Morgunblaðið - 12.11.2010, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010
VILT ÞÚ
VITA HVERS
VIRI EIGNIN
ÞÍN ER Í DAG?
PANTAU FRÍTT
SÖLUVERMAT ÁN
SKULDBINDINGA!
HRINGDU NÚNA
Bær820 8081
Sylvia Walthers // best@remax.is
Brynjólfur Þorkelsson // 820 8080
Rúnar S. Gíslason
Lögg. fasteignasali.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Líkt og á kvennafrídaginn 25. októ-
ber síðastliðinn setti nístingskuldi
svip sinn á mótmæli fulltrúa heil-
brigðisstofnana á landsbyggðinni
gegn fyrirhuguðum niðurskurði
ríkisstjórnarinnar við Alþingi í gær.
Kuldinn hafði ef til vill þau áhrif að
þótt hiti væri í mönnum voru mót-
mælin á rólegum nótum. Nokkrir
þingmenn voru viðstaddir og brá
Sigmundur Ernir Rúnarsson, þing-
maður Samfylkingar, sér frá til að
sækja frakka í næðingnum.
Áskoranir á sjúkrabörum
Guðbjartur Hannesson heil-
brigðisráðherra tók á móti undir-
skriftum tugþúsunda landsbyggðar-
manna þar sem niðurskurðinum er
mótmælt og voru þær færðar honum
á sjúkrabörum til að undirstrika
neyðina, ef af verður.
Þá flutti Sunnlendingurinn Sigur-
geir Hilmar Friðþjófsson drápu þeg-
ar hann afhenti Guðbjarti 10.071
undirskrift íbúa á Suðurlandi en það
jafngildir helmingi kosningabærra
manna í heilbrigðisumdæmi Suður-
lands, að því er fullyrt var.
Svar Guðbjarts var stutt þegar
kröfurnar voru bornar undir hann:
„Tillögunum eins og þær líta út verð-
ur breytt. Ég segi ekki meira.“
Elfa Dögg Þórðardóttir, formaður
Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga,
fór fyrir mótmælendum með ræðu
sinni þar sem hún dró upp dökka
mynd af ástandinu sem kunni að
skapast, gangi tillögurnar eftir.
Sjúklingar fastir á heiðunum
„Því miður er ekki ólíklegt, nái
niðurskurðurinn fram að ganga, að
álag muni aukast svo mikið á björg-
unarsveitir að starf þeirra fari mjög
svo vaxandi við björgun á sjúkling-
um víðsvegar um landið uppi á heið-
um í kafalsbyl. Í heilbrigðisþjónustu
þarf að skera niður um 4,7 milljarða
króna árið 2011. Við, landsbyggðar-
fólk, erum tilbúin til þess að taka
þátt í því í samræmi við annan niður-
skurð á öðrum stofnunum.
Heilbrigðisráðuneytið forgangs-
raðar niðurskurðinum þannig að
hlífa skuli heilsugæslunni og stóru
sjúkrahúsunum í Reykjavík, Akur-
eyri og á Akranesi. Niðurskurðurinn
verður hins vegar harkalegur á heil-
brigðisstofnunum víðsvegar um
landið þar sem á að skera niður um 3
milljarða af þessum 4,7. Samt sem
áður eru þessar heilbrigðisstofnanir
aðeins að taka 10% af heildarfram-
lögum,“ sagði Elfa Dögg og vék því
næst að réttindum sjúklinga.
Jafngildir mannréttindabroti
„Verði niðurskurðartillögurnar að
veruleika munu mannréttindabrot
eiga sér stað gagnvart íbúum lands-
byggðarinnar. Niðurskurðurinn
verður svo mikill hjá heilbrigðis-
stofnunum úti á landi að þeim verður
ekki unnt að uppfylla ákvæði laga
um heilbrigðisþjónustu.
Við teljum að það standist ekki að
jafn afdrifarík ákvörðun og að leggja
niður lögboðna grunnheilbrigðis-
þjónustu við íbúa á Suðurlandi og
víðar á landinu sé tekin einhliða og
án nokkurs samráðs […] Þetta eru
ekki niðurskurðartillögur heldur er
um hreina tilfærslu á þjónustu að
ræða sem við íbúar á landsbyggðinni
munum greiða fyrir.“
Þjónustan þegar farin
Úlfar Thoroddsen, fram.kv.stj.
Heilbrigðisstofnunar Patreksfjarð-
ar, lá heldur ekki á skoðun sinni.
„Við Vestur-Barðstrendingar
styðjum ykkur. Við erum búin að
missa allt sem heitir sjúkrahúsþjón-
usta og vitum því hvað það er. Ég hef
ekkert að færa ráðherranum því að
það er allt farið.“
Einar Óli Fossdal, starfsmaður
sjúkrahússins á Blönduósi, var næst-
ur á mælendaskrá en Ármann Ægir
Magnússon, fulltrúi Samstöðuhóps
um sjúkrahúsin á Suðurlandi, greip
þá inn í: „Á meðan hann er að koma
sér fyrir ætla ég að brýna ykkur
Sunnlendinga og aðra þingmenn: Við
munum aldrei láta loka sjúkrahús-
unum á Suðurlandi! Aldrei!“ sagði
hann ákveðinn og uppskar mikil
fagnaðarlæti.
Einar Óli tók svo til máls.
„Við erum ekki að byggja eitt Ís-
land bara á einu höfuðborgarsvæði.
