Morgunblaðið - 12.11.2010, Page 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010
✝ Inger R. Jessenfæddist á Akureyri
30. júní 1937. Hún lést
á hjúkrunarheimilinu
Droplaugarstöðum í
Reykjavík 3. nóvember
síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Viggó R. Jessen
vélfræðingur, f. 30.
september 1909, d. 22.
júní 1990 og Hulda R.
Jessen, f. 13. sept-
ember 1916, d. 7. apríl
2006.
Inger ólst upp á
Hjalteyri við Eyjafjörð til 9 ára ald-
urs, dvaldist síðan með foreldrum
sínum eitt ár í Aberdeen í Skotlandi
en fluttist eftir það til Reykjavíkur.
Bróðir hennar er Kristján R. Jessen
prófessor í taugalíffræði við Uni-
versity College London, f. 21. maí
1949. Kona hans er Rhona Pearson
prófessor emeritus í taugalíffræði
við University College London.
Inger giftist þann 5. apríl 1960 Jó-
hanni Axelssyni prófessor emeritus í
lífeðlisfræði við Háskóla Íslands, f. 5.
júlí 1930. Foreldrar hans voru þau
Axel Jóhannsson, skipstjóri á Siglu-
firði, f. 6. janúar 1899, d. 6. desem-
ber 1975 og Ingiveig Þorsteins-
dóttir, f. 30. desember
1902, d. 17. nóvember
1985. Inger og Jóhann
eiga saman einn son,
Viggó Karl Jóhannsson
iðnhönnuð, f. 3. októ-
ber 1974. Sambýlis-
kona hans er Guðrún
Halldóra Sigurð-
ardóttir framhalds-
skólakennari, dóttir
hennar er Laufey
Soffía Þórsdóttir.
Inger lauk landsprófi
frá Gagnfræðaskóla
Vesturbæjar í Reykja-
vík, varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1957 og lauk
kennaraprófi 1958. Inger nam sál-
fræði við háskólann í Gautaborg og
lauk B.S. prófi í líffræði frá Háskóla
Íslands 1980. Hún starfaði lengst af
við kennslu, m.a. við Laugarnes-
skóla, Langholtsskóla og Hagaskóla
í Reykjavík, Flensborgarskóla í
Hafnarfirði og Menntaskólann í
Kópavogi. Hún var einnig stunda-
kennari í lífeðlisfræði við Háskóla
Íslands og starfaði í leikskólunum
Vesturborg og Sæborg í Reykjavík.
Útför Ingerar fer fram frá Nes-
kirkju í Reykjavík í dag, 12. nóv-
ember 2010, og hefst athöfnin kl. 13.
Elsku fallega og skemmtilega Ing-
er.
Besta vinkona móður minnar,
uppáhalds frænka mín og vinkona.
Það er svo sárt að sjá þig fara frá okk-
ur, en á sama tíma gott að vita að fal-
leg sál þín er komin á betri stað. Þú
kenndir mér margt, varst ávallt flott-
ust og innblástur fyrir mig frá barns-
aldri. Fórst í gegnum erfiðleika og
veikindi í lífinu með ótrúlegri reisn og
styrk. Kenndir mér á jákvæðan hátt
snemma að sjá að það eru margar
hliðar á lífinu og mismunandi lífsstíl-
ar. Fórst oftast ekki hefðbundnar
leiðir og varst yfirleitt á eigin tíma, en
tókst alltaf að dáleiða mann og
gleyma öllu með nærveru þinni. Þú og
þín hæfileikaríka fjölskylda. Ég
þakka þér fyrir allar frábæru minn-
ingarnar og sögurnar, sem við eigum
frá okkar samskiptum í gegnum árin.
Inger mín, þín er mikið saknað, en
ég veit að þú ert áfram með okkur og
á góðum stað.
Jóhann, Viggo Karl, Gunna, Krist-
ján og Rhona, ég samhryggist ykkur
innilega. Vona að þið finnið hugrekki
og styrk á þessum erfiðu tímum.
Sjáumst vonandi á komandi jólum.
Ykkar,
Edda.
Ég hitti Inger fyrst í sumardvöl í
Vindáshlíð árið 1951. Þetta var sól-
ríkt, gott sumar og við nutum dval-
arinnar vel. Þarna hitti ég líka Dóru
Reyndal og upp frá því urðum við
þrjár góðar vinkonur. Þar áttum við
stöllurnar skemmtilegar stundir sum-
ar eftir sumar og bjuggum síðan að
þeirri reynslu.
