Morgunblaðið - 12.11.2010, Qupperneq 38
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Helgi Valur & The Shemales gáfu
út nýja plötu í gær sem nefnist
Electric Ladyboyland. Helgi Valur
hefur áður gefið út plöturnar Dem-
ise of Faith (2005) og The Black
man is God, The White Man is the
Devil (2009). „Fyrsta platan mín
var um trúarbrögð eða öllu heldur
dauða þeirra,“ segir Helgi Valur.
„En önnur platan var upphafning
mín á svarta manninum,“ segir
hann. Nýja platan er í anda sóló
listamanna eins og Bobs Dylan þar
sem sungið er um vandann við að
vera manneskja. „Platan er eig-
inlega um það,“ segir Helgi Valur.
„Það er sungið mikið um kynlíf og
sukk, vandann við að vera til, hafa
mikið af áhugamálum og erfið-
leikum.“
Hannhún á sinn rétt
Aðspurður hvaðan nafnið á
hljómsveitinni komi segir hann að
það hafi eiginlega verið hugmynd
bassaleikarans. „Þetta var eitthvert
grín í upphafi af því að það var
bara ein kona í bandinu – she – og
síðan var restin; males. Sem sagt
Shemales,“ segir hann. „En svo
hentaði þessi hugmynd líka vel í
baráttuna því ég hef mikinn áhuga
á þessu félagslega fyrirbæri sem
nefnt er shemales. Þegar sam-
félagið hefur meðtekið shemales
hefur síðasti minnihlutinn verið
tekinn inn, þá hefur öll mannleg
breytni verið samþykkt af sam-
félaginu.“
Nafn plötunnar er vísun í uppá-
haldsplötu Helga sem er Electric
Ladyland eftir Jimi Hendrix.
Hendrix var einmitt að berjast fyr-
ir réttindum kvenna með plötu
sinni og því viðeigandi að Helgi
sem er að berjast fyrir réttindum
shemales nefni plötuna sína Elect-
ric Ladyboyland. En á plötu-
umslaginu er nærmynd milli fóta
Helga sem er í þröngum buxum
þannig að lögun getnaðarlims hans
nær yfir allt umslagið. „Maður er
að ögra viðmiðum um kynhneigð og
kynhegðun. Kærastan mín hannaði
einmitt umslagið og hannaði reynd-
ar þessar buxur líka sem ég er í á
umslaginu,“ segir Helgi. „Hún vill
líka að það komi fram að við lifum í
opnu sambandi. Það er lífsstíll sem
hentar okkur mjög vel,“ segir
Helgi Valur.
Vill ögra viðmiðum um kynhegðun
Hannhún og húnhann eiga sinn rétt til kynfrelsis Hannhúnar sameinist!
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Er þetta eitthvað grín?“ er spurt í
upphafi kynningartexta um heimild-
armyndina Gnarr á miðasöluvefnum
Miði.is. Í myndinni segir af borgar-
stjóra vorum, Jóni Gnarr, allt frá því
hann fékk þá hugmynd að stofna
Besta flokkinn og lét af því verða,
fram að sigri í borgarstjórnarkosn-
ingum sl. vor. Svarið við spurning-
unni fyrrnefndu virðist í fljótu
bragði vera „já“, þ.e. ef miðað er við
stiklu úr myndinni þar sem Jón hlær
út í eitt, á ólíkum augnablikum
myndarinnar.
Kvikmyndagerðarmaðurinn
Gaukur Úlfarsson er höfundur
heimildarmyndarinnar og hann var
önnum kafinn í gær þegar blaða-
maður ræddi við hann, enda stutt í
forsýningu á myndinni í Sambíóinu
nýja í Egilshöll. Gaukur segist hafa
kynnst Jóni fyrir um hálfu öðru ári,
þeir hafi verið að velta því fyrir sér
að skrifa saman sjónvarpsþætti.
