Morgunblaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 14
BAKSVIÐ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fjögur mál tveggja íslenskra blaða- manna gegn íslenska ríkinu eru til meðferðar hjá Mannréttindadómstóli Evrópu. Dómstóllinn hefur veitt ís- lenska ríkinu frest til 16. febrúar 2011 til að skila inn at- hugasemdum vegna tveggja mál- anna og svara spurningum hans um það hvernig þau viðmið, sem beitt var við niður- stöðu í málunum, samræmast 10. gr. mannréttindasátt- mála Evrópu og hvort brýna nauð- syn hafi borið til að takmarka tjáning- arfrelsi blaðamannanna. Dómar fyrir meiðyrði Blaðamennirnir Björk Eiðsdóttir og Erla Hlynsdóttir hlutu dóma fyrir meiðyrði í umræddum málum. Björk vegna skrifa í Vikuna um nektarstað- inn Goldfinger í Kópavogi, en Erla vegna skrifa í DV um nektarstaðinn Strawberries í Reykjavík, skrifa um Helgu Haraldsdóttur, eiginkonu Guð- mundar Jónssonar í Byrginu, og skrifa um Rúnar Þór Róbertsson, höfuðpaur í svonefndu Papeyjar- smygli. Lögmenn Höfðabakka reka öll málin fyrir blaðamennina. Gunnar Ingi Jóhannsson hdl. segir að brotið hafi verið gegn rétti blaða- mannanna til að fjalla um viðkomandi mál og spyr hvort blaðamenn geti bú- ið við það að þurfa að taka ábyrgð á öllu sem viðmælendur hafi fram að færa. Þar sem Mannréttindadóm- stóllinn hafi fjallað um sambærileg mál hafi þótt ástæða til að láta reyna á þessi gömlu íslensku prentlög fyrir dómstólnum. Í Danmörku hafi sjón- varpsfréttamaður verið dæmdur til refsingar fyrir ummæli sem viðmæl- endur hans viðhöfðu í heimildarmynd um þjóðernissinnuð ungmenni. Mannréttindadómstóllinn hafi hins vegar komist að þeirri niðurstöðu að með því að gera blaðamanninn ábyrg- an væri verið að gera honum ókleift að vinna vinnuna sína og hamla tján- ingarfrelsi óeðlilega. Það gengi þvert á þau rök sem búa að baki 10. gr. mannréttindasáttmálans, sem vernd- ar meðal annars fjölmiðlafrelsi. Úrelt prentlög Gunnar Ingi bendir á að íslensku prentlögin séu að stofni til frá 1855. Konunglega tilskipunin um prent- frelsi sé ekki svo frábrugðin prentlög- unum sem sett voru um öld síðar. „Við teljum að þessi prentlög sam- rýmist ekki nútímahugmyndum um tjáningarfrelsi,“ segir hann. Mann- réttindadómstóllinn beini enda þeim spurningum til íslenska ríkisins hvort grunnrökum að baki 10. gr. mann- réttindasáttmálans hafi verið beitt í málunum en ekki bara almennum hegningarlögum frá 1940 og prent- lögum frá 1956. Tilvitnun í ákæruskjal Hæstiréttur hafnaði leyfi til áfrýj- unar í svonefndu Strawberries-máli og er því aðeins héraðsdómurinn til skoðunar hjá Mannréttindadómstóln- um. Dæmt var í máli Helgu meðan svonefnt Byrgismál var enn til rann- sóknar, en hún krafðist ómerkingar á 14 ummælum sem vörðuðu hennar þátt í kynlífsathöfnum Guðmundar og vistmanna Byrgisins. 13 þeirra fengu að standa en ein voru dæmd ómerk þar sem talið var að þau hefðu verið fallin til þess að hafa áhrif á æru og starfsheiður hennar. Rúnar Þór Ró- bertsson, sem sat í 18 mánuði í fang- elsi í Danmörku vegna dóms fyrir fíkniefnasmygl frá 2005, vildi ekki una því að vera kallaður kók- aínsmyglari en hann var síðan dæmd- ur í 10 ára fangelsi fyrir fíkniefna- smygl þremur mánuðum áður en niðurstaða meiðyrðamálsins lá fyrir. Engu að síður voru ummælin talin refsiverð aðdróttun í hans garð og hann fékk bætur. Gunnar segir að Erla hafi verið dæmd