Inger fékk kristilegt uppeldi við
mikið ástríki og var æskuheimili
hennar glæsilegt menningarheimili
þar sem voru amma, foreldrarnir og
yngri bróðir. Hún var fallegt barn,
ljóshærð og bláeygð, grönn, en sam-
svaraði sér vel og þannig var hún alla
tíð. Inger var glaðleg og hlý, fremur
dul gagnvart ókunnugum en sérlega
trygg vinum sínum. Hún varð stúdent
frá MR, lauk kennaraprófi frá KÍ og
stundaði síðan kennslu við barnaskóla
um nokkurt skeið. Á heimleið með
Gullfossi frá Kaupmannahöfn kynnt-
ist hún eftirlifandi eiginmanni sínum,
dr. Jóhanni Axelssyni. Varð þar ást
við fyrstu sýn sem entist til leiðarloka.
Þau Inger og Jóhann giftu sig svo í
Englandi þar sem hann vann við
rannsóknir og háskólakennslu og
einnig bjuggu þau í Svíþjóð í nokkur
ár. Eftir heimkomuna kenndi Inger
um tíma en fór síðan í nám í lífeðl-
isfræði við HÍ. Á þeim árum rættist
svo langþráður draumur þegar þeim
fæddist sonurinn Viggó Karl, sem
varð augasteinn þeirra. Þrátt fyrir
aukið annríki lauk Inger námi og
stundaði síðan kennslu við mennta-
skóla. Á árunum sem eftir fylgdu vor-
um við vinkonurnar þrjár duglegar að
hittast, ýmist í afmælum okkar og
barnanna eða þá á kaffihúsum að
ógleymdum sumarbústaðaferðum.
Og ekki má ég gleyma hve gaman
mér þótti að hitta Huldu, móður Ing-
erar, af þessum tilefnum. Hún var
alltaf svo ung í anda og skemmtileg
kona, sem fylgdist vel með lífi okkar
Dóru og barnanna okkar. Þau eru
orðin mörg fjölskylduboðin á heimili
Ingerar og Jóhanns á Grenimelnum
þar sem við vinir þeirra nutum góðra
stunda á fallegu heimili, sem ber vott
um smekkvísi og listfengi gestgjaf-
anna.
Allt líf okkar stefnir eina braut – að
kveðjustund. Sú stund kemur oft fyrr
en varir og er ekki okkar mannanna
að velja. Fyrir nokkuð mörgum árum
dró ský fyrir sólu þegar Inger greind-
ist með Parkinson-sjúkdóminn sem
varð henni mjög erfiður þótt hún nýtti
persónulega kosti sína, þekkingu og
lífsvilja að fullu í baráttunni. Síðustu
árin hrakaði henni mikið þó að allt
væri reynt henni til hjálpar. Hún
sýndi þá mikið hugrekki, reisn og
æðruleysi þótt hún horfðist í augu við
hið óhjákvæmilega. Það var hörmu-
legt að horfa upp á hve sjúkdómurinn
fór illa með Inger og þótti mér erfitt
að geta ekki heimsótt hana oftar en
raun bar vitni vegna eigin veikinda.
En þá mátti stóla á hana Dóru mína
að líta til hennar og uppörva.
Ég var lánsöm að eiga elsku Inger
mína að vinkonu og mun ég sakna
hennar sárt og bið góðan Guð að
blessa hana í nýjum heimkynnum.
Elsku Jóhann, Viggó, Kristján og
aðrir aðstandendur, við Magnús
sendum hjartanlegar samúðarkveðj-
ur.
Gunnhildur Schram.
Við vorum nokkrar skólasystur úr
Menntaskólanum í Reykjavík, sem
stofnuðum saumaklúbb stuttu eftir
stúdentspróf 1957. Eftir því sem árin
liðu bættust fleiri í hópinn og urðum
við alls átta talsins. Inger er önnur til
að kveðja úr okkar hópi. Margar okk-
ar kynntust Inger í gagnfræðaskóla
og síðan MR. Inger var einkar glæsi-
leg ung stúlka, góðum námsgáfum
gædd og elskuleg í viðmóti. Æsku-
heimili hennar var í Vesturbænum og
þangað komu sumar okkar og kynnt-
umst foreldrum hennar, bróður og
ömmu. Þetta var einstaklega listrænt
og fallegt heimili og ólst Inger upp við
gott atlæti.
