Morgunblaðið - 12.11.2010, Síða 21

Morgunblaðið - 12.11.2010, Síða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010 Undur og stórmerki Finnbogi Pétursson myndlistarmaður rak upp stór augu í gær þegar hann sá hornstein nýbyggingar Háskólans í Reykjavík, en hornsteinninn er hluti af risastórum loftsteini sem féll til jarðar í Suður-Ameríku fyrir 4.000 árum. Það er ekki á hverjum degi sem menn fá að líta slík undur augum og því skal engan undra að augu manna hafi staðið á stilkum. Kristinn Trúlega eru allir sam- mála um að Sádi-Arabía eigi mikinn auð í olíu- lindum sínum. Sennilega dettur engum í hug að þeir vilji láta þær af hendi, síst af öllu fyrir það eitt að fá að ganga í einhver samtök ríkja. En hvað er olíuauður Sádi-Araba mikill? Ef við notum einfaldan mæli- kvarða nam útflutningur þeirra á olíu í fyrra (2009) 6.500 Banda- ríkjadollurum á hvert mannsbarn. Íbú- arnir eru 26 milljónir svo að þetta er mik- ill auður. En hvað eru auðlindir Íslands miklar? Útflutningur sjávarafurða frá Íslandi nam 5.000 Bandaríkjadollurum á hvern Íslending í fyrra. Heldur minna en olíu- útflutningur Sádi-Arabíu. Og þá er eftir hin auðlindin, orkan. Út- flutningur á framleiðslu orkufreks iðn- aðar frá Íslandi í fyrra nam yfir 6.000 dollurum á mann. Samanlagt er útflutn- ingur af auðlindum okkar því um 11 þús- und dollarar á mann, á móti 6500 dollara útflutningi Sádi-Araba á sama ári. Nú koma sjálfsagt margir og segja Já en … já en … hagtölur eru aldrei alger- lega sambærilegar, en þetta ætti að nægja til að menn skilji hversu risavaxin auðæfi við eigum og hversu mikilvægt er að gæta þeirra. Það er undirstaða allrar velsældar í okkar landi að láta þær ekki af hendi til erlendra spekúlanta, eins og byrjað er að gera, fyrir skammtímahags- muni einhverra misviturra eigenda. Það var merkilegt að hlusta á Michel Rocard, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands, í Silfri Egils um fyrri helgi. Hann er nógu aldraður og lífsreyndur til að tala tæpitungulaust. Hann sagði um Evrópusambandið: „Í hvert skipti sem land gengur í ESB missir það eitthvað. Frakkland missti vald yfir fiskveiðum sínum, þegar það gekk í sambandið. Stundum eru fiskimenn okkar óánægðir. Þeir þurfa að hliðra til gagnvart Spán- verjum, sem eru mikil fiskveiðiþjóð, og Englendingum líka. En það er skárra en að vera einn og einangraður.“ Rocard hafa ekki verið ljósar þær hagstærðir, sem hér um ræðir. Hann er svo reyndur maður að hann veit að ekkert ríki er einangrað, sem á auðlindir. Fiskur og orka seljast. Hætta er á ferðum. Þeg- ar rætt er um ESB og fisk- veiðar Íslendinga segja margir að enginn vandi verði að semja um það. Ætl- um við að fara að semja um að láta af hendi auðlind, sem nálgast olíuna í Sádi-Arabíu, og fá í staðinn að ganga í Evrópusambandið? Ég ráðlegg öllum, sem um þessi mál hugsa, að fletta upp í sáttmála Evrópu- sambandsins, The Consolidated Version of the Treaty on the Functioning of the European Union, Article 3, 1-D. Þar seg- ir að Evrópusambandið hafi exclusive competence, eða full yfirráð yfir líf- rænum auðlindum hafsins samkvæmt sameiginlegri fiskveiðistefnu sambands- ins. Þetta er síðan áréttað í Article 4, 2-D. Þetta þýðir að sambandið ræður því eitt og sér, án samráðs, hver heildarafli er og ræður þar með öllu sem máli skiptir um fiskveiðar. Vill einhver fara að semja frá sér hagsmuni, sem nálgast olíuna í Sádi-Arabíu? Íslenskir stjórnmálamenn hafa þegar stigið fyrsta skrefið í að selja orkufyrir- tæki úr landi, án þess að ríkisstjórnir hafi skipt sér af því. Er ekki kominn tími til að hugsa sig um? Eftir Ólaf Sigurðsson » Íslenskir stjórn- málamenn hafa þegar stigið fyrsta skrefið í að selja orkufyrirtæki úr landi, án þess að ríkis- stjórnir hafi skipt sér af því. Er ekki kominn tími til að hugsa sig um? Ólafur Sigurðsson Höfundur er fyrrverandi fréttamaður á Sjónvarpinu. Myndi Sádi-Arabía láta af hendi olíulindirnar? Í vikunni var dreift á Alþingi svari fjár- málaráðherra við fyrirspurn minni um samkomulag Seðlabanka Íslands við Seðlabankann