Morgunblaðið - 12.11.2010, Side 16

Morgunblaðið - 12.11.2010, Side 16
FRÉTTASKÝRING Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Samgönguráðuneytið kynnti nýverið drög að frumvarpi til laga um landslénið .is, og „önnur höfuðlén sem sérstaka skírskotun hafa til Ís- lands.“ Samkvæmt frumvarpinu verður rekstur skráningarstofu léna undir höfuðléninu .is leyf- isskyldur, og kemur til með að svara til Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS), hverri stofan greiðir rekstrargjald, alls 7,6% af ársveltu. Rekstur landslénsins, sem er svokallað höf- uðlén, hefur hingað til verið í höndum Internets á Íslandi hf. (ISNIC) og fyrirrennara þess. ISNIC hefur jafnframt umsjón með skráningu léna und- ir landsléninu, þ.e.a.s. lén sem hafa endinguna „.is,“ en mbl.is er dæmi um slíkt. Fyrirtækið heldur utan um, og veitir, upplýsingar um rétt- hafa og tengiliði léna annars vegar, og tæknilegar upplýsingar um skráningu þeirra hins vegar. Án tæknilegra upplýsinga um skráningu léna gætu internetþjónustuaðilar ekki tengst þeim, og þau því í raun ekki lengur „á netinu.“ Einkarekstur færður undir ríkið ISNIC er skráningarstofa í skilningi hins nýja frumvarps. Fyrirtækið er raunar hið eina sinnar tegundar á landinu, enda tæknilega ómögulegt að fleiri en einn nafnaþjónn höfuðléns séu starfræktir á sama tíma. Jens Pétur Jensen, framkvæmdastjóri ISNIC, gerir alvarlegar at- hugasemdir við frumvarpsdrögin, sem kynnt voru í lok síðustu viku. Verði frumvarpið sam- þykkt á Alþingi sé í raun verið að setja lög á eitt fyrirtæki. „Við þurfum að sækja um leyfi til að fá að gera það sem við höfum verið að gera í tuttugu ár.“ Hið boðaða rekstrargjald sé jafnframt rang- nefni. „Það erum við sem rekum kerfið. Ef eitthvað á að heita rekstrargjald þá væri það árgjaldið á lénunum. Á meðan þarfirnar fyrir gjaldið eru ekki nákvæmlega skilgreindar, og hvað það er sem á að gera, er þetta ekkert annað en hreinn skattur,“ segir Jens. Hann segir hugmyndina að gjaldinu runna frá PFS. Um sé að ræða áætlaðan kostnað stofnunarinnar við að hafa eftirlit með starfsemi skráningarstofu. Lausleg áætlun bend- ir til þess að ISNIC verði þannig gert að greiða hátt í 20 milljónir á ári, sem er meginþorri hagn- aðar félagsins. Þetta yrði jafnframt einn stærsti útgjaldaliður þess, og tefldi uppbygg- ingu og vexti fyrirtækisins mjög í tvísýnu. „Það er mikilvægt að átta sig á því að .is er líka lén,“ segir Jens, en hann er stjórnunarlegur tengiliður þess sem framkvæmdastjóri ISNIC. Maríus Ólafsson, stundum nefndur „fað- ir internetins“ á Íslandi, er tæknilegur tengiliður fyrir lénið. „Frumvarpið má skilja þannig að PFS ætli að yfirtaka bæði þessi hlutverk. Ætla þeir þá að skilja ISNIC eftir með skyldurnar, en enga ábyrgð? Þetta er ábyrgð sem við tökum gríðarlega alvarlega. Þetta er það sem við kunnum og gerum og rækjum vel. En þetta er það sem á að ráðast að núna.“ Tæknilegir vankantar á frumvarpinu Alvarlegar athugasemdir hafa verið settar fram við tæknilega hlið frumvarpsins og útfærslu eftirlits, meðal annars með „öryggi á vef- svæðum.