Inger starfaði mikið fyrir KFUK
og eignaðist þar marga vini. Hún lauk
prófi frá Kennaraskóla Íslands 1958,
B.S prófi í líffræði frá HÍ 1980 og
kenndi um árabil, Eftir að við vinkon-
urnar giftum okkur hittumst við oft
ásamt mökum og eigum við margar
góðar minningar frá þeim tíma. Það
var oft glatt á hjalla í saumaklúbbnum
og Inger var góður félagi, skemmtileg
og glögg og það var gott að vera í ná-
vist hennar. Hún fór ekki varhluta af
veikindum, en bar sig alltaf vel og
sýndi ótrúlega þrautseigju í sínum
erfiðu veikindum í lokin. Hún mætti
oft til að hitta bekkjarsystur okkar,
þó hún væri orðin mjög veik, en hug-
urinn bar hana hálfa leið.
Inger giftist Jóhanni Axelssyni
prófessor og eignuðust þau soninn
Viggó Karl, sem var hennar auga-
steinn og mikil hjálparhella. Við vilj-
um að leiðarlokum senda ástvinum
hennar okkar innilegustu samúðar-
kveðjur og minnumst Inger með
miklum hlýhug.
Helga, Ólöf, Jóhanna, Sigríður
D. Sigríður J. og Svanhildur.
Nú er elsku, besta vinkona mín,
hún Inger, látin. Síðustu árin voru
henni mjög erfið sökum veikinda og
gott að hún þurfti ekki að þjást leng-
ur, en samt sakna ég hennar mikið
eins og hún var, hlý og skemmtileg.
Við kynntumst fyrst í Vindáshlíð 13
ára gamlar, Inger, Gulla og ég, en nú
erum við Gulla bara eftir.
Á unglingsárunum vorum við 3
óaðskiljanlegar og brölluðum margt.
15-16 ára vorum við mikið saman á
kaffihúsum bæjarins, sem var frekar
óvanalegt á þeim tíma. Við örkuðum
líka á rúntinum eins og aðrir ungling-
ar og alltaf á pinnahælum og nælon-
sokkum, hvernig sem viðraði í frosti
og snjó. Við vorum jú skvísur. Um tví-
tugt fluttumst við Inger báðar til út-
landa og vorum um 10 ára skeið hvor í
sínu landinu og hittumst sjaldan. Þá
voru engir tölvupóstar eða Facebook,
en eftir að ég fluttist heim aftur var
eins og við hefðum aldrei verið að-
skildar.
Inger starfaði lengi sem kennari
eða þar til heilsan fór að gefa sig, sem
var fyrir mörgum árum. Inger var
fagurkeri og mjög listræn í sér. Hún
bjó fjölskyldu sinni fallegt og smekk-
legt heimili og eldaði unaðslegan mat.
Dætur mínar dáðu hana. Litlar
nenntu þær ekki alltaf að elta mig,
þegar ég hitti vinkonur mínar, en ætl-
aði ég að hitta Inger komu þær með
óbeðnar.
Mikið á ég eftir að sakna Inger um
jól og nýár, en fjölskyldur okkar hitt-
ust þá alltaf sl. 35 ár. Síðustu jól kom
Inger reyndar ekki vegna veikinda
sinna. Mikill er söknuður eiginmanns,
einkasonar og bróður, sem hafa látið
sér mjög annt um hana í veikindun-
um. Nú hefur einstaklega yndisleg
manneskja yfirgefið okkur og er sárt
saknað af þeim sem þekktu hana vel.
Dóra Reyndal.
Inger R. Jessen
✝
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför okkar ástkæru,
INGIBJARGAR SVEINSDÓTTUR,
Skólabraut 2,
Grindavík.
Sérstakar þakkir til Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja, deild D, og heimahjúkrunar.
Sigmundur Friðriksson,
Sveinn Sigmundsson, Anna Másdóttir,
Lína Björk Sigmundsdóttir, Bjarni Guðmundsson,
Kolbeinn Sigmundsson, Hólmfríður Halldórsdóttir,
Árdís Sigmundsdóttir, Ómar Grétarsson,
Svavar Sigmundsson, Áslaug Magnúsdóttir,
Daníel Sigmundsson, Linda Mjöll Stefánsdóttir,
Þröstur Sigmundsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
ELSA PETRA BJÖRNSDÓTTIR,
Skálarhlíð,
Siglufirði,
verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju laugar-
daginn 13. nóvember kl. 14.00.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Kvenfélagið Von.
