Morgunblaðið - 12.11.2010, Síða 24

Morgunblaðið - 12.11.2010, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010 ✝ Hekla Árnadóttirfæddist á Ak- ureyri 7. september 1922. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 1. nóvember síð- astliðinn. Hekla var 10. í röð 12 systkina sem komust á legg, börn hjónanna Jónínu Gunnhildar Friðfinns- dóttur, húsfreyju, f. 8.9. 1885 að Atl- astöðum í Svarf- aðardal, d. 28.12. 1969, og Árna Stef- ánssonar, trésmíðameistara, f. 8.6. 1874, að Gestsstöðum í Fáskrúðs- firði, d. 16.6. 1946. Systkini Heklu voru: 1. Anna Kristín, f. 7.4. 1908, d. 8.3. 1987. 2. Eðvarð Fritz, f. 12.7. 1909, d. 26.7. 1970. 3. Guðrún, f. 17.8. 1910, d. 15.6. 1903. 4. Sigríður, f. 22.9. 11, d. 23.2. 1925. 5. Guðmundur, f. 24.12. 1912, d. 4.4. 1992. 6. Friðfinnur, f. 5.9. 1915, d. 30.9. 1999. 7. Kol- beinn, f. 21.9. 1916, d. 4.10. 1974. 8. Aðalheiður, f. 20.2. 1919, d. 13.1. 2003. 9. Stefán, f. 14.4. 1920, d. 4.10. 2009. 10. Ingólfur, f. 5.8. 1924, d. 26.8. 2004. 11. Sigurbjörn, f. 18.9. 1927. Hekla giftist 2.1. 1947, Geir Guð- 28.11. 1951. Þau slitu samvistum. Synir þeirra eru: A. Daði, f. 9.2. 1977, kvæntur Guðrúnu Jóns- dóttur, f. 18.8. 1980. Þau eiga 2 syni. B. Kári, f. 13.10. 1982. 3. Guðrún f. 2.4. 1957, gift Jóni Frið- riki Jóhannssyni, f. 28.11. 1957. 4. Börn þeirra: A. Kolbeinn, f. 23.7. 1980, sambýliskona, Klara Karls- dóttir, f. 25.4. 1980, dóttir hennar er Ásdís Davíðsdóttir, f. 9.12. 1997. B. Jóhann Geir, f. 28.10. 1982. C. Hekla f. 2.5. 1990. Hekla ólst upp í foreldrahúsum, að Gránufélagsgötu 11 á Akureyri. Eftir gagnfræðapróf fór hún sem barnfóstra til Kaupmannahafnar. Hún var ein þeirra sem komust heim til Íslands með síðustu ferð farþegaskipsins Esju sem fór frá Petsamó á vormánuðum 1940. Þegar heim kom settist hún á skólabekk og lærði hattagerð í Iðnskólanum í Reykjavík, þaðan sem hún útskrifaðist 1943. Vann síðan við þá iðn m.a. hjá Hattabúð Soffíu Pálma. Í frístundum stund- aði Hekla handbolta með Ármanni og frjálsar íþróttir. Þar náði hún þeim árangri að verða bæði Ís- landsmeistari í handbolta með liði sínu og í 80 metra hlaupi. Hekla og Geir bjuggu nær allan sinn bú- skap að Laugarásvegi 51. Útför Heklu fer fram frá Ás- kirkju í dag, 12. nóvember 2010, og hefst athöfnin kl. 13. mundssyni, launafull- trúa hjá Reykjavík- urborg. Foreldrar hans voru Margrét Hinriksdóttir frá Orrastöðum í Svína- dal, kennari og versl- unareigandi, f. 6.10. 1892, d. 19.3. 1963 og Guðmundur K. Ög- mundsson frá Bola- fæti í Hrunamanna- hreppi, málara- og gifsmeistari, f. 29.7. 1888, d. 20.5. 1952. Geir og Hekla eign- uðust þrjú börn. 1. Margrét f. 27.4. 1951, gift Gesti Jónssyni, f. 27.10. 1950. Börn þeirra: A. Hólmfríður f. 7.6. 1973, gift Sigurði Njarðvík Þorleifssyni, f. 25.7. 1973. Þau eiga 2 dætur. B. Geir f. 23.1. 1978, sam- býliskona hans er Helga Hauks- dóttir, f. 27.9. 1978. Þau eiga 2 syni. C. Jón Skafti, f. 18.9. 1981, sambýliskona hans er Joanna Ewa Dominiczak, f. 14.6. 1985. Þau eiga 1 dóttur. D. Árni, f. 4.10. 1989, unnusta hans, Andrea Bára Stef- ánsdóttir, f. 6.11. 1989. 2. Árni Jón, f. 13.8. 1952, sambýliskona hans er Sigríður Þórdís Valtýs- dóttir, f. 22.8. 