“ Af nágrönnum okkar hafi Danir einir sett jafn víðtæka löggjöf, og það af illri nauðsyn þar sem landslénið .dk hafi verið svo gott sem „ónýtt“ vegna fjölda óöruggra léna. Jens leggur á það áherslu að innihald vefsvæða, til að mynda á heimasíðum, hafi ekki með hina eiginlegu léna- skráningu að gera. Jens segir að greinargerðin með frumvarp- inu, sem sé að miklu leyti byggð á „skólaritgerð“ sem skrifuð hafi verið við lagadeild Háskóla Ís- lands, lýsi vanþekkingu á viðfangsefninu. Í grein- argerðinni sé til að mynda talað um lén sem tak- markaða auðlind. Raunin sé hins vegar sú að lén sé hægt að framleiða í takmarkalausu magni. Hann segir jafnframt erfitt að sannreyna það hvort lén hafi skírskotun til Íslands eða ekki, líkt og krafa er gerð um. Vanþekkingin sem birtist í greinargerðinni valdi sér áhyggjum. Hann segist þó ekki leggjast alfarið gegn lagasetningu. „Það er ýmislegt gott í þessu, og ég vona að það verði bara eftir góðir hlutir í frumvarpinu þegar það hefur fengið þinglega meðferð. En núna eru þarna inni hlutir sem myndu gera ástandið verra.“ Umsjón lénamála verði færð undir hið opinbera  Frumvarp „gerir ástandið verra“ en nú er, segir framkvæmdastjóri ISNIC Morgunblaðið/Golli Skrifstofur ISNIC eru á 17. hæð turnsins við Höfðatorg. Starfsemin var áður í húsakynnum Háskóla Íslands. Starfsmenn fyrirtækisins eru uggandi vegna þeirrar óvissu sem frumvarpsdrögin valda. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010 Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega hafið samband á skrifstofutíma í síma 551 4349 eða á netfangið maedur@simnet.is. Einnig er hægt að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119. Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það fer ekki saman að vera fastur pistlahöfundur á Ríkisútvarpinu og að gegna um leið sama hlutverki á flokkspólitísku málgagni,“ sagði Páll Magnússon útvarpsstjóri. Hann var spurður hvers vegna Ríkis- útvarpið hefði afþakkaði pistla- flutning Láru Hönnu Einarsdóttur, bloggara og baráttukonu, í Morgun- útvarpi Rásar 2 nýverið. Lára Hanna hefur m.a. fjallað um uppsögnina í bloggi á vefmiðlinum Eyjunni. Hún kveðst hafa verið búin að flytja pistla í morgunþætti Rásar 2 í tæplega hálft annað ár þegar henni var tilkynnt nýlega að ekki væri óskað eftir fleiri pistlum frá henni. Ástæðan sem henni var gefin var sú að hún ritaði einnig pistla í vefritið Smuguna. Á Smugunni kemur fram að vefurinn sé „kostað- ur af Vinstrihreyfingunni – grænu framboði og fjölmörgum ein- staklingum.“ Lára Hanna segir frá því að um- sjónarmaður Morgunútvarpsins hafi m.a. bent henni á að með pistla- skrifum á Smugunni gæti hún verið bendluð við Vinstrihreyfinguna – grænt framboð. Páll útvarpsstjóri sagði að Ríkis- útvarpið hefði ekki lagt efnislegt mat á pistla Láru Hönnu á Smug- unni. Málið snerist ekki um pistlana sem slíka heldur það að Lára Hanna hefði samtímis skrifað fyrir flokks- pólitískt málgagn, þar sem Smugan væri, og Ríkisútvarpið. Hann benti á að RÚV hefði aldrei hreyft neinum athugasemdum við pistlaskrif Láru Hönnu á vefmiðlinum Eyjunni. „Við teljum