Við erum heilt Ísland. Við erum með
stórt land og það verður að koma
jafnt fram við fólkið á öllu landinu
[…] Það verður að forgangsraða
rétt. Við verðum að vera fólk til þess
að taka þessi sendiráð og annað og
loka þeim,“ sagði Einar Óli og létu
áheyrendur þetta sér vel líka.
Neyðarkall utan af landi
Fulltrúar heilbrigðisþjónustunnar á landsbyggðinni mótmæltu niðurskurði við Alþingi Óttast að
ekki verði hægt að uppfylla lögboðnar kröfur Heilbrigðisráðherra tók á móti þúsundum undirskrifta
Morgunblaðið/Golli
Krefjast endurskoðunar Rosemarie B. Þorleifsdóttir, formaður Sambands sunnlenskra kvenna, Margrét Ingþórsdóttir, formaður Verslunarmannafélags Suðurlands og Elfa Dögg Þórðardóttir,
formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, afhenda Guðbjarti undirskriftir Sunnlendinga. Þór Hreinsson, skrifstofustjóri stéttarfélaganna á Suðurlandi, stendur hjá með græna læknahettu.
„Þetta mun hafa
slæmar afleið-
ingar. Maður
býst við að
fæðingar-
deildinni verði
lokað og sjúkra-
deildin fylgi með.
Heimahjúkrun
kann að skerðast
en það er þegar
búið að loka
skurðstofunni,“ sagði Margrét Guð-
rún Valdimarsdóttir, starfsmaður
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja,
um fyrirhugaðan niðurskurð á fjár-
framlögum til stofnunarinnar.
„Þetta mun rýra lífsgæði okkar
Suðurnesjamanna heilmikið.“
Mun rýra lífsgæði
Suðurnesjamanna
Margrét Guðrún
Valdimarsdóttir
„Ég er að mót-
mæla boðuðum
niðurskurði og
stend fastar á því
en fótunum að
þetta er ekki
sparnaður heldur
hagræðing í nafni
þeirrar hug-
sjónar í Reykja-
vík að fá há-
tæknisjúkrahús.
Við viljum halda okkar þjónustu á
Selfossi,“ sagði Rosemarie Brynhild-
ur Þorleifsdóttir í Vestra-Geldinga-
holti. „Þótt við séum í hjarta Suður-
lands kemur fyrir að ófært er á lofti
og láði yfir veturinn. Þjónustan
skiptir því sköpum fyrir búsetu.“
Skiptir sköpum fyrir
búsetu úti á landi
Rosemarie B.
Þorleifsdóttir
„Það á alls ekki
að hreyfa við
sjúkrahúsunum á
Íslandi. Landið
okkar og veðrið
er þannig að það
má ekki hreyfa
við heilbrigðis-
þjónustunni,“
sagði Þórný
Heiðarsdóttir,
starfsmaður
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
„Hver heldurðu að vilji vera í Vest-
mannaeyjum í desember og þurfa
að fæða? Þessar breytingar skella á
alltof hratt. Það mætti vel skera
niður í utanríkisráðuneytinu. Svo
mega aðgerðir í kynjamálum bíða.“
Breytingar lagðar
fram alltof bratt
Þórný
Heiðarsdóttir
„Ég er fullviss
um að þegar
stjórnvöld sjá
fram á hvað þessi
niðurskurður
þýðir í raun og
veru muni þau
draga hann til
baka. Þetta eru
illa ígrundaðar
tillögur. Dæmið
hefur ekki verið
reiknað til enda. Það hefur ekki
verið sýnt fram á að þetta spari
nokkuð,“ sagði Guðrún Árný Guð-
mundsdóttir, starfsmaður Heil-
brigðisstofnunar Þingeyinga.
„Það á m.a. eftir að reikna inn
aukinn ferðakostnað sjúklinga.“
Viss um að stjórnin
muni draga í land
Guðrún Árný
Guðmundsdóttir
„Ég kem hér í nafni hollvinasamtaka Fjórðungssjúkra-
hússins í Neskaupstað en ég er líka sóknarprestur í bæn-
um. Sem formaður hollvinasamtakanna er mér ljúft og
skylt að vera í sameiginlegum hópi því hér er verið að
berjast fyrir sameiginlegum hagsmunum,“ sagði séra
Sigurður Rúnar Ragnarsson.
„Við mótmælum því að vegið skuli að heilsugæslunni
og þeirri starfsemi sem grasrótin hefur verið að byggja
upp árum saman. Hollvinasamtökin sem ég fer fyrir í
Neskaupstað eru tíu ára á þessu ári. Við erum búin að
gefa mikla fjármuni og höfum þannig stuðlað að því að
sjúkrahúsið hefur fengið mikið af tækjum. Það á því að
vera vel í stakk búið til að sinna þjónustunni. Og þá sjáum við fram á það
núna í niðurskurðinum og tillögum ráðherra að það á að snúa öllu aftur á
bak. Það er sárt til þess að vita að fólk er að missa vinnuna á sama tíma og
uppbygging þjónustunnar við sjúkrahúsið og heilsugæslu á Austurlandi
hefur verið í mikilli sókn. Við treystum því að þær tillögur sem heilbrigð-
isráðherra hefur kallað eftir verði til þess að hann skraddarasaumi áform
sín og aðgerðir í samræmi við hvert sjúkrahús.“
Sigurður Rúnar
Ragnarsson
Undið ofan af starfi grasrótarinnar
4,7
milljarða niðurskurðarkrafa í heil-
brigðiskerfinu á næsta ári.
3
milljarða niðurskurðarkrafa í
heilbrigðiskerfinu úti á landi 2011.
‹ SAMDRÁTTUR ›
»