1966. Var kvæntur Fanneyju Friðbjörnsdóttur, f. Hún Hekla, tengdamóðir mín, var falleg kona. Dökk yfirlitum, grönn og snaggaraleg. Brosið var einlægt og náði til augnanna. Á yngri árum hljóp hún hraðar en aðrir. Varð m.a. Íslandsmeistari í 60 m hlaupi. Hekla var frá Akureyri. Hún var úr hópi fjórtán barna Árna Stefáns- sonar, trésmíðameistara og Jónínu Friðfinnsdóttur, húsmóður. Systkin- in fæddust á tuttugu ára tímabili. Tvö dóu í bernsku en tólf komust til fullorðinsára. Hann var því þétt set- inn bekkurinn á heimilinu við Gránufélagsgötu. Við slíkar aðstæð- ur lærist tillitssemi sem var ríkur kostur í fari Heklu. Ég tók að venja komur mínar í stóra húsið við Laugarásveginn á menntaskólaárunum. Leist vel á Möggu, skólasystur mína, sem þar bjó. Í húsinu ríkti höfðinginn Geir og hélt húsaga. Í fyrstu held ég að ferð- ir mínar hafi ekki fallið að regluverki hans. Smám saman voru reglurnar rýmkaðar. Þar held ég að Hekla hafi átt hlut að máli. Hún vissi að strák- urinn var ættaður að norðan og pabbi hans hafði verið í mat hjá mömmu hennar tvo vetur þegar hann var við nám í Menntaskólanum á Akureyri. Hún hafði orð móður sinnar fyrir því að kostgangarinn væri ágætis maður. Af sömu ástæðu leist föður mínum ágætlega á ráða- haginn. Matmóðirin hafði reynst honum vel og hann taldi góðar líkur á að reynsla mín af afkomendum hennar yrði góð. Þar hafði hann rétt fyrir sér eins og oft áður. Ég held að tengdamóðir mín hafi átt góða ævi. Hún giftist Geir Guð- mundssyni, fyrrverandi launafull- trúa hjá Reykjavíkurborg. Geir og Hekla voru samhent hjón. Þau eign- uðust þrjú börn Margréti, bóka- safnsfræðing, Árna Jón, lækni og Guðrúnu, hárgreiðslumeistara. Barnabörnin eru níu og barnabarna- börnin fimm. Hekla var bóngóð og vil ég þakka henni alla aðstoðina sem hún veitti okkur Möggu við að koma börnum okkar á legg. Fyrir nokkrum árum fór að bera á minnisglöpum hjá Heklu. Smám saman tók sjúkdómurinn völdin og sú glæsilega kona sem tengdamóðir mín var gaf eftir. Geir reyndist Heklu betri en enginn í veikindum hennar. Ást hans og umhyggja fyrir Heklu var aðdáunarverð. Börn þeirra sinntu móður sinni af ástúð þessi erfiðu ár sem og starfsfólkið á Eir sem sinnir erfiðu starfi af mikilli prýði. Ég bið góðan Guð að geyma tengdamóður mína. Gestur Jónsson. Með örfáum orðum langar mig að minnast tengdamóður minnar, Heklu Árnadóttur. Það var veturinn 1974 sem okkar kynni hófust þegar ég fór að venja komur mínar á Laug- arásveginn til að hitta dóttur henn- ar, hana Gunnu mína. Það var með ólíkindum þá strax hvað mér fannst hún yndisleg kona, það var svo mikil hlýja og væntumþykja sem ég fann fyrir strax frá fyrsta degi. Eftir því sem árin liðu sannreyndi ég þessa tilfinningu gagnvart henni og er óhætt að segja, að að öllum ólöst- uðum þá var hún Hekla eitt kær- leiksblóm sem engum illt vildi. Við hjónin urðum þeirrar gæfu að- njótandi að búa um árabil í sama húsi og tengdaforeldrar mínir að Laugarásvegi 51, á þeim árum kynntist ég henni Heklu kannski mun betur en ella hefði orðið. Þau voru ófá kvöldin sem hellt var uppá kaffi og skrafað um heima og geima, gamlar minningar rifjaðar upp frá æskuárum hennar á Akureyri, sem hún talaði oft um með ákveðnum söknuði. Enda ekki von á öðru þar sem hún ólst upp í foreldrahúsum í Gránufélagsgötu ásamt öllum sínum systkinum og það var víst æði oft mikið fjör á bænum þegar bræðurn- ir voru að ærslast og systurnar að fylgjast með og hafði hún frá