Morgunblaðið - 12.11.2010, Page 8

Morgunblaðið - 12.11.2010, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010 Jóni Gnarr Kristinssyni, borgar-stjóra, hefur tekist það ætl- unarverk sitt að verða mjög um- ræddur stjórnmálamaður. Einhverjir mundu jafnvel segja um- deildur.    Hann kvartarundan hluta þessarar athygli, en þó aðeins þeim hluta hennar sem snýst um gagnrýni á hann, verk hans eða verkleysi.    Jón telur sig starfa með allt öðr-um hætti en aðrir stjórnmála- menn, sem er að hluta til rétt, og þar með eigi hann ekki að þurfa að sæta samskonar gagnrýni og þeir, sem er alfarið rangt. Jón verður að sæta sama aðhaldi og allir aðrir valdamenn. Í því felst að hann þarf að sætta sig við gagnrýni.    Sú gagnrýni er ekki einelti, þó aðstundum megi skilja Jón sem svo sé, og hún er ekki heldur árás á persónu hans. Hún er nauðsynlegur hluti umræðu í lýðræðisríki.    Jón virðist hins vegar sjálfur verakunnáttumaður á sviði eineltis og persónuárása, ef marka má það sem sést hefur í tengslum við mynd sem hann lét gera til að lyfta sér upp og ýta öðrum niður.    Og hann kann fleira fyrir sér.Hann kann þá list að deila og drottna eins og sást þegar hann réðst á sjálfstæðismenn í borgar- stjórn, en hrósaði einum þeirra.    Jón Gnarr Kristinsson vill komafram sem sakleysislegur mein- leysingi, en getur verið að hann kunni margt fyrir sér í valdabar- áttu, líkt og talsmenn Besta flokks- ins hafa raunar haldið fram? Jón Gnarr Kristinsson Klækjastjórnmálin nýju STAKSTEINAR Veður víða um heim 11.11., kl. 18.00 Reykjavík -3 léttskýjað Bolungarvík -5 snjókoma Akureyri -2 snjókoma Egilsstaðir -1 snjókoma Kirkjubæjarkl. -1 skýjað Nuuk -2 léttskýjað Þórshöfn 6 súld Ósló -7 alskýjað Kaupmannahöfn 6 skýjað Stokkhólmur 1 léttskýjað Helsinki 2 súld Lúxemborg 3 skúrir Brussel 7 skýjað Dublin 8 léttskýjað Glasgow 7 skýjað London 10 skúrir París 11 skúrir Amsterdam 7 skúrir Hamborg 6 heiðskírt Berlín 7 skýjað Vín 8 skýjað Moskva 7 skýjað Algarve 18 heiðskírt Madríd 13 heiðskírt Barcelona 17 heiðskírt Mallorca 16 léttskýjað Róm 16 léttskýjað Aþena 20 skýjað Winnipeg 0 snjókoma Montreal 6 heiðskírt New York 8 heiðskírt Chicago 15 skýjað Orlando 25 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 12. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:47 16:38 ÍSAFJÖRÐUR 10:10 16:25 SIGLUFJÖRÐUR 9:53 16:07 DJÚPIVOGUR 9:21 16:03 Ungir piltar, 12 og 14 ára, hafa játað að hafa beint græn- um leysigeisla að Fokker-flugvél Flugfélags Íslands þegar hún var í aðflugi að Akureyrarflugvelli á þriðju- dagskvöld. Piltarnir voru í Vaðlaheiði, austan Akureyr- ar, þegar þeir lýstu að flugvélinni. „Þetta flokkast undir barnaskap og hugsunarleysi,“ sagði Gunnar Jóhannsson, lögreglufulltrúi í rannsókn- ardeild lögreglunnar á Akureyri. Ekki virðist sem pilt- arnir tengist öðrum tilkynningum fólks á Akureyri sem hefur verið upplýst með leysigeisla að undanförnu. Lögreglan lagði hald á tækið sem drengirnir notuðu. Gunnar sagði að það væri líkt og penni í laginu og knúið af rafhlöðu. Tækið er ekki ósvipað og leysibendar sem gjarnan eru notaðir í kennslu og við fyrirlestrahald, en miklu öflugra og langdrægara. Af umræðum á spjall- síðum á netinu að ráða virðist nokkur áhugi vera hér á landi fyrir svona tækjum. Þar kemur m.a. fram að grænn leysigeisli virki mun bjartari fyrir mannsaugað en rauð- ur geisli. Þá eru sum þessi tæki svo öflug