„Hann var alltaf með þessa Besta
flokks pælingu í rassvasanum og
mér fannst hún ekkert sérstaklega
góð, var ekki alveg að tengja en svo
eina nóttina, þegar ég gat ekki sofn-
að, kviknaði á einhverri peru í
hausnum á mér og ég uppgötvaði að
þetta gæti verið algjör snilld,“ segir
Gaukur. Hann hafi byrjað að mynda
Jón í byrjun desember í fyrra, þegar
Jón var að reyna að finna sinn póli-
tíska karakter, eins og Gaukur orðar
það, og hætt tökum eftir kosninga-
sigurinn.
Hrópaði ekki „Davíð, Davíð“
– Af stiklum að dæma virðist
myndin vera eitt allsherjar grín, Jón
hlæjandi öllum stundum...
„Hann er náttúrlega þannig týpa
en hann er líka margar týpur, getur
verið alvarlegur og mjög spiritual og
mikill hugsjónamaður,“ segir Gauk-
ur. Sem listamaður hafi Jón brugðist
við kreppuástandinu á Íslandi með
sérstökum hætti, velt því fyrir sér
hvað hann gæti gert fyrir samfélagið
í stað þess að hrópa „Davíð, Davíð“
líkt og margir aðrir listamenn hafa
gert.
– Sýnir Jón á sér nýjar hliðar og
óvæntar í þessari mynd?
„Hann gerir það náttúrlega bara
alltaf, sýnir sína réttu mynd. Þetta
er mjög heiðarleg mynd, þú kemst
ekkert hjá því að vera þú sjálfur.“
– Nú áttir þú þátt í því að búa til
persónuna Silvíu Nótt á sínum tíma.
Er Jón Gnarr að einhverju leyti að
leika persónu í þessari mynd eftir
þínu höfði, ef svo mætti að orði kom-
ast? Er hann að leika hlutverk?
„Já, já, hann er að leika fullt af
hlutverkum og ég var beggja vegna
borðsins, ég var fjölmiðlafulltrúi
flokksins og inni í skrípladeildinni
líka, eins og við kölluðum það. Að því
leytinu var ég með fullt af athuga-
semdum og hugmyndum sem við
ræddum fram og til baka og oft áður
en hann fór í stór viðtöl ræddum við
afturábak og áfram hvernig við vild-
um gera það. En á endanum fór
hann yfirleitt algjörlega eftir sínu
innsæi.“
Talið berst að stefnu Besta flokks-
ins. Gaukur segir flokksmenn hafa
sagt það margoft að þeir væru an-
arkistar og tekur því undir að stefna
flokksins sé stjórnleysisstefna.
– Nú hlýtur að hafa verið rædd
önnur og alvarlegri stefna á bakvið
tjöldin, eða hvað? Það er varla hægt
að stýra borg með anarkisma?
„Það er alveg merkilegt, það eru
búnar að koma fréttir alls staðar, um
allan heim, í stórum blöðum, stór-
fréttir um að anarkistar hafi unnið
stórsigur í Reykjavík en það hefur
aldrei verið rætt um það hérna. Það
eru náttúrlega anarkistar við völd í
Reykjavík.“
– Er nýju ljósi varpað á stefnu
flokksins í þessari mynd?
„Já, já, fólk sem er kannski eitt-
hvað ringlað yfir því hvað það kaus
yfir sig eða hverjir eru að stjórna
hérna, það mun alveg fá öllum þeim
spurningum svarað.“
Fólk ekki búið að fá nóg
– Nú hefur Jón Gnarr verið mjög
mikið í fjölmiðlum síðustu mánuði.
Hefur þú engar áhyggjur af því að
fólk sé búið að fá nóg af honum?