mörgu að segja. Ég minnist þess með hlýju þegar ég lenti í óhappi og þurfti að vera rúmliggjandi heima á Laugarásveg- inum en þá var gott að eiga tengda- mömmu á efri hæðinni sem hjúkraði mér fyrstu vikurnar. Hún bjó lengi að því að hafa verið í íþróttum á sín- um yngri árum þar sem hún stund- aði bæði spretthlaup og handknatt- leik og var þar í fremstu röð. Það kom henni mjög til góða eftir að hún greindist með hjartalokugalla og þurfti að fara í tvær stóra aðgerðir þess vegna. Hún var alltaf létt á fæti og kvik í hreyfingum þannig að eftir var tekið. Hekla starfaði um árabil á leikvöllum Reykjavíkurborgar og hafði mikið yndi af. Hún eignaðist stóran hóp barnabarna sem öll nutu hennar návistar og hlýju. Það var síðan Alzheimer-sjúk- dómurinn sem smám saman tók hana til sín, en nú þegar ég sit hér og hugsa til baka þá er ekki hægt annað en að þakka fyrir það hvað hún virt- ist vera glöð allt fram í andlátið svo að segja. Það lýsti henni langbest, alltaf brosandi og glöð þó hún ætti erfitt með að tjá sig að öðru leyti. Guð blessi minningu þína. Jón Friðrik Jóhannsson. Við systkinin höfum verið heppin að því leyti til að við höfum ekki áður misst svo náinn aðstandanda. Amma fór fyrst. Kannski er það þannig að við fráfall svo náins aðstandanda sitja bara góðu minningarnar eftir. Þær gera það hjá okkur að minnsta kosti. Við munum eftir því hvað okk- ur þótti gaman að heimsækja ömmu og afa á ættaróðalið við Laugarás- veginn. Við fengum alltaf einstakar móttökur þar. Gátum leikið okkur í garðinum, sem virkaði svo ævintýra- lega stór fyrir litla krakka. Sum okk- ar klifruðu upp á steina og upp í tré, aðrir léku sér í fótbolta. Þar hittum við frændsystkini okkar reglulega og áttum góðar stundir saman, allt undir vökulum augum ömmu. Vær- um við dugleg fengum við stundum upprúllaðar pönnukökur með sykri og ískalda mjólk eftir á. Í minning- unni geymdi gamli ísskápurinn í eld- húsinu köldustu mjólk Íslands. Amma virtist alltaf í góðu skapi og var einstaklega barngóð. Hún var ein þeirra sem hafa róandi nærveru. Hún reiddist Jóni Skafta ekki einu sinni, þegar hann reyndi árið 1984, þriggja ára gamall, að bakka spón- nýrri Mercedes Benz bifreið for- eldra sinna niður brekkuna á Laug- arásveginum og niður á umferðargötu, með „áhugaverðum“ afleiðingum fyrir hleðslu í inn- keyrslu nágrannans. Okkur grunar reyndar að foreldrar okkar hafi fengið orð í eyra vegna bílstjórans unga. Það er okkur minnisstætt hve þétt amma Hekla studdi alla tíð við bakið á afa Geir. Hún virtist alltaf styðja hann í öllu sem hann gerði. Hún talaði um að hann hefði verið glæsilegastur allra manna á íþrótta- vellinum. Hún var alltaf svolítið skotin í honum, það sást langar leiðir og m.a.s. undir hið síðasta. Og það var gagnkvæmt. Amma og afi voru lífsförunautar í fyllsta skilningi þess orðs og góðar fyrirmyndir. Síðustu ár ömmu Heklu voru henni og þeim sem henni stóðu næst, erfið. Hún háði baráttu við erfiðan sjúkdóm. Eins sorglegt og okkur þótti að sjá minningar hverfa, orð gleymast og aðstandendur verða ókunnuga, erum við óendanlega þakklát fyrir það að hún hélt per- sónuleika sínum allt til hins síðasta. Alltaf hlý og góð. Það var samt svo skrítið að stundum virkaði hún eins og hún hefði engu gleymt. Stundum endurheimtum við hana í litla stund. Það lifnaði til