Morgunblaðið - 12.11.2010, Page 36
36 MENNINGFréttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010
Tríó Þórunn Ósk leikur á víólu, Ari Þór á fiðlu og Sigurgeir á selló.
Á þriðju tónleikum starfsárs Kamm-
ermúsíkklúbbsins í Bústaðakirkju á
sunnudag kl. 20, verða flutt strengja-
tríó í c-moll opus 9 nr. 3 eftir Ludwig
van Beethoven og „Goldbergtilbrigð-
in“ eftir Johann Sebastian Bach. Til-
brigðin, þessi fræga „aría með 30 til-
brigðum“, verða flutt í umritun fyrir
strengjatríó eftir Dmitry Sitkovetsky
í fyrsta skipti á Íslandi. Flytjendur á
tónleikunum eru þau Ari Þór Vil-
hjálmsson fiðluleikari, Þórunn Ósk
Marinósdóttir á víólu og Sigurgeir
Agnarsson sellóleikari.
„Goldbergtilbrigðin voru samin
fyrir hljómborð af Bach og eru eitt af
stærstu einleiksverkum barokktím-
ans á hljómborð. Svo var þessi út-
setning fyrir strengi gerð fyrir sirka
20 árum og þetta er nótu fyrir nótu
það sem stendur í píanópartinum,
umskrifað fyrir strengi. Tilbrigðin
eru öll mjög ólík og eru tvær til fimm
mínútur að lengd þannig að stykkið
getur verið frá 50 og upp í 90 mínútur
í flutningi,“ segir Ari Þór. „Sum til-
brigðin eru mjög hröð og spennandi
og önnur hæg og innhverf þannig að
það er mjög mikil breidd í þessu.“
holmfridur@mbl.is
Þrjátíu tilbrigði
Á morgun, laugardaginn 13.
nóvember, efnir Leikminjasafn
Íslands til málþings um fram-
lag RÚV til íslenskrar leik-
listar í tilefni af áttatíu ára af-
mæli Ríkisútvarpsins. Á
málþinginu verða flutt fjögur
stutt, fræðileg erindi og síðan
tvö erindi um stöðu leikins efn-
is í dagskrá Útvarps og Sjónvarps um þessar
mundir. Undir lokin verða síðan pallborðs-
umræður með þáttöku Páls Magnússonar út-
varpsstjóra og Viðars Eggertssonar verkefn-
isstjóra leiklistar hjá RÚV en stjórnandi
pallborðsins verður Kolbrún Halldórsdóttir.
Málþingið verður haldið í fyrirlestrarsal Þjóð-
minjasafnsins og hefst kl. 11.
Málþing
Framlag RÚV til
íslenskrar leiklistar
Merki RÚV.
Um helgina verða haldnir
tvennir tónleikar sem bera yfir-
skriftina Gleði-Söngur-Jass-
Draumur, annars vegar í Frí-
múrarahúsinu á Sauðárkróki á
laugardag kl. 16 og hins vegar í
Hofi á Akureyri á sunnudag kl.
16. Á tónleikunum koma fram
Alexandra Chernyshova sópr-
an, Einar Bragi Bragason saxó-
fónleikari, Tomas Higgersson
píanóleikari og kórinn Drauma-
raddir Norðursins ásamt einsöngvurum kórsins.
Kynnir verður Hilmir Jóhannesson. Á efnisskránni
eru lög eins og „Over the Rainbow“ og „Some-
where.“ Aðgangur ókeypis fyrir grunnskólanema,
eldri borgara og öryrkja.
Tónleikar
Gleði á Sauðárkróki
og Akureyri
Alexandra
Chernyshova
Í dag efnir Mannfræðistofnun
til málþings í tilefni af útgáfu
bókarinnar Konan sem fékk
spjót í höfuðið en þingið ber
yfirskriftina Vettvangsrann-
sókn í hnattrænum heimi.
Þar verður m.a. fjallað um
mikilvægi vettvangsrannsókna
í samtímanum en á málþinginu
munu sjö fræðimenn úr Há-
skóla Íslands flytja stutta fyr-
irlestra um vettvangsrann-
sóknir og miðlun niðurstaðna úr slíkum
rannsóknum.