að hægt er að nota þau til að sprengja blöðrur eða kveikja á eldspýtum. Gunnar sagði að tækið sem piltarnir voru með væri kraftmeira en miðað er við í reglugerð um leyfilegan búnað af þessu tagi og drægi miklu lengra en t.d. leysi- bendar sem notaðir væru við kennslu. Geislinn drægi a.m.k. nokkur hundruð metra. Hér er miðað við að slík tæki séu ekki aflmeiri en 5 mW en tæki piltanna var ná- lægt 55 mW. Gunnar sagði að tækið hefði verið keypt hér á landi. Hann taldi lítil hagnýt not fyrir svona bendi. Böndin beindust að drengjunum eftir ábendingar um staðsetningu ljóssins. Þeir viðurkenndu verknaðinn strax og höfðu ekki gert sér grein fyrir því hvað hann gat verið hættulegur. gudni@mbl.is Geislabendir Leysitæki af sömu gerð og drengirnir voru með í fórum sínum í Eyjafirði í vikunni. Voru að leika sér með leysinn Tómas Heiðar, þjóðréttarfræðingur utanríkisráðuneytisins, sem vann álit um lögmæti innrásarinnar í Írak fyrir Halldór Ásgrímsson, þáverandi utan- ríkisráðherra, í mars 2003, segir í minnisblaði að telja verði vafasamt að ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóð- anna númer 1441 geti talist mynda fullnægjandi lagalegan grundvöll til að beita vopnavaldi gegn Írak. Minnisblaðið er meðal skjala, sem utanríkisráðuneytið hefur birt um að- draganda innrásarinnar í Írak og yf- irlýsinga íslenskra stjórnvalda um stuðning við þær aðgerðir. Þar er m.a. að finna frásagnir erlendra fjölmiðla í aðdraganda stríðsins. Í minnisblaðinu, sem dagsett er 20. mars 2003, sama dag og innrásin hófst, segir að meginregla þjóðarrétt- ar sé sú, að lagt sé bann við að ríki beiti önnur ríki vopnavaldi. Tvær undantekningar séu frá þessu: Ríkj- um sé heimilt að beita vopnavaldi í sjálfsvörn og heimilt sé að beita vopnavaldi samkvæmt ákvörðun ör- yggisráðsins til að varðveita og koma aftur á heimsfriði og öryggi. Gera verði þá kröfu, að viðkomandi ákvörðun öryggisráðsins um beitingu vopnavalds sé skýr, afdráttarlaus og hafin yfir allan vafa. Í þessu ljósi verði að teljast vafasamt að ályktanir ör- yggisráðsins um Írak geti talist mynda fullnægjandi lagagrundvöll fyrir innrásinni. Orðalag ályktana ör- yggisráðsins um Írak sé óljóst vegna þess að það sé niðurstaða málamiðl- unar milli ríkja með ólíkar áherslur. Niðurstaðan sé með þeim hætti, að viðkomandi ríki telji sig geta túlkað orðalagið hvert á sinn hátt. Dró í efa lagagrund- völl innrásar í Írak Gísli Tryggvason, talsmaður neyt- enda, segist ekki sjá neina árekstra milli starfsins og fram- boðs síns til stjórnlagaþings. Hann hafi enda ráðfært sig við ráðherra áður en ákvörðun hafi verið tekin og hann hafi ekki gert neinar athugasemdir. Þegar Gísli bauð sig fram í próf- kjöri Framsóknarflokksins í Kópa- vogi í febrúar sl. tjáði hann sig ekki opinberlega um málefni embættisins á meðan. Hann segir að ólíku sé saman að jafna. Annars vegar flokkspólitískt prófkjör og hins veg- ar framboð, þar sem fjölmargir emb- ættismenn og opinberar persónur séu í framboði, en hann hafi ekki heyrt minnst á neina árekstra í því sambandi. „Ég hef alltaf reynt að gæta vel að hæfi mínu og forðast hagsmunaárekstra,“ segir hann. steinthor@mbl.is Engir árekstrar Gísli Tryggvason www. tengi.is GÆÐI,ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ - ÞAÐ ER TENGI STURTUHURÐIR 25% KYNNINGARAFSLÁTTUR MIKIÐ ÚRVAL AF FLOTTUM LAUSNUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.