Ingimar H. Þorláksson,
Erla Hafdís Ingimarsdóttir, Konráð Karl Baldvinsson,
Guðfinna Sigríður Ingimarsdóttir,
Þórdís Petra Ingimarsdóttir, Ragnar Ragnarsson,
Jóhanna Ingimarsdóttir, Sveinn Einarsson,
Sólrún Ingimarsdóttir, Oddur Óskarsson,
Björn Þór Ingimarsson, Lukrecija Bokan Daníelsdóttir,
Birgir Ingimarsson, Pálína Kristinsdóttir,
Bylgja Ingimarsdóttir, Guðbrandur Skúlason,
Rakel Björnsdóttir, Thomas Fleckenstein,
Baldvin Kristjánsson, Jóna Heiðdal.
✝
Ástkær faðir okkar og afi,
DRAUPNIR HAUKSSON,
Hringbraut 61,
Keflavík,
er látinn.
Útför hefur farið fram frá Keflavíkurkirkju, í kyrrþey.
Okkar innilegustu þakkir til sóknarprestsins,
Skúla S. Ólafssonar, fyrir frábæra þjónustu og alúð.
Hildur Mekkín Draupnisdóttir,
Dagný Lind Draupnisdóttir,
Mikael Aron Hildarson.
✝
Elsku litla dóttir okkar, systir og barnabarn,
REBEKKA ÝR GUÐMUNDARDÓTTIR,
lést á Barnaspítala Hringsins fimmtudaginn
4. nóvember. Útför hennar hefur farið fram í
kyrrþey.
Starfsfólki Barnaspítala Hringsins færum við hug-
heilar þakkir fyrir sín einstöku störf og umhyggju,
sem og öllum öðrum er hafa sýnt okkur samhug og
stuðning. Við biðjum þá sem vilja minnast Rebekku
Ýrar að láta Barnaspítala Hringsins njóta þess.
Auður Sif Sigurðardóttir, Guðmundur Már Þorsteinsson,
Rakel Emma Guðmundardóttir,
Ólöf Ólafsdóttir, Grétar Karlsson,
Áslaug Björt Guðmundardóttir, Þorvaldur Daníelsson,
Sigurður Einar Steinsson, Soffía Gunnlaugsdóttir.
Elsku amma mín.
Nú þegar þú hefur
lygnt þínum augum aftur í hinsta sinn
byrja minningarnar um þig að líta
dagsins ljós. Góðar og bjartar minn-
ingar um konu sem gaf sér góðan
tíma í okkur börnin.
Ég man þau mörgu sumur sem ég
fékk að koma frá Bolungarvík til
ömmu og afa á Bíldó. Hversu mikið ég
hlakkaði til að koma á Dalbrautina, í
litla húsið ykkar. Ég man natnina, ró-
lyndið og hlýjuna sem ég fékk frá þér
elsku amma. Ég man sögurnar,
fræðsluna og vináttuna. Ég man eftir
kvöldkaffinu, brauð með hangikjöti
og eplum, ég man eftir öllum kara-
mellusjeikunum sem ég sótti á Vega-
mót fyrir okkur. Ég man gleðina við
endurfundina. Ég man sköpunargáf-
una þína, þú gast breytt tvinnakefli í
Svanborg
Guðmundsdóttir
✝ Svanborg Guð-mundsdóttir
fæddist á Kvígind-
isfelli í Tálknafirði
25. desember 1921.
Hún lést á Heilbrigð-
isstofnuninni á Pat-
reksfirði 15. október
síðastliðinn.
Svanborg var jarð-
sungin frá Bíldudals-
kirkju 23. október
2010.
lampafætur, gömlum
disk í veggúr og þar
fram eftir götunum.
Ekki vantaði hug-
myndaflugið. Ég man
kennsluna við útsaum
og straujárnið (ekki of
heitt á silki). En ég
man og mun ávallt
muna alveg einstaka
konu með mikla þolin-
mæði, ástúð og um-
hyggju, blíð augun og
mjúkar hendur. Ég
man ótalmarga tíma
sem við eyddum saman
í garðinum þínum; rabarbara, kart-
öflur, blómin, runnana og ilminn af
öllu í bland, og þú studdir þig við rek-
una. Ég man ferðirnar yfir á Suður-
eyri með Dodda afa á moskvítsnum
og kaffiblandið sem ég drakk því
mjólkin gleymdist.
Elsku amma mín, nú hefur þú kvatt
þennan heim, og ég veit að nú manst
þú líka. Elsku amma, ég er þér þakk-
lát fyrir þitt framlag í mitt líf og visku.
Þú ert og munt ávallt vera í mínu
hjarta elsku amma, söknuðurinn er
mikill og tapið stórt. Elsku blíða, þol-
inmóða, sterka og yndislega amma
mín, megi guð geyma þig í þinni
hinstu för.
Þín sonardóttir og nafna,
Svanborg.