Málþingið stendur frá klukkan 15 til 17 og fer
fram í stofu 101 í Odda. Léttar veitingar verða í
boði að málþinginu loknu.
Málþing
Fjallað um vett-
vangsrannsóknir
Kápa bókarinnar.
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Næstkomandi sunnudag, 14. nóvember, munu Ca-
put hópurinn og Kolbeinn Bjarnason flytja verk
eftir japönsku tónskáldin Toru Takemitsu og Tos-
hio Hosokawa á tónleikum í 15:15 tónleikasyrpunni
í Norræna húsinu. Tilefnið er útgáfa hljómdisks
sem kemur út hjá Naxos í desember en á honum
flytja Caput og Kolbeinn tónlist eftir Hosokawa.
Á efnisskránni eru tvö verk eftir Takemitsu,
Entre-Temps fyrir óbó og strengjakvartett og
Rocking Mirror Daybreak fyrir tvær fiðlur. Spiluð
verða þrjú verk eftir Hosokawa, Atem-Lied fyrir
bassaflautu, Herbst-Lied fyrir klarínett og
strengjakvartett og Fragment II fyrir altflautu og
strengjakvartett.
Takemitsu er af mörgum talinn eitt litríkasta
tónskáld 20. aldarinnar og tókst á sannfærandi hátt
að sameina vestræna framúrstefnu og fornan jap-
anskan tónlistararf. Hann var sjálfmenntaður
tónlistarmaður og samdi meðal annars tónlist við
93 kvikmyndir. Hann hefði orðið áttræður 7. októ-
ber síðastliðinn.
Tónskáldið Hosokawa nýtur hylli víða um heim
og er um þessar mundir að skrifa hornkonsert fyrir
Fílharmóníuna í Berlín. Hann hefur tvívegis komið
hingað til lands og spilaði m.a. með Caput og Kol-
beini á tvennum tónleikum í Listasafninu árið 2005.
„Samstarfið við Hosokawa er þannig tilkomið að
hann skrifaði mér árið 2004 og spurði hvort við ætt-
um ekki að gera eitthvað saman. Hann þekkti að-
eins til diska sem ég hafði gefið út og fann einhvern
samhljóm í því hvernig ég spila á flautuna,“ segir
Kolbeinn. Sjálfur var hann búinn að vera að grúska
í japanskri tónlist síðan snemma á níunda áratugn-
um þegar hann var í námi úti í New York. „Þar
byrjaði ég að læra á shakuhachi, japanska bambus-
flautu, og hef verið amatör-leikari síðan. Ég var
heillaður af hefðbundinni japanskri tónlist sem nær
mjög langt aftur; fyrstu heimildir eru frá 8. öldinni
en þá var hirðhljómsveit keisarans tekin til starfa
og starfar enn.“
Eins og grófur sandpappír
Kolbeinn hefur tvívegis farið út til Japans til að
taka þátt í tónlistarhátíð þar sem Hosokawa er list-
rænn stjórnandi og segir marga spennandi hluti
vera að gerast í nýrri tónlist þar í landi, þar sem
mjög er sótt í fornan menningararf. Það kemur
hins vegar hik á hann þegar hann er beðinn um að
lýsa japanskri tónlist.
„Ef ég ætti að lýsa japanskri tónlist í mjög fáum
orðum þá er hún í raun eins og hugleiðslutónlist en
samt ekki. Hún er mjög spennuþrungin. Hún er
alveg ofboðslega hæg, og það má t.d. sérstaklega
segja um Hosokawa, tónlistin hans er mjög hæg
en það er mikil spenna í henni engu að síður. Þetta
er kyrrlát spenna og þögnin er jafn mikilvæg og
tónninn og hljóðið er jafn mikilvægt og tónninn.“
Kolbeinn segir að Japanir standi nær náttúr-
unni en margar aðrar þjóðir og hugmyndir þeirra
um fagurfræði í tónlist séu öðruvísi en á Vestur-
löndum. „Þeirra hugmynd um fallegan flaututón
er að ef hann líkist sandpappír þá er hann fallegur.
Þeir eru hrifnari af grófum sandpappír en flaueli;
þeir eru ekki að leita að þessu hreina og tæra eins
og við gerum í klassískri tónlist á Vesturlöndum,
heldur einhverjum raunsæjum tóni.“
En er þá ekki krefjandi fyrir íslenska áheyr-
endur að hlusta á japanska tónlist?
