Morgunblaðið - 12.11.2010, Síða 35
DAGBÓK 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG GET EKKI HENT ÞESSUM
BOL, ÉG ER BÚINN AÐ EIGA
HANN SVO LENGI!
HJÁLPAÐU MÉR
AÐ SANNFÆRA
HANA
BEEP! LÁTTUMIG FÁ
BOLINN!
ÞAÐ ER SVO GOTT
AÐ KOMA HEIM
ÉG MÆLI MEÐ ÞVÍ AÐ
ÞÚ FLYTJIR ÚT FYRIR
HÁDEGI Á MORGUN AF
HVERJU?
RÍKIÐ ÆTLAR AÐ BYGGJA VEG SEM MUN
LIGGJA BEINT Í GEGNUM HÚSIÐ ÞITT
BÍDDU AÐEINS...
SETTU ANSJÓSUR
Á EINN FJÓRÐA
AF PÍTSUNNI!
VERKEFNIÐ HENNAR KÖTU HEFUR GERT
MIG MIKLU MEÐVITAÐRI UM
ORKUNOTKUN HEIMILISINS
Í HVERT SKIPTI SEM ÉG KVEIKI
LJÓSIÐ ÞÁ LÍÐUR MÉR
EINS OG ÉG SÉ AÐ BRÆÐA
NORÐURHEIMSKAUTIÐ
ÞAÐ ER
NÚ LÍKA HÆGT
AÐ VERA OF
MEÐVITAÐUR
ÞARNA FÓR
ANNAR
ÍSBJÖRN
ÉG ER
AÐ LEITA AÐ
TOMMY
DILLON!
HANN
ER Í HERBERGI
754
ÞAÐ GERIST ALDREI NEITT SPENNANDI
Á ÞESSUM SPÍTALA!
ÞAÐ ER EINS GOTT
AÐ ÞAÐ SÉ Í LAGI MEÐ
TOMMY, ANNARS GÆTI ÉG
VERIÐ Í MIKLUM VANDA!
Carlos er týndur
Carlos er fjögurra ára, svartur og
hvítur, hann er með græna ól með
bláu merkispjaldi, hann er örmerkt-
ur, 208224000162287. Hann býr í
Bogahlíð (105) og hans er sárt sakn-
að. Mig grunar að hann hafi læst sig
einhvers staðar inni, það væri vel
þegið ef fólk í Hlíðunum vildi athuga
hvort hann leynist nokkuð í úti-
geymslum t.d. ruslageymslum og
hjólageymslum.
Hringið í síma 899-2424.
Svana.
Þegar ég las tillögu Margrétar
Sverrisdóttur, í mannréttindanefnd
Reykjavíkurborgar, varðandi krist-
indómsfræðslu, sá ég
ekki betur en um beina
aðför að kristin-
dómnum væri að ræða.
Ég sá líka að það er
bæði sniðugt og
lymskulegt að ætla að
byrja á blessuðum
börnunum.
Okkur Íslendingum
hefur tekist að mynda
mannlegt þjóðfélag þar
sem hinum smæstu er
ekki gleymt. Segja má
að áhrifa frá kenn-
ingum Jesú Krists gæti
víða í okkar samfélagi
enda kristnin langþró-
uð í landinu. Vitað er að
á myrkum öldum fortíðarinnnar var
kristin trú vonarstjarna, haldreipi og
aflgjafi fólksins.
Það væri fróðlegt að vit hvernig ís-
lenska þjóðfélagið væri í dag ef þjóð-
in hefði aldrei tekið kristna trú.
Í dag þarf þjóðin á samstöðu að halda
og kærleika, en ekki trúleysi og fá-
tækt. Ég held að Margrét Sverris-
dóttir og hennar líkum væri hollt að
rifja upp hvernig fór fyrir þeim ríkj-
um þar sem markvisst og ötullega
var unnið að útrýmingu kristindóms-
ins.
Vigfús B. Jónsson.
Ást er…
… að versla fyrir
manninn í lífi þínu.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, bingó
kl. 13.30. Dans kl. 20.
Árskógar 4 | Smíðar kl. 9, bingó og
jóga kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Kertanámskeið,
handavinna, myndbandssýning, Brúð-
guminn kl. 13.
Dalbraut 18-20 | Söngstund með Lýð
kl. 14.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
botsía kl. 10.45.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Bók-
menntaklúbbur kl. 13. Námskeið í Kjal-
nesingasögu kl. 14, umsjón Tryggvi Sig-
urbjarnarson. Dansleikur
sunnudagskvöld kl. 20, Klassík leikur.