til að greiða bætur fyrir tvenn ummæli. Annars vegar fyrir orðið kókaínsmyglarar í fyrirsögn á forsíðu, sem hafi verið samin af ritstjóra blaðsins, og hins vegar fyrir lýsingu á því að Rúnar Þór hafi tekið smyglbifreiðina í sína vörslu í þeirri trú að kókaín væri falið í bifreiðinni. Þetta sé hins vegar til- vitnun í ákæruskjalið, sem saksókn- ari hafi samið. Rúnar Þór fékk gjaf- sóknarleyfi frá dómsmálaráðuneytinu til að sækja málið og var málsókn hans því rekin fyrir almannafé. Látið reyna á gömul ís- lensk prentlög fyrir dómi  Mannréttindadómstóll Evrópu skoðar fjögur íslensk mál Gunnar Ingi Jóhannsson Sekt » Björk Eiðsdóttir var sýknuð í héraðsdómi en Hæstiréttur gerði henni að greiða 500.000 kr. í sekt auk vaxta og máls- kostnaðar, samtals um 900.000 kr. » Erla Hlynsdóttir var sýknuð í héraðsdómi í máli Rúnars Þórs en hún hefur samtals verið dæmd til þess að greiða 1,5 milljónir kr. auk dráttarvaxta. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010 Á ENSKU OG DÖNSKU • Byggingafræði • Véltæknifræði • Byggingaiðnfræði • Markaðshagfræði • Byggingatæknifræði Á ENSKU • Tölvutæknifræði • Framleiðslutæknifræði • Útflutningstæknifræði • BS í Markaðsfræði Á DÖNSKU • Véltækni • Landmælingar • Vöruþróun og tæknileg sameining • Aðgangsnámskeið HJÁ VIA UNIVERSITY COLLEGE (VITUS BERING DENMARK) Í HORSENS BJÓÐUM VIÐ UPP Á MARGVÍSLEGA MENNTUN VIA UNIVERSITY COLLEGE Chr. M. Østergaards Vej 4 DK-8700 Horsens WWW.VIAUC.DK Tel. +45 8755 4000 Fax: +45 8755 4001 Mail: tekmerk@viauc.dk Í BOÐI ER: NÁM Í DANMÖRKU 02 02 3. 2 Fulltrúi skólans Johan Eli Ellendersen, verður á Íslandi: 12.11 -19.11.2010. Áhugasamir geta haft samband í síma 8458715. Leggið inn skilaboð og við munum hringja til baka. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Páll Magnússon útvarpsstjóri vill ekki tjá sig um uppsögn Þórhalls Jósepssonar fréttamanns en vísar til yfirlýsinga Óðins Jónssonar frétta- stjóra RÚV um málið. „Ég er sam- mála þeim og hef engu við þær að bæta,“ sagði Páll. Í yfirlýsingu Óðins í fyrradag kemur m.a. fram að hann telji að Þórhallur hafi „vegið að trúverðug- leika fréttastofu RÚV og því trausti sem þarf að ríkja á ritstjórn þessa mikilvæga fjölmiðils í almannaeigu“. Hann vitnar einnig til starfsreglna RÚV um að samþykki fréttastjóra sé forsenda þess að fréttamaður geti tekið að sér verkefni á borði við rit- un bókar. Þessar reglur er finna á innri vef RÚV og í handbók sem heitir „Fréttareglur og vinnuleið- beiningar fyrir starfsmenn frétta- stofu“. Þar segir m.a. í kafla um siðareglur og hagsmunaárekstra: „Fréttamönnum er óheimilt að vinna aukavinnu eða stök verkefni fyrir keppinauta Ríkisútvarpsins ohf. Hvað varðar önnur aukastörf á sviði fjölmiðlunar (svo sem vinnu fyrir blöð, tímarit, bókaútgáfur, námskeiðahald og kennslu) ber fréttamönnum að ráðfæra sig við fréttastjóra áður en þeir taka slík störf að sér. Fréttamenn skulu hafa í huga hagsmuni Ríkisútvarpsins og frétta- stofu Sjónvarps þegar þeir taka að sér slík störf. Leyfi til slíkra auka- starfa verður ekki veitt skaði þau eða geti skaðað möguleika frétta- stofunnar til gagnrýninnar fréttaöfl- unar, eða skapi óeðlileg tengsl við fyrirtæki, stofnanir, samtök eða ein- staklinga sem ætla má að fréttastof- an þurfi að fjalla um.