Morgunblaðið - 12.11.2010, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra lagði
hornstein að nýbyggingu Háskólans í Reykjavík
í Öskjuhlíð sem tekin var formlega í notkun í
gær. Hornsteinninn er fimm kílóa þungur loft-
steinn sem féll til jarðar í Suður-Ameríku fyrir
fjögur þúsund árum. Jón Gnarr borgarstjóri
kynnti fyrirhugað samstarf Reykjavíkurborgar,
HR og Skógræktarfélags Íslands um uppbygg-
ingu Öskjuhlíðarinnar til útiveru og almennings-
íþrótta. Sagðist hann sjá fyrir sér ræktun rósa,
berjarunna og kirsuberjatrjáa. Ari Kristinn
Jónsson, rektor HR, sagði að það væri vilji
stjórnenda skólans að byggingin myndi stækka
útivistarsvæðið og auka tækifæri borgaranna til
að njóta þess.
Fjögur þúsund ára loftsteinn lagður sem hornsteinn nýbyggingar Háskólans í Reykjavík
Morgunblaðið/Kristinn
Samvinna um að bæta aðstöðu í Öskjuhlíð
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Nafnbirting pilts. sem dæmdur var á
dögunum fyrir vörslu barnakláms, er
óeðlileg að mati umboðsmanns barna.
Ráðskona Femínistafélags Íslands
segir nafnbirtinguna skjóta skökku
við í ljósi þess að nafni dæms vænd-
iskaupanda er leynt á vefsíðu dóm-
stólsins og segir þessi vinnubrögð
skapa réttaróöryggi og óvissu.
Pilturinn, sem um ræðir, er 17 ára
gamall og er því barn, samkvæmt
barnaverndarlögum. Á vefsíðu hér-
aðsdómstóla er fullt nafn hans og
heimilisfang gefið upp.
„Við teljum það ekki vera eðlilegt
að birta nöfn barna í tengslum við
dómsmál, burtséð frá því broti sem
þau hafa framið. En því miður er
þetta ekkert einsdæmi,“ segir Mar-
grét María Sigurðardóttir, umboðs-
maður barna.
Mikið áhyggjuefni
Eitt af verkefnum umboðsmanns
barna er að bæta hag barna og ung-
linga og gæta þess að tekið sé tillit til
réttinda barna, þarfa og hagsmuna á
öllum sviðum samfélagsins. Margrét
María segir að nafnbirtingar barna í
tengslum við dómsmál, bæði brota-
þola og brotamanna, séu mikið
áhyggjuefni hjá embættinu.
„Þetta er mál sem við höfum verið
að vinna að. Við höfum verið í sam-
bandi við dómsmálaráð vegna þessa,“
segir Margrét María.
Nafnbirtingin hefur vakið spurn-
ingar og bent hefur verið á að nokkuð
skorti á jafnræði á þessu sviði.
Skemmst er að minnast umræðu um
nafnleynd manns sem sakfelldur var
fyrir vændiskaup fyrir skemmstu, en
meðal þeirra sem gagnrýndu nafn-
leyndina var Femínistafélag Íslands.
Vændiskaupendum hlíft?
Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunn-
arsdóttir, ráðskona hjá félaginu, segir
að nafnbirting piltsins hafi verið í
samræmi við réttarvenju í svipuðum
málum. „En úrskurðurinn um lokað
þinghald í máli vændiskaupenda virð-
ist vera byggður á mjög veikum
grunni og átti sér engin fordæmi. Það
er því skiljanlegt að við spyrjum okk-
ur í framhaldinu hvað þessi úrskurður
þýði. Þýðir þetta að vændiskaupend-
um verði sérstaklega hlíft vegna af-
brota sinna, eða að kynferðisafbrota-
mönnum eigi að vera sérstaklega hlíft
umfram aðra afbrotamenn?“ spyr
Hrafnhildur. Hún segir nafnleyndina
í vændiskaupendamálunum hafa ver-
ið illa rökstudda. „Í kjölfarið hefur
skapast ákveðið réttaróöryggi þar
sem ekki er hægt að treysta því að
dómstólar fylgi réttarvenju þar sem
þeir virðast geta vikið frá henni að
eigin geðþótta,“ segir Hrafnhildur.
„Óeðlilegt að birta nöfn barna“
Umboðsmaður barna mótfallinn nafnbirtingu brotamanna undir lögaldri Ráðskona Femínista-
félags Íslands segir nafnleynd vændiskaupenda illa rökstudda Misræmi skapar réttaróöryggi
Hrafnhildur S.
Gunnarsdóttir
Margrét María
Sigurðardóttir
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Niðurstöður samræmdra könnunar-
prófa í 10. bekk, sem tekin voru í
september, liggja fyrir. Prófað var í
þremur greinum; íslensku, stærð-
fræði og ensku. Um 4.000 nemendur
þreyttu prófin.