í Lúxemborg um kaup á útistandandi skuldabréfum Avens B.V. sem voru í eigu Landsbankans í Lúx- emborg. Í maí sl. tók Seðlabankinn f.h. ríkissjóðs, yfir stjórn félagsins og leysti það upp. Eignir félags- ins voru íbúðabréf, ríkisbréf og reiðufé, samtals að andvirði 128,5 milljarðar sem runnu til ríkisjóðs. Andvirði íbúða- bréfanna og ríkisbréfanna nam 85 milljörðum kr. og reiðufjár 43,5 milljörðum kr. Í frumvarpi til fjárlaga 2011 kemur fram að ríkissjóður greiddi fyrir Avens B.V með skuldabréfi að fjárhæð 64 milljarða kr. (402 milljónir evra) til 15 ára og með reiðufé í evrum og íslenskum krónum. Í 2. mgr. 1. gr. laga nr. 36/200, um Seðlabanka Íslands kemur fram að ríkissjóður beri ábyrgð á öll- um skuldbindingum bankans. Meðal eigna Avens B.V. voru skuldabréf gefin út af Íbúðalána- sjóði fyrir um 76,1 milljarða kr. á markaðsverði. Meirihluti skulda- bréfa Íbúðalánasjóðs er með lokagjalddaga 2034 og 2044. At- hygli vekur að engar af eignum Avens B.V. eru með tengingu við gengisvísitölu. Það gefur vís- bendingar um að erlendar lána- stofnanir hafi ekki litið á slík lán sem trygg veð – enda var ljóst 2001 að binding við geng- isvísitölu stæðist vart lög – tíu skiptin við lífeyrissjóðina sem jók gjaldeyrisforðann um 17%.“ Þessi yfirlýsing er afar sér- kennileg því staðreyndirnar eru þessar: Ríkissjóður greiddi fyrir Avens B.V, m.a. með skuldabréfi að fjárhæð 66 milljarða kr. (402 milljónir evra) til 15 ára en áformað er að ríkissjóður veiti fénu áfram í formi láns til Seðla- banka Íslands. Ekki er litið svo á að um fjárfestingu sé að ræða hjá ríkissjóði heldur aukningu á gjaldeyrisforða Seðlabankans og endurskipulagningu á skuldum. Samtals jókst gjaldeyrisforði Seðlabankans um 77 milljarða kr. (512 milljónir evra), sem líf- eyrissjóðirnir ætla að bera uppi með sölu á erlendum eigum sín- um. Það er því köld staðreynd að með þessum gjörningi er verið að þjóðnýta erlendar eigur 26 líf- eyrissjóða sem eru alfarið í eigu almennings. Það er stefna AGS, þar sem hann starfar, að koma skuldum einkabankanna yfir á almenning. Sumir myndu kalla þetta sjónarspil „tæra snilld“. Kaup Framtakssjóðs lífeyr- issjóðanna á Vestia, dótturfélagi Landsbankans, fyrir tæpa 20 milljarða er efni í aðra grein, en Landsbankinn sálugi á svo sann- arlega hauk í horni þar sem líf- eyrissjóðirnir eru annars vegar. dögum eftir þessi kaup dæmdi Hæstiréttur lánin ólögleg. Rík- issjóður yfirtók reiðufé að mark- aðsvirði 45 millj- arða við þessi „kaup“ sem nýtt var til kaupa á íbúðabréfum Íbúðalánasjóðs af Seðlabankanum. Með þeim gjörn- ingi voru íbúðabréf Íbúðalánasjóðs komin í eigu rík- isins að upphæð 121 milljarður króna. Þann 30. maí selur Seðlabank- inn, fyrir hönd ríkisjóðs, síðan 26 lífeyrissjóðum öll íbúðabréf sem ríkissjóður hafði eignast vegna þessara viðskipta að jafnvirði um 87,6 milljarða kr. miðað við skráð kaupgengi 28. maí 2010. Bréfin voru seld á fastri 7,2% ávöxtunarkröfu. Samkvæmt samkomulaginu munu lífeyr- issjóðirnir selja erlendar eignir sínar og greiða fyrir bréfin í evr- um og hafa sjóðirnir heimild fram til 15. desember nk. til að fullnusta samkomulagið. Ávöxt- unarkrafa lífeyrissjóðanna er nákvæmlega sá „afsláttur“ sem lífeyrissjóðirnir fengu af þessum yfirfærslum að upphæð 33,4 milljarða miðað við að innheimta íbúðabréfanna verði 100%. Því er ljóst að lífeyrissjóðirnir líta svo á að ekki verði farið í af- skriftir á lánum Íbúðalánasjóðs nema fullt ríkisframlag komi á móti. Í lok svars fjármálaráðherra segir: „Með samkomulaginu í Lúxemborg náðist að lækka skuldastöðu þjóðarbúsins um meira en 3,5%, erlendar krónu- eignir lækkuðu um fjórðung og grunnur var settur fyrir við- Eftir Vigdísi Hauksdóttur » Það er því köld staðreynd að með þessum gjörningi er verið að þjóðnýta er- lendar eigur 26 lífeyr- issjóða sem eru alfarið í eigu almennings. Vigdís Hauksdóttir Höfundur er lögfræðingur og þingmaður Framsóknarflokksins í Reykjavík. Flétta Seðlabankans, Landsbankans sáluga og lífeyrissjóðanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.