dæmis sérstaklega yfir henni þegar við kíktum í heimsókn til hennar á Eir með börnin okkar – barnabarnabörnin hennar. Gamal- kunnug handtök gleymdust ekki, hún tók börnin til sín, hélt á þeim, ruggaði og söng barnavísur. Á svona stundum kom svo berlega í ljós hvaða mann amma Hekla hafði að geyma, börnin löðuðust að henni og leið vel hjá henni. Amma var heppin að eiga börn eins og Gunnu, Árna og mömmu okkar, Margréti, sem reyndust henni svo vel í langvinnum og erfiðum veikindum, hvert á sinn hátt. Missir þeirra og afa Geirs er mestur. Við þessi tímamót er okkur efst í huga þakklæti vegna þeirra ára sem við fengum með ömmu okk- ar. Hún var einstök og yndisleg kona. Hennar verður sárt saknað. Blessuð sé minning hennar og megi hún hvíla í friði. Hólmfríður, Geir, Jón Skafti, Árni. Það er sárt að kveðja ömmu mína og nöfnu en á sama tíma er gott að hugsa til þess að hún er loksins laus undan sjúkdómi Alzheimers. Ég var ekki nema um 13 ára gömul þegar hún greindist og mér þykir það sárt að hafa ekki fengið að kynnast henn- ar persónuleika betur á mínum full- orðinsárum. En æskuminningar mínar með ömmu eru margar og allar góðar. Ég man t.d. eftir löngu göngutúrunum sem við tókum í Laugardalnum eða niður Laugaveginn þar sem við end- uðum við tjörnina til að gefa önd- unum, ég man eftir að hafa leikið mér löngum stundum á Laugarás- veginum þar sem auðvelt var að leyfa ímyndunaraflinu að leika laus- um hala, ég man líka eftir hversu gaman það var að leika í garðinum hjá ömmu og afa á góðum sumardegi á meðan þau voru að vinna í garð- inum. En það sem ég man helst eftir er öll skiptin sem ég og mamma kíktum í kaffi til ömmu og fengum þá oftast eitthvað nýbakað eins og frægu vínarbrauðin hennar eða sandköku og svo var auðvitað alltaf til ískalt malt í ísskápnum. Ég held ég eigi alltaf eftir að muna eftir ömmu í þessu litla eldhúsi þar sem hún kenndi mér t.d. á klukku og að telja upp í hundrað. Amma Hekla var mikil hand- verkskona og eigum við fjölskyldan marga sokka og peysur sem hún hef- ur prjónað. Það er að miklu leyti henni að þakka að ég fékk áhuga á sauma- og prjónaskap, ég gleymi því ekki hvernig ég lék mér alltaf í saumaherberginu fiktandi í öllu sem ég mátti ekki fikta í en í leiðinni fékk ég að kynnast þessu öllu. Amma Hekla var ein besta kona sem ég hef kynnst og get ég með sanni sagt að ég hefði ekki getað valið betri nöfnu og ég ber nafn hennar með stolti. Ég kveð ömmu Heklu með sökn- uði, hvíl í friði. Hekla Jónsdóttir. Elsku amma Hekla, nú ert þú horfin á braut og munum við bræð- urnir sakna þín mikið og minnast þín með hlýhug enda hefur þú alltaf ver- ið okkur svo góð. Á tímum sem þessum þá getur maður ekki annað en rifjað upp allar góðu minningarnar sem við eigum um hana ömmu Heklu. Æskuárin á Laugarásveginum munu lengi lifa í okkar minni en þar ólumst við upp í húsinu hennar ömmu og afa. Það var alltaf gott að vita af ömmu Hekla Árnadóttir ✝ Einar Páll fæddistá Eskifirði 28. októ- ber 1923. Hann lést á Dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Upp- sölum 3. nóvember sl. Einar var sonur hjónanna Ágústs Páls- sonar sjómanns og verkamanns, f. 11. ágúst 1886, d. 5. maí 1955, og Sigurlaugar Stefaníu Einarsdóttur húsfreyju, f. 24. sept- ember 1896, d. 24. des- ember 1970. Systkini Einars eru Stefán Sig- urður, f. 