„Jú, ég held að þetta geti verið erfitt ef menn eru
ekki vanir að hlusta á framandi tónlist. Sumir eiga
mjög erfitt með að hlusta á það sem er ólíkt því sem
þeir eiga að venjast en aðrir eru hrifnir af því að
heyra eitthvað nýstárlegt. Ég held að flestum
myndi þykja þetta mjög þungt, hún krefst þess að
maður sé næmur og móttækilegur. Það er hins veg-
ar mín reynsla af því að spila nútímatónlist að þeg-
ar fólk kemur að hlusta þá er þetta ekki eins erfitt
og það heldur. Tónleikar eru líka staðurinn til að
upplifa í fyrsta sinn það sem er framandi. Það er
best að vera augliti til auglitis við flytjandann og
þessi japönsku tónskáld vinna til dæmis mikið með
orkuna í flytjandanum sem kemst best til skila á
tónleikum.“
Morgunblaðið/Kristinn
Caput hópurinn Flytur verk tveggja japanskra tónskálda á tónleikum í Norræna húsinu á sunnudag.
Mikilvægar þagnir og
kyrrlát spenna
Caput og Kolbeinn Bjarnason flytja tónlist eftir japönsk tónskáld
Stofukvartettinn leikur á tón-
leikum í Selinu á Stokkalæk á
sunnudag.
Kvartettinn skipa þau Hulda
Björk Garðarsdóttir sópran-
söngkona, Kjartan Valdimarsson
píanóleikari, Ásgeir Ásgeirsson
gítarleikari og Ólafur E. Stolzen-
wald kontrabassaleikari.
Stofukvartettinn mun flytja ým-
is lög hinna þekktu bræðra Ira og
George Gershwin en þeir eru
einna kunnastir fyrir söngleikinn
Porgy og Bess sem margir telja
frumlegasta óperuverk Banda-
ríkjamanna. Stofukvartettinn
mætist á miðri leið í Gershwin-
tónlistinni þar sem klassískur og
djassaður bakgrunnur flytjend-
anna kemur saman.
Hulda Björk lauk einsöngvara-
prófi frá The Royal Academy of
Music í London 1998 eftir að hafa
stundað nám við Hochschule der
Künste í Berlín, Söngskólann í
Reykjavík og Tónlistarskóla Eyja-
fjarðar.
Kjartan Valdimarsson nam
píanóleik við Tónlistarskóla Mos-
fellsbæjar og síðar Berklee Col-
lege of Music í Bandaríkjunum.
Hann hefur einkum leikið djass-
tónlist og popptónlist. Hann er
eftirsóttur útsetjari og hefur m.a.
gert útsetningar fyrir Sinfóníu-
hljómsveit Íslands og Stórsveit
Reykjavíkur.
Ásgeir Ásgeirsson hefur lokið
bæði einleikaraprófi í gítarleik og
kennaraprófi frá Tónlistarskóla
FÍH en nam eftir það við Con-
servatorium Van Amsterdam í
Hollandi. Hann hefur leikið með
flestum vinsælustu tónlistar-
mönnum landsins og margoft ver-
ið tilnefndur til Íslensku tónlistar-
verðlaunanna.
Ólafur Stolzenwald hóf nám við
Tónlistarskóla Rangæinga en fór
síðan í jazzdeild Tónlistarskóla
FÍH, fyrst með rafbassann sem
aðalhljóðfæri. Síðar varð kontra-
bassinn aðalhljóðfæri hans. Ólafur
hefur haldið úti fjölda djass- og
blúshljómsveita, leikið með helstu
djassleikurum landsins og komið
fram á djasshátíðum og tónleikum
víða.
Tónleikarnir hefjast klukkan 16
og eru miðapantanir í síma
4875512 og 8645870.
Stofukvart-
ettinn leik-
ur í Selinu
Tónleikar á Stokka-
læk á sunnudag
Morgunblaðið/Ernir
Tónleikar Stofukvartettinn.
Ég held að þetta sé
bara akkúrat það
sem þjóðin og borgararnir
eru að kalla á núna. 38
»