Meðaleinkunnin í ensku var 7,1, í
stærðfræði 6,5 og í íslensku 6,2. Þær
hafa hækkað í öllum þremur grein-
unum frá því í fyrra.
Samræmdu prófin í 10. bekk eru
svonefnd könnunarpróf. Á vefsíðu
menntamálaráðuneytisins segir að
megintilgangur þeirra sé að veita
upplýsingar um stöðu nemenda og
skapa þannig færi á að styðja við
nám þeirra áður en grunnskólanámi
lýkur. Einkunnum nemenda verður
skilað á rafrænu formi til skólanna,
sem síðan koma þeim til nemenda
sinna.
Sjöfn Þórðardóttir, formaður
Heimilis og skóla, segir að þótt búið
sé að breyta fyrirkomulagi og tíma-
setningu prófanna og að þau eigi
ekki að hafa áhrif á inntöku í fram-
haldsskóla, hafi þau engu að síður
mikil áhrif á líðan nemendanna.
Gera miklar kröfur til sín
„Við heyrum frá foreldrum að
krakkarnir gera miklar kröfur til
eigin frammistöðu,“ segir Sjöfn.
Niðurstöður samræmdra prófa
vekja gjarnan umræður um gæði
skólastarfs og ýmsar skýringar tínd-
ar til á mismunandi árangri lands-
hluta. „Ég held að það sé mikilvægt
að horfa á það jákvæða þegar við
fáum svona niðurstöður. Við ættum
að reyna að læra af því sem vel er
gert,“ segir Sjöfn. Hæsta meðaleink-
unn í öllum þremur greinunum var í
Suðvesturkjördæmi. Lægstu ein-
kunnirnar í íslensku og stærðfræði
voru í Suðurkjördæmi, en lægsta
einkunnin í ensku var í Norðvestur-
kjördæmi.
Algengasta einkunnin í íslensku
og stærðfræði er 7. Í ensku er al-
gengasta einkunnin 8,5, en rúm 13%
þeirra sem þreyttu prófið fengu þá
einkunn.
Sú einkunn sem fæstir fengu í ís-
lensku var einkunnin 10, en einn
nemandi á landinu fékk þá einkunn.
Nokkuð fleiri fengu 10 í stærðfræði,
eða 63 og 29 nemendur fengu 10 í
ensku. Sé normaldreifing einkunna
skoðuð eftir sveitarfélögum, kemur í
ljós að þær eru hæstar í Þingeyjar-
sveit en lægstar í Langanesbyggð og
Sandgerðisbæ.
Enskan kemur best út
í samræmdu prófunum
Einn fékk 10 í íslensku Hærri meðaleinkunnir en í fyrra
Framkvæmda-
stjórn Evrópu-
sambandsins hef-
ur samkvæmt
frásögn ABC
Nyheter neitað
Norðmönnum
um undanþágu
frá tilskipun
sambandsins um
innistæðutrygg-
ingar en norsk stjórnvöld vilja geta
veitt hærri innistæðutryggingar en
þar er gert ráð fyrir.
Norðmenn vilja veita tryggingar
fyrir allt að 2 milljónir norskra
króna, en framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins krefst þess að
tryggingin verð ekki hærri en 100
þúsund evrur, eða 800 þúsund
norskar krónur. Neitunin er byggð
á því sjónarmiði að meiri ábyrgð á
innistæðum í norskum bönkum
myndi skekkja samkeppnisstöðu á
milli ríkja á Evrópska efnahags-
svæðinu. Vísað er í breytingar sem
gerðar voru á regluverki Evrópu-
sambandsins um innistæðutrygg-
ingar og tóku gildi í janúar.
ABC-Nyheter bendir á að á sama
tíma og Michael Barnier, fram-
kvæmdastjóri innri markaða hjá
ESB, gefur Norðmönnum þessi
svör þá ætlist hann til þess að Ís-
lendingar tryggi innistæður í föllnu
íslensku bönkunum langt umfram
það sem kveðið er á um í tilskip-
uninni. una@mbl.is
ESB neitar Norð-
mönnum um inni-
stæðutryggingar
Höfuðstöðvar ESB
Í reglum dómstólaráðs um vef-
birtingar dóma segir að afmá
skuli atriði sem eðlilegt sé að
fari leynt „með tilliti til einka-
eða almannahagsmuna“.
Á vefsíðu ráðsins segir að
einn megintilgangur þess að
birta dóma sé að gefa hinum al-
menna borgara kost á að kynna
sér milliliðalaust dómsniður-
stöður í hinum ýmsu málum.
Tillit til einka-
hagsmuna
REGLUR DÓMSTÓLARÁÐS
Jól
í ILVA
©
IL
V
A
Ís
la
n
d
20
10
DEAR DEER.
8X11 CM. SNAGI POSTULÍN.
2.995,-
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30 s: 522 4500 www.ILVA.is