2. febrúar 1917, d. 22. nóv- ember 1998. Guðlaugur, f. 2. apríl 1919, d. 24. júlí 2004. Guðný Lára, f. 10. desember 1920, d. 9. febrúar 1931. Óskar Ingólfur, f. 2. júní 1926. Pétur, f. 6. febrúar 1929, d. 8. júní 1999. Guðný Lára, f. 20. nóv- ember 1931. Hjör- dís, f. 29. maí 1933. Guðmundur Gunn- steinn, f. 17. febrúar 1936. Veiga Jenný, f. 19. júní 1938. Einar fór ungur á sjó og vann við það þar til hann hætti vegna aldurs. Einar var jarðsunginn frá Fá- skrúðsfjarðakirkju 11. nóvember 2010. Í dag kveðjum við Einar Pál eða Einsa Gústa eins og hann var ávallt kallaður. Einar bjó í Pétursborginni allt sitt líf að undanskildum síðustu árunum en þeim eyddi hann á Dval- ar- og hjúkrunarheimilinu Uppsölum á Fáskrúðsfirði. Einar stundaði sjó- inn frá barnæsku og þar til heilsan sagði til sín. Sjómannslífið kunni hann nú aldeilis að meta og kveðjum við Einar með þessu sjómannstexta sem átti mjög vel við hann þegar sjó- mannslífið stóð sem hæst. Sjómannslíf, sjómannslíf, draumur hins djarfa manns, blikandi bárufans, býður í trylltan dans. Sjómannslíf, sjómannslíf, ástir og ævintýr, fögnuð í barmi býr brimhljóð og veðragnýr. Ship-ohoj, ship-ohoj, ferðbúið liggur fley. Ship-ohoj, ship-ohoj, boðanna bíð ég ei. Við stelpurnar segi ég ástarljúf orð, einn, tveir, þrír kossar svo stekk ég um borð. Ship-ohoj, ship-ohoj, mig seiðir hin svala dröfn. Ship-ohoj, ship-ohoj, og svo nýja í næstu höfn. (Loftur Guðmundsson) Við sendum systkinum og öðrum aðstandendum Einars innilegar sam- úðarkveðjur. Jóhannes Marteinn og Jóhanna Kristín. Fáein kveðjuorð. Tryggur vinur og traustur félagi er allur, áttatíu og sjö árunum rétt náði hann áður en kallið kom. Einar var svo sannarlega vinur vina sinna og hann var einlægur og ákveðinn í skoðunum, það kom enginn að tóm- um kofunum sem átti við hann orða- stað, orðheppinn var hann og átti auðvelt með að sjá hið broslega í til- verunni. Við Hanna áttum með hon- um góða stund nú á haustdögum og vináttan góða vermdi eins og alltaf áður er fundum bar saman, en við greindum einnig að þrek og fjör var mjög þorrið. Þegar ég hitti hann síð- astliðið vor þá brosti hann til mín og sagði eins og hann einn gat sagt það: Helgi, erum við ekki enn saman á réttu róli í pólitíkinni? og svo hló hann sínum dillandi hlátri. Það var dýrmætt á sinni tíð að eiga fylgd Einars eins og svo margra va- skra drengja og mætra kvenna á Fá- skrúðsfirði og þakklæti er mér þar efst í huga og ekki síður fyrir þau vin- áttubönd sem þar voru bundin og aldrei röknuðu. Einar ólst upp í stórum systkinahópi og ég fékk að kynnast bæði foreldrum hans og systkinum, einstakt dugnaðar- og sæmdarfólk. Einar kunni best við sig á sjónum, þar sem dugnaður og at- hyglisgáfa hans nutu sín, en hann var alls staðar aufúsugestur í vinnu, þótti hamhleypa ef á þurfti að halda hröð- um handtökum. Kveðja okkar Hönnu að leiðarlok- um er yljuð hlýrri þökk fyrir sam- fylgd áranna, fyrir trúnaðinn við mætan málstað þar sem manngildið ríkti umfram annað, fyrir margar skemmtilegar samverustundir sem brugðu lit sínum og ljóma á dagana og merla í minningunni. Við Hanna sendum samúðarkveðjur til systkina hans og frændgarðs. Blessuð sé minning Einars Ágústs- sonar, þess sanna sómadrengs. Helgi Seljan. Einar Páll Ágústsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.