það ósamrýmanlegt að vera fastur, launaður pistlahöf- undur á Ríkisútvarpinu og að gegna á sama tíma sama hlutverki á flokkspólitísku málgagni, meira hef ég ekki um þetta að segja,“ sagði Páll. Ósamrýmanleg hlutverk  Launuðum pistlahöfundi hjá Ríkisútvarpinu var sagt upp vegna pistlaskrifa á sama tíma í flokkspólitískt málgagn Lára Hanna Einarsdóttir Páll Magnússon Samkvæmt rannsókn tölvuöryggisfyrirtæk- isins McAfee eru lén með endinguna .is meðal þeirra sem öruggust eru á netinu. Könnunin, sem gerð var árið 2009, leiddi það í ljóst að einungis voru 0,3% líkur á því að netnotandi lenti á .is-léni sem ógn- aði öryggi hans, t.a.m. hvað varðaði tölvuvírusa, líkur á óumbeðinni skráningu á tölvupóstlista og þar fram eftir götunum. Höfuðlénið .is er þannig meðal þeirra öruggustu í heimi. Verst er ástandið á höfuðlén- inu .cm, sem er landslén Kamer- ún. Þar var öryggi notanda ógnað á 36,7% léna. Höfuð- lénið .com fylgir þar fast á hæla, með hlutfallið 32,2%, eða rétt tæp- an þriðjung léna. Höfuðlén Kín- verja, .cn, vermir svo þriðja sætið listans með 23,4%. .is meðal örugg- ustu höfuðléna ÖRYGGI Á NETINU „Með leyfisskyldu er eftirlits- hlutverk stjórnvalda tryggt og þannig unnt að fylgjast með og setja skilyrði í leyfi sem tryggja rekstur þjónustunnar,“ segir Sig- urbergur Björnsson, skrifstofu- stjóri í samgönguráðuneytinu um kveikjuna að því að ráðist var í frumvarpsgerðina. Sigurbergur tekur fram að með því sé ekki verið að segja að léna- mál hér á landi séu í ólestri, og .is sé eitt öruggasta lénið í heimi. Þrátt fyrir það sé „nauðsynlegt að hafa lög um þessi mál.“ Hann seg- ir sjaldgæft að landslén séu í einkarekstri án tengsla við stjórn- völd. Þess vegna sé reksturinn færður undir almennt regluverk fjarskiptafyrirtækja í frumvarp- inu. Hann segir greinargerðina með frumvarpinu skrifaða af „sér- fræðingum ráðuneytisins, en eins og jafnan þegar greinargerðir lagafrumvarpa eru skrifaðar þá leita sérfræðingar víða fanga.“ Hann leggur áherslu á að drögin séu enn í opnu samráði. Nauðsynlegt að hafa lög Málin ekki í ólestri „Ákveðinn hluti þeirra sem láta sig internetið varða er þeirrar skoðunar að int- ernetið hafi bara staðið sig býsna vel og geti gert það áfram án að- komu opinberra stjórnvalda. Um þetta eru svo sem skiptar skoð- anir. En þetta er skoðun ís- lenskra stjórnvalda, enda verður að horfa til þess að internetið er allt annað þjóðfélagsafl en það var fyrir 25, eða bara 10 árum,“ segir Hrafnkell V. Gíslason, for- stjóri Póst- og fjarskiptastofn- unar. Rekstrargjald skráningar- stofu mun renna til PFS og standa straum af kostnaði við eft- irlitið. Hrafnkell segir þekkingarupp- byggingu þurfa að eiga sér stað hjá stofnuninni, og leitað verði utanaðkomandi aðstoðar fyrsta kastið. „En að lokum þarf það að vera þannig að eftirlitsaðilinn geti haft sjálfstæða skoðun á því, vonandi í góðu samstarfi við alla markaðsaðila, hvað er skyn- samlegast og heppilegast og horf- ir til góðrar reglu á þessum markaði.“ Uppbygging nauðsynleg Hrafnkell V. Gíslason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.