Félagsheimilið Boðinn | Leikfimi kl.
12. Pálmar stjórnar söng og spilar undir
á harmonikku kl. 13.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl.
9.30/13, málm- og silfursmíði kl. 9.30/
13, jóga kl. 10.50, félagsvist kl. 20.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður kl. 9, jóga kl. 9.15, ganga kl. 10,
leikfimi kl. 10.30, Gleðigjafarnir kl. 14.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 8.15 og 9.15, málun kl.
10, leðursaumur og félagsvist kl. 13.
Skráning á jólahátíð 4. des. hafin.
Félagsstarf Gerðubergi | Bókband kl.
9, leiðbeinandi frá hádegi, prjónakaffi
kl. 10, stafganga kl. 10.30. Frá hádegi er
spilasalur opinn. Kóræfing kl. 15.30.
Mánudaginn 15. nóv. kl. 7.30 verður
Kristbjörg Kjeld borgarlistamaður gest-
ur í pottakaffi í Breiðholtslaug. Föstud.
19. nóv. kl. 15 dagskráin Guðrún frá
Lundi lifir enn.
Háteigskirkja - starf eldri borgara |
Bridsaðstoð kl. 13.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, leikfimi
kl. 11.30, brids kl. 12.30, næsti dans-
leikur 19. nóv. Þorvaldur Halldórsson
leikur, kr. 1000. Biljardstofa og pílukast
í kjallara op. kl. 9-16.
Hvassaleiti 56-58 | Lífsorkuleikfimi kl.
8.30, 9.30 og 10.30, vinnustofa kl. 9.
Myndlist kl. 13. Bíódagur kl. 13.30, kaffi-
sala í hléi. Fótaaðgerðir, hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið/
dagblöðin/morgunsopi kl. 8.50. Gönu-
hlaup, tai chi og listasmiðjan kl. 9,
myndlist. Gáfumannakaffi kl. 15. Agnes í
Hæðargarðsbíó kl. 16.
Íþróttafélagið Glóð | Botsía í Gjá-
bakka kl. 13. Sundlaug Kóp.: Ganga kl.
16.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða-
klúbbur kl. 10.10, leikfimi kl. 11, opið
hús vist/brids kl. 13.
Norðurbrún 1 | Myndlist, vinnustofa kl.
9, útskurður, bingó kl. 14.
Vesturgata 7 | Skartgripa/kortagerð kl.
9, enska kl. 11 30, tölvukennsla kl.
13.30, sungið v/flygilinn kl. 14.30, dans-
að í aðalsal kl. 14.30-16.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, leir-
mótun kl. 9, handavinnustofa opin,
morgunstund kl. 9.30, bingó kl. 13.30.
Þórðarsveigur 3 | Bingó kl 13.30.
Þorfinnur Jónsson á Ingveldar-stöðum í Kelduhverfi er ósátt-
ur við aðgerðir ríkisstjórnarinnar,
sem hann segir hana beita gegn
eldri borgurum án tillits til þess
hvort þeir eigi krónu eða séu far-
lama:
Pólitíska stefnan streymir
stundum lítið merk;
Íslands saga um aldir geymir
unnin níðingsverk.
Vitsmuna vanþroska lýður
villtist af réttri slóð;
sveitamanninum svíður
svikin við land og þjóð.
Stílbrot ef stjórninni hrósa
er strandar við afglapa sker;
í helvíti fyrr myndi frjósa
en fengju þau krónu frá mér.
Hagyrðingurinn smekkvísi Stef-
án Vilhjálmsson vinnur hjá hinni
frómu Matvælastofnun (MAST),
sem er með höfuðstöðvar á Selfossi,
er rekur einnig starfsstöðvar úti á
landi, t.d. á Akureyri, í Reykjavík
og víðar. Í léttu spjalli við sam-
starfskonur í höfuðstöðvum nefndi
ein þetta „úti-á-landi-lið“ sem alltaf
væri með eitthvert vesen. Heim
kominn barði Stefán saman „fimm-
skeytlu“:
Þetta „úti’-á-landi-lið“
leggst í sút og þras.
Er af ró og innri frið
annars nóg hjá MAS-
T.
Leiðbeiningar fylgja frá Stefáni:
„Lesið upphátt og vandið framsögn,
sérstaklega á 5. hendingunni!“
Hjálmar Freysteinsson fylgdist
að venju með fréttum og fylltist
þjóðarstolti:
Munið allir Mammons synir
að missa ekki gróðavon.
Ennþá finnast Íslandsvinir
eins og Roger Davidson.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Mammon og ríkisstjórn