu andstöðu sína við almenna niðurfærslu skulda en lýstu vilja til að skoða áfram þær leiðir sem fjallað er um í skýrslu nefndar um skuldavanda heimilanna. „Við erum minnsti að- ilinn og líka með lang- minnstu vanskilin. Það breytir ekki því að margir eiga í vanda og við erum eins og aðrir til- búnir að halda þessari vinnu áfram,“ segir Arnar Sigurmundsson, formaður stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða. Málið verður nú kynnt fyrir lífeyrissjóð- unum. Ítreka andstöðu við al- menna niðurfærslu Arnar Sigurmundsson Ásmundur Einar Daðason, þing- maður VG, sagði á Alþingi í gær að Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra, hefði verið sagt, þegar greidd voru at- kvæði í þinginu um tillögu um að- ildarviðræður við Evrópusambandið á síðasta ári, að hann kynni að missa ráðherraembættið, greiddi hann ekki atkvæði með tillögunni. Sagði Ásmundur Einar að daginn sem atkvæðagreiðslan var í þinginu um mitt síðasta ár hefði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra set- ið í þinghúsinu og kallað hvern þing- mann VG á fætur öðrum inn á teppið til sín og sagt þeim að ef þeir sam- þykktu tillögu um svonefnda tvö- falda þjóðaratkvæðagreiðslu og slík tillaga yrði samþykkt, þá væri fyrsta vinstristjórnin sprungin. „Þá hlýtur maður að spyrja sig, þegar samið var um málið að það færi inn í þingið og fengi þar lýðræð- islega umfjöllun, hvort þetta sé mjög lýðræðislegt. SMS-sendingar áttu sér stað í þingsal meðan á atkvæða- greiðslunni stóð þar sem þingmenn VG voru látnir vita um það að ef mál- ið yrði ekki samþykkt í þinginu væri fyrsta vinstristjórnin fallin. Meira að segja gekk þetta svo langt að einum ráðherranum, Jóni Bjarnasyni, sem þá hafði þegar ákveðið að styðja tvöfalda þjóðarat- kvæðagreiðslu og ætlaði ekki að styðja aðildarumsókn, var tjáð það – og hann getur ugglaust staðfest það sjálfur – að hann gæti átt það á hættu að geta ekki verið áfram ráð- herra í þessari ríkisstjórn. Að ekki væri talað um ef hans atkvæði yrði til þess að umsóknin yrði ekki sam- þykkt,“ sagði Ásmundur Einar. Ekki náðist í Jón Bjarnason í gær- kvöldi til að bera þessi ummæli undir hann. Hann greiddi atkvæði gegn til- lögu um umsókn að ESB. Ásmundur Einar sagði frá þessu þegar þingmenn voru að ræða tillögu um að fram færi þjóðaratkvæða- greiðsla um aðlögunar- og viðræðu- ferli Íslands og ESB samhliða kosn- ingum til stjórnlagaþings. Ásmundur Einar sagðist velta því fyrir sér, þegar fullyrt væri að ekki væri meirihluti fyrir þessari tillögu á Alþingi, hvort til stæði að beita samskonar vinnubrögðum aftur. gummi@mbl.is/helgi@mbl.is Hótað embættismissi í at- kvæðagreiðslu um ESB  Jóhanna sögð hafa kallað þingmenn VG til sín á teppið Jón Bjarnason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.