“ Ekki tækifæri til málsvarnar Þórhallur Jósepsson sendi sam- starfsmönnum sínum á fréttastofu RÚV tölvubréf 26. október um að bók hans með frásögn Árna M. Mat- hiesen, fyrrverandi fjármálaráð- herra, væri væntanleg. Þar segi Árni frá reynslu sinni af efnahags- hruninu. Þórhallur kvaðst hafa hitt Árna á fjármálaráðstefnu sveitarfé- laga í fyrra og ýjað að því hvort hann vildi ekki skrifa bók um reynslu sína. Daginn fyrir gamlárs- dag hringdi Árni svo í Þórhall og kvaðst ætla að taka hann á orðinu og bað hann að annast ritunina. Þórhallur fór á fund Óðins frétta- stjóra í byrjun janúar og sagði að hann hygðist rita bók með fyrrver- andi ráðherra en nafngreindi ekki Árna. Hann segir ástæðuna þá að þá hafi margt verið óljóst varðandi bók- ina. Bæði hafi hann átt eftir að ræða betur við Árna og finna útgefanda. Sama dag og Þórhallur tilkynnti samstarfsmönnum um bókina fékk hann svar frá Óðni fréttastjóra. Þór- hallur telur að af því bréfi og ýmsu öðru megi ráða að málið snúist um hver ráðherrann fyrrverandi var. „Ég sé ekki betur en að það sé lykil- atriðið,“ sagði Þórhallur í samtali við Morgunblaðið. Þórhallur var kallaður á fund fréttastjóra 6. nóvember sl., tíu dög- um eftir að hann tilkynnti útgáfu bókarinnar. „Við vorum einir á fund- inum. Óðinn hafði hörð orð um að ég hefði brugðist trúnaði og farið á bak- við hann. Hann sagðist ætlast til þess að ég segði upp starfi mínu og afhenti mér bréf þess efnis. Ég sagðist ekki geta brugðist við því fyrirvaralaust,“ sagði Þórhallur. Hann fór því næst á fund mann- auðsstjóra RÚV sem sagði að hann ætti að segja upp starfi sínu eða að öðrum kosti gæti hann tekið sér tveggja mánaða launalaust leyfi. Þórhallur kvaðst ekki átta sig á til- ganginum með því. „Þegar ég óskaði eftir að fá skriflegt erindi um það var ekkert minnst á það meir,“ sagði Þórhallur. Hann segir að sér hafi aldrei verið gefinn kostur á að verja hendur sín- ar gegn þeim ávirðingum sem á hann voru bornar og leiddu til þess að honum var sagt upp störfum. Uppsögnin rædd á Alþingi Uppsögn Þórhalls var rædd á Al- þingi í gær, annan daginn í röð. Katrín Jakobsdóttir, mennta- málaráðherra, sagði þar að ekki væri eðlilegt að vera með miklar yf- irlýsingar um uppsögn Þórhalls Jós- epssonar úr starfi fréttamanns á Ríkisútvarpinu. Eðlilegt væri hins vegar að Alþingi ræddi um hvernig starfskjörum blaða- og fréttamanna væri háttað en þau geti verið við- kvæm í ótryggu starfsumhverfi fjöl- miðla. Virðist viðmælandinn lykilatriðið  Fréttamönnum RÚV ber að ráðfæra sig við fréttastjóra áður en þeir taka að sér verkefni á borð við bókaskrif  Menntamálaráðherra telur eðlilegt að Alþingi ræði um starfskjör blaða- og fréttamanna Morgunblaðið/Árni Sæberg Fréttamenn á RÚV Við borðið eru Broddi Broddason, Gunnar Gunnarsson, Þórhallur Jósepsson og Jón Guðni Kristjánsson. Friðrik Páll Jónsson stend- ur fyrir aftan Brodda. Myndin er tekin 2005. „Það gefur auga leið að starf- andi fréttamaður getur ekki átt í leynilegu trúnaðar- og starfs- sambandi við fyrrverandi ráð- herra við þær aðstæður sem á undan er lýst,“ segir m.a. í yfir- lýsingu Óðins Jónssonar, frétta- stjóra RÚV. Þar vísar hann m.a. til þess að oft hafi verið fjallað um Árna M. Mathiesen í fréttum og þáttum á vegum RÚV þegar ritun bókarinnar stóð. Einnig hafi Árni hugsanlega átt yfir höfði sér að vera kallaður fyrir landsdóm. Leynilegt samband MIKIÐ FJALLAÐ UM ÁRNA MEÐAN BÓKIN VAR RITUÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.