„Nei, ég held að þetta sé bara akk-
úrat það sem þjóðin og borgararnir
eru að kalla á núna. Það er svo mikil
bölsýni og volæði í gangi, það er nóg
af því en aldrei þegar hann kemur
fram. Hann er svona meira í því að
reyna að stappa í okkur stálinu og
gleðja, fá okkur til að brosa og hugsa
um eitthvað annað en gengislán eða
verðtryggingu. Hann reynir aðeins
að opna huga fólks.“
Sálin hans Jóns míns
Heimildarmynd Gauks Úlfarssonar, Gnarr, um borgarstjóra Reykjavíkur
verður frumsýnd í dag Jón leikur mörg hlutverk í myndinni, að sögn Gauks
Morgunblaðið/Eggert
Örlagastund Jón með Gauki í Útvarpshúsinu á kosningadag, 30. maí sl. Dagur B. Eggertsson lengst til hægri og þá-
verandi aðstoðarmaður Jóns, Heiða Kristín Helgadóttir, vinstra megin. Ónefndur maður lengst til vinstri.
Gaukur Úlfarsson er líklega þekkt-
astur sem höfundur eða leikstjóri
sjónvarpsþáttanna um glam-
úrgelluna og dekurdýrið Silvíu
Nótt, sem Ágústa Eva Erlends-
dóttir túlkaði með eftir-
minnilegum hætti.
1. júní sl. var haft eftir Guðna
Ágústssyni, fyrrum formanni
Framsóknarflokksins, að kjós-
endur í borgarstjórnar-
kosningunum hefðu
verið haldnir „Silvíu
Nætur-heilkenni“ og að
mynd Gauks um Jón
Gnarr yrði heims-
kvikmynd um það þegar
aulinn tæki borg og yrði
borgarstjóri.
Í samtali við Morgunblaðið degi
síðar gaf Gaukur lítið fyrir
þessi orð Guðna, sagði al-
rangt að myndin yrði í lík-
ingu við þáttaraðirnar um
Silvíu. „Ég held að þetta
sé dálítið þessi gamli
hugsunarháttur, að
ekkert sé hreint
og beint, en það
er bara alls ekk-
ert þannig. Þó
svo að ég hafi
einhverntímann
gert mjög grófan og pönk-
aðan þátt þá er ekkert
þar með sagt að ég geri
alltaf eitthvað þannig,“
sagði Gaukur m.a.
Sagði kjósendur haldna
„Silvíu Nætur-heilkenni“
EKKERT Í LÍKINGU VIÐ SILVÍU NÓTT
Silvía Nótt
Gun Outfit er frá Washington-
fylki og hefur vakið verðskuldaða
athygli fyrir bræðing sinn af til-
raunakenndu indí-rokki og pönki.
Einnig koma fram My Summer as a
Salvation Soldier, Saktmóðigur,
Me, the Slumbering Napoleon. Tón-
leikarnir hefjast kl. 23.00.
Bandaríska sveitin Gun
Outfit á Faktorý
Fólk
Heimildarmynd þeirra Frosta
Runólfssonar og Haraldar Sigur-
jónssonar um Mínus var sýnd í
Bíó Paradís í fyrrakvöld. Þessi
goðsagnakennd mynd var sýnd
fyrst árið 2004 fyrir fámennum
sal en í þetta sinnið troðfyllti
rokklandslið Íslands Bíó Paradís
og var uppselt á myndina. Mynd-
in vakti mikla lukku á meðal
áhorfenda, og þá sérstaklega
bassafanturinn Þröstur sem fór á
miklum kostum í myndinni svo
ekki sé nú meira sagt. Frammi-
staða hans ein og sér kallar eig-
inlega á framhaldsmynd. Ævin-
týri Fantsins?
Mínus troðfylltu Bíó
Paradís
Áströlsku æringjarnir í Pend-
ulum munu svífa teknóvængjum
þöndum á Nasa nú á laugardaginn.
Það er techno.is sem stendur fyrir
tónleikunum en ásamt Pendulum
leika þeir Exos, Plugg’d, A.t.l., Ag-
zilla og fleiri. Forsala miða er í Mo-
hawks
Pendulum gera allt vit-
laust á NASA